Morgunblaðið - 15.06.1993, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ 1993
Ný hugsun um sjáv-
arútvegsstefnu
eftir Hannes Jónsson
Formenn nefndar til þess að
„móta heildstæða sjávarútvegs-
stefnu" hafa kynnt efni skýrslu
sinnar víða um land. Á vorfundum
þeirra kom greinilega í ljós, að svo
til enginn mælti með skýrslunni
nema höfundarnir. Flestir töldu hana
ónytjuplagg. Þingmeirihluti fékkst
heldur ekki fyrir sjávarútvegsstefnu
þeirra. Sjávarútvegsráðherra tók því
þá skynsamlegu ákvörðun að stöðva
málið í þinginu.
Hitt er þó ljóst, að flestir vilja
ekki búa við óbrejdta sjávarútvegs-
stefnu. Einkum er mikill ágreiningur
um gildandi kvótakerfi, sem heftir
athafnafrelsi margra útvegsmanna
og bátasjómanna; rýrir möguleika á
arðbærum rekstri; flytur vinnu úr
landi út á sjó; og hefur reynst
byggðafjandsamlegt, af því kvótinn
er bundinn skipum og aflareynslu,
ekki byggðarlögum. Auk þess hefur
kerfið kallað fram brask útvegs-
manna með eign, sem þjóðin á, ekki
þeir.
Hagkvæmasta útgerðin?
Full þörf er á að endurmeta arð-
semi hinna ýmsu stærða báta, skipa
og veiðitækni. Önundur Ásgeirsson
hefur birt athyglisverðar greinar um
málið, síðast grein hér í blaðinu 11.
þ.m. Þar leiðréttir hann m.a. rangar
tölur úr skýrslu tvíhöfða (töflu 8.2,
bls. 93) um arðsemi stærri og dýr-
ari skipa, af því að tvíhöfði reiknar
ekki með fjármagnskostnaði við arð-
semisútreikning, dregur því rangar
ályktanir og boðar blekkingar.
Gagnstætt því sem tvíhöfði heldur
fram virðast. þjóðhagslega hagstæð-
ustu útgerðimar vera smábáta-
útgerð, krókaveiðar og línu- og neta-
veiðar. Stóru og dýru togararnir
virðast í kostnaði éta meira en afl-
afé sitt, ef ailt er tekið með í reikn-
inginn, m.a. fjármagnskostnaður.
Hér þarf því nýja hugsun til að
HQ7IIOCK
GARÐÚÐARAR
ÚÐUNARKÚTAR
SLÖNGUSTATÍV
SLÖNGUTENGI
GA0PVERKFÆRAÚRVAL
HEKKKLIPPUR
GREINAKLIPPUR
GRASKLIPPUR
SLÁTTUORF
SMÁVERKFÆRl
H
ARMÚLA11
tryggja þjóðhagslega arðbæra fisk-
veiðistefnu og þjóðinni arð af eign
sinni:
Ný hugsun á gömlum grunni
í þessum efnum er nokkurn veg-
vísir að finna í Grágás. Lög þjóðrík-
isins skilgreindu ekki fiskveiðimörk
eða landhelgi sem fjarlægð frá
ströndum. Greinilegt er þó, að ekki
var litið á sjóinn umhverfis ísland
sem sameign alls mannkyns sam-
kvæmt erfðavenju Rómarréttar. Þær
meginreglur giltu, að sjávarútvegs-
bóndinn átti fiskveiðirétt, neta og
reka, á landi sínu og út frá því að
vissu dýpi. Þar fyrir utan var „al-
menningur er fjórðungsmenn eiga
allir sarnan". Enn utan var „almenn-
ingshaf“, sem allir íslendingar áttu
sameiginlega.
Ef við beitum nýrri hugsun gegn
kvótakerfinu, afnemum það og tök-
um upp nýtt með hliðsjón af vísbend-
ingum Grágásar, þá gæti hið nýja
kerfi í frumdrögum litið þannig út:
1) Smábátaútgerð, króka- og línu-
veiði á bátum allt að 30 tonnum,
væri öllum fjórðungsmönnum frjáls
út að 12 mílum undan fjórðungnum.
2) Neta- og línuveiði stærri báta
„Þær meginreglur
giltu, að sjávarútvegs-
bóndinn átti fiskveiði-
rétt, neta og reka, á
landi sínu og út frá því
að vissu dýpi. Þar fyrir
utan var „almenningur
er fjórðungsmenn eiga
allir saman“. Enn utar
var „almenningshaf“,
sem allir Islendingar
áttu sameiginlega.“
væri öllum fjórðungsmönnum fijáls
á milli 12 og 50 mílna út frá fjórð-
ungnum.
3) Togveiðár ísfisktogara allt að
500 tonnum væru öllum landsmönn-
um fijálsar á svæði 50-200 mílur
umhverfis allt landið.
4) Stærri togurum, frystiskipum
og verksmiðjuskipum, væri bannað
að veiða innan 200 mílna marka en
fijálst að veiða utan þeirra.
Hannes Jónsson
Kostir nýja kerfisins
Þessi nýja hugsun byggist á því
grundvallaratriði gildandi laga, að
þjóðin eigi fiskimiðin og að auðlindir
sjávar verði nýttar með það fyrir
augum, að þær skili sem mestu í
þjóðarbúið.
Kerfið er iíka byggðavinsamlegt
af því að nýting fiskimiðanna út að
50 mílum er bundin búsetu í fjórð-
ungnum, sem veiðisvæðið liggur að.
Kvótakerfið og kvóti bundin við skip
er úr sögunni. Veiðisókn er bundin
byggðarlaginu og hana getur engin
verslað með.
Einnig tryggir þetta nýja kerfí
rekstrarhagkvæmni. í því felst sjálf-
virk hemlun á óarðbæra offjárfest-
ingu í of stórum skipum. Takmörkun
athafnamöguleika stærri skipa inn-
an landhelginnar mundi sjálfkrafa
draga úr fjárfestingargleði útvegs-
manna í óarðbærum stórskipum,
sem gera yrði út á hið opna haf
utan efnahagslögsögunnar.
Til viðbótar kemur sov, að þetta
nýja kerfi yrði umhverfisvænt. Hin-
um stórtæku og oft skaðlegu veið-
arfærum stærri skipa, sem hafa veitt
upp að 4 mílum, yrði bægt frá hrygn-
ingar- og uppeldisstöðvum á grunn-
sævi og út fyrir 50 og 200 mílurn-
ar, en umhverfisvænar, arðbærar og
atvinnuskapandi króka-, línu- og
netaveiðar báta og smærri skipa
stundaðar af fjórðungsmönnum ein-
um undan ströndum byggðarlaga
þeirra.
Lokaorð
Við framkvæmd þessa nýja kerfis
starfaði Hafrannsóknastofnun eðli-
lega með hefðbundnum hætti. Hún
lokaði veiðisvæðum lengri eða
skemmri tíma og setti á banndaga
eftir ástandi fiskistofna og hrygn-
ingar- og uppeldisstöðva o.s.frv.
Þetta kerfi gæti kallað á að bæði
Hafrannsóknastofnun og Landhelg-
isgæslan þyrftu að dreifa bækistöðv-
um sínum í fjórðunga landsins. Það
væri einnig byggðavinsamlegt og
gæti orðið þjóðarbúinu hagkvæmt.
Höfundur er fyrrverandi
sendiherra.
Um misheppnaða valdsveiflu
eftir Gunnar Inga
Gunnarsson
Þann 11. júní sl. birti Morgun-
blaðið frétt af úrskurði siðanefndar
Læknafélags íslands þess efnis, að
sá sem hér skrifar, hafi verið fund-
inn sekur um að bijóta gegn sér-
stökum ákvæðum siðareglna lækna
í Morgunblaðsgrein fyrir nokkrum
mánuðum. i þeirri grein gerði ég
tæpitungulausar athugasemdir við
röksemdafærzlu nokkurra kollega
minna gegn margumtöluðum tilvís-
unum lækna. Formælandi þessara
kollega, Ólafur F. Magnússon, hafði
þá nýverið lýst opinberlega mótrök-
um þeirra félaganna og var grein
mín andsvar við þeim. í grein minni
lýsti ég þeirri skoðun, að röksemdir
þeirra gegn tilvísunum væru vit-
leysa og þar sagði ég einnig að
yfirlýsingar þeirra væru vísbend-
ingar um, að ekki væri allt með
felldu í þeirra praxís. Ég er auðvit-
að enn sömu skoðunar. En nú hefur
siðanefnd lækna áminnt mig um
það, að siðareglur Iækna banni mér
að hafa þvílíka skoðun — a.m.k.
opinberlega!
Ekki veit ég, hvort lesendur
Morgunblaðsins geri sér í raun fulla
grein fyrir því, hvað hér er á ferð-
inni, en fyrst úrskurður siðanefndar
var gerður að fréttaefni, þykir mér
ástæða til að lýsa hér nánar viðhorf-
um mínum til málsins.
Um siðareglur lækna
Ég ber fulla virðingu fyrir þeim
ákvæðum í siðreglum lækna, sem
fjalla um samskipti lækna og skjól-
stæðinga þeirra. Þar er að finna
leikreglur, sem settar eru gagngert
til að vemda hagsmuni sjúkling-
anna. Þessar reglur eru flestar mik-
ilvægar. En ákvæði siðreglnanna
um samskipti lækna innbyrðis, án
tengsla við beina hagsmuni skjól-
stæðinga þeirra, eru ekkert annað
en lífseig tímaskekkja. í skoðana-
skiptum sín á milli þurfa læknar
enga sérstaka vörn umfram þá, sem
gildandi landslög veita öllum lands-
mönnum, Læknar verða að þola
ámóta gagnrýni og aðrir þegnar
þjóðfélagsins og öll verndandi pils-
faldarákvæði í samskiptareglum,
eins o g hér um ræðir, bera
óskemmtilegan keim af samtrygg-
ingu, sem gat kannski gengið hér
fyrrum, en er algerlega úr takti við
nútímann og gerir læknasamtökin
aðeins tortryggileg í huga almenn-
ings.
Um áminninguna
En það er fleira, sem mælir gegn
þeim ákvæðum siðreglna lækna, er
liggja að baki áðumefndum úr-
skurði siðanefndar. Margt kemur
til. Hér er aðeins tvennt til viðbótar.
Deila okkar Ólafs F. Magnússon-
ar og félaga snerist um tilvísanir.
Og áður en Læknafélag íslands
sendi siðanefnd lækna Morgun-
blaðsgrein mína til skoðunar, hafði
stjóm félagsins lýst opinberlega
yfir viðhorfum sínum gegn tilvísun-
um. Skoðanir Ó.F.M. og stjómar
Læknafélags íslands fóru því sam-
an í hinum efnislega ágreiningi.
Gunnar I. Gunnarsson
„Siðareglur lækna eiga
fyrst og fremst að
vernda hagsmuni skjól-
stæðinga þeirra. 011
ákvæði, sem aðeins eru
til þess fallin að sam-
tryggja læknastéttina
gegn innri gagnrýni,
eru skaðleg. Þau þarf
að fella brott.“
Nú vil ég alls ekki fullyrða, að
skoðanamunur minn og Læknafé-
lags íslands hafi hér legið að baki
kærunni, en bendi aðeins á hina
augljósu hættu, sem hér liggur.
Tveir af þremur dómurum siða-
nefndar eru læknar og er a.m.k.
annar þeirra hagsmunalega tengd-
ur hinni efnislegu deilu, þ.e.a.s.
deilunni um tilvísanir. Hér vil ég
heldur ekki halda því fram, að þessi
hagsmunatengzl hafí haft áhrif á
úrskurðinn. Enn vil ég aðeins benda
á veikleika málsins.
Lokaorð
Siðareglur lækna eiga fyrst og
fremst að vemda hagsmuni skjól-
stæðinga þeirra. Öll ákvæði, sem
aðeins em til þess fallin að sam-
tryggja læknastéttina gegn innri
gagnrýni, eru skaðleg. Þau þarf að
fella brott. Læknar eiga ekki að
geta gert tilkall til frekari vemdar
gegn gagnrýni en almenningi er
veitt með því réttaröryggi, sem er
að fínna í gildandi landslögum.
Áminning af þvi tagi, sem hér um
ræðir, er aðeins til þess fallin að
veikja stöðu lækna útávið. Áminn-
ingin ber þannig yfirbragð mis-
heppnaðrar valdsveiflu samtrygg-
ingarinnar. Hún er byggð á tíma-
skökkum vemdarákvæðum og get-
ur í versta falli fært almenningi
heim sanninn um það, að samtök
lækna veiji sitt og sína með ítalska
pilsfaldinum — sérútgáfu af Sikil-
eyjarvöminni.
Höfundur er læknir.
LAMBAKJÖT E R BEST Á GRILLIÐ
Lambalæri beint k
á grillið með a.m.k.
15% grillafslætti i
í næstu verslun færðu nú lambakjöt á afbragðstilboði, - tilbúið beint á grillið.
m
ðFSlÁ^,,
UR