Morgunblaðið - 27.04.1993, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 1993
33
Þinghald lengist vegna
sjávarútvegsmálanna
TILLÖGUR svonefndrar tvíhöfðanefndar um endurskoðun laga um
stjórn fiskveiða verða ræddar á ríksissljórnarfundi í dag. Nú virðist
orðið næsta líklegt að lagt verði fram frumvarp um stjórn fiskveiða sem
geri ráð fyrir að aflamarkskerfið verði fest í sessi. Einnig verði lagt
fram frumvarp um þróunarsjóð sjávarútvegsins. Það er víst að þessi
frumvörp verða mjög umrædd. Til greina kemur að framlengja þing-
haldið fram eftir maí en einnig kemur til greina að afgreiða frumvörp-
in til nefndar fyrir þingfrestun 6. mal og koma síðan saman síðar í
mánuðinum til að afgreiða málin endanlega.
Eftir að svonefnd tvíhöfðanefnd
skilaði um síðustu mánaðámót hug-
myndum sínum og tillögum um end-
urskoðun á lögum um stjórn fiskveiða
og um Þróunarsjóð sjávarútvegsins
hefur verið beðið með nokkurri eftir-
væntingu hvert framhald málsins
yrði. Nokkur óvissa hefur verið um
hvort frumvörp yrðu lögð fram og
afgreidd á þessu þingi eða í haust.
í maí
Á fundi í gærmorgun með for-
mönnum þingflokkanna með forseta
Alþingis orðaði Össur Skarphéðins-
son þingflokksformaður Alþýðu-
flokksins þá hugmynd að þess yrði
farið leit við þingforseta að hún kann-
aði stöðu málsins hjá sváVarútvegs-
ráðherra. Salome Þorkelsdóttir upp-
lýsti að hún hefði þá þega rætt þetta
mál við Þorsteinn Pálsson sjávarút-
vegsráðherra. Ráðherrann hefði -
greint henni frá því að unnið væri
að þessum málum og þau og fram-
hald þeirra yrðu rædd í ríkisstjórn
næstkomandi þriðjudag, þ.e. í dag.
Salome Þorkelsdóttir forseti Al-
þingis' sagði í samtali við fréttamann
það vera ljóst að sjávarútvegsmálin
kæmu fyrir þingið, og þá væri einnig
ljóst að bæta yrði einhverjum tíma
við þinghaldið. En það væri ekki skýrt
með hvaða hætti það yrði. Til greina
kæmi að framlengja þinghaldið eitt-
hvað fram í maí. Einnig væri mögu-
legt ef- mönnum sýndist svo að af-
greiða málin til nefndar og gera þing-
hlé en koma síðan saman til að af-
greiða það.
Þessi mál voru til umræðu á þing-
flokksfundum stjómarflokkanna í
gær. Geir H. Haarde, formaður þing-
flokks sjálfstæðismanna, sagði að
þessi mál yrðu betur rædd næsta dag
í ríksistjóminni en hann hugði að
menn vildu ekki láta málið dragast
úr hömlu. Han benti á að enn væri
tæpast farið að ræða hvernig staðið
yrði að afgreiðslu þessara mála. Hann
sagði þingflokk sjálfstæðismanna
opinn fyrir öllum möguieikum, m.a.
þeim að afgreiða málið til nefndar
og koma síðan fjótlega saman aftur
í maí og afgreiða það, þá væntanlega
í sama mánuði.
Össur Skarphéðinsson, þingflokks-
formaður Alþýðuflokks, sagði að
þessi mál hefðu verið rædd á þing-
flokksfundinum og sagði „þingmenn
vilja skoða gripinn". Þingflokksform-
aðurinn sagði að Alþýðuflokkurinn
myndi ekki leggjast gegn því að þing-
að yrði fram eftir maí ef sjávarút-
vegsráðherra óskaði eftir því.
Nokkrar vikur
í samtali við Morgunblaðið sagði
Páll Pétursson, þingflokksformaður
framsóknar, að ef/þegar frumvarp
um stjórn fiskveiða og þróunarsjóð
sjávarútvegsins yrðu lögð fram myndi
það kalla á lengra þinghald. „Ef riki-
stjórnin ætlar að klæmast á tillögum
tvíhöfðanefndar í sumar tekur það
nokkrar vikur," sagði Páll. Kristín
Ástgeirsdóttir, formaður þingflokks
Samtaka um Kvennalista, að þetta
stóra mál þyrfti miklu meiri umræðu
bæði í þjóðfélaginu og á þingi. Hún
sagði að sér litist mjög miður á það
ef ætlunin væri að keyra þessi mál
í gegh á fáeinum vikum.
STUTTAR
ÞINGFRÉTTIR
Útvarp og sjónvarp frá
þingumræðu
Á morgun miðvikudag verður.
fyrri umræðu um þingsályktunartil-
lögu alþýðubandalagsmanna um
sjávarútvegsstefnu. verður útvarpað
og sjónvarpað beint í Ríkissjónvarp-
inu. Umræðan hefst kl. 13.30 og
um væntanlega standa nokkuð fram
yfir 16.00. Hveijum þingflokki er
ætlaður um hálf klukkustund í ræðu-
tíma. Ræður verða fluttar í tveimur
umferðum.
Samkvæmt lögum um þingsköp
Alþingis getur þingflokkur óskað
eftir því að útvarpað verði umræðu
um þingmál og er Ríkisútvarpinu
skylt að verða við því. Lagaskyldan
nær þó aðeins til Ríkisútvarpsins,
hljóðvarps. Alþýðubandalagsmenn
vildu einnig gefa öllum landsmönn-
um kost á að njóta þingumræðunnar
sjónrænt og fóru því þess á leit að
Ríkissjónvarpið sjónvarpaði frá um-
ræðunni. Útvarpsráð samþykkti að
verða við þessum tilmælum með því
skilyrði að umræðunni yrði lokið
áður en regluleg dagskrá sjónvarps-
ins hæfist kl. 18.
Samstaða utanríkismálanefnd-
ar um tvíhliða samskipti við EK
í LJÓSI breyttra aðstæðna hefur tekist fullkomin samstaða í utan-
ríkismálanefnd um breytingartillögu við þingsályktunartillögu
framsóknarmanna um tvíhliða samning við Evrópubandalagið, EB,
sem var lögð fram í desember. Nefndarmenn töldu mikilsvert að
enginn vafi sé á um afstöðu íslands til EB.
í desember síðastliðnum lögðu
Steingrímur Hermannsson formað-
ur Framsóknarflokksins og Halldór
Ásgrímsson varaformaður Fram-
sóknarflokksins fram tillögu sem
gerði ráð fyrir að: „Alþingi ályktar
að stefnt skuli að því að ná tvíhliða
samningi við Evrópubandalagið,
fyrst og fremst á grundvelli við-
skiptahluta þess samnings sem fyr-
ir liggur um Evrópskt efnahags-
svæði. Því felur Alþingi ríkisstjóm-
inni að hefja undirbúning að slíkri
samningsgerð og fara þess á leit
við framkvæmdastjórn Evrópu-
bandalagins að viðræður hefjist hið
fyrsta."
Tillögu framsóknannanna var
Erró og íslenzk myndlistarverkefni
vísað til utanríkismálanefndar 29.
mars. í gær var dreift sameiginlegu
áliti og breytingartillögu utanríkis-
málancfndar. Nefndin leggur til að
fyrirsögn tillögunnar verði um „tví-
hliða samskipti við Evrópubanda-
lagið" og að tillögugreinin verði
svohljóðandi: „Alþingi ályktar að í
framhaldi af gerð samningsins um
Evrópska efnahagssvæðið skuli
teknar upp viðræður við Evrópur
bandalagið um tvíhliða samskipti
þess og Islands, einkum með hlið-
sjón af því að Austurríki, Finnland,
Noregur og Svíþjóð hafa sótt um
aðild að bandalaginu. Því felur Al-
þingi ríkisstjórninni að undirbúa
slíkar viðræður um hugsanlegan
tvíhliða samning og tilkynna fram-
ÁRNI Johnsen (S-Sl) vill að: „Alþingi ályktar að fela menntamálaráð-
herra að taka upp viðræður við myndlistarmanninn Erró, Guðmund
Guðmundsson, í því skyni að hann taki að sér myndlistarverkefni
fyrir Islendinga, tengd menningu, sögu, atvinnulífi og náttúru lands-
ins og stöðu Islands á alþjóðavettvangi.“
Meðflutningsmenn með Áma
Johnsen eru Árni M. Mathiesen
(S-Rn), Árni R. Ámason (S-Rn) og
Jóhannes Geir Sigurgeirsson (F-Ne).
I greinargerð með tillögunni segja
flutningsmenn að stíll Errós höfði
til alls þorra fólks óháð iandamær-
um. Listamaðurinn hafi tekið að sér
ákveðin verkefni fyrir stórfyrirtæki
og stjórnvöld erlendis og hefðu slík
verkefni verið sýnd á alþjóðavett-
vangi. Margt vinnist ef þessi íslenski
málari tæki að sér verkefni fyrir
íslendinga, annaðhvort ákveðinn
flölda verka eða um ákveðinn tíma.
Sérstæðir hæfileikar Errós nýttust
á þann hátt íslenskri menningu og
sýningarherferð á slíkum verkum á
alþjóðavettvangi gæti verið liður í
kynningu á íslandi og markaðssókn
í öðrum löndum.
m H
MMAGI
kvæmdastjórn Evrópubandalagsins
um þennan vilja Alþingis."
Það kemur fram í nefndaráliti
að eðlilegt var talið að breyta tillög-
unni í ljósi þess að samningar höfðu
tekist um EES og óvissu vegná
brotthvarfs Sviss af svæðinu hafði
verið eytt. En jafnframt lá fyrir að
viðræður voru hafnar milli nokkurra
EFTA-ríkja og framkvæmdastjórr^**
ar _EB um aðild að bandalaginu.
í áliti utanríkismálanefndar segir
m.a: „Að mati nefndarinnar er ákaf-
lega mikilvægt að enginn vafi sé
um afstöðu íslands til Evrópu-
bandalagsins, EB. Verði niðurstað-
an af viðræðum fyrrgreindra
EFTA-ríkja við EB sú að þau ger-
ist aðilar að bandalaginu er jafn-
framt mikilvægt að fyrir liggi sú
afstaða alþingis að stefnt skuli að
tvíhliða samningi Islands og Evr-
ópubandalagsins. Álítur nefndin
mikilvægt fyrir ríkisstjórnina að
geta stuðst við vilja Alþingis þegar
hugað er að samskiptum íslands
og EB um leið og hún minnir á
nauðsyn þess að nefndinni gefisT
kostur á að fylgjast nákvæmlega
með þróun málsins."
Norræna fjármögnunar-
I félagiö á sviöi umhverfis-
NOKOtC ENVWONMCNT RNANCE COREORAIION mála (NEFCO) er í
eigu Noröurlandanna. Hlutverk félagsins er aö
hvetja til fjárfestinga, sem fela í sér norræna
hagsmuni á sviöi umhverfismála í Miö- og
Austur-Evrópu. Félagiö vinnur aö hlutverki
sínu meö jrví aö leggja fram áhættufjármagn
til fyrirtækja á sviöi umhverfismála. Þátttaka
félagsins, í formi hlutafjárframlags, lánveitinga
eöa veilingu ábyrgöa, er enn sem komiö er,
takmörkuö viö íyrirtæki sem stofnuö eru í
samvinnu viöa.m.k. eitt norrænt fyrirtæki
("joint venlure").
Þegar NEFCO var setl á stofn áriö 7990, var
jafnframt ákveöiö aö starfsemi félagsins kæmi
til endurskoöunar aö liönum 6 ára reynslu-
tíma. Grunnfjármagn félagsins nemur ECU
39 milljónum og hjá félaginu starfa nú fjórir
starfsmenn.
Frá stofnum NEFCO árið 1990 hefur NIB (Norræni fjárfestingarbankinn) annast rekstur félagsins, sem rekið
hefur verið sem deild innan NIB. Aðalbankastjóri NIB hefur því fram til þessa veitt félaginu forstöðu. Sam-
kvæmt ákvörðun Norrænu ráðherranefndarinnar, skal NEFCO frá og með 1. júli 1993 starfa sem sjálfstæð
eining. Áfram verður þó um að ræða náið samstarf milli NEFCO og NIB, sem eru með sameiginlegt að-
setur í miðborg Helsinki.
Stjórn NEFCO leitar því að
FORSTJÓRA
sem veita skal félaginu forstöðu. Forstjórinn heyrir undir stjórn NEFCO, sem skipuð er fulltrúum
landanna.
Norður-
Þess er krafist að hinn nýi forstjóri sé norræn ríkisborgari og hafi viðeigandi reynslu á sviði áhættufjármögnunar og umhverfismála. Jafnframt þarf við-
komandi að hafa lekkingu á málefnum Mið- og Austur-Evrópu og góða málakunnáttu. í boði er áhugavert og krefjandi starf í alþjóðlegu bankalegu
umhverfi og góð kjör. Ráðningin er tímabundin og er til að byrja með bundin yfirstandandi reynslutímabili.
Ef óskað er frekari upplýsinga um starfið, má hafa samband við Jannik Lindbæk aðalbankastjóra NIB eða Christer Boije starfsmannastjóra í síma
+ 358-0-18001. Jafnframt er hægt að hafa samband við stjórnarformann NEFCO, Göran A. Persson, ráðuneytisstjóra í umhverfisráðuneytinu í Stokk-
hólmi í síma +468763 2053.
Umsóknir um starfið skulu hafa borist til NIB í síðasta lagi þann 14. maí 1993 með árituninni:
NORDISKA INVESTERINGSBANKEN
Carola Lehesmaa, PB 249, FIN-00171 HELSINCFORS, FINLAND