Morgunblaðið - 27.04.1993, Qupperneq 41
41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 1993
Minning'
Óskar Þórðarson
Fæddur 10. júní 1908
Dáinn 19. apríl 1993
Hann afi okkar, Óskar Þórðarson
er látinn. Hann hafði átt við slæma
heilsu að stríða síðustu misseri sem
að lokum bar hann ofurliði. Hann
lést á Borgarspítalanum 19. apríl
eftir stutta sjúkralegu.
Óskar Þórðarson var ættaður frá
Stokkseyri, húsasmiður að mennt.
Hann giftist Þóru Þorkelsdóttur,
eða Dúllu eins og hún var yfirleitt
kölluð árið 1934. Hann lærði sitt
fag í Iðnskólanum við Tjörnina og
útskrifaðist með bestu einkunn árið
1931. Hann vann við sitt fag alla
tíð og þótti vandvirkur mjög, en
seinni hluta ævinnar voru það þó
innréttingasmíðar sem hann vann
mest við. Þau hjónin gerðu sér
heimili að Grenimel 8. Hús sem afi
teiknaði og smíðaði ásamt hjónun-
um á neðri hæðinni, Jóni Þorkels-
syni og Guðríði Einarsdóttur. Var
þar oft mannmargt. Níu systkini á
neðri hæðinni og hann pabbi á efri
hæðinni.
Afi var óspar á að smíða fyrir
okkur í fjölskyldunni eftir að hann
fór á eftirlaun. Fannst ekki tiltöku-
mál að taka sér ferð á hendur vest-
ur á firði til að setja upp innrétting-
ar og gluggapósta. Eða að smíða
rúm fyrir langafabörnin. Þetta gerði
hann kominn á níræðisaldur og við
ört hrakandi heilsu. Ef reynt var
að halda aftur af honum sagði hann
einungis, að hann yrði að hafa eitt-
hvað fyrir stafni til að halda söns-
um.
Afi ferðaðist mikið um ævina,
sérstaklega innanlands. Og var
hann hafsjór af fróðleik um landið,
og var hann ötull við að miðla þeim
fróðleik til okkar sem inntum hann
eftir upplýsingum. Hans verður sárt
saknað og eitt er víst að hann mun
ávallt lifa í minningum okkar
bræðra.
Blessuð sé minning hans.
Þú sagðist trúa og trú þin var sterk.
Ég trúði aldrei á kraftaverk.
Þegar augu mín opnast sé ég
ævi þína renna þeim hjá.
Stundum finnst mér ég heyra hlátur
og hjarta mitt fyllist af ljúfsárri þrá.
Ég minnist þín-
ég minnist þín.
(Bubbi Morthens).
Óskar Þorkelsson,
Hjalti Þ. Þorkelsson,
Þorkell G. Þorkelsson,
Marteinn Þorkelsson.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
HREINN SIGURÐSSON,
Engihlið 14,
verður jarðsunginn frá kirkju Óháða safnaðarins í Reykjavík,
miðvikudagin 28. apríl kl. 13.30.
Unnur Krfstin Sumarliðadóttir,
Sigurgeir Ernst, Birna Baldursdóttir,
Viktoría Sigurgeirsdóttir, Unnur Kristin Sigurgeirsdóttir.
t
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
SVANFRID A. DIEGO,
sem lést á heimili sínu, Laufásvegi 8,
laugardaginn 17. apríl, verður jarðsung-
in frá Fríkirkjunni í Reykjavík miðviku-
daginn 28. apríl kl. 13.30.
Þeim, sem vildu minnast hennar, er
bent á Barnaspítala Hringsins pg
heimahlynningu Krabbameinsfélags ís-
lands.
Sverrir Gauti,
og Kolbrún Diego,
Sonja Diego
Erla Diego
Dóra Diego,
barnabörn og barnabarnabörn
Ég sat við rúm þitt og þagði með þér,
þrúgaður af myndum í huga mér.
Birting af-
mælis og
minningar-
greina
MORGUNBLAÐIÐ tekur af-
mælis- og minningargreinar
til birtingar endurgjaldslaust.
Tekið er við greinum á rit-
stjórn blaðsins Kringlunni 1,
Reykjavík, og á skrifstofu
blaðsins i Hafnarstræti 85,
Akureyri.
ERFIDRYKKJUR
Verð frá kr. 850-
P E R L A N sími 620200
t
Við þökkum öllum þeim, sem minntust frænku okkar og mágkonu,
JÓHÖNNU SIGURÐARDÓTTUR
frá Veturliðastöðum,
og sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts hennar og útfarar.
Jafnframt þökkum við starfsfólki dvalarheimilisins Hliðar á Akureyri
fyrir nærgætna umönnun Jóhönnu heitinnar undanfarin níu ár.
Stefán Karlsson, Einhildur Sveinsdóttir,
Steinunn Stefánsdóttir og fjöldskylda.
t
Innilegar þakkir til þeirra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
SIGURÐAR BJÖRNSSONAR
húsasmfðameistara.
Helga Magnúsdóttir,
Sigurður Sævar Sigurðsson,
Björn Sigurðsson, Sigurbjörg Ingimundardóttir,
Signhildur Sigurðardóttir, Úlfur Óskarsson
og barnabörn.
Erfidrykkjur
Glæsileg kaffi-
hlaðborð Megir
salirogmjög
Lokað
í dag frá kl. 12 vegna útfarar
HAFSTEINS KRISTINSSONAR, forstjóra Kjöríss.
Blómaheildsalan hf.,
Réttarhálsi 2.
giKÍ þjónusta.
Upplýsingar
ísíma22322
FLUGLEIDIR
BéTEL LIFTLEIIU
K
ERFIDRYKKJUR
Hraunholt
- veislupjónusta
DaUhrauni 15, .u'niar 654740 - 650644.
Höfum tii umráda
gLeoilegan ,ml og
bjoáum upp á veitingar
á hóflegu verai
t~
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og
útför móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og
langalangömmu,
JÓNÍNU B. EYLEIFSDÓTTUR,
Vestmannaeyjum.
Henning K. Kjartansson, Jónína Ingólfsdóttir,
Hulda Reynhlfð Jörundsdóttir, Leifur Þorbjarnarson,
Jórunn Ingimundardóttir, Gunnar Kristinsson,
Margrét Ingimundardóttir,
Sesselja Ingimundardóttir, Guðmundur Sigurðsson,
Bernharð Ingimundarson, Fjóla Sigurðardóttir.
t
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur vináttu og
hlýhug við andlát og útför
JÓNS ÞORSTEINSSONAR,
Hverfisgötu 3,
Siglufirði.
Ingibjörg Jónasdóttir,
Jónas Jónsson, Ólöf Steingrímsdóttir,
Jónsteinn Jónsson, Þóranna Jósafatsdóttir,
Ari Jónsson, Lilja Jónsdóttir,
Jóhanna Jónsdóttir, Hjörtur Hjartarson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Þökkum innilega sýnda samúð og hlýhug við andlát og útför
móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
GUÐBJARGAR HANNESDÓTTUR
fyrrv. Ijósmóður
frá Jörfa.
Sérstakar þakkir til kvenfélagsins Bjarkar.
Ólafur Agnar Jónasson, Guðrún Jónsdóttir,
Hanna Jónasdóttir,
Helgi Jónasson, Erla Sigurjónsdóttir,
Ingibjörg Jónasdóttir, Baldur Ólafsson
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Hugheilar þakkir sendum við öllum þeim, sem sýndu okkur sam-
úð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæru eiginkonu, móð-
ur okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
PÁLÍNAR GUÐJÓNSDÓTTUR,
Móakoti, Garði.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Vífilsstaðaspítala fyrir góða
umönnun.
Óskar Sigurjónsson,
börn, tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabörn.
t
Við viljum senda innilegar þakkir til allra
þeirra fjölmörgu, sem studdu okkur
með heimsóknum og kveðjum við and-
lát og útför sonar okkar og bróður,
EGGERTSFREYS
KRISTJÁNSSONAR,
Básahrauni 7,
Þorlákshöfn.
Hlýhugur ykkar allra er okkur
ómetanlegur.
Kristján Friðgeirsson, Guðrún Eggertsdóttir,
Jórunn Kristjánsdóttir.
t
Alúðarþakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför
MARGRÉTAR S.
BJARNADÓTTUR
frá Flateyri.
Anna Kristjánsdóttir, Vilhelm Þorsteinsson,
Sigurður Á. Kristjánsson, Erna Jensdóttir,
Guðmundur Kr. Kristjánsson, Matthildur Kristjánsdóttir,
Ingibjörg M. Kristjánsdóttir Duhon,
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabarn.
Lokað
Vegna jarðarfarar HAFSTEINS KRISTINSSONAR,
forstjóra Kjöríss hf., verður Kjörís hf., Hvera-
gerði, lokað þriðjudaginn 27. apríl 1993.