Morgunblaðið - 30.05.1993, Síða 1

Morgunblaðið - 30.05.1993, Síða 1
88 SIÐUR B 120. tbl. 81. árg. Walesa vill kosningar LECH Walesa, forseti Póllands, hefur ákveðið að rjúfa þing og efna til kosn- inga í kjölfar þess að ríkisstjórn Hönnu Suchocka beið ósigur í atkvæða- greiðslu á pólska þinginu um van- trauststillögu á föstudag. Suchocka baðst afsagnar en Walesa sagði í gær að hann myndi ekki taka þá beiðni til greina. Verður hún því forsætisráð- herra fram að kosningum. Basinger gjaldþrota? BANDARÍSKA leikkonan Kim Basin- ger, sem fær um 200 milljónir króna fyrir hveija kvikmynd, sem hún leikur í, hefur beðið um að verða tekin til gjaldþrotaskipta. Segir leikkonan skuldir sínar vera um 300 miHjónir króna umfram eignir. í marsmánuði var Basinger dæmd til að greiða kvik- myndaframleiðandanum Carl Mazzo- cone 600 milljónir króna í skaðabætur fyrir að hætta við að leika í kvikmynd hans „Boxing Helena". Myndin fjallar um lækni sem tekur konu sem lenti í bílslysi í gíslingu, sker af henni alla útlimi og geymir í kassa í þeirri von að hún muni einhvern tímann elska hann. Basinger sagðist hafa hætt við að leika í myndinni vegna hinna fjöl- mörgu nektaratriða í myndinni en Mazzocone segist hafa tapað stórfé á því að þurfa að gera myndina með annarri leikkonu, Sherilyn Fenn, í aðal- hlutverki. Babel ræðst á Bill Clinton ÍRASKA dagblaðið Babel, sem gefið er út af syni Saddams Husseins, leið- toga fraks, réðst á laugardag harka- lega á Bill Clinton Bandaríkjaforseta. Sagði blaðið forsetann vera lygara, tækifærissinna og hafa enga þekkingu á utanríkismálum. Þetta er harðasta opinbera árásin á Clinton, sem gerð hefur verið í frak frá því að hann tók við embætti en til þessa hafa íraskir embættismenn gætt hófsemi í ummæl- um sínum í garð Bandaríkjaforseta. Er talið að hinar hörðu árásir í Babel séu til marks um að írakar hafi gefíð upp von um forsetinn taki upp aðra stefnu gegn írak en forveri hans í embætti, George Bush. SUNNUDAGUR 30. MAÍ 1993 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS AÐ LEIK VIÐ ÆGISSÍÐU Morgunblaðið/Þorkell Fimm Tyrkir láta lífið í íkveikju í Solingen í Þýskalandi Ottast herferð nýnasista á hendur útlendingnm Bonn. Reuter. FIMM Tyrkir, þijár konur og tvö börn, létu lífið og tveir til viðbótar særðust þegar kveikt var í húsi þeirra í bænum Solingen í vesturhluta Þýskalands að- faranótt laugardagsins. Fimmtán tókst að flýja úr húsinu án meiðsla þegar elds- ins varð vart klukkan rúmlega hálftvö um nóttina. Óttast yfirvöld að nýnasistar hafi staðið á bak við tilræðið og að það kunni að vera liður í nýrri herferð þeirra á hendur útlendingum. íkveikjan er sögð mjög áþekk því er kveikt var í húsi í bænum Mölln í nóvember í fyrra en þá fórust þrír Tyrkir, miðaldra kona og tvö börn. Ald.a ódæðisverka gegn útlending- um gekk yfír Þýskaland á síðasta ári og kostaði alls sautján manns lífið. Talsmaður lögreglunnar í Solingen sagði í gær ekki vera fullkomlega ljóst hvort ný- nasistar bæru ábyrgð á íkveikjunni en í ljósi fyrri atburða yrði að halda „öllum möguleik- um opnum“. Lögregla lét embætti saksóknara sam- bandslýðveldisins, sem hefur aðsetur í Karlsruhe, fá málið til meðferðar þegar í stað, sem talið er benda til að öfgamenn séu sterklega grunaðir um að hafa staðið á bak við tilræðið. Sjónvarpsfréttastöðin n-tv sagði eitt fórn- arlambanna hafa látið lífið er það reyndi að forða sér frá eldinum með því að stökkva út um glugga á annarri hæð. Hin fóm- arlörribin brunnu til bana í húsinu eða lét- ust af völdum brunasára á sjúkrahúsi. Hætta á nýrri ofbeldisöldu Eckart Werthebach, yfirmaður þýsku leyniþjónustunnar, sagði fyrir nokkrum dög- um í viðtali að hætta væri á að árásir af hálfu nýnasista gegn útlendingum myndu blossa upp að nýju hvað úr hverju þrátt fyrir tilraunir yfirvalda til að leysa upp sam- tök öfgamanna. Sagði Werthebach að þrátt fyrir að dreg- ið hefði verulega úr árásum kynþáttahatara á útlendinga, þær voru 73 í aprfl miðað 535 í september í fyrra, væri það ekki vísbend- ing um að nýnasistum hefði fækkað. Sagði hann að atvik álíkt því og gerðist í Mölln gæti „orðið kveikjan að nýrri ofbeldisöldu hvenær sem er“. Leyniþjónustan er með á skrá 42.700 hægri öfgamenn og telur að 6.400 þeirra séu herskáir. Lögregla í Berlín skýrði frá því í gær að fjórtán hefðu særst er eldur kom upp í gisti- heimili fyrir útlendinga í borginni. Ekki er enn ljóst hvort um íkveikju var að ræða. ENDURTEKH) EFNI í HVÍTA HÚSINU? 14 í SÁTT 16 VID UMHVERFH) 06 NÁTTÚRUNA leit úr lofti Sagt I rá Bright Eye# árlegri 1 O leitar- eg O björgunaræfingu Fagurkeri í fjármálaheimi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.