Morgunblaðið - 30.05.1993, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 30.05.1993, Blaðsíða 51
gn *, H3\qHAVTU MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. MAI 1993 51«*- eftir Eltnu Pálmadóttur URHLYJU FÖÐURHUSA Tuttugu ár að vaxa, tuttugu ár í blóma, tuttugu árin standa í stað og 20 ár hallar undan fæti. Eitthvað á þessa leið lýsir írskt máltæki mannsævinni. Líklega nokkuð rétt um meðal- ævina, sem hjá íslendingum lýk- ur þarna í brekkunni undir átt- rætt. Þeir sem fara, fram yfir meðallífsskammtinn fá bónus, sem nýtist misvel við brekkuræt- ur. Þar geta margir þó unað vel í enn ein tuttugu ár ef þeir fá frið fyrir sjúkdómum og sætta sig.við að lifa með Elli kerlingu. Ætli þroskinn gangi ekki hægar hjá þjóðum en einstakling- um? Eða er sú ályktun bara dregin af því sem blasir við hið næsta? Hvar ætli íslenska lýðveldið sé annars statt á þessu ferli? Líklega dálít- ið seinþroska á fimmtugs- aldrinum, jafnvel meðal þjóða. Nokkuð erf- itt að staðsetja það. Að minnsta kosti er það einhvers staðar í brattanum á fyrsta uppvaxtar- skeiðinu. En hve langt ætli það sé komið áleiðis að brekkubrún blómatímans? Ekki mjög langt. Uppvöxturinn kemur víst oft í rykkjum, talað um að börn og unglingar taki vaxtarkipp. All- lengi hefur verið beðið eftir að unglingurinn okkar taki kippinn til vits og ára. Er þá nokkuð eðlilegra en að á meðan geri hann allar vitleysumar, vaði áfram án fyrirhyggju, ryðjist um og láti fýrir sér fara, viti allt og prófi allt? Af því lærir maðurinn, því ekki líka þjóðir? On n’est pas serieux quant on a dix-sept- ans“, sagði franska ljóðskáldið Arthur Rimbaud, og orðin lifa sem spaklegur kjami máls. Mað- ur er ekki alvörumaður sautján ára. Þar má kannski hafa einhveija viðmiðun. En em ekki farin að sjást merki um að unglingurinn okkar, hann ísland, sé obbolítið farinn að taka við sér? Farinn að mannast? Er nýbúinn að skilja að dómsvald og framkvæmda- vald og í fyrsta skipti loks búínn að setja stjórnsýslulög um al- mennar umgengnisreglur stjórn- valda og sveitarfélaga við þjóð- ina. Þar er til dæmis í lög leitt að stjórnvald skuli sjá til þess að mál sé næglega upplýst áður en ákvörðun er tekin í því. í venjulegu uppeldi heitir þetta víst bara að nauðsynlegt sé í líf- inu að vita hvað maður er að gera. Uppörvandi að það skuli vera orðin lagaskylda við stjóm- un þjóðarinnar. Bendir til þess að unglingurinn ísland sé kannski að komast til þroska og standa undir því að ráða sér og stjórna sjálfur. Margt fleira er nú í gangi sem bendir til þess að þessi unglingur sem við emm að tala um sé loks að komast af 17. árinu. Ekki seinna vænna, enda rétt búið að sparka honum úr hreiðr- inu, verndaða umhverfínu, og nauðugur viljugur sér hann fram á að þurfa að standa á eigin fótum. Ofdekur á æskuheimilinu hefur kannski seinkað þroska á leiðinni til sjálfstæðis, eins og títt er í okkar samfélagi. Má sjá þess merki víða í umhverfinu, þar sem unga fólkið fær sjokkið sitt þegar það stofnar heimili og fínnur allt í einu fyrir því að það kostar eitthvað að lifa. Margt hjónabandið fer þá fljótt í vask- inn. Ekki er lengur hægt að veita sér það sjálftekna, sem lítt þurfti að huga að fyrr. Þetta er sárs- aukafull sjokkmeðferð, sem flestir dugandi krakkar lifa samt af. Og þjóðamnglingurinn er nú að upplifa. Hann er víst kominn úr vernd- uðu umhverfí foreldranna. Nokk- uð langt síðan danski pabbi sleppti af honum hendinni. Þótt enn sé hann í vinfengi að af- henda síðustu gjafirnar, þá er ekkert hægt á hann að treysta um stuðning í vandræðum. Og nú er ameríska mamma líka að hætta að halda vemdarhendi yfir honum og skaffa honum ríf- lega vasapeninga. Hann er sem- sagt farinn að standa á eigin fótum og er að æfa fótaburðinn til að halda jafnvæginu. Hann kann bara ekki allt og getur allt, eins og honum hafði verið talin trú um í uppvextinum, í skólanum og umhverfinu. Og það sem verra er, ekki í stakk búinn til að grípa upp glás af peningum. Þeir liggja raunar ekki lengur á lausu, enda búið að spreða þeim út og suður og í óborguð lán. í tilbót er erfítt árferði fyrir þjóðaranglinginn jafnt sem einstaklingana í land- inu. Þetta er mesta basl, eins og jafnan á þessu stigi. En viti menn, er ekki þessi efnilegi ung- lingur loks farinn að-gera alls konar ráðstafanir til að kippa langvinnu klúðri í liðinn. Enda skín aldrei betur í gallana en þegar að þrengir. Svo margir og svo gamalgrónir eru pyttirnir sem blasa við í lífsstílnum og umhverfínu þegar þessi vemdaði unglingur kemur út á vöilinn. Bankarnir nýbúnir að uppgötva að ekki dugar að lána öllum burtséð frá endurgreiðslu. Jafn- vel sumir sjóðir famir að ætlast til þess að horfur séu á greiðslu- getu. Ekki þó alfarið, rætt um sérsjóð til að skera af skuldum þeirra sem ekki borga. í umræð- unni meira að segja drepið á að kannski ættu styrkþegar að gera grein fyrir í hvað styrkurinn þeirra fór. Blasa við vilpur í stjórnarháttum, sem sullaðist úr framhjá i vinargreiða. Gott ef ekki eru komnar hugmyndir um að gera menn ábyrga fyrir opin- berum útgjöldum. Fjármálaráð- herra hefur þegar gert gott skurk í þá veru. Þetta er auðvitað ekki sann gjarnt í garð verndaða unglings- ins okkar. En vísast spjarar hann sig eftir sjokkmeðferðina. Ef hann guggnar ekki. • • BUJORÐ OSKAST Jörð, með eða án framleiðsluréttar, á fallegum stað, í full- um rekstri, með góðum húsum (hús þó ekki nauðsynleg). Veiðihlunnindi nauðsynleg. Æskileg staðsetning Austurland, Vestfirðir, Strandir. Aðrir staðir koma til greina. Upplýsingar veitir Karl J. Steingrímsson í símum 91-20160 og 91-39373. HEFUR ÞIG DREYMT UM AÐ EIGNAST Miele UPPÞVOTTAVÉL? JÚNÍ-TILBOÐ TILBOÐ 22% AFSLÁTTUR -h 6 manna kaffistell frá Villeroy & Boch aö verðmæti 10.000 kr. fylgir hverri vél. TILBOÐSVERÐ: 89.522,- KR. VERÐLISTAVERÐ: 115.263, Tilboðið gildir meðan birgðir ( W W Jóhann Olaf: SIINi)ABOK<; U • I04KKYKJ Opnunartími mánudaga til Lokað á laugardögum. *Verð miðast við gengi þý Þessi vinsæli regn- fatnaður er kominn W-502: Vatnsheldur regngalli úr mjög sterku og góðu PVC polyester. Litir: Ólívugraent og gult. Staerðir: S-M-L-XL-XXL Verð kr. 1.990 iQtKARNABÆR Borgarkringlunni, sími 682912. BIGA ELDHUS- ELDHUS AFMÆLISVEISLA Af því tilefni að Biga eldhúsinn- réttingar hafa verið seldar á ís- landi í 5 ár bjóða Biga verk- smiðjurnar nokkrar innréttingar á sérstöku afmælisverði. Notaðu þetta einstaka tækifæri til að eignast nýtt Biga eldhús á hagstæðu verði. Tiiboðið gildir aðeins i nokkra daga. FYRSTI kaupandi fær 40% AFSLÁTT ANNAR kaupandi fær 35% AFSLÁTT ÞRIÐJI kaupandi fær 30% AFSLÁTT 4.-6. kaupandi fær 25% AFSLÁTT 7.-10. kaupandi fær 20% AFSLÁTT Nýja Trim og Lux fataskápalínan okkar með rennihurðum í öllum regnbogans litum á sérstöku kynningarverði afmælisdag- NÝBÝLAVEGI 12, SÍMI44011

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.