Morgunblaðið - 27.04.1993, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 1993
Leigutakar í Kringl-
unni vilja lægri leign
LEIGUTAKAR í Kringlunni vilja að gerðar verði breyting-
ar á leigukjörum í verslunarmiðstöðinni og hafa að undan-
förnu verið að afla upplýsinga m.a. um veltubreytingar
aftur í tímann.
Að sögn Einars Inga Halldórs-
sonar, framkvæmdastjóra Kringl-
unnar, er undirbúningur hafínn að
því að skoða húsaleigumálin í
Kringlunni.
Á viðkvæmu stigi
Meirihluti rekstraraðila í Kringl-
unni eru jafnframt eigendur við-
komandi verslunar- og þjónustu-
húsnæðis. Alls eru 87 aðilar með
rekstur í Kringlunni og þar af eru
um 30 þeirra leigutakar sem leigja
verslunarplássin af ýmsum eigend-
um. Húsfélagið Kringlan hf. er hins
vegar eingöngu rekstrarfélag og
leigir ekki út verslunarhúsnæði ólíkt
því sem háttar til í Borgarkringl-
unni.
Ágúst Líndal, eigandi verslunar-
innar Blazer, er formaður Félags
leigutaka í Kringlunni. Viðræður
leigutaka við leigusala eru á við-
kvæmu stigi að sögn Ágústs og
vildi hann ekkert tjá sig um málið
að svo stöddu.
---♦--♦■■■«-
Leigutakar Borg-
arkringlunnar hf.
Húsaleig-
anlækkar
Á SAMRÁÐSFUNDI verslun-
areigenda í Borgarkringlunni
og forráðamanna Borgar-
kringlunnar hf. í gærkvöldi
var lýst fullum stuðningi við
fyrirtækið í þeirri von að því
megi takast að ljúka samning-
um við lánardrottna á næstu
dögum, að sögn Margrétar
Rögnvaldsdóttur, sem er for-
maður markaðsnefndar Borg-
arkringlunnar.
Náðist samkomulag um lækkun
húsaleigu frá og með næstu mán-
aðamótum og lækkun rekstrar-
kostnaðar í húsinu en ekki hefur
fengist uppgefið hversu mikil sú
lækkun verður. Eiga leigukjörin
að verða í takt við leigu á markað-
inum.
Samstaða
Fundinn sátu rúmlega 30 eig-
endur fyrirtækja og að sögn Mar-
grétar lýstu þeir sig ánægða með
aðstöðuna og var full samstaða
um að halda áfram blómlegum
rekstri í byggingunni. „Við erum
að vinna að því að bæta ímynd
hússins og þess vegna liggur á að
ljúka málum Borgarkringlunnar
hf. þannig að við getum haldið
áfram þeirri jákvæðu uppbygg-
ingu sem hefur verið unnið að frá
byijun,“ sagði hún.
-----» ♦ ♦
Sanminga;
nefnd ASÍ
fundar
STÓRA samninganefnd Al-
þýðusambands íslands hefur
verið boðuð saman til fundar
á morgun miðvikudag og
verður á fundinum farið yfir
stöðu samningamála og
framhald á viðræðum um
nýja kjarasamninga.
Viðræður um nýja kjarasamn-
inga hafa verið í biðstöðu í tíu daga
eða allt frá því að samninganefnd
Alþýðusambandsins hafnaði því að
tillögur ríkisstjórnarinnar gætu orð-
ið grundvöllur kjarasamninga til
langs tíma.
Staðan skýrist
Sjö manna samninganefnd ASI
kom saman til fundar I gærmorgun
°g sagði Benedikt Davíðsson,
forseti ASÍ, að staðan skýrðist að
líkindum ekki fyrr en á fundi stóru
samninganefndarinnar á morgun.
Aðspurður sagði hann að ekki væri
ólíklegt að samningsumboðið gengi
til landssambanda ASÍ hvers um
sig, ef niðurstaðan yrði sú að ekki
þjónaði neinum tilgangi að halda
áfram heildarviðræðum á þeim
grundvelli sem rætt hefði verið um
áður en biðstaða varð.
Morgunblaðið/Ólafur Bemódusson
Bundinn við land
PRAMMINN var bundinn við land í gær, til að koma í veg fyrir að hann hreyfðist mikið í fjöruborðinu.
Flutningapramma rak
vélarvana upp í fjöru
Skagaströnd.
MALARFLUTNINGAPRAMMA sem áður var í eigu Dýpk- prammann rak upp í var ekki hægt
unarfélagsins á Siglufirði rak upp í stórgrýtta fjöruna fyr- að athafna sig á bát við að reyna
ir neðan frystihúsið um kaffileytið í gær. Tveir menn voru að ná honum af strandstað strax.
um borð í prammanum en þeir voru aldrei í hættu. Beðið betra sjólags
Pramminn var bundinn í land
með hjálp manna úr Slysavarna-
deildinni til að reyna að minnka
hreyfinguna á honum þar sem hann
liggur í fjörunni.
Verður að bíða betra sjólags áður
en reynt verður að ná prammanum
á flot.
- Ó.B.
Nú að undanförnu hefur
pramminn verið við vinnu við
hafnargerð á Blönduósi en i suð-
vestan roki sem var í gær gat
pramminn ekki legið við bryggj-
una þar og var því á leið í örugg-
ari lægi við höfnina á Skaga-
strönd.
Rétt utan við innsiglinguna við
höfnina fékk pramminn sveran
kaðal í skrúfuna og varð véla-
vana við það. Mennirnir tveir um
borð létu akkeri falla en það
náði ekki haldi svo að prammann
rak upp í stórgrýtta fjöru fyrir
neðan Frystihúsið Hólanes hf.
Vegna þess hve mikið brim var
og hve þröngt er í víkinni sem
Nýmaveikismit ógnar lu’riða-
stofnum á Landmannaafrétti
Nær öllum urriðahrognum hefur verið fargað vegna veikinnar síðustu árin
NÝRNAVEIKISMIT hefur fundist síðustu árin í klakfiski
sem tekinn hefur verið í Veiðivötnum til undaneldis fyrir
svæðið auk Þórisvatns og Kvíslaveitu. Af þeim sökum hef-
ur nær öllum urriðahrognum verið fargað síðustu árin.
Magnús Jóhannsson fiskifræðingur
segir að veiði á vissum svæðum
gæti hrunið ef ekki heppnaðist að
vinna bug á vandanum. Slepping-
amar hafa borið uppi veiði í Kvísla-
veitu, Þórisvatni og Litlasjó svo
dæmi séu tekin. Til þessa hafa
menn ekki viljað sleppa í vötn þessi
urriða af öðrum stofnum.
Há smittíðni
Sigurður Helgason físksjúk-
dómafræðingur á Keldum sagði í
samtali við Morgunblaðið að hér
væri vissulega vandamál á ferðinni,
en ný tækni sem komin væri fram
til að ákvarða heilbrigði hrogna
hefði sýnt fram á háa smittíðni í
fiskstofnum nokkurra vatna.
Fargað
Sú hefð hefur verið um árabil
að farga seiðum og hrognum nýma-
veikismitaðra klakfiska til þess að
koma í veg fyrir að smitið berist
með hrognum úr sýktum klakfisk-
um inn í eldisstöðvarnar. Öllum
urriðahrognum úr Veiðivötnum sem
komu úr klakfiskum haustið 1991
var fargað og nær öllum úr klak-
fiski svæðisins síðasta haust.
í seiðaeldisstöðinni í Fellsmúla í
Landssveit eru nú 30.000 seiði sem
þorandi þótti að gefa líf, en öðrum
var fargað og eru 30.000 seiði sem
dropi í hafið þar sem veiði á stórum
svæðum á þessum slóðum byggir
allt á reglulegum sleppingum.
Leitað lausna
Ekki sér fyrir endann á vandan-
um sem stendur og segir Sigurður
Helgason að ýmsir annmarkar séu
á því að lausn finnist. „Það er hins
vegar unnið að þessu og við höfum
fundað með hlutaðeigandi aðilum
austur í LandssVeit. Það er gagn-
kvæmur skilningur á málefninu og
vilji til að leysa vandann,“ segir
Sigurður.
í dag
Aögerð lögreglu
Komið í veg fyrir dansleik unglinga
á vínveitingastöðum 4
Skeifukeppnin
Stúlkur vermdu fjögur efstu sætin 20
Brids__________________________
Sigtryggur og Bragi bestir 21
Lífshúski
Svamppúði bjargar lífí tveggja
manna 23
Leiðari________________________
Lýðræðislegt umboð Jeltsíns end-
urnýjað 26
AKSTURSÍÞRÖTTIR
Akstursíþróttir
► Keppnir í sumar- Nýjar tor-
færugrindur - Breytingar á
rallýkrossbraut - Lada víkur
fyrir Lancia - Go-kart næst á
dagskrá - Oryggishjálmar
Áttum ekki von á l~.il
þessan uppakomu
íþróttir
► Valur og FH byija vel í
undanúrslitum. - Jóhannes
Sveinbjörnsson heldur Grettis-
beltinu - Góður sigur unglinga-
landsliðsins í knattspyrau.
Ofrýnileg-
ur gestur
Djúpavogi.
TRILLUKARLAR á Djúpa-
vogi hafa undanfarnar tvær
vikur haft heldur ófrýnilegan
félagsskap í beitingaskúr sín-
um á bryggjunni, en það er
stór kónguló, ólík öðrum slík-
um sem menn þar hafa séð.
Fyrst varð vart við kóngulóna
fyrir tveimur vikum, en hún
hafði þá gert sér myndarlegan
vef uppi við loft. Hún er stór,
um 2'h sm á lengd og Vh srú
á breidd. Búkurinn er þykkur,
svartur að neðan en hvítur á
baki og lappirnar átta eru svart-
ar með gulum þverröndum. Hún
lifir í vellystingum praktuglega
í beitingaskúrnum ög sýnir ekki
á sér fararsnið. Enginn hefur
boðist til að fjarlægja hana og
bera menn því við, að fróðir
menn ættu fyrst að skoða kvik-