Morgunblaðið - 27.04.1993, Page 19
19
Opin ráð-
stefna um
konur og
reykingar
KRABB AMEIN SFÉL AG
Reykjavíkur stendur fyrir op-
inni ráðstefnu um konur og
reykingar á reyklausa deginum,
fimmtudaginn 29. apríl nk. kl.
14-17. Ráðstefnan verður hald-
in í Gyllta salnum á Hótel Borg.
Á ráðstefnunni verða reykingar
kvenna skoðaðar frá mörgum hlið-
um. Konur, jafnt heimavinnandi
sem úti í atvinnulífinu, eru boðnar
velkomnar og er ráðstefnunni m.a.
ætlað að skapa umræðu um reyk-
ingar kvenna. Dagskrá ráðstefn-
unnar er mjög fjölbreytt og þar
verða flutt átta erindi. Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir alþingiskona
ræðir um það hvernig konum er
haldið reykjandi. Rannveig Páls-
dóttir, húð- og kynsjúkdómalæknir,
veltir upp þeirri spurningu hvort
reykingar hafi áhrif á starfsemi
húðar. Valgerður Dan leikkona
ræðir um reykingar á leiksvæði og
Súsanna Svavarsdóttir leiklistar-
gagnrýnandi fjallar um leikara og
reykingar. Anna Gunnarsdóttir,
lista- og fatastílfræðingur,.talar um
reykingar og fatastíl en Einar
Ragnarsson tannlæknir fjallar um
reykingar og tannheilsu. Ingileif
Ólafsdóttir hjúkrunarfræðingur
hugleiðir að lokum hvað sé til ráða.
Nú reykja hér á landi um 32%
kvenna á aldrinum 18-69 ára og
hefur þetta hlutfall lækkað um 13%
á árinu 1985. Reykingar karla hafa
á þessu sama tímabili aftur á móti
minnkað um 28% og nú reykja hlut-
fallslega færri karlar en konur.
Reykingar eru mikið heilbrigðis-
vandamál og þurfa konur í auknum
mæli að skoða reykingar og afleið-
ingar þeirra út frá eigin forsendum.
Einnig ættu konur að skoða, á
gagnrýninn hátt, með hvaða hætti
tóbaksframleiðendur og tóbaksselj-
endur halda hinum ýmsu gerðum
sígarettna að konum. Ráðstefnunni
á Hótel Borg er ekki síst ætlað að
að varpa ljósi á þessi mál.
Eins og áður sagði verður ráð-
stefnan haldin á reyklausa deginum
fimmtudaginn 29. apríl kl. 14—17
á Hótel Borg. Ráðstefnugjald er kr.
900 og greiðist við innganginn.
Ráðstefnugögn og veitingar eru
innifalin. Skráning þátttakenda fer
fram hjá Krabbameinsfélaginu.
(Fréttatilkynning)
Höföar til
.fólksíöllum
starfsgreinum!
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 1993
Miðjan!
LANDFRÆÐILEG MIÐJA HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS.
Miðjan í Smárahvammslandi er á höfuðborgar-
svæðinu miðju. Þaðan tekur örskamma stund að
aka eftir hraðbrautum Reykjanesbrautar, Arnar-
nesvegar og Hafnarfjarðarvegar til miðbæjar-
kjama sveitarfélaganna á svæðinu. Þannig tekur
aðeins um 10 mínútur að aka að Lækjartorgi,
3 mínútur að Garðatorgi og 5 mínútur að Strand-
götu í Hafnarfirði. Enn styttra er p.
í fjölmennar íbúabyggðir Breið-
holtshverfa,Kópavogs, Garðabæjar
og norðurbæjar Hafnarfjarðar.
í MIÐJUNNI hefur verið skipulagt nýtt hverfi
skrifstofu-, þjónustu- og verslunarhúsa með hag-
kvæmni, gæði og fjölþætta nýtingu að leiðarljósi.
Fyrsta húsið er nú fullbyggt og sala húsnæðis þar
hafin. Það býðst fyrirtækjum og stofnunum, stór-
um sem smáum á afar hagkvæmu verði.
Leitið frekari upplýsinga.
FRAMTIÐARSVÆÐI
FYRIR NÚTÍMA FJÁRFESTA fl
Miðjan
SMARAHVAMMUR
Frjálst framtak
ÁRMÚLA 18, SÍMI 81 23 00.
I ofninn, grillið
pottinn eða
pönnuna, aðeins
484% í næstu verslun
BESTU KAUPIN í LAMBAKJÖTI
HVlIA HÚSIÐ / SlA