Morgunblaðið - 15.06.1993, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 15.06.1993, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ 1993 17 Á að fjármagna borgar- sjóð með sölu fyrirtækja? eftir Alfreð Þorsteinsson Sú fyrirætlan borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins að breyta SVR í hlutafélag er augljóslega fyrsta skrefið til að einkavæða fyrirtækið. Ekki kæmi mér á óvart, þótt fréttir bærust af því, að Rafmagnsveita Reykjavíkur og Hitaveita Reykjavík- ur væru einnig á iista sjálfstæð- ismanna yfír borgarfyrirtæki, sem breyta ætti í hlutafélög. Það hefur raunar verið gefið í skyn af núver- andi borgarstjóra. Það er athyglisvert, að sjálfstæð- ismenn reyna að beita þeim blekk- ingum, að einungis sé verið að breyta rekstrarformi, ekki standi til að selja hlutabréf í borgarfyrirtækjum, sem breytt verði í hlutafélög. Þau verði áfram í eigu Reykjavíkurborgar og starfsmenn þurfí ekki að óttast um hag sinn. Þeim fullyrðingum trúir enginn — og allra sízt sjálfstæðis- menn sjálfír — enda eru þeir mjög meðvitaðir um stefnu flokksins varð- andi opinberan rekstur. Það eykur einnig líkurnar á sölu borgarfyrirtækja, að sjálfstæðis- menn hafa klúðrað fjármálum Reykjavíkurborgar svo, að það kann að reynast þeim töluverð freisting að selja þau til að rétta fjárhaginn við, þótt vitað sé, að sannvirði fáist aldrei fyrir þessi fyrirtæki. í síðustu borgarstjórnarkosning- um var ekki kosið um einkavæðingu Alfreð Þorsteinsson „Það eykur einnig lík- urnar á sölu borgarfyr- irtækja, að sjálfstæðis- menn hafa klúðrað fjár- málum Reykjavíkur- borgar svo, að það kann að reynast þeim tölu- verð freisting að selja þau til að rétta fjárhag- inn við, þótt vitað sé, að sannvirði fáist aldrei fyrir þessi fyrirtæki.“ borgarfyrirtækja eða að breyta þeim í hlutafélög. Reykvíkingum hugnast ekki, að þjónustufyrirtæki á borð við SVR, rafmagnsveitu eða hitaveitu verði einkavædd, þótt menn geti samþykkt, að opinberum fyrirtækj- um, sem standa í beinni samkeppni við einkaaðila, verði breytt í hlutafé- lög og e.t.v. seld að hluta eða öllu leyti. Sjálfstæðismenn standa því frammi fyrir því, ef þeir ætla að keyra þessar breytingar í 'gegn, að nýr meirihluti muni í upphafí nýs kjörtímabils rifta gjörningi þeirra. Að öðru leyti hljóta þessi mál að verða eitt helzta mál borgarstjóm- arkosninga á næsta ári. Höfundur er varaborgarfulltrúi Framsóknarflokksins. VINKLAR Á TRÉ HVERGI LÆGRI VERÐ ÞÝZKIR GÆÐAVINKLAR OG KAMBSAUMUR ÁVALLT FYRIRLIGGJANDI c8 Þ.ÞORGRÍMSSON & CO Ármúla 29 - Reykjavík - sími 38640 iTqTqTqTðTðTqTS^ ' "k v1 s, VIÐEYJARNAUST | Við léttum ankeri & og siglum á S mínútum út í Viðeyl q)(9 Sigling - útivera - grill Ævintýraferö fyrir hópa af öllum stærðum. Njótið náttúruperlu sundanna. Grillveisla á ótrúlega lágu verði allt frá 760,- krónum fyrir manninn. Sérkjör fyrir börnin. Kynnið ykkur málið símar: 62 19 34 eða 68 10 45 EIGA ÓDÝRAR PYLSUR AÐ KOSTA MIKIÐ Þrátt fyrir gylliboð annarra á ódýrum pylsum eru Búrfellspylsur á sumartilboði langódýrastar. Verðið er aðeins 599 kr./kg, sem er 10% lægra verð en á næstódýrustu pylsunum. Þegar þú færð þér ódýrar pylsur skaltu fá þér Búrfellspylsur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.