Morgunblaðið - 15.06.1993, Side 15

Morgunblaðið - 15.06.1993, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. JLINÍ 1993 15 Sally Mann Sally Mann: „Virginia, Emmett og Jessie“. 1989. Myndlist Eiríkur Þorláksson Unnendur ljósmyndunar geta verið ágnægðir með lífið þessa dag- ana, þar sem verk ýmissa þekktra og áhugaverðra erlendra ljósmynd- ara hafa prýtt sýningarsali undan- farið, bæði í Reykjavík og Hafnar- firði. Sú sýning sem væntanlega hefur vakið hvað mesta athygli þeirra sem fylgjast með ljósmyndun erlendis er lítil sýning á nokkrum myndum bandaríska ljósmyndarans Sally Mann, sem staðið hefur yfír á Mokka við Skólavörðustíginn frá því snemma í maí. Sally Mann hefur á fáum árum öðlast mikla frægð í ljósmynda- heiminum, og verk fárra ljósmynd- ara (að Robert Mappethorpe sáluga frágengnum) hafa vakið jafn mikl- ar deilur vegna myndefnisins, sam- hliða almennri aðdáun vegna hinn- ar tæknilegu og myndrænu full- komnunar, sem listakonan hefur náð í verkum sínum. Þrátt fyrir að Mann hefði mikinn áhuga á ljósmyndun frá unga aldri, stundaði hún ekki nám á þessu sviði, og telst sjálfmenntuð sem ljósmyndari. Þetta er undravert í ljósi þess valds sem hún hefur öðl- ast á miðlinum, og vandvirkni henn- ar er viðbrugðið; hæfni hennar verður enn ljósari þegar haft er í huga að hún vinnur að mestu með gömlum og þunglamalegum tækj- um, þar sem hraði rafeindatækn- innar er víðs fjarri. Mann tekur myndir sínar að mestu á sumrin, en vinnur síðan úr þeim í myrkra- herberginu á vetrum, og þar verða hin umdeildu verk hennar endan- lega til. I myndunum á sýningunni kemur vel fram hvemig henni hefur tekist að vinna með grátóna birtunnar, svo og myndskipun; sjónarhom eru t.d. alltaf hnitmiðuð, þannig að myndefnið fær á sig þann framandi og jafnvel kuldalega blæ, sem hefur orðið svo mörgum tilefni til að gagnrýna listakonuna. Því það er fyrst og fremst efni myndanna, sem hefur stuðað fólk. Mann hefur í nær áratug ein- beitt sér að því að ljósmynda ung böm sín, og sýnir þau hispurslaus í viðkvæmum uppvextinum; oft eru þau nakin í náttúrunni, eða þá inn- an um annað (fullklætt) fólk, alvar- leg, jafnvel þungbúin á svip. Hér er tekist á við tvíræðni augnabliks- ins; hvenær verða endalok æsku og sakleysis, og hvar tekur áhyggja og alvara kynferðislegrar meðvit- undar við? - í félagslegu samhengi nútímans er eðlilegt að slíkar mynd- ir kalli fram áköf viðbrögð, ýmsar spurningar, jafnvel hneykslan. Á síðasta ári kom út viðamesta bók listakonunnar til þessa, undir nafninu „Nánasta fjölskylda", og hafði hún að geyma flestar þær myndir af börnum hennar, sem vakið hafa hvað mesta athygli. Bókinni var fylgt úr hlaði með mik- illi farandsýningu, sem hefur komið nokkru róti á ljósmyndaheiminn og hefur mátt lesa um í listtímaritum. Sýningin á Mokka er örlítið brot úr þeirri sýningu, hingað komin fýrir tilstilli Hannesar Sigurðssonar listfræðings, í samráði við listakon- una sjálfa og Houk Friedman-gall- eríið í New York. Hannes Sigurðsson fylgir sýn- ingunni úr hlaði með afar fróðlegri ritgerð um listakonuna, þar sem hann dregur saman helstu atriði í ferli hennar, fjallar um verk hennar og þá gagnrýni sem hún hefur mátt þola. Þessi ritsmíð er afar fróðleg og gagnleg lesning þeim sem vilja kynnast þeim heimspeki- og siðfræðilegu viðhorfum, sem hefur borið hæst í umræðunni. Hannes hafnar þó að lokum þeirri gagnrýni sem fram hefur kom- ið á verk listakon- unnar og telur þar á ferð for- dóma og hræsni þjóðfélags, sem verður bert að tví- skinnungs- hætti, m.a. með tilvís- un til nekt- ar í málverki og öðrum listmiðlum. Slíkt er ef til vill of mikil einföld- un. Staðreyndin er sú, að ljósmynd- in getur verið mun hvassari miðill en málverkið, ef því er að skipta, og því eðlilegt að viðbrögðin verði mikil. I ljósi þeirrar umræðu sem orðið hefur á síðasta áratug um bamaklám, kynferðislega misnotk- un barna og barnaverndarmál yfir- leitt (en þéssi umræða ætti að standi Sally Mann jafn nærri og öðrum foreldrum) er ekki að undra að ýmsir furði sig á hvað komi móður til að stilla bömum sínum upp nöktum á þennan hátt til myndatöku, og verðlauna þau jafn- vel fyrir með smáaurum; slíkt geti tæplega talist í samræmi við hug- myndir vestrænna þjóða um siðsemi og barnavernd. Listakonan sjálf tók í reynd ómeðvitað undir þessi við- horf þegar hún bað þess að bókin, sem olli mesta uppnáminu, yrði ekki seld í heimabæ hennar; Hann- es hefur ef til vill einnig haft þau í huga þegar valin voru verkin á sýninguna á Mokka, því þar eru engar af þeim myndum, sem hafa valdið mestu uppnámi. Hin hlið umræðunnar byggir á að hér eru einfaldlega á ferðinni mikilfengleg listaverk, sem fjalla á hispurslausan hátt um eitt við- kvæmasta tímaskeið mannsævinn- ar, rétt áður en vitundin um kyn- veruna vaknar. Edvard Munch náði að túlka þetta augnablik þroskafer- ilsins á eftirminnilegan hátt í nokkrum málverkum og grafík- verkum fyrir tæpri öld, en síðan hafa fáir náð að fjalla um þetta æviskeið á jafn tvíræðan, táknræn- an og um leið innilegan hátt og Sally Mann. { listrænum skilningi er framlag hennar þannig óvé- fengjanlegt. Hver sem siðferðileg afstaða manna er til verka Sally Mann (og hver hugsandi einstaklingur hlýtur að móta sér slíka afstöðu) verður. því ekki mótmælt, að verk hennar eru öflug listaverk, sem hreyfa við kviku sálarlífsins. Slíkt afrekar myndlistin því miður of sjaldan í tilfinningadoða samtímans, og því skal þakkað fyrir hvert það sinn sem það gerist; því eiga Mokka og Hannes Sigurðsson þakkir skildar fyrir það framtak að kynna þessa listakonu hér á landi. Sýningunni á ljósmyndum Sally Mann í Mokka við Skólavörðustíg- inn lýkur sunnudaginn 20. júni, og eru listunnendur sem eiga það eft- ir hvattir til að líta við. VW Golf CL Hann er þyngdar sinnar virbi i gulli - en kostar aðeins 1 • 120.000 kr! Um þessar mundir býSst VW Golf ó óvenju hagstæðu verði -aðeins 1.120 þúsund kr. fyrir þennan þýska kostagrip sem farið hefur sigurför um heiminn og safnað að sér viðurkenningum. Hannn var meðal annars valinn „Bíll órsins í Evrópu 1992." BÍLL ÁRSINS í EVRÓPU 1992 Eigendur VW Golf (oekkja af eigin raun óstæðurnar fyrir þessari velgengni; Aksturshæfnina, þægindin, öryggið og óreiðanleikann. Þér stendur einnig til boða að kynnast þessum kostum í reynsluakstri. - Veríb velkomin - bíllínn bíbur. Volkswagen GOLF m HEKLA Laugavegi 170 -174 • Sími 69 55 00 VERND UMHVERFIS- VIOURKINNING IÐNIÁNASIÓOS

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.