Morgunblaðið - 15.06.1993, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 15.06.1993, Blaðsíða 20
2Ó MOKGÚNBLAÐIÐ ÞKIiMUDAOCR1 léí' JÚNÍ 1993 Grein íslensks jarðfræðings í Science Vefengir fyrri kenningar um jarðmöttulinn GREIN eftir íslenskan jarðfræðing í doktorsnámi, Bjarna Gautason, birtist nýlega í vísindatímaritinu Science. Tíma- ritið birtir aðeins um eina af hveijum fjórum aðsendum greinum og því aðeins að hún hafi áhrif á vítt svið vísind- anna. Það þykir því töluverður árangur að fá grein birta eftir sig í því. Grein Bjarna tekur saman niðurstöður úr meistaraprófsritgerð hans og munu niðurstöðurnar geta haft áhrif á deilur meðal vísindamanna um efnissamsetn- ingu neðri möttuls jarðarinnar. Undir jarðskorpunni, á 30 km til 70 km dýpi, er upphaf möttuls jarðarinnar og nær hann niður á um 2.900 km dýpi. Á um 670 km dýpi verða skörp skil í útbreiðslu- hraða jarðskjálftabylgja og skipta þessi skil möttlinum í efri og neðri hluta. Efnirannsóknanna Neðri möttullinn er að lang- mestu leyti úr perovskíti, sem er ákveðin steintegund (steind). Raf- eindir hreyfast auðveldlega í neðri möttlinum, þ.e. hann leiðir vel. Það hefur verið notað til að rökstyðja að hann hljóti að vera meira úr jámi eða öðru þess háttar efni en efri möttullinn. Þessi rökstuðning- ur hefur verið mjög umdeildur. „Það sem við höfum verið að vinna að á undanfömum árum er að mæla svokallað flakk súrefnis í ýmsum steindum og búa til ein- föld líkön fyrir það,“ sagði Bjarni í samtali við Morgunblaðið. „Við skoðuðum steind sem hefur sömu byggingu og sú sem neðri möttull- inn er að mestu leyti úr. Þessar niðurstöður notuðum við ásamt lík- anreikningunum til að skoða flakk súrefnis í þessari steind. Það sem kom í ljós og kom okkur nokkuð á óvart, er það að súrefnisjónir virðast hreyfast mjög greiðlega í neðri möttlinum. Þetta virðist geta skýrt háa leiðni hans. Það kemur á óvart því fram að þessu hefur verið talið að rafeindir einar gætu borið hleðslu nógu mikið til að skýra þetta.“ Áhrif niðurstöðunnar „Meistararitgerðin gerir því at- lögu að þeim rökstuðningi að neðri möttullinn hljóti að vera miklu jámmeiri en efri möttullin, „því ekki er lengur hægt að nota leiðn- Morgunblaðið/Bjami I doktorsnámi HIÐ virta vísindatímarit Science birti nýlega grein eftir Bjarna Gautason, jarðfræðing. Niður- stöður hans eiga eftir að hafa áhrif á rannsóknir möttuls jarð- ar. Hann er nú í doktorsnámi við Háskólann í Alberta. Kvikmyndahátíðir í Portúgal og Italíu Morgunblaðið/Þorkell Umvafin verðlaunum SÓLVEIG Amarsdóttir ásamt verðlaunagripunum sem hún hlaut í Portúgal og Italiu fyrir túlkun sína á Inguló. Ingaló hlaut fern verðlaun SÓLVEIG Amarsdóttir, aðalleikkona kvikmyndarinnar Inguló, og Ásdis Thoroddsen, leikstjóri myndarinnar, fengu hvor sinn Silfur- höfrunginn fyrir besta leik og besta handrit á alþjóðlegu kvikmynda- hátíðinni í Troia I Portúgal síðastliðinn fimmtudag. Ingaló var einn- ig sýnd á hátíð í San Remo á Ítalíu sl. laugardag og þar hlaut Sól- veig Arnarsdóttir verðlaun fyrir besta leik í kvenhlutverki. Á kvikmyndahátíðinni í Troia fékk Ingaló einnig aðalverðlaun Ocic, sem er kaþólsk dómnefnd er leggur ekki aðeins faglegt mat á myndimar heldur einnig siðferði- legt. Á portúgölsku hátíðinni hlaut tékkneska kvikmyndin „Frekar auður og heilsa en fátækt og las- leiki“ Gullhöfrunginn, fýrstu verð- laun hátíðarinnar og norska mynd- in Loftskeytamaðurinn, sem sýnd hefur verið í kvikmyndahúsum hér í Reykjavík upp á síðkastið, Silfur- höfrung fyrir bestu kvikmynda- töku. Hátíðin í San Remo er helguð myndum sem fjalla á einn eða ann- an hátt um lífið við sjávarsíðuna. Happdrætti Krabba- meinsfélagsins Flestir miðar keyptir á Hvammstanga NÚ ER að koma að drætti í vor- happdrætti Krabbameinsfélags- ins. Dregið verður að vanda 17. júní. Meðal vinninga eru tvær fólksbifreiðar af gerðinni Toyota Corolla og tvær Toyota Starlet, en alls eru vinningar 106 talsins að heildarverðmæti hátt í sautján milljónir króna. Í þetta sinn vom happdrættismið- ar sendir öllum körlum á aldrinum 23 til 75 ára en konum er sent á haustin. Fyrir nokkrum dögum var kannað hvaða skil væru þá komin fyrir heimsenda miða úr einstökum kjördæmum og póstnúmerasvæðum. Hæsta greiðsluhlutfallið áttu þá Suð- urland og Norðurland vestra en Norðurland eystra fylgdi þeim fast á eftir og síðan Austurland. Af kaup- stöðum höfðu Siglufjörður og Ólafs- ijörður forustu en næst komu Vest- mannaeyjar, Blönduós og Húsavík. Tvöföld meðalskil á Hvammstanga Af öllum þéttbýlisstöðum var þó Hvammstangi í fararbroddi með hartnær tvöföld meðalskil. Minnt er á að greiða má heim- senda miða í banka, sparisjóði eða póstafgreiðslu í síðasta lagi miðviku- daginn 16. júní. Á skrifstofu Krabba- meinsfélagsins er greiðslukortaþjón- usta fyrir happdrættið. Þar verður opið frá kl. eitt til fimm síðdegis 17. júní. Þann dag verður sölubíll happ- drættisins á Lækjartorgi fram eftir kvöldi. (Fréttatilkynning) ina til að segja til um samsetning- una,“ sagði Bjarni. Bjarni vann ritgerðina undir leiðsögn Karlis Muehlenbachs, pró- fessors við Háskólann í Alberta, en hann er einnig skrifaður fyrir greininni í Science. Bjami lauk BS-prófi í jarðfræði frá Háskóla íslands 1985 og svokallaðri fjórða árs ritgerð 1988. Hann lauk meist- araprófí frá Háskólanum í Alberta eins og áður sagði og er nú í dokt- orsnámi í sama skóla undir leið- sögn Muehlenbachs. Framkvæmdalán til félagslegra íbúða Kostnaðarviðmið- un lækkuð um 5% LÁNVEITINGAR þær sem húsnæðismáiastjórn sam- þykkti 4. júní sl. til byggingar eða kaupa á 300 félagsleg- um íbúðum nema alls um 1,8 milljarði króna en þar af er lánveiting vegna ársins 1993 um 600 mil(j. kr. Gert er ráð fyrir að hér sé aðeins um fyrri af tveimur lánveit- ingum að ræða á þessu ári og að endanleg fjármögnun fáist á næstu mánuðum svo hægt verði að veita lán til byggingar eða kaupa á 500 félagslegum íbúðum alls að því er fram kemur í greinargerð Húsnæðisstofnunar vegna lánveitinganna. Samstarfsverkefni RALA, Skógræktarinnar og Landgræðslunnar Kynbætur Alaska- lúpínu gefast vel EITT fjöimargra verkefna sem Rannsóknaráð ríkisins styrkti nýver- ið er samstarfsverkefni Rannsóknarstofnunar landbúnaðarins, Skóg- ræktar ríkisins og Landgræðslunnar. Verkefnið gengur út á beit- ingu aðferða sameinda- og frumuerfðafræði í landbúnaði og skóg- rækt. Eitt markmiða verkefnisins er að rækta nýja, kynbætta teg- und Alaskalúpínu svo að hún geti nýst sem ódýrt fóður. Þá verða möguleikar á hagnýtingu melgresis kannaðir til hlítar. Áslaug Helgadóttir náttúrU' fræðingur hjá RALA er verkefnis- stjóri. „Við reynum við rannsóknir okkar að einangra erfðaefni plantna í því skyni að kanna eigin- leika þeirra," sagði Áslaug. „Við skoðum til að mynda uppbyggingu og einstök gen erfðaefnis. Við höf- um síðan komist að því að hægt er að framkvæma kynbætur á plöntum sem leiða til þess að þær nýtast betur sem fóður, sem hrá- efni í brauðgerð eða sem hæfari plöntur í landgræðslu." Kynbætur á Alaskalúpínu Aðstandendur verkefnisins munu mikla áherslu á þann hluta verkefnisins sem snertir rannsóknir á Alaskalúpínunni. Hingað til hefur hún nær einungis nýst í land- græðslustörfum en verkefnisstjór- arnir, Áslaug og Kesara Jónsson, telja að lúpínan geti í ríkari mæli nýst í landbúnaði og þá sem fóður fyrir búpening í landinu. í því skyni þarf að rækta nýja lúpínugerð, það er með víxlun hinnar hefðbundnu lúpínugerðar og sætari lúpínuteg- unda. Hin hefðbundna nýtist ekki ein og sér vegna beiskjuefna sem í henni eru, en með aðferðum frumuerfðafræði má minnka magn þeirra. Morgunblaðið/Bjami Lúpínan kynbætt KESARA Jónsson og Áslaug Helgadóttir sýna hvernig tveimur Iúpínutegundum er víxlað saman. Sú til hægri er hin hefðbundna Alaskalúpína en Kesara meðhöndlar sætari gerð lúpínunnar. stórum stíl á íslandi. Vonir eru Hagnýting melgresis Einnig verður, að sögn Áslaugar og Kesöru, sjónum beint að leiðum til að hagnýta melgresi sem vex í bundnar við það að með kynbóta- starfi verði hægt að rækta fjölæra korntegund sem nýtt yrði til hveiti- framleiðslu og brauðgerðar. Alls lágu fyrir 89 gildar umsókn- ir um framkæmdalán til að byggja eða kaupa 1.688 félagslegar íbúðir og voru veitt fyrirheit um framkæmdalán til 50 félagslegra framkvæmdaaðila um byggingu eða kaup á 108 félaglegum eingaríbúð- um, 47 félagslegum leiguíbúðum, 97 félagslegum kaupleiguíbúðum og 48 almennum kaupleiguíbúðum. Húsnæðismálastjórn samþykkti einnig ákveðnar reglur varðandi hönnun og byggingarkostnað fé- lagslegra íbúða og samþykkti að lækka kostnaðargrundvöll, sem not- aður er til viðmiðunar við lánveit- ingar um 5% frá því sem verið hef- ur. Er þess vænst að það verði til þess að byggingarkostnaður íbúð- anna lækki enn, lánveiting stofnun- arinnar til hverrar og einnar verði lægri en ella og þar með lánskostn- aður hlutaðeigandi fjölskyldna, meðan lánin standa. Lækkunin á að knýja á um að framkvæmdaaðil- ar, hönnuðir og verktakar leggi sig enn meira fram en áður til að tryggja að íbúðirnar fari ekki yfír þessa nýju kostnaðarviðmiðun. Hagkvæmustu kosta leitað Húsnæðismálastjórn samþykkti einnig ýmis skilyrði fyrir veitingu lánanna, sem fela það m.a. í sér að hver framkvæmdaaðili sé skyld- ugur til að ganga úr skugga um hvort hagkvæmt sé að kaupa eldra húsnæði eða íbúðir í smíðum áður en tekin er ákvörðun um byggingu nýrra íbúða, m.a. með sérstökum auglýsingum. Við kaup á eldra hús- næði verði þess ennfremur gætt að rekstrarkostnaður þess sé ekki hærri en góðu hófí gegni þó gera þurfí nauðsynlegar endurbætur á því. Ætlar Húsnæðisstofnun fylgj- ast með að eftir þessu verði farið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.