Morgunblaðið - 27.04.1993, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 27.04.1993, Qupperneq 39
anna. Veri hann kært kvaddur. Þá vorið aftur vitjar lands, þú viðkvæmt dáins saknar er sóley grær á sverði hans, en sjálfur hann ei vaknar. En þó hann vanti á vorsins hól og vin sinn blóm ei finni, hann lifir þó und þinni sól í þökk og kæru minni. (Steingr. Thorst.) Ég veit að ég mæli fyrir hönd Hvergerðinga, þegar ég sendi frú Laufeyju S. Valdimarsdóttur, ekkju Hafsteins, börnum þeirra, tengda- börnum og barnabörnum mínar innilegustu samúðarkveðjur. Ingibjörg Sigmundsdóttir, forseti bæjarsljórnar. Eitt sinn verða allir menn að deyja. Þrátt fyrir sannleikann í þessum orðum, kemur það alltaf ástvinum í opna skjöldu þegar kall- ið kemur. Tengdafaðir minn var enginn meðalmaður, hvernig sem á það er litið. Hann gnæfði yfir alla hvar sem hann fór og var hrókur alls fagnað- ar. Ég og fjölskylda mín erum svo heppin að búa við hliðina á tengda- foreldrum mínum og því er sam- gangur mikill. Þau voru okkar stoð og stytta og hafa litlu drengirnir okkar átt í gott hús að venda, þar sem afi og amma voru. Hafsteinn var kletturinn í hafinu í okkar fjöl- skyldu, hann hélt utan um allt og vildi helst hafa okkur öll í sem mestri nálægð svo að hann gæti fylgst með okkur og séð um að öll- um liði vel. Það sýndi svo vel hans innræti, hann var alltaf að vinna fyrir aðra og hugsa um aðra. Tengdafaðir minn var mér og tveimur tengdasonum sínum miklu meira en bara tengdafaðir. Hann tók okkur öllum strax sem sínum eigin börnum og var okkur sem besti faðir og vinur. Einnig var hann barnabörnunum sínum fjórum meira en afi, þó að ég hafi ekki orð yfir það hvað er að vera meira en afí. Hann hafði svo gaman af litlu krökkunum. Ekkert fannst drengj- unum okkar meira gaman en að vera með afa að vinna, þeir gátu verið úti í garði og bílskúr tímunum saman að vinna og stússast með afa, þeir fengu að smiða, saga, mæla, moka, pæla garðinn og þar fram eftir götunum. Ekki minnkaði svo gamanið þegar afi tölti með drengina sína út í ísgerð, því að þar lumaði hann á ýmsu í litla munna sem sjaldan mettast. Alltaf virtist afi hafa óþrjótandi þolin- mæði gagnvart þessum kátu og fyrirferðarmiklu sonarsonum sín- um. Ég veit ekki hversu vel litlu barnabörnin skilja að hann afi þeirra kemur aldrei aftur og að þau geti ekki lengur skriðið upp í fang hans og látið hann halda utan um sig og að þau geti ekki lengur feng- ið að sofa hjá afa yfir nótt, sem var það skemmtilegasta sem þau vissu. Við sem eldri erum munum sjá til þess að halda uppi minningu hans svo að þau gleymi honum afa sínum ekki og geti yljað sér við minninguna um afann sem var þeim svo kær. Marga góðra daga er að minnast með Hafsteini, en þó er sérstaklega einn dagur ofarlega í minningunni en það er brúðkaupsdagur yngstu dóttur hans, Guðrúnar, sem var 3. apríl síðastliðinn. Hafsteinn gifti dóttur sína með miklum glæsibrag og hélt ræðu yfir brúðhjónuhum sem honum einum var lagið, með alvarleika og glettni í bland. Við vorum öll svo ánægð með daginn og ekki síst Hafsteinn sem var svo stoltur af dóttur sinni og tengda- syni. Hamingjan og gleðin þennan dag mun lengi vera ofarlega í hug- anum hjá öllum ættingjunum sem saman voru komnir á gleðistund og ekki síst hjá nýbökuðu hjónun- um. Annarrar stundar er minnst í fjöl- skyldunni með mikilli gleði, sem er þiját.íu ára brúðkaupsafmæli Haf- steins og Laufeyjar þann 9. mars síðastliðinn. Þau hjónin virtust yngjast í annað sinn og Hafsteinn bauð konu sinni til Reykjavíkur í helgarferð, þar sem gist var á Hót- MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. APRIL 1993 el Borg og íslenska óperan jafnt sem Kolaportið var heimsótt. Þau hjón komu endurnærð úr þessari ferð, enda flestar ferðir til Reykja- víkur hin síðari ár farið í erilsama leiðangra. Þó að Hafsteinn ræki stórt og mannmargt fyrirtæki, þá hafði hann alltaf tíma fyrir fjölskylduna, henni gleymdi hann aldrei. Fallegra og innilegra hjónaband en þeirra hjóna hef ég aldrei séð. Þau voru svo góð hvort við annað og báru mikla virðingu hvort fyrir öðru sem svo endurspeglar alla þá ást sem þau höfðu að gefa okkur hinum. Við fráfall þessa glæsilega manns er missir margra mikill, en mestur er þó missir Laufeyjar tengdamóður minnar, sem tileink- aði honum líf sitt af heilum hug. Hafsteinn lætur eftir sig eigin- konu, fjögur uppkomin börn, þijú tengdabörn og fjögur barnabörn sem munu syrgja hann mikið, en minningin um góðan eiginmann, föður, tengdaföður og afa mun lifa um ókomin ár og hjálpa okkur á erfiðum stundum. Guð blessi minningu góðs manns og hjartans þakkir fyrir samfylgd- ina. Sigrún Kristjánsdóttir. Alltaf er maður jafn óviðbúinn fréttum af andláti góðs vinar. í dag kveðjum við vinnuveitanda okkar Hafstein Kristinsson, for- stjóra Kjöríss hf., er varð bráð- kvaddur hinn 18. apríl sl. Andlát hans kom sem reiðarslag yfir okkur starfsfólkið. Mætur maður er fallinn í valinn langt um aldur fram. Hafsteinn var mikill framkvæmdamaður og gekk í hvert verk af áhuga og dugnaði. Hann hafði góða þekkingu á öllu sem viðkom rekstri fyrirtækisins og setti sig inn í öll mál, stór og smá. Þó að hann stjórnaði af rögg- semi var hann ávallt góður félagi og vinur allra starfsmanna og lét sig varða hagi okkar og tók þátt í gleði okkar og sorg. Hann vildi hvers manns böl bæta. Hafsteinn var mikill mannvinur og tók á móti öllum sem jafningj- um, hvort heldur það voru börn, fullorðnir, verkamenn eða ráðherr- ar. í gegnum árin hafa mörg ung- menni stigið sín fyrstu spor á vinnu- markaðinum í sumarafleysingum undir hans handleiðslu og reyndist hann þeim góður leiðbeinandi og hafa þau gjarnan leitað hingað aft- ur sumar eftir sumar og mörg ílenst. Með þessum fátæklegu orðum viljum við þakka Hafsteini þá vin- áttu og tryggð sem hann hefur sýnt okkur starfsfólkinu í gegnum árin og kveðjum við hann með sár- um söknuði og virðingu. Eiginkonu hans, börnum, tengdabörnum, barnabörnum og öðrum aðstandendum sendum við okkar innilegustu samúðarkveðjur. Eiginkonu hans, börnum, tengdabörnum, barnabörnum og öðrum aðstandendum sendum við okkar innilegustu samúðarkveðjur. Megi góður Guð styrkja ykkur í sorginni. Starfsfólk Kjöríss hf. Ég drýp höfði í söknuði og virð- ingu fyrir Hafsteini Kristinssyni sém lést um aldur fram. Tveggja áratuga vinsamleg samskipti og samstarf eru að baki. Þar bar aldr- ei skugga á. Einlægni hans, heiðar- leiki og gagnkvæm virðing ávallt í fyrirrúmi. Eg ber í bijósti þakklæti fyrir viðkynninguna. Gjörvulegur á velli og lundgóður, glöggskyggn, framsýnn og áræðinn gekk hann til verka. Verkefnin íhuguð og vandlega undirbúin, hávaðalaust. Lánsamur og farsæll í einkalífi, við rekstur fyrirtækis síns svo og í margþættum trúnaðar- störfum er honum voru falin. Hann uppskar svo sem til var sáð. Alúð og umhyggja í uppvexti, góð menntun, traustir fjölskyldu- hagir, líkamsburðir og heilsa var sá grundvöllur er byggt var á og skópu þann vettvang þar sem fram var sótt. Þar fór saman athöfn og djörfung. Þar steig hann stórum skrefum og markaði djúp spor í framfarasögu Suðurlands. Fyrir hönd fulltrúaráðs Sjálf- stæðisfélaganna í Árnessýslu, At- orku, samtaka atvinnurekenda á Suðurlandi og persónulega færi ég ijölskyldu Hafsteins Kristinssonar hiuttekningu og dýpstu samúðar- kveðjur. Þorsteinn S. Ásmundsson. Kveðja frá Sjálfstæðismönn- um í Hveragerði og Olfusi Hafsteinn Kristinsson fæddist 11. ágúst 1933 í Árnesi á Selfossi, sonur Kristins Vigfússonar og Ald- ísar Guðmundsdóttur. Árið 1966 fluttist Hafsteinn til Hveragerðis og hóf rekstur osta- gerðar, en árið 1968 var Kjörís hf. stofnað og var Hafsteinn fram- kvæmdastjóri til dauðadags. Hafsteinn gekk til liðs við sjálf- stæðismenn í Hveragerði árið 1967 og voru honum fljótlega falin marg- vísleg trúnaðarstörf. Árið 1970 var hann kosinn í stjóm Sjálfstæðisfé- lagsins Ingólfs fyrsta sinn og tók jafnframt 5. sæti á framboðslista félagsins í sveitarstjórnarkosning- um það sama ár. Hann var formað- ur Ingólfs í eitt ár 1974-1975, en árið 1974 var hann valinn til að skipa efsta sæti á framboðslista sjálfstæðismanna. Hann átti sæti í sveitarstjórn og síðar bæjarstjórn til ársins 1989 er hann dró sig í hlé að eigin ósk. Hann var oddviti 1974-1978 og 1982-1987, en í júlí 1987 hlaut Hveragerði kaupstaðar- réttindi og var Hafsteinn kjörinn fyrsti forseti bæjarstjórnar Hvera- gerðis. Hann starfaði einnig í nefndum Hveragerðisbæjar og átti sæti í skipulagsnefnd er hann féll frá. Hafsteinn var fulltrúi sjálfstæðis- félagsins um árabil á landsfundum Sjálfstæðisflokksins, í kjördæmis- ráði Sjálfstæðisflokksins á Suður- landi og í fulltrúaráði sjálfstæðisfé- laganna í Árnessýslu. Hann tók þá ákvörðun síðastliðinn vetur að koma aftur til starfa fyrir félagið og var kosinn í stjórn í febrúar 1993 og tók að sér starf gjaldkera. Hafsteinn hafði óbilandi trú á framtíð Hveragerðis og þrátt fyrir að hann stjórnaði stóru fyrirtæki gaf hann sér ætíð tíma til að gefa góð ráð um málefni bæjarfélagsins. Hann naut virðingar bæjarbúa fyrir Ég vil hér með minnast vinkonu minnar og samstarfskonu til fjölda ára, Margrétar Gísladóttur frá Skógargerði, sem lést þann 6. apríl sl. Foreldrar hennar voru Gísli Helgason og Dagný Pálsdóttir. Margrét var elst þrettán systkina, systurnar voru níu og bræðurnir fjórir, allt stórglæsilegt fólk. Margrét dvaldi á heimili foreldra sinna fram undir fermingaraldur, en þá þegar fór hún að leita sér að atvinnu út í frá. Hún kom á heimili okkar Sveins Jónssonar á Egilsstöðum tuttugu og fjögurra ára gömul og dvaldist þar um ára- bil. Á meðal heimilisfólks var ungur maður, Sigurður, sonur Einars Jónssonar bónda á Víðivöllum ytri í Fljótsdal og frænku minnar Þór- unnar Einarsdóttur konu hans. Margrét og Sigurður felldu hugi saman og eitt sinn tóku þau sér stutt frí og fóru í ferðalag. í ferð- inni komu þau við á Kolfreyjustað í Fáskrúðsfirði og létu prófastinn þar gefa sig saman. Á Egilsstöðum fæddust þeim hjónum tveir synir, Gísli og Svavar, og nokkru síðar dóttirin Dagný en þá\ar fjölskyldan flutt á Reyðar- fjörð og Sigurður hafði hafið störf hjá Kaupfélagi Héraðsbúa. Er ég þeim hjónum ævinlega þakklát fyr- mikið og óeigingjarnt starf í þágu Hveragerðis. Sjálfstæðismenn í Hveragerði kveðja með virðingu foringja sinn og góðan félaga. Við vottum Laufeyju, börnunum og fjölskyldum þeirra okkar innileg- ustu samúð. Stjórn Sjálfstæðis- félagsins Ingólfs. Okkur setti hljóða, félagana í Lionsklúbbi Hveragerðis, þegar við fréttum lát félaga okkar og vinar, Hafsteins Kristinssonar, forstjóra Kjöríss í Hveragerði. Allt frá stofnun Lionsklúbbsins í janúar 1970 var Hafsteinn einn ötulasti liðsmaðurinn í klúbbstarf- inu, hugmyndaríkur dugnaðar- forkur hvar sem hann snerti á verki. Hann bar hag klúbbsins mjög fyrir bijósti. Hann var til- lögugóður og úrræðagóður. Mál hans var kjarnyrt og yfirleitt kryddað góðlátlegri kímni svo að hann átti auðvelt með að fá menn til liðs við sig til góðra verka. Hvort sem klúbburinn var að selja ljósaperur, blóm eða hreinlætisvör- ur, halda hlutaveltu eða afla fjár á annan hátt, var Hafsteinn fremstur í flokki, glaður og ein- beittur, vitandi að ágóðinn færi allur til valinna verkefna á sviði menningar- og mannúðarmála. Þegar klúbburinn bauð eldri borg- urunum til kaffisamsætis eða í stutta ferð var Hafsteinn með og stjanaði við gamla fólkið. Hvar sem hann kom var tekið eftir honum, menn hlustuðu með athygli á orð hans og það duldist engum að þar fór góður drengur. Lionsfélagarnir kunnu líka að meta Hafstein að verðleikum. Hann sat í stjórn klúbbsins í mörg ár fram til 1990, var m.a. formað- ur 1973-74, hann sat í stjórn Li- onsumdæmis 109 1975-76 og var svæðisstjóri fyrir Suðurland 1977-78. Það var dapur hópur Lionsfélaga sem mætti til fundar á mánudags- kvöldið fyrir viku, 19. apríl, daginn eftir andlát Hafsteins. í byrjun fundar vottuðu félagarnir minn- - ingu hans virðingu sína með því að rísa úr sætum og lúta höfði, og þótt aðalfundarefnið væri að afhenda fjárframlag til kaupa á lækningatæki, var fundurinn að ir margskonar störf og ágæta sam- búð þann tíma sem þau dvöldu hjá okkur á Egilsstöðum. Að nokkrum árum liðnum fluttu þau aftur upp í Egilsstaði og höfðu þá byggt sér hús fy'élagi við bróður Sigurðar, Jónas, þar sem þau bjuggu æ síðan. Sigurður starfaði áfram hjá Kaupfélagi Héraðsbúa en Margrét hugsaði um sitt heimili og fór nú að hafa meiri tíma fyrir ýmis félagsmál og störf á því sviði. Hún gekk fljótlega í kvenfélagið Bláklukku á Egilsstöðum og gegndi þar margs konar störfum um langa hríð. Síðustu árin hefur Margrét verið heiðursfélagi í kvenfélaginu. Margrét var flinkur organisti og fyrr á tíð var hún um tíma organ- isti í öllum kirkjum á Upphéraði og þegar Egilsstaðaþorp var gert að sérstakri kirkjusókn var Margrét kosin í sóknarnefnd og sat hún þar allt til síðasta dags. Bæði í kvenfé- laginu og sóknarnefndinni áttum við Margrét mikið og gott samstarf. Ennfremur var Margrét kosin safnaðarfulltrúi Suður-Múlapró- fastsdæmis og sat hún mörg kirkju- þing og mun hún hafa verið einn af fyrstu kvenfulltrúum þar. Þrjár utanlandsferðir fór Margrét og allar til Jerúsalem og í síðustu ferðinni var hún sæmd heiðurs- skjali sem pílagrímur vegna áhuga síns um kristna trú. Auk þriggja barna Margrétar og Minning Margrét Gísladóttir frá Skógargerði Fædd 19. ágúst 1909 Dáin 6. apríl 1993 39 miklu leyti helgaður minningu hans. Lionsklúbbur Hveragerðis send- ir eftirlifandi eiginkonu Hafsteins, Laufeyju Valdimarsdóttur, börnum þeirra, Aldísi, Valdimar, Guðrúnu og Sigurbjörgu, mökum, barna- börnum og öðrum ættingjum inni- legar samúðarkveðjur. F.h. Lionsklúbbs Hveragerðis, Valgarð Runólfsson. Vinarkveðja. Með innilegri virðingu og þökk langar mig að minnast Hafsteins Kristinssonar. Þegar ég heyri orðið drengskaparmaður kemur mér Haf- steinn ævinlega í hug. Fáa þekki ég sem það heiti bera með jafnmikl- um sóma og hann. Hann hóf störf hjá MBF sem ungur piltur og vakti þá athygli fyrir traustvekjandi og prúðmann- lega framkomu. Það átti eftir að koma í ljós við nánari kynni þá og síðar á lífsleiðinni að þannig var hann í raun. Mér er efst í huga að þakka fyr- ir samvinnu okkar á þeim árum sem ég var í stjórn Mjólkurfræðingafé- lags íslands. Þá var Hafsteinn ráðu- nautur Búnaðarfélags íslands og MBF og síðar forstjóri Kjöríss hf. Það er til marks um það traust sem ég bar til Hafsteins að ævin- lega leitaði ég til hans, þyrfti ég faglegar ráðleggingjar mjólkur- tæknifræðings. Fáum treysti ég betur, enda valdi ég hann oft í nefndir á vegum mjólkurfræðinga- félagsins og var hann okkur að auki oft góður ráðgjafí. Þetta þótti ýmsum óviðeigandi, því hann var, sem yfirmaður og vinnuveitandi, í raun mótherji mjólkurfræðinga í kjarasamningum. Naut hann sem slíkur einnig trausts vinnuveitenda. Finnst mér þetta traust beggja að- ila lýsa betur en mörg orð heiðar- leika, drengskap og réttsýni hans. Með þessum fáu orðum vil ég þakka fyrir að hafa kynnst Haf- steini Kristinssyni og hans góðu kostum um leið og ég votta ástvin- um hans og samstarfsfólki innilega samúð við ótímabært fráfall góðs drengs. Þórarinn Sigmundsson. Fleiri greinar um Hafstein Krist- insson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Sigurðar áttu þau einn fósturson, Helga Ómar Bragason, nú starfandi skólameistara Menntaskólans á Egilsstöðum. Hann er systursonur Margrétar, en móðir hans dó frá honum ungum. Margrét og Sigurð- ur ólu hann upp sem sitt eigið barn. Mann sinn missti Margrét árið 1981 en hún hélt áfram heimili sitt allt fram undir það síðasta. Ég vil leyfa mér að kveðja Margréti vin- konu mína með orðum Jónasar Hallgrímssonar: Flýt þér, vin[a], í fegra heim. Kijúptu að fótum friðarboðans og fljúgðu á vængjum morgunroðans meira að starfa guðs um geim. Innilegustu samúðarkveðjur til barna, fóstursonar og annarra ætt- ingja. Sigríður Fanney Jónsdóttir Egilsstöðum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.