Morgunblaðið - 15.06.1993, Side 16
16
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. JUNI 1993
Ný sljórasýslulög
eftir Gunnar Jóhann
Birgisson
Eins og þeir þekkja sem fylgj-
ast með þingfréttum varð frum-
varp til stjómsýslulaga að lögum
rétt fyrir þingslit. Þrátt fyrir að
lögfesting þessa lagabálks hafi
ekki farið hátt í fréttum er hér
um mjög mikilvægt mál að ræða
og lagasetningin löngu tímabær.
Undirritaður átti þátt í undir-
búningi þessara laga. Við þá vinnu
varð mér ljóst að ótrúlega margir
gera sér ekki grein fyrir því hvað
við er átt með orðinu stjómsýslu-
lög og enn færri gera sér líklega
grein fyrir þvi um hvað þessi lög
fjalla. Þess vegna tel ég ekki úr
vegi að greina frá lagasetningu
þessari í stuttu máli.
Þrígreining
ríkisvaldsins
Samkvæmt íslensku stjómar-
skránni greinist ríkisvaldið í
þrennt, löggjafarvald, dómsvald
og framkvæmdarvald. Greining
þessi er byggð á hugmyndum fran-
skra umbótamanna, aðallega
Montesquieu, sem á 18. öld settu
fram skoðanir um þrígreiningu
ríkisvaldsins. Samkvæmt þeirra
hugmyndum áttu valdhafarnir þrír
að tempra vald hvers annars. Al-
þingi fer með lagasetningarvaldið,
dómstólarnir með dómsvaldið og
framkvæmdarvaldið er í höndum
stjórnsýslunnar en æðsta stig
stjórnsýslunnar eru ráðherramir
hver á sínu sviði.
Um hvað fjalla
stjórnsýslulögin?
Stjórnsýslulögin fjalla um máls-
ferð hjá stjórnsýslunni, bæði
stjórnsýslu ríkisins og stjórnsýslu
sveitaiiélaga. í 1. gr. laganna seg-
ir, að lögin gildi þegar stjórnvöld
taka ákvörðun um rétt eða skyldu
manna. Af framansögðu gilda lög-
in ekki um starfsemi Alþingis og
stofnana þess eða starfsemi
Hæstaréttar eða annarra dóm-
stóla. Einnig er lögunum einungis
ætlað að gilda um ákvarðanatöku
stjómvalda sem beinast að borgur-
unum.
Á mörgum sviðum þurfa ein-
staklinganir að leita til stjórnvalda
til þess að fá úrlausn mála sinna,
bæði til hinna ýmsu stofnana og
nefnda og ráða. Dæmi um stjóm-
völd sem sífellt era að úrskurða í
málefnum borgaranna eru skatta-
yfirvöld, byggingarnefndir, skipu-
lagsnefndir, barnaverndarnefndir
og hin ýmsu skólaráð svo einhver
dæmi séu tekin. Með stjórnsýslu-
lögunum er verið að lögfesta
grundvallarreglur um málsmeð-
ferð þessara aðila.
Sjónarmiðin á bak
við lagasetninguna
Tvö sjónarmið öðrum fremur
tókust á við setningu stjórnsýslu-
laganna. Annars vegar réttarör-
yggissjónarmið og hins vegar sjón-
armið um skilvirkni og hag-
kvæmni innan stjórnsýslunnar.
Réttaröryggissjónarmiðið býður
að réttaröryggi borgaranna sé
tryggt í samskiptum þeirra við
stjórnvöld með settum reglum um
málsmeðferð opinberra aðila. Á
hinn bóginn geta of ítarlegar regl-
ur gert stjómsýsluna of þunglama-
lega og kostnaðarsama. Við samn-
ingu laganna var leitast við að
láta þessi tvö sjónarmið vegast á
þannig að lögin tryggi réttar-
öryggi án þess að dragi úr skil-
virkni og hagkvæmni stjórnsýsl-
unnar.
Helstu reglur
laganna
í lögunum er fjallað um sérstakt
hæfi þeirra starfsmanna sem hafa
stjórnsýslu með höndum. Hæfis-
reglur taka m.a. á því að starfs-
maður sé vanhæfur ef hann er
skyldur eða mægður aðila máls
eða ef hann hefur sjálfur persónu-
legra hagsmuna að gæta við úr-
lausn málsins. Hæfisreglunum er
ætlað að koma í veg fyrir að ómál-
efnaleg sjónarmið ráði ferðinni við
úrlausn mála og jafnframt að
stuðla að því að almenningur geti
treyst því að stjórnvöld gæti hlut-
leysis í hvívetna.
í III. kafla laganna er að finna
almennar meginreglur um máls-
meðferð sem ætlað er að auka
réttaröryggi borgaranna. Þar er
m.a. lögfest sú grundvallarregla
að mál skuli afgreitt eins fljótt og
auðið er. Einnig era þar lögfestar
reglur um að mál skuli rannsakað
Gunnar Jóhann Birgisson
„Þegar forsætisráð-
herra mælti með frum-
varpinu á Alþingi sagði
hann, að nauðsynlegt
væri að setja lög af
þessu tagi til þess að
efla réttaröryggi borg-
aranna í samskiptum
við stjórnvöld. Það er
kjarni málsins.“
til hlítar áður en það er afgreitt
og að stjórnvöld skuli leysa með
sams konar hætti úr sambærileg-
um málum.
í lögunum er andmælareglan
einnig lögfest. Kjarni þeirrar reglu
er sá að ekki verður tekin ákvörð-
un um réttarstöðu aðila fyrr en
honum hafi verið í fýrsta lagi gef-
inn kostur á því að kynna sér
málsgögn og málsástæður sem
ákvörðun byggist á og í öðru lagi
að tjá sig um málið. Hér er um
mjög mikilvæga reglu að ræða
sem oft hefur verið tekist á um
en sem hingað til hefur verið ólög-
fest. Lögfesting andmælareglunn-
ar eykur réttaröryggi einstakling-
anna og stuðlar að því að ákvarð-
anir stjórnvalda séu löglegar og
byggðar á réttum forsendum.
Til þess að stuðla að bættri
stjórnsýslu er reynt að hafa upp-
byggingu stjórnkerfisins með þeim
hætti að hægt sé að fá ákvarðan-
ir stjórnvalds endurskoðaðar hjá
öðrum aðilum en þeim sem
ákvörðunina tók. Lögin gera ráð
fyrir því réttarúrræði sem nefnt
er stjórnsýslukæra og veitir aðilum
rétt til þess að skjóta ákvörðun til
æðra stjórnvalds sem skylt er að
endurskoða ákvörðunina. Stjóm-
sýslukæra getur verið mjög áhrifa-
rík leið til þess að auka réttarör-
yggi í stjórnsýslunni og er jafn-
framt ódýrari og einfaldari leið til
þess að fá ákvörðun endurskoðaða
en að bera mál undir dómstóla. I
lögunum era- lögfestar nokkrar
meginreglur um stjórnsýslukæru
sem eiga að stuðla að því að þetta
réttarúrræði verði virkara en verið
hefur.
Þegar forsætisráðherra mælti
með frumvarpinu á Alþingi sagði
hann, að nauðsynlegt væri að setja
lög af þessu tagi til þess að efla
réttaröryggi borgaranna í sam-
skiptum við stjórnvöld. Það er
kjarni málsins.
Höfundur er lögmaður í
Reykjavík.
Óskað eftir málefna-
legri umræðu um SVR
eftir Björgu
Guðmundsdóttur,
Unni Eggertsdóttur,
Marías Sveinsson og
Jónas Engilbertsson
Eins og rækilega hefur verið
tíundað í fréttum barst stafsmönn-
um Strætisvagna Reykjavíkur bréf
að kvöldlagi fyrr í vikunni þar sem
greint var frá áformum_ um að
gera SVR að hlutafélagi. í bréfinu
var reynt að útskýra þessi áform.
Hið sama var uppi á teningnum á
fundum sem haldnir voru með
starfsmönnum í kjölfarið.
Í þeim greinargerðum sem við
fengum í hendur og á fundunum
sem boðað var til, voru gefin fyrir-
heit um að hvorki þjónustan yrði
skert né kjör starfsmanna rýrð við
breytingu á SVR í hlutafélag. Við
höfum kannað þessi gögn ræki-
lega og borið þau undir sérfræð-
inga okkar stéttarfélaga. Það er
samdóma álit allra þeirra sem
hafa farið yfir gögnin, að þau
byggi á miklurn mótsögnum og
stundum beinlínis á rangfærslum.
Þannig séu gefln fyrirheit sem
hreinlega ekki fái staðist.
Árangurslaust auglýst
eftir rökum
Þess vegna boðuðum við til
fundar með stjórn SVR og þeim
aðilum sem eiga að taka endanlega
ákvörðun um málið, það er að
„Einnig er ljóst að sá
hefur ekki góðan mál-
stað að verja sem ekki
treystir sér í rökræður
um þann málstað en er
þess í stað með útúr-
snúninga og skæting.“
segja kjömum borgarfulltrúum
auk fulltrúa okkar stéttarsamtaka,
stjórn Starfsmannafélags Reykja-
víkurborgar og formanni BSRB.
Markmiðið með þessum fundi var
að fá nánari útskýringar og rök-
semdir þeirra sem að málinu
standa.
Þær útskýringar fengust ekki
og stjórnarformaður SVR, Sveinn
Andri Sveinsson, svaraði ekki þeim
málefnalegu spumingum sem að
honum var beint. Hins vegar
fékkst staðfest að tillögurnar yrðu
lagðar fyrir borgarráð á næstu
dögum. Við töldum málið það al-
varlegt að ekki væri stætt á öðru
en boða þegar í stað til almenns
fundar með starfsmönnum SVR
og gera þeim grein fyrir stöðunni.
Samstaða starfsmanna og
stuðningur stéttarfélaga
Á þeim fundi var samþykkt
samhljóða ályktun þar sem skorað
er á borgaryfirvöld að falla frá
fljótfærnislegum ákvörðunum um
að breyta SVR í hlutafélag.
Nú bregður svo við eftir þennan
fund að stjómarformaður SVR,
Sveinn Andri Sveinsson, hefur upp
raust sína í íjölmiðlum þar sem
hann er með dylgjur um þá fundi
sem við höfum staðið fyrir og seg-
ir þá runna undan riijum forystu
BSRB.
Hið sanna í þessu máli, eins og
kom fram hjá formanni BSRB í
sjónvarpsviðtali, er að við höfum
staðið fyrir þessum fundum að
okkar frumkvæði. Hitt er annað
mál að við höfum fengið góðan
stuðning og notið góðrar þjónustu
Starfsmannafélags Reykjavíkur-
borgar og BSRB sem eru okkar
samtök og hafa það hlutverk þeg-
ar öllu er á botninn hvolft að
standa vörð um kjör félagsmanna
sinna. Það eram við sem myndum
þessi samtök. Þau eru okkar. Þess
vegna vísum við tilraunum til að
gera þátt okkar stéttarsamtaka
tortryggilegan til föðurhúsanna.
Útúrsnúningar
afþakkaðir
Eitt situr þó óneitanlega eftir.
Menn sem byggja málflutning sinn
á ósannindum eins og Sveinn
Andri Sveinsson, stjórnarformað-
ur SVR, hefur gert í þessu máli
eru ekki trúverðugir. Einnig er
ljóst að sá hefur ekki góðan mál-
stað að veija sem ekki treystir sér
í rökræður um þann málstað en
er þess í stað með útúrsnúninga
og skæting.
Það er rétt að það komi fram
að síðastliðið haust óskaði Starfs-
mannafélag Reykjavíkurborgar
formlega eftir viðræðum við
Reykjavíkurborg um þær breyt-
ingar sem hugsanlega væru á döf-
inni varðandi rekstrarform borgar-
stofnana. Engar slíkar viðræður
hafa farið fram eins og eðlilegt
hefði verið og ef raunveralegur
vilji hefði verið til samráðs.
Sýningin er helguð Árna Magn-
ússyni og starfsemi hans. Sýnt er
í eiginhandarriti eitt bindi jarða-
bókarinnar sem hann samdi og
myndir af merkilegum athuga-
semdum með hans hendi. Einnig
eru sýnd m.a. handrit Njálu og
Við leyfum okkur hér með að
óska eftir málefnalegri umræðu
um framtíð SVR. Hún er framtíð
okkar og borgarbúa allra sem eru
eigendur þessa fyrirtækis.
Höfundar eru fulltrúar 9. dcildar
Starfsmannafélags Reykja-
víkurborgar hjá Strætisvögnum
Reykjavíkur.
Gunnlaugs sögu, fögur rímna- og
kvæðahandrit, Landnáma, Sturl-
unga og galdrakver. Myndskreytt
sýningaskrá hefur verið gefin út
á fimm tungumálum.
(Fréttatilkynning)
Handritasýning í Árnagarði
STOFNUN Árna Magnússonar opnar handritasýningu í Árna-
garði við Suðurgötu fimmtudaginn 17. júní kl. 14 og verður
sýningin opið frá kl. 14-16 alla virka daga í sumar fram til
1. september. Á sunnudögum verður lokað. Á sýningunni er
úrval handrita sem afhent hafa verið hingað heim frá Dan-
mörku á undanförnum árum.
Nýjar sendingar af VENICE BEACH og LEE COOPER
fatnaði og NIKEvörum. Eldri gerðir af JORDAN
barnaskóm í stærðunum 28—31 á góðu verði!
FjÖlsport, Lækjargötu 34c, Hafnarf., sími 652592.