Morgunblaðið - 15.06.1993, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 15.06.1993, Blaðsíða 30
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ 1993 Sjónarhorn Verðmæti vöruinnflutnings fýrstu 4 mánuði ársins var nær 9% minna á föstu gengi en á síðasta ári. Hugbúnaður Aldamótí hugbúnað- argerð BÓKAÚTGÁFAN Aldamót hefur öðrum þræði snúið sér að hug- búnaðargerð, en fyrirtækið hef- ur meðal annars gefið út tölvubækur. Fyrsta verkefni Aldamóta í hugbúnaðargerð var gerð búnaðar sem hefur hlotið vinnuheitið Aþena. Hugbúnaður- inn er gerður fyrir Windows og er unninn með nýjum forritunar- tækjum Windows umhverfisins. Fyrsta útgáfa af Aþenu mun koma á markað í byijun september nk. og verður seld á sérstöku kynn- ingarverði fyrst um sinn. í fréttatil- kynningu frá Aldamótum segir að ekki verði greint nákvæmlega frá hlutverki hugbúnaðarins fyrr en útgáfudagur fer að nálgast. Þó sé óhætt að segja að Aþena muni tölvuvæða vissa tegund bóka og færa lesendum áður óþekkt afl í hendur. Fyrirtæki Stefán Hrafnkelsson Hópvinnupakkar sem lausn skjalasijórnunar eftir Stefán Hrafnkelsson Seinni grein I fyrri grein minni sem bar yfir- skriftina „Tölvur og skjalastjórn- un“ í atvinnurekstri var verið að svara grein Ölfu Kristjánsdóttur, bókasafnsfræðings, í Morgunblað- inu 20. maí sl. í greininni kom fram greinarhöfundur er samm- mála Ölfu hvað varðar mikilvægi skjalavörslu í atvinnurekstri en ósammála þeirri niðurstöðu að fjárfesting í upplýsingatækni skil- aði engum arði og forsenda þess að breyting yrði á væri að sérfræð- ingar í skjalavörslu ynnu sitt starf áður en fjárfest yrði í upplýsinga- tækni. Greinarhöfundar telur sam- vinnu hlutaðeigandi aðila happa- drýgri kost. í fyrri grein var einn- ig úabað um hópvinnupakka. Skjalaskápur Eitt af lykilhlutverkum hóp- vinnupakka er skjalavarsla en áð- ur en farið er að tala um útfærslu á skjalavörslu í slíkum kerfum skulum við líta á þær væntingar sem eðlilegt er að gera til skjala- vörslupakka. * Skjalaskápurinn skal vera að- gengilegur vinnuhópum * Fyrirfram tilbúin sniðmát skulu vera aðgengileg * Myndun skjala skal aðlagast verk lagi á hveijum stað * Áhugaverðum skjölum skal vera hægt að raða eftir atriðum sem verklag kallar á. * Verndunarkerfi skjalaskápsins skal vera sveigjanlegt og öruggt — Skriftaraðgangur — Lestraraðgangur — Uppfærsluaðgangur — Hægt að fela ákveðin svæði í skjali en birta önnur. * Tiltekt í skjalaskápnum skal geta verið sjálfvirk. * Aðgangur að skjölum má ekki takmarkast við eina landfræði- lega staðsetningu * Kerfið skal geta birt öll skjöl sem innihalda ákveðið orð * Hægt sé að senda skjöl beint úr skjalaskápnum til væntan- legra viðtakenda — Tölvupóstur — Fax — Prentari Sú lausn sem lýst var í fyrri grein og byggðist á hefðbundinni skjala- vörslu og hefðbundinni ritvinnslu er langt frá því að uppfylla upptald- ar væntingar. Lausn á skjalavörslu Lausnin byggist að mínu mati á nýrri tegund hugbúnaðar, svo- kölluðum hópvinnupökkum. Þrátt fyrir nafngiftina sem bendir til þess að hægt sé að kaupa lausnina tilbúna í pakka er slíkt ekki hægt. í upptalningunni að framan er mikil áhersla lögð á það að upp- bygging skjalaskápsins aðlagist vinnuferli vinnuhóps og því í und- antekningartilfellum sem full hag- ræðing næst án aðlögunar pakk- ans að því vinnuferli sem verið er að tölvuvæða. Það var á þessum forsendum sem leitað var til nem- enda Tölvuháskóla Verzlunarskóla íslands (TVÍ) um að vera frum- kvöðlar hér á landi og vinna loka- verkefni sem byggir á því að að- laga vinnuferli innan Eimskips að hópvinnupakka. Hópvinnupakkar sem skjalaskápur Afraksturinn er sölumannakerfi sem fyrirhugað er að gangsetja í sumar. Kerfið heldur utan um öll samskipti við viðskiptavini s.s. kennistærðir, tengiliði, samninga, tilboð, fyrirspurnir, hvernig fyrir- spurnum var svarað og markverð- ar athugasemdir sem þarfnast vistunar. Það sem er frábrugðið skjalavörslu í þessu kerfi miðað við hefðbundnar skjalavörsluað- ferðir er að skjalavarslan er inn- byggð í kerfið. Um leið og skjal er vistað verða sjálfkrafa til teng- ingar sem orsaka birtingu þess undir ýmsum sjónarhornum. Mynd sýnir öll skjöl sem tengd hafa ver- ið við ímyndað „Stórfyrirtæki“. Stjarnan (*) merkir að skjalið sé ólesið af starfsmanni sem skráður er inn sem notandi listans. Skáhal- landi ör fyrir framan skjal bendir á að gulur miði (athugasemd) sé festur á skjalið og opin mappa þýðir að skjalið sé fyrirspurn eða óafgreitt mál sem þarfnast at- hygli. Til að einfalda leit í skjala- safninu getur notandi síðan valið um tæp tuttugu önnur sjónarhorn (lista). Sjónarhorn sem sýnir allar óafgreiddar fyrirspumir í röð á sölumenn er annað gott dæmi, en það er fyrst og fremst ætlað fyrir sölumennina sjálfa svo og yfir- mann þeirra ef sölumaður forfall- ast og vísa verður verkefnunum annað. Til að komast í skjalið þarf notandi aðeins að tvísmella á við- komandi línu. Það má taka það fram að nær óhugsandi er að vinna slíkt verkefni nema í nánu sam- ráði við starfsmenn. Breyttar starfsaðferðir kalla oft á endur- gerð (re-engineering) vinnuferla. Mikilvægt er að vera opinn fyrir breytingum og möguleikum um hagræðingu samfara aðlögun_ vinnuferla að hópvinnupakka og reynslan hefur sýnt að hugmynd- Borgarljós með Nova Elektro umboðið imar eiga oftast upptök sín hjá starfsmönnunum sjálfum. Því er verksvið tölvumanna og skipu- leggjenda skjalavörslu fyrst og fremst að sjá til þess að notendur skynji möguleika kerfisins og út- færa síðan þeirra hugmyndir. Lokaorð Að lokum vil ég benda á að gott samstarf og gagnkvæmur skilningur þeirra manna sem skipuleggja skjalavörslu og tölvu- mál fyrirtækja við starfsmennina sjálfa er örugglega heillavænleg- ast til árangurs. Vonandi bera þessir hópar gæfu til að vinna saman til að gera draumsýn Ölfu að veruleika þ.e. efla íslensk fyrir- tæki og stofnanir þannig að þau séu vel í stakk búin til að takast á við þá miklu samkeppni sem þeirra bíður á evrópskum mark- aði. Markaði þar sem íslensk fyrir- tæki sem hingað til hafa verið álit- in stór verða lítil peð og þurfa að nýta sér allan þann stuðning sem völ er á til að halda velli, hvort heldur hann flokkast undir skipu- lag, tækni, menntaða starfsmenn eða stuðning þjóðarinnar. Höfundur er tölvuverkfræðing- ur og starfar sem dcildarstjóri /yá EIMSKIP og stundakennari í TVÍ. rrnm' Verðmætí sjávar- afurða eykst um 3% ykkur kjör og skilmála samkeppnis- og útflutningslána IÐN LANASJOÐUR ÁRMÚLA 13 a '10 8 REYKJAVÍK'SÍMI 68 04 00 BORGARSLJÓS hf. hefur tekið við umboði fyrir Nova Elektro International sem er sérhæft fyr: irtæki á sviði heimilistækja. í vörulínu þess eru m.a. djúpsteik- ingarpottar, hraðsuðukatlar, brauðristar, kaffivélar, samlok- ugrill, hrærivélar, straujárn og þvottavélar. Vörur frá Nova Elektro hafa fengist á íslandi um langt skeið og voru áður fluttar inn af innflutn- ingsdeild Sambandsins. Nú stendur yfir hjá Borgarljósum skipulagning markaðsmála fyrir Nova vörur, en þær koma á markaðinn hjá Borgar- ljósum í lok þessa mánaðar. í fréttatilkynningu frá Borgar- ljósum segir að markmið fyrirtækis- ins með yfirtöku Nova umboðsins sé að bjóða breitt úrval af vönduð- um evrópskum heimilistækjum á betra verði en þekkist á markaðnum í dag. Auk Nova hefur Borgarljós umboð fyrir Black & Decker heimil- istæki. í APRÍL voru fluttar út vörur fyrir 7,7 miljjarða króna en til landsins voru fluttar vörur fyrir 6,7 milljarða og voru vöruskiptin við útlönd því hagstæð í apríl um einn milljarð kr. en á sama tíma í fyrra var vöruskiptajöfnuður- inn óhagstæður um 150 milljónir kr. Sjávarafurðir voru 81% alls útflutnings á fyrstu fjórum mán- uðum ársins og var verðmæti þeirra 3% meira en á sama tíma í fyrra, eða sem nam um 1,5 milljörðum kr. samkvæmt upp- lýsingum Hagstofunnar. Fyrstu fjóra mánuði ársins voru fluttar út vörur fyrir 28,5 milljarða kr. en inn fyrir 24,2 milljarða. 4,3 milljarða afgangur var því á vöru- skiptunum við útlönd en á fyrsta ársþriðjungi í fyrra var vöruskipta- jöfnuðurinn hagstæður um 1,8 milljarða. Verðmæti vöruútflutnings á fyrstu fjórum mánuðum ársins var 1% meira á föstu gengi en á sama tíma í fyrra. Útflutningur á áli var um 17% minni en útflutningur kísil- járns 51% meiri á föstu gengi en árið áður. Lotus Notcs ■ VI 8 - TtNGILL - I. Viðskíptavmui j Eile £dll Sgew Composc Itrxt Tgols Qeslgn Window jjelp | StórfyrirtcDkíð h/f - FyrtrtœkjQspjaid -Yfirfrí- IFR.ARN.RVT Inntfutningur.ÚtflutninguLStórflutningur Tengilidur GEB! IMP Dovld Oovíðsson ^Tengiíidur IFR/EXP GunnarGunnarsson 08.05.93 GUD/IMP Athugosemd. Kröfuharéurvíðskiptavinur Leióréttingar VliE / IMP Sftmkv. reilui/moslir>gu GSS / EXP Rangurtoxti notaður 03.01.93 l» 07.05.93 Samningor * 161292 18.0493 Sóluskýrslur 16.12.92 23.12.92 RVT / IMP Heimilísteeki fré HAM 05,04 93 RVT/IMP Athugosemd. Endumýjun 09.02.93 ARN/EXP FreðfiskurlilUSA VHE / IMP Fotnoður fró Itolíu RVT / IMP Breytt inkouporferli hjó Stórf/rirtaekinu hfi GSS / EXP Útskipun fré Hofnaifjorðarhöfn 08 01.93 IFR/ EXF' Simbrét Hðfnörgjbíd i Hofnörlirði 03.03.93 ARN / EXP Stórfyrirtœkið áformar ftð senda skreióarform Tilboft 07.05.93 Verkefni VHE/IMP HeimilisteekifréHAM Er 06.05.93 Taka sftmonviðskiptasöqu Cterkurog kJ hagkvæmur auglýsingamiðill! TÆLENSKUR MATUR TÆLENSKT UMHVERFI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.