Morgunblaðið - 15.06.1993, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 15.06.1993, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. JUNI 1993 41 kynntist henni, en hún var ung í hugsun og naut þess alltaf að um- gangast sér yngra fólk. Hún hafði gott lag á að sjá spaugilegu hliðarn- ar á hlutunum og var einstaklega kát og höfðingi heima að sækja. Hún naut þess að ferðast og ferðað- ist víða um heim. Af miklum dugnaði eignaðist hún íbúð á Melhaga 10 og bjó sér og sínum fallegt heimili, en á heimilinu voru einnig móðir hennar, Jóhanna Eiríksdóttir, systursonur hennar Sigurður J. Ingibergsson og að sjálfsögðu sonurinn. Bjó Jóhanna hjá henni allt þar til hún var 99 ára að hún fór á elliheimilið Grund, þar sem hún lést tæplega 102 ára. Guðlaug hafði alla tíð verið frek- ar heilsulaus, en eftir að hún lét að störfum hjá Landsbanka íslands, eftir 35 ára starf, fór að halla und- an fæti. Hún hélt heimili þar til árið 1985 að hún fór á elliheimiiið Grund, en árið 1988 varð hún fyrir því áfalli að taka þurfti af henni annan fótinn fyrir ofan hné. Eftir það var hún bundin við hjólastól og þarfnaðist mikillar umönnunar og vil ég þakka starfsfólki Grundar þess góðu umönnun. Síðustu árin voru henni erfið og efast ég ekki um að hún var hvíldinni fegin því að hún hafði verið ferðbúin lengi. Líkamlegt þrek var þrotið, en hugs- unin skýr til síðasta dags. Það var táknrænt fyrir þessa vin- mörgu konu að tæpri viku áður, en hún lést, lést ein besta og trygg- lyndasta vinkona hennar, frú Hanna Þórðarson, og efast ég ekki um að þar hafi orðið fagnaðarfund- ir. Ég óska þér góðrar heimkomu. Vertu kært kvödd, Þín Sigrún. Guðlaug Sigurðardóttir banka- starfsmaður, Lauga eins og hún hét í okkar hópi, er látin. Lauga var æskuvinur móður minnar og náinn vinur foreldra minna á þroskaárum ævinnar og æ síðan. Svo nánin vin- ur var Lauga að hún var guðmóðir undirritaðs. Þeirri köllun var Lauga trú, því að-mikið naut ég ástúðar hennar, elsku guðsonurinn, og Sveinn Áki hennar þá. Lauga var hollsystir móður minnar, í sauma- klúbbi góðra kvenna. Ein þeirra lést nú um daginn, Hanna Þórðar- son. Blessuð sé minning hennar. Aðrar eru farnar á vit afturelding- arinnar, en Lauga nú þeirra síðust. Reyndar hafa ýmsir úr gömlum vinahópi kreppu- og stríðskynslóðar horfið af velli til eilífðar í vor, og vil ég nota tækifærið og nefna Sig- urrósu Jónsdóttur hárgreiðslu- meistara eða Siggu mágkonu móð- ur minnar, og Sigurð Gunnarsson í Vík í Mýrdal eða Sigga á Bjargi. Þetta fólk var hollvinir yngri kyn- slóðarinnar, e.t.v. í ríkari mæli en nú gerist. Blessuð sé minning þeirra. Lauga var hress kona og skemmtileg. Hún fór ekki varhluta af erli lífsins í gleði og sorg. Hæst bar þegar hún eignaðist dreng, góðan dreng, sem hún lét heita í höfuðið á guðsyni sínum, Sveinn Áki Lúðvíksson. Sveinn Áki er að- stoðarframkvæmdastjóri hjá tölvu- fyrirtæki. Hann er kvæntur góðri konu, Sigrúnu Jörundsdóttur, og eiga þau tvo drengi, Jörund Áka og Svein Áka. Heitkona Jörundar Áka er Herdís Sigurbergsdóttir og eiga þau eina dóttur, Sigrúnu Mar- íu. Þau trega nú móður og ömmu. Hin síðari ár dvaldist Lauga á Elliheimilinu Grund' og þar lauk ævi hennar eftir margra ára þraut. Lauga er gengin á vit aftureldingar- innar til móts við vini sína. Eg votta börnum Laugu og öðrum vanda- mönnum samúð mína, með kveðju frá fjölskyldu minni og börnum for- eldra minna og með þakklæti fyrir liðna tíð. Blessuð sé minning Laugu. Guðsonur, Svend-Aage Malmberg. GRFIDRYKKJVR x\f%/ JMÍ)¥E1. Sími 11440 Minning Brynhildur Ingibjörg Jónasdóttir ljósmóðir Fædd 8. maí 1920 Dáin 27. maí 1993 „Vinir berast burt með tímans straumi.“ Það er saga lífsins sem enginn fer framhjá, en sú saga eða sú slóð sem verður eftir hvern og einn er að sjálfsögðu margbrotin. Sú slóð sem Brynhildur skilur eftir hérvist sína er með sanni vörð- uð ljósum, hlýju og glaðlyndi. Við áttum margvíslegar ánægju- stundir saman, bæði í vinnu og ut- an. En einmitt hún sem gaf öðrum svo mikið þurfti að ganga í gegnum þennan erfiða kapitula brottfarar- innar. (En kannski hefðu fáir verið færari um það.) Örlög sem engin flýr og enginn máttur fær þokað. (B.G.) Þökk sé hennar fólki og öllum sem studdu hana með nærveru sinni. Votta ég þeim innilegustu samúð. Guð blessi ykkur og minn- ingu hennar. Sjálf hafði ég ekki kjark til að heimsækja hana í seinni tíð. Orð eru innantóm á stundum og koma ekki í stað mannlegrar snertingar og samskipta. Kveðja frá stéttarsystur, Sigríður Sigurðardóttir. Birting afmælis- og minningargreina MORGUNBLAÐIÐ tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á rit- stjórn blaðsins á 2. hæð í Kringlunni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Hafnarstræti 85, Akureyri. Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku- dagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar greinar um fólk sem er 70 ára eða eldra. Hins vegar eru birtar afmælisfréttir með mynd í dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra. t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÍÐUR ELÍN ÞORKELSDÓTTIR, Droplaugarstöðum, áður Háteigsvegi 28, sem andaðist þann 8. júní, verður jarðsungin frá Fossvogskapellu í dag, þriðjudaginn 15. júní, kl. 15.00. Þorkell Jóhannesson, Vera Tómasdóttir, Jóhanna J. Thorlacius, Ólafur Thorlacíus, barnabörn og barnabarnabörn. t Sonur minn, bróðir, faðir, tengdafaðir og afi, HALLDÓR HOSTERT, lést 8. júní sl. Jarðarförin fer fram frá Litlu kapellunni í Fossvogi föstudaginn 18. júní kl. 15.00. Steinþóra Steinþórsdóttir, Anný Halldórsdóttir, Grétar Örn Hostert, Anna Bentina, Sigríður Björg Hostert og barnabörn. t Ástkær dóttir okkar og systir, BRYNHILDUR JÓNSDÓTTIR, Brekkuseli 33, Reykjavík, verður jarðsungin frá Seljakirkju miðvikudaginn 16. júní kl. 13.30. Jón Björnsson, Margrét Dannheim, Magnús Kristinn Jónsson, Sólveig Katrín Jónsdóttir, Björn Brynjar Jónsson. t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, CLARA LAMBERTSEN, Kirkjuvegi 28, Vestmannaeyjum, sem lést í Sjúkrahúsi. Vestmannaeyja 6. júní sl., verður jarðsungin frá Landa- kirkju föstudaginn 18. júní kl. 14.00. Jóhann Guðmundsson, Guðbjörg Kristjánsdóttir, Steinn Guðmundsson, Guðbjörg S. Petersen, barnabörn og fjölskyldur þeirra. t Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÁSTA JÓNSDÓTTIR, Hjallaseli 51, Reykjavik, verður jarðsungin frá Fella- og Hólakirkju í dag, þriðjudaginn 15. júní, kl. 15.00. Hilmar Guðmundsson, Gislfna Jónsdóttir, Heiðrún Guðmundsdóttir, Gunnar Þorbjarnarson, Inga Dóra Guðmundsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Systir okkar, MAGNÝ GUÐRÚN BÁRÐARDÓTTIR, Bugðulæk 2, Reykjavík, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju í dag, þriðjudaginn 15. júní, kl. 13.30. Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeim, sem vilja minnast henn- ar, er bent á Krabbameinsfélagið. Jón H. Bárðarson, Salóme B. Bárðardóttir, Sigurður Ó. Bárðarson, Þorsteinn Sigurðsson. t Ástkær eiginmaður minn og faðir, GUNNAR MARINÓ HANSEN múrari, Vesturbergi 78, andaðist í Landspítalanum sunnudag inn 13. júní. Unnur Sólveig Vilbergsdóttir, Vilborg Gunnarsdóttir. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför eiginkonu minnar, móður og dóttur, HULDU EIRÍKSDÓTTUR, Freyvangi24 á Hellu. Hreinn Sveinsson, Hlynur Hreinsson, Anna Guðmundsdóttir. t Þökkum auðsýnda samúð vegna andláts og útfarar sonar míbs og bróður okkar, ATLA ANGANTÝSSONAR, Hafnargötu 10, Siglufirði, sem lést þann 27. maí í Sjúkrahúsi Siglufjarðar. Ester Landmark og systkini hins látna. t Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför elsku- legrar konu minnar, móður okkar, fósturmóður og ömmu, ÖNNU SJAFNAR STEFÁNSDÓTTUR, Brekkustíg 31 c, Njarðvík. Maron Guðmundsson, Eyjólfur Stefán, Guðrún Maronsdóttir, Guðbjörn Maronsson, Stefán Eyjólfsson. t Innilegar þakkir til allra þeirra fjölmörgu, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför mannsins míns og föður okkar, GUNNARS ÓLAFSSONAR verslunarmanns, Gnoðarvogi 88. Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarfólks lungnadeildar Vífils- staðaspítala fyrir sérstaka umönnun. Margrét Leósdóttir, Gunnar Gunnarsson, * Laufey Gunnarsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.