Morgunblaðið - 27.04.1993, Side 14

Morgunblaðið - 27.04.1993, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 1993 Kristinn Örn, Yngveldur Ýr og Thomas. Brecht, Weillog- fleiri í Sólon Islandus Tónlist Ragnar Björnsson Úr efnisskrá: „Þetta er saga af tveimur manneskjum sem segja frá, rifja upp liðinn tíma, það sem var, það sem er, einhvem tíma, hvar- vetna, þar sem þau hittast, án þess að leita hvors annars, með- an þau hafa þörf fyrir hvort annað, fómarlömb tímanna sem þau lifðu, þar sem þau urðu að því, sem þau aldrei ætluðu: Hóra og melludólgur. Því ... maður- inn ræður tíma sínum, og þó ræðst gæfa hans af þeim tíma sem hann lifir." Við þessi mótíf fengust þau Ingveldur Ýr Jóns- dóttir, Thomas Frank, Kristinn Öm Kristinsson píanóleikari og lýsingu hafði Ragnheiður Tryggvadóttir á sínum höndum. Veröld sem skapar sinn eigin móral, hugtökin illt og gott hætta að vera til, það eitt gildir að lifa af, maðurinn skapar eigið siðgæði, hóran og melludólgur- inn koma í stað preláta og ráð- herra, siðferðið er sá sterkari, tema, sem e.t.v. ekki er tíma- bundið? Þessum heimi lýsa þeir Brecht, Weill, Eisler, Dessau o.fl. á sérstakan þátt. Sönglögin ein ná ekki að skila andrúmslofti ljóðanna, Ijóðin þurfa á tónlist- inni aðhalda, ljósabúnaði, tákn- rænum klæðnaði og leiklist, allt þetta þarf til að ná fram inni- haldi og stíl. „Gestamtkunst- werk“ (Wagner“ eða kabarett- stíl getum við kallað flutninginn, en sér á parti er hann, og til þarf stranga ögun. Hér er auð- veldlega hægt að ganga skrefinu of langt, og ekki þýðir að reyna þennan flutning án leikarahæfi- leika. Thomas Frank, Austur- ríkismaður, hefur lagt þetta fag fyrir sig sérstaklega, starfrækir og sinn eigin kabaretthóp í Aust- urríki. Thomas hefur stílinn í hendi sér, markeringar skýrar og svipbreytingar og hreyfingar úr heimi Brechts. Þó fannst mér á stundum vera á mörkunum að hann gengi ekki of langt og missti þannig nokkuð af hrá- slagalegu innihaldi ljóðsins. Góð eða falleg söngrödd er ekki máf- ið, heldur er röddin heppileg og rétt meðhöndluð. Víst var þetta allt í stíl Brechts og lagahöf- unda, en á sama hátt fannst undirrituðum Thomas ganga á stundum óþarflega langt í með- ferð raddarinnar. Kannske var litlum sal um að kenna, en full- komnunin er hárfínn línudans. Yngveldur Ýr kom undirrituðum nokkuð á óvart, ekki algjörlega, til þess á hún of mikið af söng- fólki í frændgarði. Ingveldur virðist mjög músíkölsk, hefur •góða söngrödd, sem enn er þó í mótun, hún virðist góður leikari og hefur listræna tilfinningu á báðum þessum sviðum. Auðsjá- anlega og -heyranlega skilur hún Brecht og tónhöfundana vel, gerði enda margt mjög vel, þótt í sumum tilfellum fyndist mér hennar ágæta og efnilega söng- rödd kæmi dálítið úr öðrum heimi. En Brecht-Will-kvöld þetta var mjög ánægjulegt og vildi ég ráðleggja sem flestum að njóta. Ekki má gleyma þætti Kristins Amar Kristinssonar, píanóleikara, en sá þáttur var ekki lítill, en Kristinn stóð sem „klettur úr hafinu" og hefðu ekki margir aðrir gert betur. Afmælistónleikar Söng- félag’s Skaftfellinga SONGFELAG Skaftfellinga á 20 ára afmæli um þessar mundir. Af því tilefni heldur kórinn tón- leika í Laugarneskirkju laugar- daginn I. maí kl. 16.00. Efnisskráin er fjölbreytt, innlend og erlend lög, sem em úrval þeirra verka sem hafa verið á efnisskrá kórsins sl. 20 ár. Stjómandi kórsins er Violeta Smid og undirleik annast Pavel Smid. Einsöngvari með kómum á þessum tónleikum er Ármann Óskar Sigurðsson. Kórfélagar hyggja svo á ferð til Skotlands 18. næsta mánaðar til að fagna þessum tímamótum enn frekar. Sérstök athygli er vakin á breyttri dagsetningu tónleikanna. (Fréttatilkynning.) Menningardagar í Riga Vel heppnuð innrás Sigrún Hjálmtýsdóttir og Steinunn Birna Ragnarsdóttir Frá tónleikum Sigrúnar Hjálmtýsdóttur og Steinunnar Birnu Ragn- arsdóttur í Riga, Lettlandi 6. apríl sl. Dagana 1.-10. apríl stóðu yfir í Riga I Lettlandi íslenskir menningardagar. Þessi ís- lenska innrás vakti mikla at- hygli þar í landi á íslenskri menningu og Islandi yfirleitt og þótti takast með eindæm- um vel. Meðal annars var sér- stakur lesbókarkálfur, sem fylgdi stærsta blaði Lettlands þar sem íslenska listafólkið var kynnt og ýmsar greinar birtar um íslensk málefni. Þar voru kveðjur frá forseta Islands, Vigdísi Finnboga- dóttur og Sigríði Snævarr sendiherra Islands í Lett- landi. Sigrún Hjálmtýsdóttir óperu- söngvari og Steinunn Birna Ragn- arsdóttir héldu þijá hljómleika við feiknagóðar viðtökur, Leikbrúðu- land sýndi verðlaunasýninguna Bannað að hlæja fjórum sinnum fyrir fullu húsi, og sýningar á mál- verkum Helga Þorgils Friðjónsson- ar og ljósmyndum Páls Stefánsson- ar prýddu veggi í sögufrægu menn- ingarhúsi (Reitern-húsi) þessa menningardaga. Þá talaði Ingibjörg Haraldsdóttir skáld og þýðandi um íslenskar bókmenntir í Norræna bókasafninu í Riga og hjá rithöf- undafélaginu, en Sveinn Einarsson flutti eríndi um íslenska leiklist í Þjóðleikhúsi Lettlands. Frumkvæði að þessum menning- ardögum kom frá íslandsvinafélag- inu í Lettlandi, en félagið var stofn- að í kjölfar þess að íslendingar urðu fyrstir þjóða til að viðurkenna hið nýja sjálfstæði lettnesku þjóðarinn- ar. Er bersýnilegt að ísland nýtur sérstakrar virðingar og þakklætis fyrir þau viðbrögð. Menntamála- ráðuneyti Lettlands og mennta- málaráðherrann Raimonds Pauls, sem er þekkt tónskáld, tók á móti íslenska listafólkinu og sýndu því margvíslegan sóma; m.a. opnaði menntamálaráðherrann íslensku menningardagana við hátíðlega opnun í Reitern-húsi. Sýningar Leikbrúðulands fóru fram í Brúðuleikhúsinu í Riga og tók þátt í þeim lettneskur leikari, Andris Morkans, sem talar íslensku reiprennandi; jók þetta mjög á lif- andi viðbrögð þeirra þúsund lett- neskra barna sem sáu sýninguna. Sigrún Hjálmtýsdóttir söng fyrst í Reitern-húsi, siðan í Tónlistarhá- skólanum og loks í félagi við tvo lettneska söngvara í óperugildinu, vinafélagi óperunnar. Varð Sigrún að syngja flölda aukalaga og í lok tónleikanna stóðu áhorfendur upp í virðingarskyni. Á verkefnaskrá þeirra stallna voru íslensk lög og óperuaríur. I gagnrýni aðalblaðsins í Riga, Diena (Dagur), 13. apríl, segir að Sigrún „kveikti eld í hjört- um áhorfenda" og sé „h'fmikil belc- anto-söngvari með einstætt skap“ og áhorfendur hafi svarað með bravóhrópum og gríðarlegum fagn- aðarlátum. Formleg gagnrýni hefur ekki borist um sýningar Helga Þorgils og Páls Stefánssonar, en í umsögnum blaða er mjög góður rómur að þeim gerður, svo og þeim fyrirlestrum, sem haldnir voru um aðra þætti íslenskrar menningar. Sjónvarp, útvarp og blöð létu sig þessa menningardaga mikið varða og voru viðtöl við íslenska listafólk- ið og frásagnir daglegt brauð. andi er Háskólaútgáfan. Bókin verður fyrst um sinn einkum til afgreiðslu í Bóksölu stúdenta við Hringbraut og hjá laganemum, sem einnig annast dreifingu henn- ar. (Fréttatilkynning) Ný fræðibók ÚT ER komin bók eftir dr. Pál Sigurðsson, prófessor við laga- deild Háskóla íslands. Nefnist hún „Lagaþættir“. Bókin hefur að geyma safn saulján greina af ýmsum réttarsviðum, sem bókarhöf- undur hefur samið á alllöngu árabili og sem ýmist hafa birst áð- ur, prentaðar eða fjölritaðar, eða eru frumbirtar í bókinni. Þær greinar, er áður hafa birst, hafa þó allar sætt rækilegri endurskoð- un fyrir þessa útgáfu og birtast nú, sumar hveijar, í talsvert breyttri mynd. Tólf greinar bókarinnar íjalla um margvísleg efni úr fjárrnuna- rétti; tvær þeirra um eignarrétt yfir landi, aðrar um valin efni úr almennum samningarétti og kauparétti, svo sem um sérstæðar og/eða víðtækar ógildingarheim- ildir samningaréttar og enn aðrar um tilteknar tegundir samninga, svo sem um fjármögnunarleigu, gjafagerninga, samninga um lán til afnota og geymslusamninga auk greinar um gildi loforða, sem verða til í tengslum við fjárhættu- spil eða veðmál. 1 bókinni er og grein um fym- ingu bótaréttar vegna galla í seld- um húsum og í byggingarefni, en tvær greinar hafa að geyma gagn- rýni á nýlega og athyglisverða hæstaréttardóma um álitaefni á sviði fjármunaréttar, þ. á m. um svokallað „Sæbólsmál", sem ný- lega var dæmt í í Hæstarétti. Þá em í bókinni tvær greinar af vettvangi umhverfisréttar og jafnframt greinar er fjalla um val- in efni úr stjómskipunarrétti, al- mennri lögfræði og þjóðarétti (al- þjóðlegum mannúðarrétti). Bókin sem er 381 síða að lengd, er prentuð í Steinholti hf. en útgef- Dr. Páll Sigurðsson íslenska óperan Tónleikar Guðnýjar og Peters í kvöld GUÐNÝ Guðmundsdóttir, fiðluleikari kemur fram á styrktartónleik- um Islensku óperunnar í kvöld. Meðleikari hennar er Peter Maté, píanóleikari og hefjast tónleikarnir klukkan 20.30. Á efnisskránni em Sónata op. 30. nr. 3, eftir Beethoven, nýtt verk eftir Hafliða Hallgrímsson sem er samið í minningu Karls J. Kvaran en tileinkað Guðnýju. Verkið hefur hlotið nafnið Offerto. Eftir hlé leika þau Guðný og Peter Djöflatrillusó- nötu Tartinis, þá tvö verk eftir Tsjajkovskí og að lokum Zigeun- erwisen Pablos de Saraste. Guðný Guðmundsdóttir hefur um árabil starfað með Tríói Reykjavík- ur, ásamt þeim Gunnari Kvaran, sellóleikara og Halldóri Haralds- syni, píanóleikara, auk þess sem hún er konsertmeistari Sinfóníu- hljómsveitar íslands. Peter Maté er ungverskur píanóleikari sem kom hingað til lands fyrir þremur árum og hefur starfað við píanókennslu á Stöðvarfirði síðan.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.