Morgunblaðið - 27.04.1993, Qupperneq 42
MORGUXBLADJD l’RIÐJUDAGUR 2?. APRÍL 1993
félk í
fréttum
STJÖRNUR
SKEMMTIKRAFTUR
Eddie Skoller „yngir upp“
Hinn 48 ára danski söngvari
og grínisti Eddie Skoller hefur
tekið saman við 23 ára gamla
stúlku, Sissel Kyrkjebo, en sá orð-
rómur hefur gengið nokkum tíma
að hún væri í tygjum við tennis-
leikarann Peter Bastiansen.
Sissel vill þó ekki flytja inn í
hús Eddies í Charlottenlund, þar
sem hann bjó í ásamt fyrrverandi
eiginkonu sinni. Hefur grínistinn
því þurft að setja upp englabrosið
gagnvart unnustu sinni og setja
eignina á sölulista. Raðhúsinu
verður skipt út með einbýlishúsi,
því turtildúfurnar vilja ekki heldur
eiga á hættu að nágrannarnir geti
heyrt hvað þeim fer á milli úti í
garði. Eddie er sagður varkár
maður og flanar því ekki að kaup-
um fyrr en hann hefur selt raðhús-
ið.
Þau skötuhjúin eru nú á ferð í
Austurlöndum, þar sem kappinn
ætlar að koma fram á nokkrum
tónleikum. Að öðru leyti ætla þau
bara að njóta orlofsins.
Eddie ham-
ingjusamur
með nýju unn-
ustunni, Sissel
Kyrkjebo.
Metsolublad á hverjum degi!
HÖNNUÐUR
Hannar öll föt
Michaels Jacksons
Gloría Kim datt heldur betur í
lukkupottinn þegar henni
tókst að hanna föt sem féllu popp-
stjörnunni Michael Jackson í geð,
því síðan hefur hún ekki þurft að
kvarta undan atvinnuleysi. Hefur
hún hannað alla hans búninga, ef
undan er skilinn rauði hermanna-
jakkinn, sem Michael er þekktur
fyrir. Þó að það hafi verið vegna
Michaels Jacksons sem Kim varð
fyrir alvöru þekkt var það reyndar
Terry Moore ekkja Howards Hug-
hes sem var fyrsti stóri viðskipta-
vinur hennar.
Gloría hefur búið í áratug í
Bandaríkjunum, en áður en hún
fluttist þangað hannaði hún ýmsar
pijónavörur í heimalandi sínu,
Kóreu. Hún var orðin nokkuð
þekkt og voru peysur og pijóna-
kjólar fluttir út til Bandaríkjanna
og varð það til þess að henni tókst
að koma nafni sínu á framfæri í
Hollywood.
SAMVINNA
V ínfj ölskyldur
mynda samtök
Nokkrar af þekktustu vín-
gerðarfjölskyldum heims
hafa ákveðið að taka upp sam-
starf og voru samtökin Primum
Familiale Vini stofnuð í því skyni
fyrir skömmu.
Um er að ræða fjölskyldurnar
Antinori frá Toscana á Italíu,
Drouhin frá Búrgundarhéraði í
Frakklandi, Gaja frá Piemonte á
Ítalíu, Hugel frá Elsass í Frakk-
landi, Robert Mondavi frá
Napadalnum í Kaliforníu, Sym-
ington frá Oporto í Portúgal og
Torres frá Pénedes á Spáni.
Þær hafa verið í nánu sam-
bandi undanfarin ár og ákváðu
að stofna með sér samtök til að
standa vörð um þá gömlu hefð
að fjölskyldufyrirtæki annist vín-
gerðar. Þá ætla fjölskyldurnar
að deila með sér þekkingu sinni
á sviði víngerðar og rekstrar.
Jargen de
Mylius
stoltur í líf-
varðajakk-
anum. Með
honum á
myndinni
er sam-
starfskona
hans Katja.
Innfeilda
myndin
sýnir Cliff
Richard, en
Jorgen er
einmitt að
skrifa bók
um þennan
vin sinn.
27. 4. 1993 fgr_ 328
VÁKORT
Whitney gaf Jorgen
jakkann sinn
Gloría Kim hannar alla búnmga
Michaels Jacksons. Mynd af goð-
inu hangir að sjálfsögðu á vegg
vinnustofu hennar.
Eflaust vildu margir vera í spor-
um Danans Jorgen de Myl-
ius, því nú gengur hann um í jakka
sem notaður var í kvikmyndinni
„The Bodyguard“ og engin önnur
en Whitney Houston gaf honum.
Jorgen, sem vinnur meðal annars
við danska sjónvarpið, gerði sér
ferð til Bandaríkjanna og tók við-
tal við Whitney og Kevin Costner
vegna myndarinnar. í lok viðtals-
Þótt forsetafjölskyldan sé ekki meðal viðskiptavina Gloriu eru aðrir ing færgj Whitney Jorgen jakkann
þekktir Bandaríkjamenn það. fræga, sem hann gengur nú í
rogginn.
Jorgen, sem er náinn vinur
Cliffs Richards, er raunar að skrifa
bók um stjörnuna. Nokkrar bækur
hafa þegar verið skrifaðar um
Cliff, en Jorgen telur sig eflaust
geta komið fram með annað sjón-
arhorn vegna kunningsskapar síns
við söngvarann. Nýlega var Cliff
í heimsókn í Danmörku bæði til
frekari viðræðna vegna bókarinn-
ar og til að koma fram í viðtals-
þætti hjá Jorgen.
COSPER
Hættu að tuða kona. Samkvæmt kortinu eigum við að
beygja til hægri!
Eftirlýst kort nr.:
4507 4300 0004 4817
4507 3900 0003 5316
4507 4300 0014 8568
4543 3700 0007 3075
4548 9000 0042 4962
4548 9018 0002 1040
Algreiöslufólk vinsamlegast takið ofangreind
kort úr umferð og sendiö VISA Íslandí
sundurklippt.
VERÐLAUN kr. 5000,-
fyrir ad klófesta kort og visa á vágest.
Höfðabakka 9 • 112 Reykjavík
Simi 91-671700