Morgunblaðið - 27.04.1993, Síða 1

Morgunblaðið - 27.04.1993, Síða 1
72 SIÐUR B/C STOFNAÐ 1913 93. tbl. 81.árg. ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 1993 Prentsmiðja Morgnnblaðsins / Forseti Rússlands hrósar sigri í þjóðaratkvæðinu á sunnudag Öflugri stuðningur við Jeltsín en búist var við \vV. , Andstæðingar forsetans segja þó að valdabaráttunni sé ekki lokið 52. stjórnin Moskvu. Reuter, The Ðaily Telegraph. BORÍS Jeltsín, forseti Rúss- lands, fór með sigur af hólmi í þjóðaratkvæðagreiðslunni á sunnudag en helstu andstæð- ingar hans sögðu að úrslitin breyttu engu um valdabarátt- una í Moskvu, henni væri eng- an veginn lokið. Ljóst var þó að forsetinn hafði náð undir- tökunum í valdabaráttunni. Stuðningsmenn forsetans hvöttu hann til að bregðast skjótt við til að knýja fram stjórnlagábreytingar og hraða efnahagslegum umbót- um. Vestrænir leiðtogar fögn- uðu sigri Jeltsíns, sem fékk mikinn stuðning kjósenda um nær allt Rússland. Samkvæmt bráðabirgðatölum þegar atkvæði höfðu verið talin í 79 kjördæmum af 88 sögðust 59,2% treysta Jeltsín í forsetaemb- ættinu. Kjörsóknin var um 62% og forsetinn fékk þannig hlutfallslega meira fylgi en í kosnjngunum í júní 1991. 53,61% sögðust styðja efna- hagslega umbótastefnu forsetans. Kjósendur voru ennfremur spurðir hvort þeir vildu að forseta- og þingkosningum yrði flýtt. 31,33% vildu að efnt yrði til forseta- kosninga en 31,94% voru andvíg því. 43,49% voru hins vegar fylgj- andi þingkosningum og aðeins 20,35% á móti. Þetta nægir þó ekki til að knýja fram kosningar því til þess þurfti samkvæmt úr- skurði stjórnlagadómstóls meiri- hluta allra atkvæðisbærra Rússa; dómstóllinn taldi hins vegar að meirihluti greiddra atkvæða dygði í fyrri spurningunum tveim. Reuter Hörð átök milli Króata og múslima BRESKIR hermenn bera lík úr rústum húss í bænum Vitez í Bosníu sem eyðilagðist í sprengjuárás um helgina. Bærinn var því sem næst algjörlega lagður í rúst í hörðum bardögum milli Króata og múslima i vikunni sem leið. CARLO Azeglio Ciampi seðla- bankastjóri (t.v.) myndar 52. sljórn Italíu eftir stríð. Stjórnarkreppa á Ítalíu Ciampi fal- ið að mynda nýja stjórn Róm. Reuter. OSCAR Luigi Scalfaro, forseti ít- alíu, fól i gær Carío Azeglio Ciampi seðlabankastjóra að mynda 52. ríkisstjórn landsins eft- ir síðari heimsstyrjöldina. Ciampi kvaðst ætla að hafa hraðan á við sljórnarmyndunina og sleppa við- ræðum við stjórnmálaflokkana til að spara tíma. Búist er við að Ciampi myndi stjórn tæknikrata og hún verður við völd þar til þingið samþykkir umbæt- ur á kosningalöggjöfinni og efnt verður til kosninga. Ciampi hefur unnið hjá seðlabank- anum allan sinn starfsferil og verið seðlabankastjóri í 14 ár. Hann er einn af virtustu seðlabankastjórum Evrópu og er óháður stjómmála- flokkunum. Með því að velja hann sem forsætisráðherra vill Scalfaro auka traust manna á ítalska efna- hagnum, sem er nú í mikilli lægð. Owen lávarður hótar sprengjuárásum á aðflutningsleiðir Serba Algjört viðskiptabann sett á Serbíu og Svartfiallaland Belgrad, Bonn. Reuter. HERTAR refsiaðgerðir gegn Serbíu og Svartfjallalandi, m.a. al- gjört viðskiptabann, áttu að taka gildi klukkan fjögur í nótt í kjölfar þess að fulltrúasamkunda Bosníu-Serba hafnaði alþjóð- legri friðaráætlun sem miðar að því að binda enda á átökin í Bosníu. Þrátt fyrir gífurlegan alþjóðlegan þrýsting samþykkti samkundan aðfaranótt mánudags að efna til „þjóðaratkvæða- greiðslu“ um friðaráætlunina 15. og 16. maí. Bill Clinton, forseti Bandaríkjanna, sagði að Bandaríkjamenn og bandamenn þeirra þyrftu að móta „harðari stefnu“ í málefnum Bosníu. „Enginn tapaði“ „Enginn tapaði eða sigraði í þessari þjóðaratkvæðagreiðslu," sagði Rúslan Khasbúlatov, forseti rússneska þingsins, þegar leiðtogar þingsins komu saman jtil að ræða úrslitin. Talsmaður Jeltsíns, Vjatsj- eslav Kostíkov, sagði hins vegar að þjóðaratkvæðagreiðslan sýndi að stefna forsetans nyti mikils stuðnings víðast hvar í Rússlandi. Clinton fagnar Bill Clinton, forseti Bandaríkj- anna, hringdi í Jeltsín til að óska honum til hamingju með sigurinn og árétta stuðning Bandaríkja- stjórnar við umbótastefnu hans. Hann sagði þetta „mjög góðan dag“, ekki aðeins fyrir Rússland heldur allan heiminn. Klaus Kin- kel, utanríkisráðherra Þýskalands, lét svo um mælt að Jeltsín hefði fengið meiri stuðning en búist hefði verið við. Sjá „Jeltsín vill ...“ á bls. 24 og forystugrein á miðopnu. Ákvörðun Bosníu-Serba hefur verið fordæmd og hörmuð á alþjóða- vettvangi og sögðust Bandaríkja- menn og Frakkar ætla að frysta innstæður Serba í bönkum. I refsi- aðgerðunum, sem áttu að taka gildi í nótt, felst m.a. að sett er algjört viðskipta- og samskiptabann á Serbíu og Svartfjallaland. Rússar, sem lengi hafa verið bandamenn Serba, segjast styðja hertar refsiað- gerðir. Bill Clinton kvaðst vona að hann gæti kynnt nýjar tillögur um „harðari stefnu“ í málefnum Bosníu á næstu dögum. Owen lávarður, samningamaður Evrópubandalagsins í friðai-viðræð- unum, sagði, að loknum fundi með Klaus Kinkel, utanríkisráðherra Þýskalands, að bandalagið myndi bíða í nokkra daga til að gefa stjórn- völdum í Serbíu tækifæri til að láta af stuðningi sínum við Bosníu- Serba. Ef sú yrði ekki raunin kæmi til álita að ijúfa aðflutningsleiðir þeirra með sprengjuárásum. Ósigur fyrir Milosevic Slobodan Milosevic, forseti Serb- íu, og forsetar Júgóslavíu og Svart- fjallalands höfðu sent samkundu Bosníu-Serba sameiginlegt bréf, þar sem hvatt er til að friðaráætlun- in verði samþykkt. Er það talinn mikill ósigur fyrir Milosevic að ekki var farið að ráðum hans. Vladislav Jovanovic, utanríkis- ráðherra Júgóslavíu (þ.e. Serbíu og Svartfjallalands), hvatti í gær til þess að áfram yrði reynt að binda enda á deiluna með samningavið- ræðum. „Við höfum engan annan kost en friðarviðræðurnar. Friðar- umleitunum ber að halda áfram og þær ber að efla,“ sagði Jovanovic. Radovan Karadzic, leiðtogi Bosn- íu-Serba, sagðist einnig vilja halda viðræðunum áfram. Leiðtogar stjórnárandstöðunnar í Serbíu gagnrýndu hins vegar ákvörðun Bosníu-Serba harðlega, sögðu hana óábyrga og fela í sér „þjóðarsjálfs- morð“ fyrir Serba. Krefjast brottflutnings friðargæsluliða Talsmaður Sameinuðu þjóðanna í Sarajevo sagði í gær að sveitir Serba, setn umkringja borgina Sre- brenica, hefðu krafist þess að kana- dískir friðargæsluliðar færu úr borginni, þar sem múslimar hefðu ekki verið afvopnaðir líkt og vopna- hléssamkomulagið gerði ráð fyrir. Talsmaðurinn sagði að ekki stæði til að friðargæsluliðarnir færu á brott.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.