Morgunblaðið - 27.04.1993, Síða 40

Morgunblaðið - 27.04.1993, Síða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 1993 Minning Þóra Guðlaugsdóttir Fædd 8. júní 1896 Dáin 19. apríl 1993 Elskuleg móðursystir mín, Þóra Guðlaugsdóttir, er látin, 96 ára að aldri. Hún sofnaði hægt og hljótt eftir að hafa verið rúmliggjandi nokkra síðustu mánuði ævi sinnar. Þóra fæddist í Fellskoti, Biskups- tungum, 8. júní 1896, dóttir hjón- anna Guðlaugs Eiríkssonar, bónda þar, og konu hans Katrínar Þorláks- dóttur. Guðlaugur og Katrín eign- uðust tíu böm og var Þóra elst þeirra. Nú eru tvö eftirlifandi, Guð- rún móðir mín og Þórarinn bóndi í Fellskoti. Móðir mín hefur sagt mér frá æsku sinni í Fellskoti með stóra systkinahópnum, þar sem Þóra tók fljótt þátt í gæslu og uppeldi yngri systkinanna. Systkinin settust svo flest að hér fyrir sunnan, en við systkinabörnin fengum oft að njóta þess að koma í sveitina á sumrin með foreldrum okkar. Þá var oft margt um manninn og glatt á hjalla og unun hefur verið að upplifa, hve þessi stóri systkinahópur var alltaf samrýmdur og þau öll góð hvert við annað. Þóra giftist Hannesi Jóhannes- syni, kennara og síðar málara í Reykjavík. Hann lést í mars 1957, aðeins 63 ára að aldri. Þau eignuð- ust tvö börn, Guðlaug, gerlafræðing hjá Hollustuvernd ríkisins, f. 21. sept. 1926, og Ragnheiði, húsmóður og fulltrúa hjá Hollustuvemd ríkis- ins, f. 12. ágúst 1932. Þóra var nett kona og fríð, góð- leg og vel skápi farin. Hún var ein af þessum góðu manneskjum, sem alltaf var notalegt að koma til. Mínar fyrstu minningar eru frá 'því, er ég trítlaði við hlið móður minnar vestan af Melum, yfir Tjam- arbrúna og upp í Þingholtin, til að skreppa í kaffi til Þóru frænku. Þar mætti manni hlýtt viðmót og ilmur af kaffi og kökum. Síðan var sest við borðstofuborðið og þar hlustaði ég á vingjarnlegar samræður systr- anna. Stundum bættust fleiri í hóp- inn, því alla tíð var gestkvæmt á heimili Þóra í Þingholtunum. Eins minnist ég sumardaga þegar ég fékk að fara með henni og Rögnu dóttur hennar suður í kartöflugarð, en hann var út við enda Laufásveg- ar. Þá var tekið með nesti, eitthvað á brúsa og kökur í poka. Allt er þetta eitthvað svo rólegt og nota- legt í minningunni. Það var ekki fyrr en Þóra var orðin rúmlega níræð að hún þurfti að hætta húsmóðurstörfum og flutti á Hjúkrunarheimilið Skjól, þar sem hún lést 19. apríl sl. Við fjölskyldan sendum börnum hennar og fjölskyldum þeirra inni- legar samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Þóru Guðlaugsdóttur. Kolbrún Þórhallsdóttir. Það var mikill friður yfir sál elsku ömmu minnar dagana áður en hún sveif upp í hinar hæstu hæðir. Kom- ið var að því að hún hlyti hvíldina miklu, sátt við Guð og menn, búin að skila sínu og vel það, á næstum aldarlangri ævi. Litla langömmu- stelpan hennar, Ragnheiður Dísa, þriggja ára, sagði þegar hún heyrði að langamma væri farin upp til Guðs: „Nú líður langömmu vel mamma mín, Guð hugsar svo vel um hana.“ Og það er ég svo sannar- lega viss um að hann gerir. Amma mín Þóra fæddist í Fells- koti í Biskupstungum 8. júní, 1896. Foreldrar hennar vora Katrín Þor- láksdóttir og Guðlaugur Eiríksson. Eignuðust þau tíu börn og var amma mín elst þeirra. Af systkinahópnum eru nú tvö eftirlifandi. Amma giftist 29. júní 1926 afa mínum, Hannesi Jóhannessyni (f. 4. nóvember 1893, d. 23. mars 1957) kennara, yndis- legum manni, og stofnuðu þau heim- ili í Bergstaðastræti 12 í Reykjavík. Eignuðust þau tvö börn, móður mína, Ragnheiði, f. 12. ágúst 1932, og Guðlaug, f. 21. september 1926. Bjuggu þau ætíð í miðbæ borgarinn- ar og var heimili þeirra vinsæll við- komustaður ættingja og vina. Alltaf átti amma eitthvert nýbakað kaffi- brauð til að bjóða uppá, alla hennar búskapartíð, jafnvel eftir að hún komst á tíræðisaldurinn. Aldrei mun ég gleyma hve dásamlega vel pönnukökurnar (þær bestu í bæn- um), skonsurnar, sherrýtertan og Bessastaðasmákökurnar hennar brögðuðust. Mínar fyrstu minningar um ömmu mína eru frá Barónsstígnum, þar sem agnarlítið stúlkubarn skreið upp stigann til ömmu á sunnudags- morgnum, fékk að kúra undir stóra sænginni hennar og maula bijóst- sykur, sem var alltaf geymdur í fallegri dós bak við glerið í fína skápnum hennar. Oft fékk ég að sofa hjá ömmu og ætíð var það jafn spennandi því hún hafði mikið að gefa litlu barni, mikla visku, skiln- ing, trú og elsku. Alltaf var skemmtilegt hjá okkur. Við spiluð- um á spil, og stundum settist hún við fallega fótstigna orgelið sitt og spilaði nokkur lög. Ung lærði hún að leika á orgel hjá Sigfúsi Einars- syni og var hún orgelleikari á tíma- bili í kirkjunni í Bræðratungu. Einn- t Móðir okkar, BJARNVEIG BJARNADÓTTIR, Vesturgötu 7, andaðist í Borgarspítalanum að morgni 26. apríl. Jarðarförin auglýst síðar. Loftur Jóhannesson, Bjarni Markús Jóhannesson. t LÁRA GUNNARSDÓTTIR frá Vík í Mýrdal, Kleppsvegi 118, Reykjavík, lést á heimili sínu 26. apríl. Bræðurog börn hinnar látnu. t Eiginkona mín og móðir, ELÍN SNÆBJÖRNSDÓTTIR, Bústaðavegi 105, lést í Vífilsstaðaspítala 25. apríl. Guðbrandur Vigfússon, Guðrún Guðbrandsdóttir. t Bróðir minn, JÓN GUÐMUNDSSON fyrrv. bústjóri á Keldum, sem lést þann 18. apríl, verður jarðsunginn frá Árbæjarkirkju miðvikudaginn 28. apríl kl. 13.30. Steinn Guðmundsson. t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar og bróðir, KRISTJÁN KRISTINSSON, Bröndukvísl 14, lést á gjörgæsludeild Landspítalans aðfaranótt 24. apríl. Nína Hafstein, Eyjólfur Kristjánsson, Unnur Kristjánsdóttir, Sigrún Hafstein, Kristín Kristinsdóttir. t Ástkær eiginmaður minn, BRYNJÓLFUR INGVAR KJARTANSSON, dvalarheimilinu Höfða, áður Háholti 30, Akranesi, verður jarðsunginn frá Akraneskirkju fimmtudaginn 29. apríl kl. 14.00. Þeir, sem vildu minnast hins látna, vinsamlegast láti dvalarheimil- ið Höfða njóta þess. Málfrfður Þorkelsdóttir. t Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, GUÐNÝ AÐALBJÖRG GUÐMUNDSDÓTTIR, Háaleitisbraut 111, sem lést 17. apríl, verður jarðsungin frá Skálholtskirkju miðviku- daginn 28. apríl kl. 14. Helgi Indriðason, Gróa Kristín Helgadóttir, Guðmundur Haraldsson, Birgir Stefánsson, Guðný B. Harðardóttir, Helga S. Harðardóttir, Ásrún Birgisdóttir. GRÁSTEINN GABBRÓ,MARMAR1 G R A N ÍT ifs .HELGASON HF STEINSMIÐJA SKEMMUVEGI 48 KÓPAVOGI SÍMI: 91 76677 t Ástkær eiginmaður minn, fósturfaðir, tengdafaðir, afi og langafi, KJARTAN VILBERGSSON, Vinaminni, Stövarfirði, sem lést þriðjudaginn 20. apríl, verður jarðsunginn frá Stöðvar- fjarðarkirkju miðvikudaginn 28. apríl kl. 14.00. Fyrir hönd vandamanna, Þóra Jónsdóttir, Kristrún Guðnadóttir, Ólafur Guttormsson, Bergþór Hávarðsson, Þóra Björk Nikulásdóttir, Björgvin Valur Guðmundsson, barnabörn og barnabarnabörn. Ig man ég eftir nokkrum laugar- dagskvöldum þar sem við sátum og hlustuðum á „danslögin" í útvarp- inu, sungum saman og hreyfðum okkur í takt við ijöruga og fallega tóna. Síðan var skriðið upp í rúm og sofnað vært út frá bænunum og sögunum hennar ömmii. Þegar ég varð eldri naut ég þess að þiggja kaffisopa hjá henni í Aust- urbrúninni og spjalla um daginn og veginn, lífið og tilveruna. Oft sagði hún sögur úr sveitinni sinni sem hún elskaði svo mikið og þráði að kom- ast þangað á hvetju sumri. Ekki var spenningurinn minni við að fá ömmu í heimsókn. Þegar von var á henni var setið úti í glugga og mínútumar taldar og aldrei vora jólin alveg fullkomnuð fyrr en amma var kom- in. Þá vora spilin iðulega dregin upp og öll fjölskyldan spilaði langt fram á kvöld. Amma mín var stolt og virðuleg heiðurskona með sterka skapgerð, enda gat hún stjórnað léttilega öll- um í kringum sig með augnaráðinu einu. Hennar mikli innri styrkur og staðfesta hafa án efa lengt lífshlaup hennar og auðveldað það. Þó lífið væri ekki alltaf dans á rósum kvart- aði hún aldrei og þakkaði vel Guði og mönnum fyrir allt sem lífið gaf henni á hveijum tíma. Á nærri ald- arlangri ævi hafði hún auðvitað upplifað ótrúlegar breytingar og framfarir, sem hún tók öllum með jafnaðargeði. Hún leið enga vit- leysu, en ætíð var lífsgleðin í fyrir- rúmi og stutt í brosið og kímnina og naut hún þess að gera sér glaðan dag. Hún var ætíð vel til höfð og hárið oftast stíflagt, einnig síðustu ár hennar. Þegar aldurinn fór að færast yfir ömmu og þrekið að minnka átti hún vísa dygga aðstoð barna sinna, sem fóra eins oft og við var komið til hennar. Síðustu tæp fjögur ár bjó hún á hjúkranarheimilinu Skjóli og naut þar mjög góðrar umönnunar. Á starfsfólk heimilisins heiður skil- inn fyrir yndislegheit sín. Amma var ætíð lagin í höndunum og saumaði í gegnum tíðina margar fullfallegar myndir og klukkustrengi. Á Skjóli fékk hún að halda áfram handa- vinnu sinni og óf þar af vandvirkni fallegar mottur og fleira. Stundum fór litla dóttir mín með mér að heim- sækja langömmu á Skjóli og var yndislegt að sjá þær haldast í hend- ur, brosandi báðar út að eyrum, að finna vináttutengslin blómstra þrátt fyrir 93 ára aldursmun. „Langamma er sæt,“ sagði sú litla, og var ég innilega sammála henni. Nú kveðjum við ömmu í síðasta sinn, með virðingu, ást, þakklæti og söknuði. Eflaust horfir hún núna brosandi yfir fallegu sveitina sína með sól í hjarta. Guð blessi hana um alla eilífð og ættingja hennar. Rósa Þóra Magnúsdóttir og fjölskylda. <'■ Blóm Skreytingar Gjafavara Kransar Krossar Kistuskreytingar Opið alla daga frá kl. 9-22 Fákafeni 11 s. 68 91 20 Blómastofa Friðfinns Suðurtandsbraut 10 '108 Reykjavík, S(mi 31099 Opið öilkvöid til kl. 22,» einnig um helgar. Skreytingar við öll tilefni. Gjafavörur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.