Morgunblaðið - 30.05.1993, Side 35

Morgunblaðið - 30.05.1993, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ ATVINIMA/RAÐ/SMA SUNNUDAGUR 30. MAÍ 1993 ATVINNII íþrótta- og smfðakennari Seyðisfjarðarskóla vantar einn kennara til að kenna íþróttir og smíðar. Við útvegum gott ódýrt húsnæði. Á Seyðisfirði er talsvert íþrótta- og félagslíf. Leikskóli og sundhöll er á staðnum auk öflugrar heilsugæslu. Umsóknarfrestur er til 13. júní 1993. Nánari upplýsingar veita skólastjóri og aðstoðarskólastjóri í.símum 97-21172, 97-21351 og 97-21565. Skólastjóri. Njarðvíkurkaupstaður Fóstrur athugið Okkur vantar fóstrur í eftirtalin störf á leik- skólann Holt í Njarðvík: Leikskólastjóri afleysingastarf frá 1. september 1993. Yfirfóstra afleysingastarf. Deildafóstrur í 100% starf. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Fóstrufé- lags íslands og launanefndar sveitarfélaga. Umsóknarfrestur er til 15. júní 1993. Upplýsingar veita.leikskólastjóri, Anna Sveinsdóttir, í síma 92-16100 og félagsmála- stjóri í síma 92-16200. Félagsmálastjórinn íNjarðvík. Tæknimenntaður sölustjóri ÍSAGA hf. auglýsir eftir sölustjóra á gasi og suðuvörum til viðskipavina sinna á verkstæð- um og smiðjum. Sölustjórinn ber ábyrgð á sölu. Eitt aðalverksvið hans er að skilgreina þarfir viðskiptavinanna á faglegan hátt og móta síðan aðgerðir sem leiða til aukinnar arðsemi og bæta þannig afkomu þeirra. Við leitum að röskum manni sem hefur hæfileika til að byggja upp starfið og til að vinna á sjálfstæðan og skipulegan hátt. Nauðsynlegt er að umsækjandi hafi góða tæknilega menntun. Skilyrði er að hann hafi þekkingu á málm- iðnaði og hafi reynslu af sambærilegu sölu- starfi. Málakunnátta: Eitthvert Norðurlandamálanna ásamt ensku. Starfið er spennandi tækifæri fyrir þann sem er tilbúinn að takast á við hlutina. Góðir framtíðarmöguleikar fyrir rétta starfs- manninn. Farið verður með allar umsóknir og fyrir- spurnir sem trúnaðarmál. Nánari upplýsingar veitir Torfi Markússon hjá Ráðgarði frá kl. 9-12 í síma 679595. Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til Ráðgarðs hf., Nóatúni 17, 105 Reykjavík, merktar: fIÍSAGA“, fyrir 10. júní nk. AGA er eitt af stærstu gasfyrirtækjum í heiminum með dótturfyrirtæki í 31 landi. Starfsemin beinist að málmiðnaði, framleiðsluiðnaði, matvælaiðn- aði og notkun lofttegunda á heilbrigðissviði. ÍSAGA hf. var stofnað árið 1919 í samvinnu við AGA. Starfsfólk ÍSAGA vinnur að settum markmiðum og hver og einn ber ábyrgð á sínu verksviði. ÁGÁ Skurðstofuhjúkrunarfræðingar Svæfingarhjúkrunarfræðingar Áhugaverð verkefni Við Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri er laus staða deildarstjóra á skurðdeild og stöður svæfingarhjúkrunarfræðinga á svæfinga- deild. Skurð- og svæfingadeild hefur 4 velbúnar skurðstofur þar sem sinnt er, auk almennra handlækninga, eftirfarandi sérsviðum: Kvensjúkdómaaðgerða, bæklunaraðgerða, augnaðgerða, háls-, nef- og eyrnaaðgerða ásamt bráðaþjónustu allan sólarhringinn, allt árið. Umsóknarfrestur er til 1. júlí 1993. Nánari upplýsingar gefur Rannveig Guðna- dóttir, starfsmannastjóri hjúkrunar. Sími FSA er 96-30273. FJÓRÐIINGSSJÚKRAHÚSIÐ ílæ Á AKUREYRI Framkvæmdastjóri Óskum aö ráða framkvæmdastjóra Rauða kross íslands. Starfið er áhugavert og krefj- andi stjórnunarstarf. Rauði kross íslands er fjöldahreyfing með 18.000 félagsmenn í 50 deildum um allt land. Á vegum Rauða kross íslands er m.a. starf- rækt sjúkrahótel, Rauða kross húsið, neyðar- athvarf fyrir börn og unglinga, og vin, dag- vistun fyrir geðfatlað fólk. , Starfssvið framkvæmdastjóra: ★ Framkvæmdastjóri hefur með höndum daglega framkvæmdastjórn félagsins og fylgir eftir samþykktum og ákvörðunum stjórnar. ★ í starfinu felst yfirstjórn fjármála félagsins og umsjón með gerð fjárhagsáætlana. ★ Yfirumsjón og skipulagning starfsmanna- halds. ★ Framkvæmdastjóri gætir hagsmuna fé- lagsins út á við og annast samskipti við stoínanir, fyrirtæki og samtök, hérlendis og erlendis. Vlð leitum að hæfum einstaklingi í þetta mikilvæga starf, sem hefur þekkingu og reynslu af stjórnunarstörfum. Reynsla og þekking á málefnum félagasamtaka er æski- leg, en þó ekki skilyrði. Viðkomandi þarf að hafa frumkvæði, forystuhæfileika og lifandi áhuga á stjórnun og starfsemi sjálfboða- hreyfingar. Háskólamenntun er nauðsynleg. Nánari upplýsingar veitir Katrín S. Óladóttir. Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál. Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til Ráðningarþjónustu Hagvangs hf., merktar: „Rauði kross íslands", fyrir 12. júní nk. Hagva ngurhf Skeifunni 19 Reykjavík | Sími 813666 ' ' ' Róðningarþjónusta Rekstrarróðgjöf Skoðanakannanir IÐSTOÐ FÓLKS í ATVINNULEIT Opib mánudaga til föstudaga frá kl. 14.00 til 17.00 ADAGSKRA vikuna 1. júní til 4. júní Þriðjudaginn 1. júní kl. 15.00: Sigríður Þórisdóttir, framkvæmdastjóri, ræðirum MANNLEGA GÆÐASTJÓRNUN TIL FRAMFARA. Fimmtudaginn 3. júní kl. 15.00: Guðmundur Tómasson, tölvuráðgjafi, ræðir um YFIRSTANDANDI TÖLVUVÆÐINGU Á RÁÐNINGARSTOFU REYKJAVÍKUR. MIÐSTÖÐ FÓLKS í ATVINNULEIT.LÆKJARGÖTU 14A SÍMI 628180/FAX 628299 Hugbúnaðar- tæknimaður Öflugt þjónustu- og innflutningsfyrirtæki á sviði tölvubúnaðar óskar eftir að ráða hug- búnaðartæknimann. Þekking á Novell net- stýrikerfinu, stöðluðum notendahugbúnaði, Unix stýrikerfum og öðrum algengum stöðl- uðum netstýrikerfum æskileg. Viðkomandi verður að hafa menntun sem tölvuður, kerfisfræðingur, tölvunarfræðingur eða sambærilega menntun. Starfið felst m.a. í uppsetningu á netbúnaði, umsjón með vinnsluumhverfi og ráðgjöf við notendur. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Vinsamlega sendið inn skriflegar umsóknir til Tæknivals hf. fyrir þriðjudaginn 8. júní. m Tæknival SKEIFAN 17 Póitbilf8294 128 REYKJAVÍK SlMI: 91 - 68I66S FAX: 91-680664 r Sundlaug í Árbæjarhverfi Forstöðumaður Start forstöðumanns við nýja sundlaug í Árbæjarhverfi er laust til umsóknar. Forstöðumaður annast daglegan rekstur laugarinnar svo sem starfsmannahald, fjármál, innkaup o.fl. Starfið hefst 1. september n.k. en gert er ráð fyrir að laugin opni vorið 1994. Fram að þeim tíma mun forstöðumaður fylgjast með öllum lokafrágangi við framkvæmdir, ráðningu starfsmanna og undirbúning opnunar. Æskilegt er að umsækjendur hafi menntun á sviði stjórnunar eða tæknikunnáttu og hafi reynslu af stjórnunarstörfum. Laun eru samkvæmt kjarasamningi borgarstarfsmanna. Nánari upplýsingar um starfið veita Erlingur Þ. Jóhannsson iþróttafulltrúi og Ómar Einarsson framkvæmdastjóri i sima 622215. Umsóknarfrestur er til 11. júní n.k. Umsóknum skal skilað til framkvæmdastjóra íþrótta- og tómstundaráðs, Fríkirkjuvegi 11 á eyðublöðum sem þar fást. Umsóknareyðublöð fást einnig hjá Ráðningarstotu Reykjavikur, Borgartúni 3.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.