Morgunblaðið - 30.05.1993, Page 18

Morgunblaðið - 30.05.1993, Page 18
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. MAÍ 1993 Hafísinn bauð upp á fjölbreytt sjónarspil. Við vökina á miðri mynd má greina sel sem spókar sig á jakanum, tunnan sem leitað var að var litlu stærri en selurinn. lr jr ■Æ , /** - ■; 2 v ■ ■ -*íí~ -'yig , ian-'-í.f-'pí ■ . .V.*- y i Ý' » .."'.r. W* * w ftíÆKS' -v Grein og myndir-. Guðni Einarsson KL. 12.35: TVEGGJA hreyfla flug-- vél, TF-BXX, á leið frá Reykjavík til Kulusuk í Grænlandi tilkynnir Flugmálasljórn um bilun í öðrum hreyfli og biður um lækkun á flug- hæð. Kl. 12.42: Neyðarkall berst frá flugmanninum, sem tilkynnir að vélin hafi misst afl á báðum Þriðjudaginn 25. maí sl. var haldin hin árlega Bright Eye- leitar- og björg- unaræfing. Bright Eye, eða Bjart auga, er samstarfs- verkefni í björgun- armálum Evrópu- ríkja, sem liggja að Atlantshafi, og hófst það að frum- kvæði Atlantshafsbandalagsins. Haf- svæðinu er skipt í norður-, mið- og suðurhluta. Island er aðili að norð- ursvæðinu ásamt Noregi, Bretlandi, Danmörku, Færeyjum og Grænlandi Björgunarsveit varnarliðsins í Kefla- vík kemur einnig inn í þetta starf. Um þessar mundir er áhugi á að víkka Bright Eye enn frekar og fá Austur-Evrópuþjóðir til liðs. Af íslands hálfu er Landhelgis- gæslan (LHG) aðili að Bright Eye. Yfirstjórnin færist á milli landa og hreyflum. Flugvélin er í 6.000 feta hæð og svífur vélarvana til jarðar. Flugmaðurinn gefur upp staðar- ákvörðun og sambandið rofnar. nú er norðursvæðinu stjórnað frá Bodö í Noregi. Aðilar að Bright Eye hittast einu sinni á ári og skipu- leggja æfingar sem ýmist felast í leit á hafinu að skipum, flugvélum eða skipbrotsmönnum. Samstarfsað- ilarnir miðla upplýsingum um tækja- búnað sem þeir hafa til ráðstöfunar og á fundunum er ákveðið hvaða tæki eigi að nota við Ieitina og hverj- ir taka þátt. Æfingamar á norður- svæðinu eru yfirleitt haldnar síðla vors eða snemmsumars og reynt að Ijúka þeim áður en starfsmenn björg- unaraðila fara í sumarfrí. Leitaræfíngin á þriðjudag hófst með því að Flugmálastjóm kallaði út leitarsveitir vegna vélarinnar sem átti að hafa týnst við Austur-Græn- land og fékk flugumsjón í Syðri- Straumfirði á Grænlandi stjóm leit- arinnar á hendur. Hjálparbeiðni barst Landhelgisgæslunni kl. 12.42 og hún beðin um að leggja til leitarflugvél. Þegar vom gérðar ráðstafanir til að Fokker-flugvél Landhelgisgæslunnar færi til leitar. Áhöfnin var á flugvell- inum og varðbergsmenn úr Flug- björgunarsveitinni í Reykjavík voru kallaðir út gegnum símboðakerfíð. HALDIÐAF STAD Meðan flugvélin er gerð klár og allir tankar fylltir ræður áhöfnin ráð- um sínum í stjórnherbergi flugdeildar LHG. Dregin em upp kort af haf- svæðinu undan Kulusuk, síðasta staðsetning vélarinnar merkt á kortið og reynt að reikna út hversu langt hún hefur svifið áður en hún lenti á sjónum. Það er ys og þys, símar hringja og símbréf og telexskeyti streyma inn á borð leiðangursstjór- ans, Kristjáns Þ. Jónssonar. Leitað er upplýsinga um flugáætlun týndu vélarinnar. Nýjar upplýs- ingar berast frá danska varðskipinu „Vædderen“, sem lónar undan ísrönd- inni við Austur-Græn- land, það er reiðubúið að senda þyrlu á vettvang. Eins er búið að ræsa út Orion-flugvél frá björg- unarsveit vamarliðsins á Keflavíkurflugvelli til leitar. Þegar allt er til reiðu er kallað út í vél og kl. 13.30 skríður TF-SYN þunghlaðin út á brautarenda. Mótor- arnir em þandir til hins ýtrasta og vélin, sem nötrar af átökunum, sígur af stað eftir flugbrautinni, eykur hraðann og tekur flugið. Við stjórn- völinn eru Siguijón Sverrisson flug- stjóri og Pétur Steinn Þórsson flug- maður. Magni Óskarsson situr við leiðsögutæki siglingafræðingsins og Hjalti Sæmundsson við ljarskipta- tækin. Stýrimennirnir og siglinga- LEIDANGURSMENN Áhöfnin á TF-SYN var óvenju fjölmenn í þessari ferð til að sem flestir hefðu not af æfingunni. Magni Óskarsson (t.v.) var einn þriggja siglingarfræðinga sem sáu um að staðsetningin væri hárnákvæm. Kristján Þ. Jónsson leiðangursstjóri merkti á kortið hvernig leitinni miðaði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.