Morgunblaðið - 30.05.1993, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 30.05.1993, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIR/INNLENT MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. MAÍ 1993 EFNI Innbrot í bíla og ráp í miðbænum FJÖLDI ungmenna var í mið- borginni í fyrrinótt. Þegar mest var taldist lögreglunni til að um 3.000 unglingar hefðu Iagt leið sína niður í bæ og dvaldist þeim framundir morgun. Unga kynslóðin hafði ýmislegt annað fyrir stafni en miðbæjarrölt og voru tveir drengir á reiðhjólum teknir með þýfi, sem þeim hafði áskotnast í bílainnbrotum, í Vestur- bænum í morgunsárið. Drengimir voru 15 og 17 ára og hefur annar þeirra komið alloft við sögu lögregl- unnar. Brotist var inn í bíl við Háskóla- bíó um kl. 22 í fyrrakvöld og stolið þaðan skjalatösku. Einnig var tveimur handtöskum með seðla- veskjum stolið úr bifreið við Lauga- veginn aðfaranótt laugardagsins. ---------------- Dró staurinn 60 metra ÁREKSTUR varð á mótum Reykjanesbrautar og Dalvegar í gærmorgun. Bíl var ekið á staur með þeim afleiðingum að hann rifnaði upp. Dróst staurinn með bflnum milli 50 og 60 metra. Ökumaðurinn slapp ómeiddur og er grunaður um ölvun. ---------♦ ♦ ♦ Bruggtæki og gambri RANNSÓKNARLÖGREGLAN í Kópavogi og Hafnarfirði hand- tók tvo unga pilta á föstudags- kvöld, en bruggtæki fundust í bifreið þeirra. ílát undan gambra fundust í iðnaðarhús- næði í Kópavogi og önnur bruggtæki fundust í húsnæði í Garðabæ. Þegar lögreglan kom að iðn- aðarhúsnæði við Dalveg í Kópa- vogi á föstudagskvöld var verið að aka bifreið þaðan í burtu. Lög- reglan stöðvaði bifreiðina og í henni fundust suðutæki og 20-30 lítrar af gambra. í iðnaðarhús- næðinu voru 400 lítra ílát undan gambra. Tveir 16 og 20 ára piltar, sem voru í bílnum, voru á leið í annað húsnæði í Garðabae, þar sem átti að sjóða löginn. í því húsnæði fundust suðutæki. Morgunblaðið kemur ekki út þriðjudaginn 1. júní vegna hvíta- sunnuhelgarinnar. Blaðið kemur næst út miðvikudaginn 2. júní. Morgunblaðið/Sverrir Nær engar tafir við Ingólfstorg EKKERT bendir ti.l. að verulegar tafir verði á framkvæmdum við Ingólfstorg þrátt fyrir húsarústir og mannvist- arleifar, sem þar komu fram þegar jarðvegsvinnan hófst í vor. Verið er að mynda rústimar og mæla, en síðan verða þær fjarlægðar, að sögn Sigurðar Skarphéðinssonar gatnamálastjóra. Þá hefur verið mokað yfir mann- vistarlög sem fundust og verður ekki hreyft við þeim frekar. Þessa dagana er verið að vinna við Vallarstræti og Hafnarstræti og sagði Sigurður að verktakinn hefði þurft að færa sig um set á meðan verið var að rann- saka rústir og jarðlög. Aukíð frelsi í verð- lagningii frá 1. júní VERÐLAGNING ýmissa þjónustuþátta verður gefin frjáls 1. júní næstkomandi, samkvæmt ákvörðun samkeppnisráðs. Á það við um taxta þvottahúsa og efnalauga, álagningu á útselda vinnu byggingameistara og rafiðnaðarmeistara, far- gjöld með sérleyfis- og hópferðabifreiðum, flutningataxta vöruflutningabifreiða og far- og farmgjöld í innanlands- flugi. Blaðafulltrúi Flugleiða býst ekki við að þessi ákvörðun leiði til hækkunar fargjalda um mánaðamótin. Georg Ólafsson, forstjóri Sam- keppnisstofnunar, sagði í samtali við Morgunblaðið að verðlagsráð hefði á undanfömum ámm fellt úr gildi opinberar ákvarðanir um verð- lagningu flestra þátta vöra og þjón- ustu. Þessi ákvörðun samkeppnis- ráðs væri framhald þeirrar þróunar. Georg sagði að samkeppni hefði aukist í þessum greinum. Nýju sam- keppnislögin væra hins vegar meg- inforsenda ákvörðunar um frjálsa verðlagingu í umræddri starfsemi. Þau gerðu ráð fyrir því að í stað þess að yfirvöld tækju ábyrgð á verðlagningunni með því að sam- þykkja taxta sem viðkomandi at- vinnugreinasamtök semdu væri árangursríkara að beita ákvæðum laganna til aðhalds verðlagningar- innar, meðal annars með því að gera verðkannanir og banna sam- ráð fyrirtækja um verð. Samkeppni við vegakerfið Einar Sigurðsson, blaðafulltrúi Flugleiða, sagðist ekki búast við hækkun fargjalda þegar verðlags- ákvæðin féllu niður. Markaðurinn bæri einfaldlega ekki hærri far- gjöld. Því réði annars vegar efna- hagslægðin og hins vegar aukin samkeppni í innanlandsflugi og batnandi vegakerfi. Hann sagði að í kjölfar gildistöku EES-samnings- ins væri gert ráð fyrir nýjum flug- málareglum sem hefðu i för með sér aukna samkeppni í innanlands- flugi. Þá sagði hann að eftir því sem vegirnir bötnuðu versnaði sam- keppnisstaða flugsins og nefndi sem dæmi að stutt væri í það að vegur- inn milli Reykjavíkur og Akureyrar yrði með bundnu slitlagi alla leið. Taxtar leigubíla undir verðlagsákvæðum Að sögn Georgs er verðlagning sements, álagning á ákveðnum bú- vöram og taxtar leigubíla enn und- ir opinberum verðlagsákvæðum, vegna sérstakra aðstæðna í þessum greinum. Hörð aftan- ákeyrsla HÖRÐ aftanákeyrsla varð á Reykjanesbraut við Vífils- staðaveg í fyrrakvöld. Öku- maður fólksbíls á leið til Reykjavíkur nam nokkuð snöggt staðar á gulu Ijósi og lenti bifreið sem kom á eftir aftan á bíl hans. Ökumaður fremri bílsins meiddist á höfði en meiðslin vora ekki talin alvarleg. Fjarlægja varð bifreið hans með kranabíl. Kostnaður hins opinbera vegna vistunar unglinga víða í vanskilum Ýmis sveitarfélög skulda nú um 70 milljónir króna FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ hefur sent Kjalarneshreppi reikning vegna vistunar vandræðaunglings upp á rúmlega milljón krónur. Ýmis önnur sveitarfélög víða um land hafa fengið samskonar reikninga en samtals eru 70 miiyónir króna í van- skilum vegna vistunar unglinga. Kópa- vogskaupstaður skuldar mest, eða um 11 milljónir króna, en Hafnarfjörður og Akureyri skulda einnig töluvert. Önnur sveitarfélög skulda minna og eru reikn- ingarnir allt niður í 10-15.000 krónur. Að sögn Jóns Magnússonar, viðskiptafræðings á gjaldaskrifstofu fjármálaráðuneytisins, breytt- ist fyrirkomulag á greiðslum vegna vistunar vandræðaungiinga um síðustu áramót er ríkið tók þessar greiðslur alfarið á sig. Á móti tóku sveitarfélögin við öðrum útgjöldum svo sem skólaakstri. Er farið var að kanna stöðu mála í ríkisbókhaldi komu vanskilin í ljós. Reykjavík skuldlaus Kostnaður sá sem hér um ræðir er daggjöld vegna vistunar annað hvort á Unglingaheimili ríkisins eða á Torfastöðum. Reykjavík hefur borið mestan kostnað sveitarfélaga af vistuninni enda langstærsta sveitarfélagið. Hinsvegar er borgin skuldlaus þar sem þeim kostnaði sem borgin bar var skuldajafnað á móti ýmsum öðram greiðslum til hennar frá ríkinu jafnóðum. Að sögn Jóns Magnússonar gilti það fyrir- komulag fram að síðustu áramótum að sveitarfé- lögum bar að greiða kostnað vegna vistunar unglinga ef þeim var vísað á Unglingaheimilið eða Torfastaði af barnaverndamefndum viðkom- andi sveitarfélaga. „Eftir að ákveðið var að rík- ið tæki þennan kostnað alfarið á sig fórum við að gera þetta dæmi upp og þá komu vanskilin í ljós og því höfum við verið að senda viðkom- andi sveitarfélögum reikninga,“ segir Jón. Fylgið á flakki ►Skoðanakannanir sýna að kjós- endur eru lausari í rásinni og fylg- isgrunnur flokkanna er ótrygg- ur./lO Endurtekið efni í Hvíta húsinu? ►Bill Clinton Bandaríkjaforseti hefur endurtekið mistökin frá rík- isstjóraárum sínum í Arkansas og hans bíða sömu örlög og Carter, bregðist hann ekki hart við./14 í sátt við umhverfið og náttúruna ►Heimsókn tii athafnahjónanna Sveins R. Eyjólfssonar og Auðar Eydal, sem hafa byggt upp glæsi- lega ferðaþjónustu að Leirubakka í Landsveit./ 16 Leit úr lofti ►Alþjóðleg björgunaræfíng var haldin við Austur-Grænland hér á dögunum, með þátttöku íslend- inga. /18 Fölnandi kratarósir ► Sósíalistar og vinstri menn hafa hvarvetna átt undir högg að sækja í Vestur-Evrópu./ 20 Nútíð við fortíð ►Gamlir munir, en nýstárlegir að því leyti að þeir hafa aldrei verið til sýnis almenningi, verða meðal 130 muna á viðamikilli sýningu í Þjóðminjasafni./22 B ► 1-36 Fagurkeri í fjármála- heimi ►Hinn harði heimur viðskiptalífs- ins virðist í fljótu bragði eiga fátt sameiginlegt með hinum skapandi heimi bókmennta og iista, en Sverrir Kristinsson fasteignasali, framkvæmdastjóri Hins íslenska bókmenntafélags og ákafur lista- verkasafnari, segir að sá sem vilji stunda viðskipti af einhveiju viti verði að kynna sér heim bók- mennta og lista./l í deiglunni ►Vinsælasta erlenda hljómsveit landsins um þessar mundir er án efa Spin Doctors./4 Mannasiðir þá og nú ►Gluggað í 73 ára gamalt kver um mannasiði eftir Eufemiu frá Arnarvöllum. /6 Hvers vegna Ma- astricht? ►Maastricht er merkileg borg fyr- ir margra hluta sakir, jafnt í for- tíð sem í nútíð, jafnt í friði sem í ófriði. /10 Vor í varplandi ►Svipast um í varplöndum og könnuð hreiðurgerð hinna ýmsu fuglategunda./ 12 Nepal ► Land guða, himinhárra tinda og töfrandi mannlífs. /16 FASTIR ÞÆTTIR Fréttir 1/2/4/6/bak ídag 22b Leiðari 26 Fólk í fréttum 24b Helgispjall 26 Myndasögur 28b Reykjavíkurbréf 26 Brids 28b Minningar 28 Stjömuspá 28b íþróttir 44 Skák 28b Útvarp/sjónvarp 46 Bíó/dans 29b Gárur 51 Bréf til blaðsins 32b Mannlífsstr. 8b Velvakandi 32b Dægurtónlist 14b Samsafnið 34b Kvikmyndir 15b INNLENDAR FRÉTTIR- 2—6—BAK ERLENDAR FRÉTTIR: 1-4

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.