Morgunblaðið - 15.06.1993, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 15.06.1993, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ 1993 Rekstrarfélag ÍSI tekur rekstur þrotabús íslensks skinnaiðnaðar á leigu Stöðugildum fækkar um 50 REKSTRARFÉLAG ÍSI tók í gær við rekstri íslensks skinnaiðnað- ar, sem lýst var gjaldþrota á föstudag, en samkomulag tókst um helgina milli skiptastjóra þrotabúsins og Hamla hf., eignarhaldsfé- lags í eigu Landsbanka íslands um að Hömlur kaupi fyrir hönd hluta- félags sem stofnað var af þessu tilefni, allar vörubirgðir íslensks skinnaiðnaðar og taki á leigu fasteignir, vélar og tæki fyrirtækisins til septemberloka. Allar vörubirgðir fyrirtækisins voru veðsettar bankanum. Um 115 stöðugildi verða hjá hinu nýja félagi, sem eru um 50 stöðugilda fækkun frá því sem var. Skiptastjórar, þeir Þorsteinn Hjaltason og Hreinn Pálsson, boð- uðu fyrrverandi starfsfólk íslensks skinnaiðnaðar til fundar í húsnæði fyrirtækisins að Gleráreyrum á sunnudagskvöld þar sem þeir upp- lýstu að búið væri að leigja rekstur- inn og jafnframt að það hefði ekki starfsskyldur við hið nýja félag, en rekstrarfélagið myndi ráða til sín það fólk úr hópi starfsfólks sem það hefði þörf fyrir. Ljóst væri að starfs- fólki myndi fækka. Skrá sig strax á atvinnuleysisskrá Inga Þöll Þórgnýsdóttir lögfræð- ingur verkalýðsfélaganna á Akur- eyri skýrði fyrir fólki hvaða rétt það hefði í stöðunni og hvernig þeir ættu að bera sig að sem ekki fengu atvinnu, en mikilvægt væri að skrá sig strax á atvinnuleysisskrá. Þá gerði Bjami Jónasson, sem hefur verið ráðinn til að veita rekstri nýja félagsins forstöðu grein fyrir hvern- ig staðið yrði að ráðningu nýs starfsfólks, en hringt var í þá sem ráðnir voru á sunnudagskvöld og mánudagsmorgun. í frétt frá skiptastjórum og Hömlum segir að auk þess að gera með þessari ráðstöfun mögulegt að Aukið eftir- lit lögreglu með umferð LÖGREGLUMENN á Norður- landi munu á næstu dögum leggja áherslu á að kanna ástand ökumanna og ökutækja. Um er að ræða framhald á svokölluðu Norðlensku umferðarátaki 1993, sem stendur yfir 16. til 30. júní. Lögreglumenn verða meira úti á vegum og götum en áður, ökumenn verða stöðvaðir og ástand þeirra kannað, m.a. með tilliti til áfengis- neyslu, svefns, réttinda til aksturs og fleira. Ástand ökutækis verður einnig kannað og geta umráðamenn óskoðaðra bifreiða eða bíla á snjó- dekkjum átt von á að númer þeirra verði tekin af. í frétt frá aðstoðaryfirlögreglu- þjóni á Akureyri segir að það sé von norðlenskra lögreglumanna að ekki þurfi að koma til róttækra aðgerða lögreglunnar, að menn aki ekki undir áhrifum áfengis eða ósofnir. Óvissa um áframhaldandi rekstur sútunarverksmiðju ÍSI á Akureyri Oróleiki á aðalmarkaði og óljóst með hráefnisöflun vinna og selja þær vörubirgðir sem voru í eigu íslensks skinnaiðnaðar við gjaldþrotið, væri það vilji Rekstrarfélags ISI að skapa svig- rúm til ákvarðanatöku um framtíð þeirrar starfsemi sem Islenskur skinnaiðnaður hafði með höndum. ' Hverjir fá vinnu? EFTIR fundinn á sunnudagskvöld bar fólk saman bækur sínar og eflaust hefur því verið efst í huga hveijir héldu vinnunni. GRUNDVÖLLUR fyrir rekstri sútunarverksmiðju á Akureyri er fyrir hendi að mati Bjarna Jónassonar, framkvæmdastjóra Rekstrar- félags ÍSI og fyrrverandi framkvæmdasljóra íslensks skinnaiðnað- ar, að uppfylltum tveimur skilyrðum. Að markaður sé fyrir hendi og hráefni til vinnslunnar sé tryggt. Nokkur óvissa sé ríkjandi varð- andi þessi atriði um þessar mundir. Hið nýja félag sem tók rekstur þrotabús íslensks skinnaiðaðar á leigu breytir nokkuð um áherslur varðandi vöruflokka, dregið verður úr leðurvinnslu og þá verður líka dregið úr framleiðslu ákveðinna vöruflokka i mokkavinnslu. Starfs- fólki hefur verið fækkað í samræmi við takmarkaðri vinnslu. Viðskiptasamböndum viðhaldið Unnið var að því í gær að tryggja að viðskiptasambönd sem íslenskur skinnaiðnaður hafði aflað sér rofn- uðu ekki og taldi Bjami að vegna þess hve fljótt rekstrarfélag bank- ans kom til skjalanna væru hverf- andi líkur á að svo yrði. „Það eru horfur á að takist að viðhalda flest- um viðskiptasamböndum sem fyrir voru bæði gagnvart birgjum og eins viðskiptavinum," sagði Bjarni. „Síð an er bara að vona að á þessum tíma fram í september takist að skapa þá samstöðu sem þarf til að áframhald verði á þessu rekstri.“ Óvissan Bjarni sagðist telja að grundvöll- ur væri fyrir rekstri sútunarverk- smiðju að uppfylltum ákveðnum skilyrðum, markaður væri fyrir hendi fyrir framleiðsluna og að hrá- efni til vinnslunnar væri tryggt. Óróleiki á Ítalíumarkaði sem var stærsti markaður fyrir framleiðslu- vörur íslensks skinnaiðnaðar var ein af ástæðum gjaldþrots fyrir- tæksins. Þá væri mikilvægt að hafa tryggt hráefni til vinnslunnar, en umræður um útflutning á gærum sköpuðu nokkra óvissu. „Þekkingin er til staðar ennþá, en menn verða að vera fljótir að gera upp við sig hvort þeir vilji halda þessum iðnaði áfram eða ekki, því sláturleyfíshaf- ar þurfa að gera fljótlega upp við sig hvað þeir ætla að gera við þær gærur sem til falla í haust,“ sagði Bjami. Vinnumiðlunarskrifstofan Um 60 skráðu sig atvinnulausa í gær MIKILL erill var á Vinnumiðlunarskrifstofu Akureyrar í gær- dag þegar um 60 manns, fyrrverandi starfsfólk íslensks skinna- iðnaðar skráði sig þar atvinnulaust. Fyrir voru rúmlega 400 manns á atvinnuleysisskrá í bænum. Bjami Jónasson framkvæmda- stjóri Rekstrarfélags ÍSI sagði að ráðið hefði verið í 115 stöðugildi hjá nýja félaginu sem tók rekstur- inn á leigu í gær og væri þar um að ræða um 50 stöðugilda fækkun frá því sem var. Fækkar á kvöldvakt Þegar fyrirtækið var lýst gjald- þrota á föstudag voru um 200 manns á launaskrá. Fyrir um ári síðan störfuðu um 240 manns hjá fyrirtækinu en síðustu mánuði var ekki ráðið í þau störf sem losnuðu. Bjami sagði að mest fækkaði starfsfólki á kvöldvakt hjá fyr- irtækinu, en hvarvetna hefði fólki fækkað, í stjómunarstörfum og á skrifstofu. Sölumaður óskast Fyrirtækið er staðsett ó Akureyri og er um almennt sölustorf oð ræðo. Viðkomondi þorf oð hafo bifreið til ummðo. Reynslo of sölu- störfum er æskileg. Um hlutostarf er oð ræða. Umsækjendur skili umsóknum til Morgunbloðs- ins ó Akureyri fyrir 19. júní, merktor: „19. júní". Morgunblaðið/Rúnar Þór Starfsfólki fækkar BJARNI Jónasson sagði starfsfólkinu, sem mætti á fund á sunnudags- kvöld, frá hvernig staðið yrði að ráðningu nýs starfsfólks. Starfs- mönnum fækkar umtalsvert eftir gjaldþrotið. Útgáfa byggða- sögu Eyjafjarðar RITVERKIÐ „Byggðir Eyjafjarðar 1990“ kemur út í ágústmánuði, en þar er um að ræða tvær bækur, tæplega 1.200 síður. í bókunum er að finna margvíslegar upplýsingar um sveitarfélögin á svæði Búnaðarsambands Eyjafjarðar sem gefur bókina út. Saga sambands- ins 1970-’90 er rakin í bókinni. Greint er frá hveiju sveitarfélagi á sambandssvæðinu utan hrepp- anna tveggja sem eru í S-Þingeyjar- sýslu. Yfírlitsmynd er af hveijum hreppi, stutt sveitarlýsing og síðan kort þar sem merkt eru öll byggð ból, eyðibýli og helstu kennileiti. Birtar eru litmyndir af bæjunum og sögð saga þeirra og einnig eru myndir af ábúendum, auk ábúenda- tals frá upphafí. Þá er sagt frá kirkjum, félagsheimilum og sam- komuhúsum og fleiri markmiðum. Sagt er frá öllum býlum sem farið hafa í eyði frá aldamótum og myndir af þeim sem enn eru uppi- standandi. Yfírlitsmyndir eru af þéttbýliskjömum, ásamt umsögn og íbúaskrá. Allar upplýsingar eru miðaðar við árslok 1990. Ákveðið hefur verið að bjóða áskrift að bókinni og gildir það til 30. júní næstkomandi, en verðið hækkar úr 10 þúsund krónum í 12 þúsund auk virðisaukaskatts sem þá leggst á bækur eftir 1. júlí og verður þá 13.680 krónur. Þeir sem hug hafa á áskrift geta haft sam- band við skrifstofu Búnaðarsam- bands Eyjafjarðar á Akureyri.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.