Morgunblaðið - 27.04.1993, Side 16

Morgunblaðið - 27.04.1993, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 1993 Menning og mannréttíndi eftir Sigurð A. Magnússon Seinni grein Annað merkilegt skref í þróun mannréttinda steig herkonungurinn Alexander mikli, þó skrýtilega hljómi, þegar hann gerði alla þegna sína, jafnt Persa sem Grikki, Ind- veija sem Makedóna, jafnréttháa í ríki sínu. Á ýmsum skeiðum í sögu sinni bjuggu Rómveijar við lýðræð- isfyrirkomulag, og sannleikurinn er sá að rómversk Iöggjöf var að því leyti samstiga Alexander og gekk skrefi lengra en löggjöf grísku borg- ríkjanna að hún hélt fram persónu- legum rétti einstaklingsins. En kannski var merkilegasta framlag Alexanders og arftaka hans í Róm til mannréttinda fóigið í viðurkenn- ingunni á einingu mannkyns. Færðar voru út kvíar rómversks borgararétt- ar, og með tilskipun Caracalla árið 212 eftir Kristsburð tók hann til gervallrar heimsbyggðarinnar. Þróun rómverskrar löggjafar var undir áhrifum kenningarinnar um náttúrurétt mannsins, sem rekja mátti til grískra Stóuspekinga og var útlistuð og boðuð af sjálfum Cicero. Samkvæmt þeirri kenningu stjórnast veröldin af algildu náttúrulögmáli. í Ijósi þess eru allir menn jafnir. Öllum mönnum ber að hlýðanst þessu lög- máli náttúrunnar og löggjöf sem fer í bág við það er í eðli sínu röng. Með því að undirstrika siðgæðislega ábyrgð valdamanna og leggja gerðir þeirra í dóm æðra lögmáls átti kenn- ingin um náttúrurétt sinn þátt í að reisa skorður við valdbeitingu stjóm- enda. Frumkristnin hafði engin teljandi áhrif á pólitíska framvindu eða kennisetningar. Enda þótt kristin trú legði þunga áherslu á róttæka kenn- ingu sína um fullkominn jöfnuð allra manna, afþví Guð elskar þá sem snauðir eru og veikburða engu síður en þá f|áðu og voldugu, þá reyndu hvorki Kristur né fyrstu sporgöngu- menn hans að heimfæra þessa kenn- ingu til pólitískra markmiða. Afturá- móti töldu kristnir menn sig vera fráhverfa þessa heims önnum og áhyggjuefnum og voru að því leyti mjög frábrugðnir heiðnum trúmönn- um í Grikklandi og Rómaveldi sem lögðu flestir ríka áherslu á borgara- legt framtak og allskyns dulhyggju. Afstaða kristinna manna leiddi samt ekki til umburðarlyndis gagnvart trúarlegri fjölbreytni, og hún var í HÉR OG NU —Trni^m^- Þægilcgir, sterkir, krómaðir stólar með bólstruðu baki og setu - ótrúlega ódýrir... Gásar Borgartúni 29, Reykjavfk S: 627666 og 627667 • Fax: 627668 beinni mótsögn við þá grísku kenn- ingu að borgaraleg umsvif væru æðsta stig mennskrar tilvistar. Á miðöldum átti sér stað nokkurs- konar samruni kristinnar kenningar og náttúruréttar. í orði kveðnu voru valdamenn seldir undir siðferðislegar hömlur náttúruréttar og undir ábyrgð kirkjunnar á andlegri og tímanlegri velferð mannsins, og í reynd varð það svo, að vald kirkjunn- ar og samningsbundnar kvaðir léns- veldisins komu í veg fyrir einokun hins veraldlega valds. Kaflaskipti á Englandi Á Englandi urðu þau kaflaskipti í þróun mannréttinda árið 1215, að aðallinn reisti skorður við ásælni krúnunnar með því að fá samþykkta frelsisskrána Magna Carta. Með henni var lagður grunnur að persónu- legu og pólitísku frelsi ensku þjóðar- innar. Þar voru meðal annars ákvæði þess efnis, að menn yrðu aðeins dæmdir af lögmætum jafnokum sín- um eða samkvæmt skráðum lands- lögum. í Magna Carta er lögð höf- uðáhersla á skipulegt réttarfar og afneitun geðþóttaákvarðana við uppkvaðningu dóma í þeirri vitund að óviss eða illa skilgreind réttindi séu litlu skárri en engin réttindi. Bæði endurreisnarstefnan og sið- skiptahreyfmgin lögðu áherslu á per- sónulegt mæti og skýlaus réttindi einstaklingsins. Endaþótt ýmsir for- kólfar siðskiptanna væru ekki miklu umburðarlyndari en rómverska kirkj- an gagnvart raunverulegum eða ímynduðum villukenningum, út- heimti ör þróun fjölhyggjunnar í trú- arefnum á 16du og 17du öld aukið umburðarlyndi í því skyni að vemda og varðveita þjóðskipulagið. Nefna má til dæmis'Nantes-tilskipunina frá 1598 sem Hinrik ijórði Frakkakóng- ur gaf út eftir mannskæð bræðravíg kaþólikka og mótmælenda, en hún tryggði Húgenottum óskorað sam- viskufrelsi, þó þeim væri hinsvegar synjað um frelsi til tilbeiðslu! Tvenn tímamót Á 17du öld voru mannréttindi á Englandi enn aukin, fyrst með Bæn- arskrá um réttindi 1628 og síðan með Réttindaskránni 1689, hundrað árum fyrir frönsku stjórnarbylting- una. Ári fyrr hafði John Locke birt kenningar sínar um stjórnskipun og stjómarhætti, sem höfðu víðtæk áhrif í Englandi, Amríku og víðar. Locke hélt því fram að náttúrulög- málið veitti manninum ákveðin óhagganleg réttindi. Myndun mann- legs samfélags mátti að hans dómi skoða sem félagslegan sáttmála þar- sem tiltekin réttindi væra af hendi látin í því skyni að veija og varðveita grundvallarréttindi mannsins. Nátt- úraréttur mannsins og það takmark- aða vald, sem hinn félagslegi sátt- máli veitti ríkisstjómum, reisti að mati Lockes skorður við valdbeitingu stjómenda og heimild þeirra til að ganga á rétt einstaklingsins. Væri farið útfyrir tiltekin mörk, þá væri andspyma þegnanna réttlætanleg. Svipaðar hugmyndir komu síðan fram hjá Jean-Jacques Rousseau og ýmsum formælendum upplýsingar- stefnunnar í Frakklandi og urðu í senn undanfari og aflvaki frönsku stjórnarbyltingarinnar. Yfirlýsing um réttindi einstaklinga og borgara var samþykkt af franska þjóðþinginu eftir miklar og heitar almennar um- ræður hinn 27da ágúst 1789, en hún var að veralegu leyti byggð á Sjálf- stæðisyfírlýsingu Bandaríkjanna frá árinu 1776, sem Thomas Jefferson hafði átt drýgstan þátt í að semja. Réttindaskrá Bandaríkjanna var aft- urámóti ekki samin og samþykkt fyrren árið 1791 og var fólgin í tíu fyrstu viðbótarreglum við stjórnar- skrána. Allar þessar yfirlýsingar austan hafs og vestan undir lok 18du aldar marka önnur þáttaskil í sögu mann- réttinda. Franska réttindayfírlýsingin var af höfundum sínum talin hafa al- mennt gildi fyrir alla menn og öll samfélög, en einstökum þáttum hennar var skiljanlega beint gegn stjómarháttum í Frakklandi einsog þeir höfðu verið um langan aldur. Meðal þess sem hún lagði áherslu á var í fyrsta lagi jafnrétti að lögum gagnvart skattheimtu og atvinnu- möguleikum til að útrýma forréttind- um aðalsins; í öðru lagi sjálfsákvörð- unarréttur og fulltrúalýðræði til að ryðja úr vegi einveldi krúnunnar; og loks einstaklingsfrelsi og fastmótað- ar réttarreglur til að binda enda á geðþóttaúrskurði hinna konunglegu dómstóla. Mörg af ákvæðum réttindayfirlýs- ingarinnar voru tekin orðrétt eða því sem næst uppí Mannréttindayfirlýs- ingu Sameinuðu þjóðanna frá 1948, og mannréttindasaáttmálana tvo sem af henni sprattu og tóku gildi árið 1976. Því verður varla móti mælt að þessi þijú plögg, Mannrétt- indayfírlýsing Sameinuðu þjóðanna frá 1948 og mannréttindasáttmál- amir frá 1976, marki að sínu leyti jafnmerkileg tímamót og réttar- skrámar í lok 18du aldar - ekki síst þarsem annarsvegar er um að ræða sameiginlega yfirlýsingu fjölmargra þjóða og hinsvegar tvo bindandi al- þjóðasáttmála sem hafa lagagildi í löndum þarsem þeir hafa verið stað- festir, meðal annars á Islandi. Hitt er svo allt annað mál, að orð og at- hafnir fylgjast ekki ævinlega að. Mörg þau ríki, sem staðfest hafa báða mannréttindasáttmálana, bijóta ákvæði þeirra purkunarlaust svo að segja daglega, og má raunar telja þau ríki á fingrum sér sem ekki gera sig sek um einhver mannrétt- indabrot á ári hveiju. Mannréttindabrot 1991 Síðasta ársskýrsla Amnesty Int- emational, sem fjallar um árið 1991, hefur þannig að geyma upplýsingar um mannréttindabrot í 142 iöndum. Meðal landa sem ekki era á þeirri skrá eru Danmörk, ísland og Svíþjóð, Belgía, Lúxemborg og Nýja Sjáland, og má segja að þarmeð séu upptalin „óflekkuð" lönd, en þá er þess líka að gæta, sem segir við upphaf skýrsl- unnar, að engin trygging er fyrir því að ekki séu framin mannréttindabrot í löndum sem ekki era nefnd í skýrsl- unni. Gæti það til dæmis átt við um ísland, ef- skyggnst væri bakvið tjöld- in. Þess ber einnig að gæta, að í skýrslunni er einvörðungu fjallað um fólk sem sætt hefur ofsóknum og misrétti af einhveiju tagi ánþess að hafa sjálft hvatt til ofbeldis eða tekið þátt í ofbeldisaðgerðum. Vísast er ekkert ríki í heiminum með öllu sak- laust af mannréttindabrotum, þegar öll kurl koma til grafar. í skýrslunni kemur fram, að í helmingi landanna sem um er fjallað er fólk fangelsað fyrir að segja hug sinn, oft eftir hláleg sýndarrétt- arhöld. í þriðja hveiju landi sæta karlar, konur og börn pyndingum og margvíslegum misþyrmingum. í tug- um landa standa ríkisstjórnir að mannránum og morðum á eigin þegnum. í rösklega 120 þjóðríkjum hafa ráðamenn sett í lög heimildir til að drepa fólk fyrir tiltekna glæpi. Ríflega 30 ríki stunda þessi lögvernd- uðu manndráp á ári hveiju. I ljósi þeirra óhugnanlegu og stundum nálega ólýsanlegu mann- réttindabrota, sem daglega eiga sér stað um gervalla heimsbyggðina, en þó einkum í Asíu, Afríku og Róm- önsku Ameríku, má það virðast full- komin Sísýfosariðja að beijast gegn þeim. Þráttfyrir ötula baráttu á mörgum vígstöðvum, sem háð er af hverskyns opinberum og óopinberum samtökum, er ekki örgrannt um að manni fínnist þessháttar afbrot fær- ast í vöxt með hveiju ári samfara háþróaðri tækni dauðasveita, pynd- ingameistara, fangabúðastjóra, geð- lækna og endurhæfíngarsérfræð- inga. Vissulega hefur þessi öld verið stórtækari en nokkur önnur í sögu mannkynsins í djöfullega kaldriíjuð- um og þrælskipulögðum mannrétt- indabrotum, samanber til dæmis þjóðarmorðin á Armenum, Gyðing- um, Sígaunum, Kúrdum, Indíánum og ýmsum öðrum þjóðum og þjóðar- brotum. Kúrdar eru enn í dag eitt- hvert hraksmánarlegasta dæmi um þessa öfugþróun. Þeir era yfir 20 milljónir talsins og Ijölmennari en allir Norðuriandabúar. Samt er þeim forboðið að njóta eigin menningar eða tala eigin tungu í þeim fjórum löndum þarsem þeir eru fjölmennast- ir, Tyrklandi, írak, íran og Sýrlandi. í Tyrklandi búa 12 milljónir Kúrda og mega hvorki lesa né tala eigin tungu né einusinni nefna sig Kúrda. Þeir era nokkurskonar óþjóð innan landamæra ríkis sem við Islendingar teljum meðal bandamanna okkar í Atlantshafsbandalaginu. Þéssi vel- metni útvörður vestræns lýðræðis undanfarna áratugi er stórtækari í hverskyns mannréttindaglæpum en flest ríki önnur, og má kannski helst jafna Tyrklandi við E1 Salvador, Gvatemala og Kólombíu, sem öll hafa um langt skeið verið sérstakir skjólstæðingar Bandaríkjastjórnar - og má heita kaldhæðnislegt með hlið- sjón af Sjálfstæðisyfirlýsingunni frá 1776 og Réttindaskránni frá 1791. Menning og mannréttindi Kannski er ekki úr vegi að freista þess að tengja saman rækilegar en hér hefur verið gert hugtökin menn- ing og mannréttindi. Einsog fyrr sagði má líta svo á, að meðferð mannréttindamála sé til marks um siðmenningarstig tiltekins lands. Samkvæmt þeirri mælistiku eru Norðurlönd á efstu rim siðmenning- artröppunnar ásamt Niðurlöndum, Nýja Sjálandi, Kanada, Ástralíu, Bretlandi og Þýskalandi, þó fjögur síðastnefndu ríkin séu raunar á saka- skrá Amnesty International fyrir árið 1991. Vera má að það sé einskær tilviljun að í umræddum löndum set- ur mótmælendaarmur kristninnar sterkan svip á þjóðfélag og þjóðlíf. í rómversk-kaþólskum og grísk- orþódoxum löndum virðist af einhvetj- um ástæðum minna hirt um mann- réttindabrot, og era bæði Rómanska Amríka og Austur-Evrópa talandi dæmi um það. Ég áræði ekki að draga neinar ályktanir, en bendi einfaldlega á þessa kynlegu skiptingu milli svo- kallaðra kristinna þjóða. Ég hef rakið það stuttlega hér á undan og tel það vert íhugunar, að hugsjónir mannhelgi og mannrétt- inda eiga sér upptök annarsvegar í mannhverfri heimsmynd Forngrikkja og hinsvegar í guðhverfum mannúð- arboðskap Krists sem sprottinn er úr gyðinglegum jarðvegi. Af þeim sökum hafa hugsjónir mannréttinda átt mestu gengi að fagna meðal þjóða sem alist hafa upp við hinn gríska og gyðing-kristna menningararf. Ég læt mér hreint ekki sjást yfír ókræsi- legan bálk linnulausra grimmdar- verka sem einmitt kristnar þjóðir eru orðaðar við, ótölulegar trúarbragða- styijaldir og tvær mannskæðar heimsstyijaldir, ofsóknir, pyndingar, galdrabrennur og margháttaða aðra óhæfu. En í öllum þeim hroðalegu hamförum hefur hugsjón mannhelg- innar sífellt skotið upp kollinum í kjölfar hverrar nýrrar niðurlægingar. Ég hef um það sterkan grun - en vil ekkert fullyrða - að langlífi mann- úðar- og mannhelgishugsjónarinnar sé með einhveijum hætti tengt þeirri menningu sem vestrænar þjóðir tóku í arf með kostum sínum og löstum. Það er í öllu falli ein af mörgum íhugunarverðum þverstæðum sög- unnar, að hin atorkumikla og stund- um hérskáa menning mótmælenda í þremur heimsálfum skuli fremur öðr- um hafa glætt hugsjón mannúðar, manngildis og mannréttinda á þess- ari öld. í þessu sambandi má geta þess að tékkneski höfundurinn Milan Kund- era varpaði fram hnýsilegri hugmynd í grein sem birtist í Tímariti Máls og menningar, 4ða hefti 1992. Þar segir orðrétt í þýðingu Friðriks Rafnsson- ar; „Hið vestræna samfélag er orðið vant því að líta á sig sem boðbera mannréttinda; en áður en maðurinn öðlaðist réttindi þurfti hann að læra að Iíta á sig sem einstakling, líta á Sigurður A. Magnússon „Vísast er ekkert ríki í heiminum með öllu sak- laust af mannréttinda- brotum, þegar öll kurl koma til grafar.“ sig sem slíkan og láta líta á sig sem slíkan; það hefði aldrei getað gerst nema á löngum tíma fyrir tilstuðlan evrópskra lista og þá einkum skáld- sögunnar sem temur lesandanum áhuga á annarra högum og fær hann til að reyna að skilja sannfæringar sem era ólíkar hans eigin sannfær- ingu. Að þessu leyti hefur Cioran rétt fyrir sér þegar hann kallar hið evrópska samfélag „samfélag skáld- sögunnar" og talar um Evrópubúa sem „syni skáldsögunnar“.“ Óneitanlega styður það kenningu Kundera, að harðstjórar og einræðís- öfl af öllum blæbrigðum hafa jafnan lagt sig í líma að hefta og helst banna störf rithöfunda. Hitt virðist honum sjást yfir, að leikhúsverk Forngriklq'a vora löngum undir sömu sök seld og skáldsögur síðustu tveggja eða þriggja alda, og nægir í því samhengi að minna á, að jafnt kommúnískir sem nasískir valdhafar, til dæmis í Grikk- landi, lögðu blátt bann við uppfærslu margra hinna fornu skáldverka. Önnur menningarsvæði Sé litið til menningarsvæða, þar- sem annarskonar trúarbrögð gefa tóninn og móta hugsunarháttinn, þá verður fljótlega ljóst að mannúð og mannhelgi era ekki meðal þeirra hugðarefna eða hugsjóna sem helst er hampað, einfaldlega vegna þess að áherslur eru á allt öðrum þáttum. Bæði hindúasiður og búddadómur snúast um alheimslögmál sem nefnt er karma og er í ætt við vilja skapa- noma í fornum norrænum átrúnaði eða anangí (nauðsyn) í forngrískum trúarbrögðum. Maðurinn er sam- kvæmt þessum átrúnaði ofurseldur karma og fær engu breytt um örlög sín á jörðinni - nema hann getur kappkostað að losa sig við lífsviljann og þannig smátt og smátt mjakað sér útúr hringrás lífs og dauða. Hvor- tveggja þessi trúarbrögð eru náttúru- lega flóknari en svo, að þau verði afgreidd með nokkrum orðum eða málsgreinum, en ég held að slá megi því föstu, að grunntónn beggja sé vanmat eða jafnvel lítilsvirðing á mannlífinu og þá um leið á mannslíf- inu og allri mennskri viðleitni. Mað- urinn hefur enga heimild til að rísa gegn forlögum sínum eða reyna að breyta því karma sem er hlutskipti hans í lífinu. Afturámóti ér til af- kvisti hindúasiðar með allt aðrar áherslur, einsog til dæmis Jaínism- inn, sem leggur ofuráherslu á lotn- irigu fyrir öllu sem lífsanda dregur, og trúarbrögð Síkha sem era í eðli sínu keimlík kristnum mótmælendas- ið. Síkhar leggja áherslu á manngildi og manndóm, en kannski síður á mannhelgi og mannúð, enda með afbrigðum herskáir. Sé litið til íslams, sem á sameig- inlega rætur með kristinni trú í gyð- ingdómi, þá virðist öll áhersla músi- íma vera á hlýðni við bókstaf Kórans- ins og algerri undirgefni við boð og bönn Múhameðs. Þórbergur Þórðar- son hélt því einhverntíma fram, að rómversk-kaþólska kirkjan væri eina stofnun í heimi sem engum framför- um tæki, sem er glapsýni, en hitt

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.