Morgunblaðið - 01.04.1993, Page 59
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. APRIL 1993
Hvar er lýðræðið?
Frá Aðalheiði Jónsdóttur:
Þó að ég eigi sjaldan samleið
með þjóðarsálinni á Rás tvö, tekur
þó út yfir allt þegar hún dembir
yfir stjórnendur þakklæti fyrir frá-
bæra stjórnun, þótt ég hins vegar
skilji mjög vel að þeir sem hafa
sams konar pólitísk viðhorf geti
auðveldlega fallið í sömu pólitíska
gryfiu. - En hvað um það, leyfum
þeim að hvíla í friði í sinni pólitísku
gröf og látum sem það komi okkur
ekki við.
Óðagot Jóns
Man þjóðarsálin eftir fárinu sem
hljóp í Jón Baldvin rétt áður en
þjóðaratkvæðagreiðsla fór fram í
Sviss um EES-samninginn? - „Ef
Islendingar samþykktu samninginn
ekki áður mátti búast við því að
þeir yrðu útilokaðir." Og enn elnaði
Jóni sóttin eftir að Sviss hafnaði
samningnum. - Hvers vegna lét
aumingja maðurinn svona? Augljóst
er að ekki gat hann haft íslenska
hagsmuni að leiðarljósi. - En til-
gangslaust er að hugsa um það,
allt líðst, líka það að færa Alþingi
ósannar fréttir af því sem er að
gerast og á að gerast í þessari
ólystilegu samsuðu ósanninda og
vandræðamennsku. - Og hvar
stendur málið nú? Er ekki refskákin
þegar unnin og íslendingar sitjandi
í súpunni?
Viðeyjarundrin
Að undanförnu hefur sú spurning
mjög leitað á huga minn: Hvers
vegna er forseti íslands þjóðkjörinn?
- Eftir það sem nú hefur gerst
mundi ég líta á slíkt sem skrípa-
leik, minnsta kosti svo lengi sem
ekki er útilokað að hér geti ríkt
annað eins ráðherraveldi og nú dill-
ar sér á valdastólum.
Ég hefi litið svo á fram að þessu
að forseti væri meðal annars full-
trúi lýðræðis og til hans gæti þjóð-
in leitað, ef illvíg stjórnvöld sviptu
hana lýðræðislegum rétti eða full-
veldi þjóðarinnar skert eins og nú
hefir gerst. Þau tvö dæmi um að
forsetar hefðu hafnað þjóðarat-
kvæðagreiðslu virtust skapa hefð í
huga forsetans fyrir fullgildingu
laga um EES-samninginn. Þar er
þó ólíku saman að jafna, þótt eðli-
legt hefði verið að þjóðin fengi að
greiða atkvæði um veru hersins var
þó ekki um að ræða skerðingu á
sjálfsákvörðunarrétti. Ef forseti
finnur í forsetaembættinu hefð fyr-
ir fullveldisskerðingu og því sem
virtir lagaprófessorar líta á sem
stjómarskrárbrot má tala um hefð
fýrir þessum gjömingi, annars ekki.
Hins vegar, sé það rétt sem ráð-
herrar vildu vera láta, að auðvitað
hlyti forseti að samþykkja lögin,
sýnist vera meiri vandi en vegsemd
að gegna þessu háa embætti. - Eru
þá ekki „Viðeyjarfóstbræður“
komnir á toppinn?
Fullgilding þessara laga virðist
mér samþykki á því að þjóðinni sé
ekki treystandi til að greiða at-
kvæði um hvort hún fær að lifa sem
frjáls þjóð í landi sínu eða verður
VELVAKANDI
GÓÐ ÞJÓNUSTA
FLUGLEIÐA
ÉG VILDI koma á framfæri
þakklæti til starfsfólks Flugleiða
á aðalskrifstofu þeirra í Kaup-
mannahöfn. Ég þurfti nauðsyn-
lega að komast heim til íslands
á erfiðum tíma og er skemmst
frá að segja að allt þeirra viðmót
einkenndist af hjálpsemi og hlýju
og þau gengu frá öllum mínum
málum innan lands og utan þann-
ig ég þurfti ekki að hafa áhyggj-
ur af neinu.
Kærar þakkir, starfsfólk Flug-
leiða.
Anna
SLÆMT SÍMASAMBAND
í VESTURBÆNUM
ÉG ER EIN þeirra óheppnu Vest-
urbæinga með þetta ófullkomna
símakerfi sem okkur er boðið upp
á. Nú ætla ég að láta nægja að
kvarta fyrir mína hönd, segja
hvernig símasamband mér hefur
verið boðið upp á til fjölda ára.
Þegar hringt er í mitt númer veit
maður aldrei hvort samband við-
komandi gengur eðlilega fyrir sig
því oft þegar hringt er til mín
eru hljóð, skruðníngar og læti
eins og maður stæði mitt í meiri-
háttar styrjöld. Það er sama úr
hvaða átt er hringt, Hafnarfirði,
Kópavogi, Árbæ eða utan af
landi, lætin og skellirnir kveða
svo við að ég er neydd til að
hringja til baka. Þar sem ég er
öryrki með takmarkaðar mánað-
arlegar tekjur og stend þar að
auki í skilum með allt er ég ósátt
við að þurfa að borga meira en
nauðsynlegt er fyrir símann og
þurfa að borga þau félagslegu
samskipti sem ég fæ frá öðrum.
Ég hef kvartað í 05 oftar en
einu sinni og hingað hafa komið
menn með spekingssvip, en sím-
inn er eins eftir sem áður. Meira
að segja hringdu þeir sjálfír og
fengu hersveitirnar á staðinn en
þá var ekki tími til að athuga
málin, að mér var sagt. Ég hef
skipt um símtæki oftar en einu
sinni á þessu tímabili en allt er
eins og áður.
Ég er ósátt við að vera ekki
með síma eins og aðrir. En hvað
er til ráða?
Anna Ragnarsdóttir
Kvisthaga 4.
LEIÐINLEGAR
ÚTVARPSSÖGUR
MARGRÉT Jónsdóttir hringdi
og sagði að sögur þær sem lesn-
ar væru upp í Ríkisútvarpinu
væru alveg sérstaklega leiðin-
legar og þá ekki síður lesararnir
sem læsu þær upp. Hún vildi fá
að heyra einhveijar þjóðlegar
og góðar sögur. Að hennar
smekk hafa einungis tvær fram-
bærilegar sögur verið lesnar síð-
ustu mánuði og er önnur þeirra
Anna á Stóruborg og hin ævi-
saga Kristínar Dalsteð. Henni
fannst að fólk ætti að láta heyra
í sér í sambandi við þetta.
GÆLUDÝR
Týndur köttur
Grár einlitur persneskur högni
hvarf frá Hraunflöt við Álftanes-
veg föstudaginn 19. þ.m. Upplýs-
ingar í síma 657082 eða 651340.
Fundarlaun.
Týndur köttur
FIMM mánaða gömul svört læða
tapaðist í fyrradag frá Hraun-
tungu 97, Kópavogi. Hafi ein-
hver orðið hennar var er sá vin-
samlegast beðinn að hringja í
síma 42337.
Páfagaukur í óskilum
LÍTILL páfagaukur kom í heim-
sókn í hús í Seljahverfí sl. föstu-
dag. Nú ratar hann ekki heim
til sín og biður eiganda sinn að
hringja í síma 71209.
TAPAÐ/FUNDIÐ
ísaxir fundust
TVÆR ísaxir fundust upp við
Esju við Leirvogsá sl. sunnudag.
Upplýsingar í síma 43842 eða
18285.
að þola það að stór hluti fullveldis-
ins sé fluttur út fyrir einhver toll-
fríðindi á físki og að sjálfsögðu
aukna möguleika fyrir Kolkrabbann
að ávaxta sitt pund betur en unnt
er á örlitlum og fábreyttum fjár-
magnsmarkaði heimalandsins, þó
aldrei nema þeir njóti þeirra fríðinda
að þurfa ekki að greiða skatt af
vaxtatekjum.
Sölumaður íslands
Skyldi Jón Baldvin aldrei, aldrei
hafa dottið í hug að selja Kolkrabb-
ann. Þykja krabbadýr ekki hið
mesta lostæti í EB-ríkjunum? —
Nei, líklega hefur þessum frægasta
sölumanni íslands aldrei dottið slíkt
í hug, þrátt fyrir þá ótrúlegustu
sölumannshæfíleika að fá allt fyrir
ekkert.
Lítilsvirðing á þjóðar-
vilja og valdniðsla
Undarleg er staða íslands í öllu
þessu EES-samningafári. í engu
EFTA-ríkjanna getur EES-samn-
ingurinn öðlast gildi nema þá með
stórauknum þingmeirihluta sem
yrði þá að vera því fylgjandi eða
þjóðaratkvæðagreiðsla hefði farið
fram áður, vegna þess mikla full-
veldisafsals, sem ráðamenn þar
telja að í samningnum felist. Utan-
ríkisráðherra Íslands segir hins veg-
ar að þetta sé ekkert fullveldisaf-
sal, aðeins venjulegur viðskipta-
samningur. - Og kröfu þjóðarinnar
um að fá að greiða atkvæði um
málið svara ráðherrar svo - að hún
hafi ekkert vit á því, þess vegna
sé ekki unnt að taka slíkt til greina.
Þannig tekst þeim að knýja samn-
inginn fram með naumum meiri-
hluta á þingi og fá síðan fullgild-
ingu laganna.
Á þjóðin ekki eftir að þakka fyr-
ir sig? - Vegna þess að ég er þar
stödd á lífsgöngunni, sem veitir
mér ekki ótakmarkaðan tíma til að
tjá gjörendunum þakklæti mitt ætla
ég að reyna að sýna lit með þessum
fátæklegu orðum ... Harma aðeins
mest að hafa enga möguleika til
að launa þeim að verðleikum.
AÐALHEIÐUR JÓNSDÓTTIR,
Kaplaskjólsvegi 55,
Reykjavík.
Pennavinir
Sextán ára pólsk stúlka með
áhuga á tónlist, ferðalögum og
sundi:
Joan Kuzmicka,
Ul. Gen. sulika 2/56,
16-200 Dabrowa Bialostocka,
' Poland.
Þýsk 21 árs stúlka með áhuga á
tónlist, söng, bréfaskriftum, kvik-
myndum og listmálun:
Ingrid Standke,
Obersohler Weg 30,
W-4322 Sprockhövel,
Germany.
LEIÐRÉTTINGAR
Orð féllu niður
í minningargrein Eyglóar B. Sig-
urðardóttur um Sigríði Sólborgu
Eyjólfsdóttur í Morgunblaðinu á
þriðjudag féllu niður nokkur orð og
raskaðist við það samhengi. Rétt
hljóðar viðkomandi efnisgrein svo:
„Mannkostir þínir voru margir, en
ég mat mest trygglyndi þitt og
hversu heilsteypt þú varst, sem þú
sýndir bæði á glöðum og erfíðum
stundum. Og þó að þú væri komin
í hjólastól aftaði það þér ekki. Og
þú hafðir þetta innsæi í tilfinningar
annarra. Álltaf fór ég ríkari frá þér
en ég koma, af visku og kærleik.
Fína húmorinn þinn og geislandi
brosið á ég í minningunni." Hlutað-
eigandi eru innilega beðnir afsökun-
ar á mistökunum.
Nafn Brynju
féll niður
í frétt um Norrænu kvikmynda-
hátíðinni, sem birtist í blaðinu sl.
þriðjudag, gleymdist að geta þess
að Brynja Benediktsdóttir, leik-
stjóri, var ein þeirra sem átti sæti
í Alþjóðlegu dómnefndinni sem
valdi mynd Friðriks Þórs Friðriks-
sonar, Börn náttúrunnar, bestu
mynd Norðurlanda 1993.
Er hún beðin velvirðingar á mis-
tökunm.
Okeypis leglræöiaðstoð
á hverju fimmtudagskvöldi milli
kl. 19.30 og 22.00 í síma 11012.
ORATOR, félag laganema.
Sumarjakkar
kr. I 1.980,-
Bómullar-
skyrtupeysur
kr. 5.980)-
Nýkomnar
sumarvörur
H® ÚTILÍFP H®
GLÆSIBÆ. S/MI812922
jýE^AINlítURENf
KYNNINC
á nýju vor- og sumarlitunum í dag og á morgun frá kl. 13-18.
Fimmtudag Föstudag
SAJWXA
Kópavogi Hafnarfirði
10% KYNNINGARAF5LÁTTUR
Þórunn Jónsdóttir, förðunarfræðingur og Kristín Einarsdóttir
YSL leiðbeinandi veita ráðgjöf um förðun og litaval.
VERIP VELKOMIN.