Morgunblaðið - 27.04.1993, Page 52
MORGUNBLAÐID, KRINGLAN 1 103 REYKJAVÍK
SÍMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 1555 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 1993
VERÐ f LAUSASÖLU 110 KR.
Veðhafafundur um tilboð í togara EG
Miklir erfiðleikar hjá saltfiskútflytjendum á helstu mörkuðum
Meistarar í
kröppum dansi
íslandsmeistarar FH í hand-
knattleik lentu í kröppum
dansi gegn nýliðum ÍR í und-
anúrslitum Islandsmótsins
gærkvöldi. FH tókst að jafna
á síðustu sekúndum leiksins
26:26 og knýja fram framleng-
ingu. Hið reynslumikla lið FH
reyndist þá sterkara og vann
34:31. En ÍR-ingar gætu
reynst erfiðir í seinni leik lið-
anna. í hinum leik kvöldsins
vann Valur Selfoss sannfær-
andi 31:27 í Laugardalshöll.
Sjá nánar á síðum
B5 og B6.
Samið við tilboðs-
gjafa frá Grinda-
vík og Hafnarfirði
ÁKVEÐIÐ var á fundi veðhafa í þrotabúi Einars Guðfinnssonar
hf. á Bolungarvík í gær að veita skiptastjórum heimild til að ganga
til samninga við Grindavíkurbæ um sölu togarans Dagrúnar IS
og við Háagranda hf. í Hafnarfirði um sölu Heiðrúnar ÍS. Alls
bárust fimm tilboð í Dagrúnu og var tilboð Grindavíkurbæjar
hæst eða alls 430 milljónir. Þijú tilboð bárust í Heiðrúnu og var
tilboð Háagranda hf. hæst eða 291 millj. kr.
Ósvör hf. á Bolungarvík bauð
375 millj. í Dagrúnu og 285 millj.
kr. í Heiðrúnu. Bolungarvíkurbær
hefur forkaupsrétt að togurunum
og getur gengið inn í samninga.
Ólafur Kristjánsson bæjarstjóri í
Bolungarvík, segir að menn viti
núna hvert markaðsverð skipanna
sé og staðan verði rædd á fundi
bæjarráðs með stjórn Ósvarar sem
fer væntanlega fram í dag. Ólafur
sagði það óæskilega þróun ef sveit-
arfélög ætluðu að bítast um skip
og veiðiheimildir.
Átta tilboð bárust
„Ef svo fer að menn leggjast á
eitt um það að halda öðru hvoru
skipinu áfram fyrir vestan munum
við ekki leggja steina í götu þeirra,“
segir Guðmundur Ámi Stefánsson,
bæjarstjóri í Hafnarfirði, en bærinn
stendur á bak við Háagranda hf.
ásamt fleiri aðilum í bænum.
Auk framangreindra tilboða
barst 420 millj. kr. tilboð í Dagrúnu
frá UNS ráðgjafaþjónustu, fyrir
hönd ónafngreindra aðila, rúmlega
410 millj. kr. tilboð frá Vinnslustöð-
inni hf. í Vestmannaeyjum og 80
millj. kr. tilboð frá Hrönn hf. á
Isafírði í skipið án aflaheimilda að
fullu á árinu. UNS ráðgjafaþjónust-
an sendi einnig 285 millj. kr. tilboð
í Heiðrúnu fyrir hönd ónafn-
greindra aðila.
Sjá bls. 27: „Grindavíkurbær
og Háigrandi. . .“
Algjör óvissa um hvenær
tollar til Evrópu lækka
AGNAR Kofoed-Hansen, önnur tveggja Boeing 747 breiðþotna Atlanta flugfélagsins í Mosfellsbæ, á hlaðinu
á Keflavíkurflugvelli. Vélinni var flogið til Jedda í Saudi-Arabíu sl. sunnudag. Þar hafði hún skamma við-
dvöl og var flogið í áætlunarflugi ríkisflugfélags Saudi-Arabíu til Lahore á Indlandi. Alls verða 140 íslensk-
ir starfsmenn á vegum Atlanta við þetta verkefni. Hér má sjá eiganda Atlanta, Arngrím Jóhannsson, ræða
við Pál Guðjónsson starfsmann félagsins, en í baksýn er stærsta flugvél íslenska flotans, sem tekur tæpa
500 farþega. Sjá bls. 22: „Breiðþotur Atlanta. . .“
STAÐA saltfiskmarkaða íslendinga í Evrópu verður stöðugt erfið-
ari vegna hárra innflutningstolla og mikillar verðlækkunar. Enn
er sérstök ívilnun í innflutningstollum ekki komin til fram-
kvæmda og ríkir að sögn Magnúsar Gunnarssonar framkvæmda-
stjóra SÍF fullkomin óvissa um hvenær það verður. Nú er reiknað-
ur 13% tollur á flattan saltfisk í markaðslöndum Islendinga í
Evrópu, og 20% tollur af flökum. Gert hafði verið ráð fyrir 3,7%
tolli til að byrja með og síðar var ráðgert að hann hækkaði í 5%.
_ Ofan á geysilegt verðfall í saltfiski mun þessi tollur koma af
fullum þunga á íslenskum saltfiskútflytjendur, að sögn Magnúsar.
dráttar á ákvörðunum um tolla-
kvóta til handa íslendingum. Norð-
menn eru með tvíhliða samning við
Evrópubandalagið, sem kveður á
um að þeir geta flutt til EB-land-
anna 10 þúsund tonn af blautverk-
uðum saltfíski á ári, 13.500 tonn
af þurrkuðum fiski og 3.000 tonn
af flökum, tollalaust. Samtals geta
Norðmenn því flutt árlega til EB-
landanna 26.500 tonn af saltfíski
með 0% tolli.
„Það var búið að gefa það út og
samþykkja að tollurinn yrði fyrst
3,7% og hækkaði síðan í 5%, og
raunar áttu menn bara eftir að aug-
lýsa þá tiihögun," sagði Magnús í
samtali við Morgunblaðið í gær.
Orðinn afar svartsýnn
Magnús sagði að til hefði staðið
Samkeppnisstaða íslenskra salt-
fiskframleiðenda á Evrópumörkuð-
um er enn erfiðari en áður vegna
Skuld KEA
4.757 míllj.
SKULDIR Kaupfélags Eyfirðinga
lækkuðu um 50 milljónir í fyrra,
4.806 milljónum árið 1991 í
j.757 milljónir.
Þetta kom fram á aðalfundi KEA
í gær. Þar kom einnig fram, að þrátt
fyrir lækkun skulda hækkuðu fjár-
magnsgjöld umfram fjármagnstekjur
um 19% milli ára. KEA greiddi alls
333 milljónir króna á síðasta ári í
fjármagnsgjöld.
• Sjá bls. 32: „Lækkun skulda. .
að taka ákvörðun um þetta mál á
fundi í Brussel í síðustu viku. „Það
var ekki gert og nú er rætt um að
ákvörðun verði tekin á fundi í næstu
eða þamæstu viku. Ég er orðinn
afar svartsýnn á að nokkuð verði
gert í þessu, því við heyrum það
utan að okkur að ákvarðanir um
tollakvótana geti dregist enn frek-
ar,“ sagði Magnús.
Magnús sagði að þetta væri gríð-
arlegt reiðarslag fyrir íslenska salt-
fískútflytjendur, því ofan á 15% til
20% verðfall á saltfíski bættust
þessir háu innflutningstollar af full-
um þunga beint á framleiðendurna.
Sláturfélagshúsin við Skúlagötu merk í byggingasögunni
Arbæjarsafn vill að
hús SS fái að standa
ÁRBÆJARSAFN leggur til að hús Sláturfélags
Suðurlands við Skúlagötu verði endurnýtt fyrir
tækniminjasafn, í stað þess að þau verði rifin,
eins og borgarráð hefur samþykkt.
Safnið telur að húsin hafi ótvírætt gildi fyrir bygg-
ingarsögu Reykjavíkur. í umsögn Árbæjarsafns um
niðurrifsbeiðni byggingadeildar borgarverkfræðings
segir m.a., að húsin, sem byijað var að byggja árið
1907, hafi verið fyrsta atvinnuhúsnæðið sem eitthvað
kvað að í Reykjavík frá byggingu Innréttinganna í
Aðalstræti, auk þess að vera með fyrstu steinsteyptu
húsunum.
Þá segir í umsögninni: „. . .má ljóst vera að þessi
hús eru samofin þrounar- og atvinnusögu Reykjavík-
ur. Einnig er gildi þeirra í byggingasögu Reykjavíkur
ótvírætt.“
Sjá bls. 22: „Vilja tækniminjasafn . . .“
Stærsta íslenska flugvélin
Morgunblaðið/RAX