Morgunblaðið - 15.06.1993, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 15.06.1993, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ 1993 39 Sigríður Elín Þor- kelsdóttír — Minning skyldunni í Garðinum, en hjarta- rými þeim mun meira. Heiðrún og eiginmaðuyr hennar, Eggert 0. Guðmundsson, sem látinn er fyrir mörgum árum, áttu það sameigin- legt að laða að sér fólk. Þau voru bæði létt í lund, sérlega þægileg í viðmóti og gestrisin í meira lagi, enda var gestagangur alla tíð mik- ill á heimili þeirra. Oft kom það fyrir, vegna náms og vinnu minnar, að helgarfrí voru í lengra lagi og var þá alltaf efni tilhlökkunar að skreppa í Garðinn og varð sú ferð áður en varði einn af föstum punktum í tilverunni. Ég minnist þess, að við Heiðrún höfð- um oft verkaskipti við þessi tæki- færi, þannig að hún tók til við að sauma á mig, allt frá hversdagsflík- um upp í sparikjóla, en ég tók til við húsverkin. Saumaskapur, sem og flest annað sem Heiðrún fékkst við, lék í höndum hennar og má segja að hún hafi klætt mig á þenn- an hátt öll námsárin og jafnvel enn lengur. Síðar, er kom að giftingu minni, var Heiðrún að sjálfsögðu fengin til að sauma brúðarkjólinn. Við þröngan húsakost í Garðin- um, en mikla umhyggju, ólu þau hjón upp þrjú mannvænleg börn, Guðlaugu Helgu, Fríði og Helga Má. Eftir að þau hjón fluttu í Garðabæ fyrir þrjátíu árum bættist þeim ijórða barnið, Björgvin Örn. Þrátt fyrir nokkurn aldursmun hef- ur alltaf verið eins konar systkina- samband milli okkar af yngri kyn- slóðinni og er ég mjög þakklát fyr- ir það. Þau elstu af börnum Heið- rúnar og Eggerts hafa eignast sína fjölskyldu, en Björgvin Örn býr enn í foreldragarði. Þegar fjölskylda mín flutti í Garðabæ varð samband okkar enn nánara og segja má að það hafi sífellt verið að færast meira í átt til sannrar vináttu. Slíkt verður aldrei fullþakkað. Veikindi Heiðrúnar voru ekki langvinn og óraði engan sem tii þekkti að svo hratt mundi draga af henni sem raun varð á. Svo lif- andi sem hún var alla tíð er erfitt að sætta sig við að hún skuli ekki lengur vera hér á meðal okkar, en góðar minningar um hana munu lifa lengi. Söknuður við fráfall Heið- rúnar er mikill, en það er víst að himnaríki er betri bústaður eftir en áður. Elsku Gullý, Fríður, Helgi Már og Böggi. Við Finnur og fjölskyldur okkar vottum ykkur öllum innilega samúð og biðjum ykkur Guðs bless- unar. Þórunn. Kveðja frá Kvenfélagi Garðabæjar. í dag kveðjum við kæra kvenfé- lagskonu, Heiðrúnu Magnúsdóttur. Hún hafði átt við vanheilsu að stríða undanfarna mánuði. Við minnumst með gleði síðasta fundar félagsins í maí sl. Okkur virtist þá, jafn glæsi- leg og hún var, að hún væri á bata- vegi. En heilsu hennar hrakaði snögglega og lést hún á Landspítal- anum 7. júní sl. Heiðrún gekk í Kvenfélag Garða- bæjar árið 1965. Hún var virkur félagi og gegndi ýmsum trúnaðar- störfum, sat í varastjórn félagsins og ýmsum nefndum. Eftir lát eigin- manns hennar, Eggerts Guðmunds- sonar, árið 1985, tók hún við starfi rekstrarstjóra samkomuhússins Garðaholts, sem kvenfélagið rekur og gegndi hún því starfi þar til sl. haust er hún veiktist. Þó að hún gæti ekki séð um daglegan rekstur hússins sl. vetur fylgdist hún með og var ætíð tilbúin að gefa góð ráð. Hún rækti þetta starf af ein- stakri prýði og átti gott samstarf bæði við viðskiptavini og samstarfs- fólk. Starfið á Garðaholti var þó ekki hennar aðalstarf. Hún var matráðskona í Garðaskóla sl. 23 ár. Vinnudagurinn var því oft lang- ur hjá Heiðrúnu. En hún var glað- lynd og naut þess að vera með góðu fólki. Að leiðarlokum er okkur efst í huga þakklæti fyrir langt og gott samstarf. Börnum hennar og fjöl- skyldum þeirra vottum við innilega samúð okkar. Blessuð veri minning Heiðrúnar Magnúsdóttur. Fædd 27. júní 1909 Dáin 8. júní 1993 í dag kveðjum við elsku ömmu. Með nokkrum orðum langar okkur til að minnast hennar og þakka fyrir þær stundir sem við áttum saman. Amma var fædd á Furubrekku í Staðarsveit, en ólst upp í foreldra- húsum á Þorgeirsfelli og á Hellis- sandi. Eftir fermingu fluttist hún til Reykjavíkur með foreldrum sín- um. Þeir voru Þorkell Guðbrandsson og Theodóra Kristjánsdóttir. Eftir- lifandi systkini ömmu eru Guð- brandur Þorkelsson, fyrrverandi lögregluvarðstjóri, kvæntur Frið- riku Jóhannesdóttur, og Ragnheið- ur Hulda, hjúkrunarfræðingur, gift Gunnari Steingrímssyni, loftskeyta- manni. Amma gekk í hjónaband með Jóhannesi Zoéga Magnússyni, prentsmiðjustjóra Alþýðuprent- smiðjunnar 22. október 1932 (d. 13. janúar 1957). Þau eignuðust tvö börn, Þorkel, f. 23. mars 1934, full- trúa hjá Flugleiðum, kvæntan Veru Tómasdóttur og eiga þau tvö börn, Tómas og Önnu; og Jóhönnu, f. 4. maí 1940, hjúkrunarfræðing, gifta Ólafi Thorlacius, deildarstjóra hjá Sjómælingum íslands, og eiga þau fjórar dætur, Margréti, Sigríði El- ínu, Þórdísi og Theodóru. Barna- barnabörnin eru orðin níu. Amma var mikill dugnaðarforkur meðan heilsa og aldur leyfðu. Hún hafði yndi af handavinnu og eftir hana liggja mörg listavel gerð hannyrðaverk. Þá rifjast upp fyrir okkur veislurnar sem hún hélt á heimili sínu, Háteigsvegi 28, en sem gestgjafi og veitandi naut hún sín til fullnustu. Eftir að afi féll frá vann amma sem símavörður á Landspítalanum í mörg ár. Þegar við lítum til baka rifjast upp fyrir okkur ljúfar minningar um elsku ömmu, ferðalögin sem við systkinin fórum í ásamt henni og foreldrum okkar. Þar fræddi hún okkur um örnefni landsins sem hún elskaði, enda fróð og vel lesin. Nú þegar komið er að leiðarlok- um þökkum við systkinin stöðuga ást hennar og umhyggju fyrir okk- ur og börnum okkar. Það er sagt að enginn sem skilur eftir góðar minningar sé að fullu dáinn, því að góð orð og athafnir sem eftir lifa skila sér áfram til komandi kyn- slóða. Amma var þakklát fyrir allt sem fyrir hana var gert. Viljum við þakka innilega fyrir þá hjúkrun og umönnum sem hún hlaut á Droplaugarstöðum meðan hún dvaldist þar. Við kveðjum ömmu Sigríði með söknuði og þökkum fýrir allt og allt. Hjartans kveðja. Anna, Tómas og fjölskyldur. Þann 8. júní lést að Droplaugar- stöðum Sigríður Elín Þorkelsdóttir, föðursystir mín, þá tæplega 84 ára að aldri. Sigríður var fædd í Furu- brekku í Staðarsveit 27. júní 1909. Hún var elsta barn hjónanna Guðnýjar Theodóru Kristjánsdóttur sem var fædd í Straumíjarðartungu í Miklaholtshreppi og Þorkels Guð- brandssonar, fæddan í Búðum í Staðarsveit. Þau voru bæði af þekktum snæfellskum og breið- firskum ættum. Systkini Sigríðar eru Guðbrandur Ágúst, járnsmiður og fyrrverandi lögregluvarðstjóri, fæddur 13. janúar 1916, sem er kvæntur Friðriku Jóhannesdóttur, og Ragnheiður Hulda, hjúkrunar- fræðingur, fædd 1. febrúar 1919, sem er gift Gunnari Steingríms- syni, loftskeytamanni. Árið 1921 fluttist Sigríður með foreldrum sínum úr Staðarsveit vestur að Hellissandi. Þar gekk hún í barnaskóla. Fjórum árum síðar fluttust þau til Reykjavíkur. Á árun- um 1926-1927 stundaði hún nám við Kvennaskólann í Reykjavík. Hafði hún hug á frekara námi en efnin leyfðu það ekki á þeim tíma. Faðir hennar vann í byggingarvinnu og móðir að saumaskap í heimahús- um. Þau bjuggu í vesturbænum og var iðulega gestkvæmt á heimilinu. Þangað leituðu sveitungar þeirra til skrafs og ráðagerða og gistu gjarn- an þó húsnæði væri ekki stórt. Þegar hún var 21 árs gömul kynntist hún verðandi manni sínum, Jóhannesi Zoéga Magnússyni, sem fæddur var 7. apríl 1907. Hann var sonur Jóhönnu Zoéga, kaupkonu í Reykjavík, og Magnúsar Magnús- sonar, prentara. Sigríður og Jó- hannes gengu í hjónaband tveimur árum síðar, þann 22. október 1932. Jóhannes var lærður prentari og hafði starfað hjá Gutenberg. Hann varð síðar prentsmiðjustjóri í Al- þýðuprentsmiðjunni. Fyrstu búskaparárin bjuggu þau í vesturbænum, að Holtsgötu 31. Á þeim tíma fæddist fyrra barn þeirra hjóna, Þorkell, loftsiglingafræðing- ur, fæddur 23. mars 1934, nú starf- andi hjá Flugleiðum. Kona hans er Vera Tómasdóttir Dundee, af breskum ættum, starfsmaður Fé- lagsmálastofnunar Garðabæjar. Þeirra börn eru Tómas og Anna. Barnabörn þeirra eru ijögur. Síðar fluttust Sigríður og Jó- hannes inn í Sogamýri, að Bústaða- bletti, sem þá var í útjaðri Reykja- víkur. Þar fæddist þeim síðara barn- ið, Jóhanna, hjúkrunarfræðingur, fædd 4. maí 1940. Hún er gift Olafi Thorlacius, kortagerðarmanni. Þeirra dætur eru Margrét, Sigríður Elín, Þórdís og Theodóra. Eiga þau fimm barnabörn. Árið 1944 festu Sigríður og Jó- hannes kaup á húsnæði við Háteigs- veg 28 og ári síðar fluttist Guð- brandur bróðir hennar í sama hús með fjölskyldu sína svo og foreldrar þeirra, þau Theodóra og Þorkell. Þetta var því sannkallað fjölskyldu- hús þriggja kynslóða og var sá sem þetta ritar af yngstu kynslóðinni. Heimili Sigríðar og Jóhannesar bar vott smekkvísi og fágunar og voru þar haldnar veglegar fjöl- skylduveislur. Var þar bókakostur góður og þau hjónin vel að sér um bókmenningu. Var gott að geta leit- að upp á loft til Siggu frænku, eins og við bræðurnir kölluðum hana, þegar lesefni þraut. Ekki var það síðra þegar ilmur af nýbökuðum vöfflum fyllti húsið, en Sigga frænka bjó til heimsins bestu og stærstu vöfflur með stóra, ferkant- aða vöfflujárninu sínu, sem var nánast eins og galdravél í augum barnsins. Þau hjónin höfðu yndi af ferða- lögum, sem voru ósjaldan í tengsl- um við laxveiðiferðir Jóhannesar, en hann var mikill áhugamaður um veiðiskap. Ferðirnar urðu þó færri en efni stóðu til, þar sem Jóhannes lést langt um aldur fram, aðeins tæplega fimmtíu ára gamall. Höfðu þau þá búið saman í hjónabandi í aldarfjórðung og börnin 16 og 22 ára. Hefur fráfall Jóhannesar að vonum verið mikið áfall, enda hafði hann kennt sér meins í stuttan tíma. Nokkru síðar fór Sigríður til starfa í bókaverslun sem þá bar heitið Bókhlaðan. Bækur sem og hannyrðir áttu hug hennar mjög Inga var listelsk kona og hafði yndi af myndlist og góðum bók- menntum, og voru það sameiginleg áhugamál þeirra Sigurðar. Heimilið bar ljósan vott um myndlistaráhuga og smekkvísi þeirra hjóna. Þar var gestkvæmt og var Inga meistari í að veita gestum sínum, innlendum jafnt sem erlendum, góðan beina þótt fyrirvari væri oft skammur. Auk heimilisstarfa gafst Ingu nokk- og sá fróðleikur hennar um bækur nýttist því vel við afgreiðslustörfin. Á þessum árum komu dönsku Andr- ésar andar-blöðin með Gullfossi frá Kaupmannahöfn. Að loknum vinnu- degi bar Sigga frænka gjarnan Andrésar andar-blöð undir armin- um og gaf okkur bræðrum. Svona gekk þetta í mörg ár þannig að blöðin fylltu margar möppur. Þær hafa síðar glatt margan ungan manninn á Háteigsveginum. Síðustu starfsárin var Sigríður símavörður á Landspítalanum og vann það starf af mikilli kost- gæfni. Er aldurinn færðist yfir flutti hún sig um set á heimili aldraðra á Droplaugarstöðum. Þar dvaldi hún í góðu yfirlæti. Undir hið síð- asta gætti heilsubrests og fékk hún hægt andlát að morgni 8. júní, þá tæplega 84 ára að aldri. Vil ég og fjölskylda mín votta börnum Sigríðar, börnum þeirra og barnabörnum samúð okkar og virð- ingu. Ég mun minnast Sigríðar sem góðrar frænku er veitti mér, sem ungum dreng, margvíslega gleði og ánægju á uppvaxtarárum mínum. Guð blessi minningu hennar. Friðrik Kr. Guðbrandsson. En minning þín er mjúk og hlý og mun oss standa nærri. Með hveiju vori hún vex á ný og verður ávallt kærri. Ef iífsins gáta á lausnir til, þær ljóma bak við dauðans þil. Og því er gröfin þeim í vil sem þráðu útsýn stærri. (M.Á.) Kveðja frá langömmubömunum Irisi, Emu, Þorkatli og Frey. Nú er hún elsku amma ekki leng- ur hjá okkur, hún er hjá Guði. Við vitum að þar líður henni vel og trú- um því að þetta sé það besta úr því sem komið var. Hún amma var orðin svo veik. Við söknum elsku ömmu og minnumst fyrri daga þegar amma var hressari. Alltaf var opið hús hjá henni, jafnt fyrir okkur sem vini okkar. Amma tók þátt í gleði okkar og sorg, fýlgdist spennt með okkur vaxa úr grasi og komast til manns. Hún tók alltaf á móti okkur með sínu einstaka hlýja brosi, gaf okkur að borða og drekka og bað okkur nú að fara varlega í hveiju sem við tókum okkur fyrir hendur. Hún lagði mikinn metnað í það að við lærðum og kæmumst áfram í lífinu. Hún var stórtæk í öllum sínum gjöfum og lagði þar ríka áherslu á bækur, því að hún var sjálf mikill bókaormur. I dag erum við að kveðja hana og eftir lifa góðar minningar. Vertu bless, elsku amma Sigríð- ur. Margrét, Sigríður, Þórdís og Theodóra. urt tóm til að sinna öðrum hugðar- efnum sínum og m.a. stundaði hún nám í frönsku og sænsku við Há- skóla íslands. Á fýrstu árum sínum hér kenndi Inga frönsku en síðan lengst af sænsku í málaskólum og Námsflokkum Reykjavíkur og í einkatímum. Einnig fékkst hún við þýðingar úr íslensku á sænsku. Það hljóta að hafa verið mikil viðbrigði að flytja frá skógi vöxnum héruðum Mið-Svíþjóðar til berang- ursins á íslandi þar sem vindarnir leika lausum hala. Og vissulega tók nokkurn tíma að venjast þessu umhverfi. En svo fór að Inga sakn- aði Esjunnar jafnmikið þegar hún dvaldi erlendis um stundarsakir og hún hafði saknað skóganna þegar hún flutti frá Svíþjóð. Á kveðjustund rifjast upp margar svipmyndir sem Inga brá upp á samverustundum okkar. í huganum sjáum við hana á fögrum sumar- degi í Stokkhólmi, nýlega trúlofaða Sigurði, þar sem hún bíður hans í sólskininu. Og við sjáum hana einn- ig fyrir okkur heima í stofunni í Álfheimunum, leiftrandi af kímni og frásagnargleði. Þannig munum við minnast hennar. Við vottum börnum hennar, Snjó- laugu og Sven, tengdabörnum og bamabörnum innilega samúð okk- ar. Elsa og Guðrún. Minning Inga Þórarinsson Fædd 7. september 1918 Dáin 7. júní 1993 Kynni okkar og Ingu Þórarinsson hófust fyrir sjö árum þegar verið var að útbúa minnispening um mann hennar, Sigurð Þórarinsson jarðfræðing, en. alþjóðleg samtök á sviði eldfjallafræði veita hann fyrir framúrskarandi rannsóknir á þeim vettvangi. Áður þekktum við Ingu af afspurn sem konu Sigurðar og vissum að þau hjón voru jafningjar að andlegu atgervi og að þar giltu engir venjulegir mælikvarðar. Jarð- fræðafélag íslands sá um að láta útbúa minnispeninginn og það kom í okkar hlut að hafa samband við Ingu, kynna henni framvindu máls- ins og leita álits hennar á ýmsu sem að því laut. Hún tók okkur jafnan tveim höndum og leysti úr vanda okkar eins og í hennar valdi stóð en sló svo gjarnan á léttari strengi. Þá var margt rætt og ýmsar hug- myndir viðraðar og við komumst fljótt að því að Inga hafði ákveðnar skoðanir og lét þær tæpitungulaust í ljós. En eftirminnilegast er þó hvernig hún brá upp svipmyndum úr lífi sínu og Sigurðar, með þeirri kímni sem henni var eiginleg og á svo lifandi hátt að stundum sátum við með henni í sólskininu í Stokk- hólmi, í fyrirlestrasal í erlendri borg eða heima hjá þeim Sigurði í Reykjavík, allt eftir því hvert hug- urinn leitaði. Inga Backlund Þórarinsson var fædd 7. september 1918 í Stokk- hólmi, dóttir Hertu, f. Bergström, og Sven Backlund, blaðamanns þar. Inga kynntist Sigurði Þórarins- syni 5 Stokkhólmi þar sem hann nam jarðfræði og landafræði. Hún giftist Sigurði 13. október 1939, þá nýorðin 21 árs og þar hófu þau búskap sinn. Inga og Sigurður eign- uðust tvö börn, Snjólaugu (f. 1943) og Sven Þórarin (f. 1945), bæði fædd í Stokkhólmi. Hún fluttist til Islands með manni sínum að lokinni heimsstyrjöldinni síðari og bjó hér upp frá því, í tæpa hálfa öld. Sigurð- ur lést 8. febrúar 1983. Inga var Sigurði traustur lifsförunautur og átti sinn þátt í að gera starf hans að þeim afreksferli sem það var.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.