Morgunblaðið - 15.06.1993, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ 1993
21
Samtök bandarískra dávalda í heilbrigðisþj ónustunni
Titlau dávaldsins veita
ekki opinber réttindi
„SKAMMSTAFANIRNAR R.P.H. og C.HT eru titlar réttinda-
lausra dávalda og þjóna þeim tilgangi að réttlæta starfsemi
þeirra. Titlarnir eru ekki viðurkenndir eða gefnir út af neinni
stofnun á æðra menntastigi í Bandaríkjunum,“ segir m.a. í
svarbréfi Samtaka bandarískra dávalda í heilbrigðisþjón-
ustunni (The American Society of Clinical Hypnosis) við fyrir-
spurn Víðis H. Kristinssonar, sálfræðings, um titil Friðriks
Páls Agústssonar. Olafur Ólafsson, landlæknir, segist hafa
talið rétt að koma fyrrnefndu bréfi á framfæri þar sem Frið-
rik staðhæfi í fjölmiðlum að menntun sín sem dáleiðslumeð-
ferðaraðila sé viðurkennd í Bandaríkjunum.
í svarbréfi samtaka dávaldanna
segir að þær stofnanir sem spurt
hafi verið um í bréfí frá 17. maí
þjálfí réttindalausa dávalda.
„Engrar formlegrar menntunar er
krafist til inngöngu. Þú þarft að-
eins að greiða skólagjöld og þeir
Nýr vettvangur
Krístín A.
Ólafsdóttír
viU hætta
KRISTÍN Á. Ólafsdóttir borgar-
fulltrúi Nýs vettvangs hefur
ákveðið að gefa ekki kost á sér
til framboðs í borgarstjórnar-
kosningunum að ári. Kristín
sagðist í samtali við Morgunblað-
ið hafa ákveðið þetta fyrir all-
Iöngu síðan. Ástæðuna sagði hún
fyrst og fremst vera löngun sína
til að snúa sér að öðrum störfum,
einkum leiklist og kennslu, en
Kristín hefur setið í borgarstjórn
í sjö ár. Fyrst fyrir Alþýðubanda-
lag og fyrir Nýjan vettvang frá
1990.
Kristín sagði erfitt að leggja dóm
á hver yrði framtíð Nýs vettvangs
en annar borgarfulltrúi listans Ólína
Þorvarðardóttir hefur einnig lýst
yfir að hún ætli að hætta að loknu
þessu kjörtímabili.
„Þeir sem eru virkir hjá Nýjum
veita þér þjálfun," segir í svari
Williams F. Hoffmans varafor-
manns samtakanna fyrir hönd
þeirra.
Herferð
Þar kemur fram að litlar sem
Kristín Á. Ólafsdóttir.
vettvangi hafa nú eins og áður
mestan áhuga á að reyna að sam-
eina krafta þeirra sem eru að beij-
ast í minnihlutanum og við reynum
að tala fyrir því. Maður sér ekki
fyrir endann á því en ég á alveg
eins von á að ýmsir muni hafa
áhuga á að Nýr vettvangur, eða
fólkið sem þar hefur starfað, verði
áfram í borgarmálum, hvort sem
það verður listi með sama nafni eða
enn frekari sameining en tókst síð-
ast,“ sagði Kristín.
engar reglur gildi um dáleiðslu
réttindalausra í Bandaríkjunum.
„The American Society of Clinical
Hypnosis er í þann veg að hrinda
af stað herferð sem vonandi sann-
færir löggjafann um nauðsyn þess
að setja reglur um dáleiðslu en
þangað til af því verður halda
aðilar eins og Hr. Ágústsson áfram
að margfaldast," segir í svarbréf-
inu.
Að lokum eru í bréfí bandarísku
dávaldasamtakanna bomar fram
óskir um að upplýsingarnar megi
koma að gagni og bent á að ef
til vill sé hægt að stöðva starfsemi
viðkomandi með tilliti til þess að
hann stundi sálfræði eða læknis-
fræði.
Styrkveiting
Minningar-
sjóðs Jóns Jó-
hannessonar
STYRKUR var nýlega veitt-
ur úr Minningarsjóði dr.
phil. Jóns Jóhannessonar,
prófessors. Styrkinn hlaut
að þessu sinni Aðalheiður
Guðmundsdóttir.
Aðalheiður hefur stundað nám
við Háskóla íslands. Hún er nú að
semja kandídatsritgerð í íslenskum
bókmenntum um ævintýraminnið
um vondu stjúpuna þ.e. „stjúpu-
og álagaminnið“.
Minningarsjóður dr. phil. Jóns
Jóhannessonar prófessors er eign
Háskóla íslands. Tekjum sjóðsins
er varið til þess að veita stúdentum
eða kandidötum í íslensku og sagn-
fræði styrki til einstakra rannsókn-
arverkefna er tengjast námi þeirra.
(Fréttatilkynning)
Frjáls eins
ogfuglinn
FYRSTA línuskautakeppnin
hérlendis fór fram á Skauta-
svellinu í Laugardal sl. laug-
ardag. Keppt var í þrauta-
braut og varð Sigurður Ein-
ar Sveinbjörnsson sigurveg-
ari í flokki 13-15 ára, og
Árni Þór Bergþórsson í
flokki 16 ára og eldri.
Skautasvellið er opið alla
daga frá kl. 10-21 en
íþrótta- og tómstundaráð
leigir línuskauta til þeirra
sem ekki eiga þá. Að ofan
má sjá Sigurð Einar í háloft-
unum eftir eina þrautina.
Sorpeyðingar-
stöð á ísafirði
Ólíkar
túlkanir
á lítilli
kjörsókn
MEIRIHLUTI ísfirðinga
hundsaði skoðanakönnun
um staðsetningu sorpeyð-
ingarstöðvar um helgina.
Aðeins 312 af 2.327 kosn-
ingabærum ísfirðingum, eða
13,4%, greiddu atkvæði. Af
þeim voru 118 eða 5,1%
fylgjandi sorpeyðingarstöð í
Dagverðardal, 68 eða 2,9%
vildu stöðina á Suðurtanga
og 126 eða 5,4% skiluðu auð-
um eða ógildum kjörseðlum.
Lítil þátttaka í skoðana-
könnuninni er túlkuð á ólík-
an hátt af fulltrúum meiri-
og minnihluta bæjarsljórn-
ar.
Kristinn Jón Jónsson, í meiri-
hluta bæjarstjórnar, sagðist líta svo
á að þeir sem heima hefðu setið
væru hlutlausir og treystu bæjar-
stjórn til að taka ákvörðun í mál-
inu. Því væri staða málsins óbreytt
frá því sem áður hefði verið. Hann
sagðist ekki líta svo á að verið
væri að andmæla báðum tillögun-
um. Ef fólk hefði haft slíkt í huga
hefði það fremur skilað auðu eða
skrifað skilaboð á kjörseðla.
Slæmir kostir
Kristján Jóakimsson, í minni-
hluta bæjarstjórnar, sagði hvorki
fyrir áhuga- né hlutleysi að ísfírð-
ingar sætu heima. Með því væru
þeir þvert á móti að lýsa yfír andúð
sinni á báðum kostum meirihlut-
ans. Hann sagði aðspurður í því
sambandi að fleiri staðir hefðu ver-
ið til umræðu, s.s. í Engidal, Seljad-
al og Arnardal. Minnihlutinn myndi
reyna að halda þeim áfram í um-
ræðu.
I. Hoddaway - What Is Love? - 2. Ace Of Base - All That She Wants
3. Loft - Summer Summer - 4. Lenny Kravitz - Believe
5. Nýdönsk - Foss - 6. Blur - For Tomorrow
7. David Bowie - Jump They Say - 8. Shaggy - Oh Carolina
9. Stereo MC's - Step It Up - 10. Bubbi - Jakkalakkar
II. Radiohead - Creep - 12. Bryan Ferry - Will You Love Me Tomorrow
13. Mica Paris -1 Never Felt Like This Before
14. Neneh Cherry - Buddy X
15. SSSól - 7 Out - 16. World Party - Is It Like Today?
17. Chesney Hawkes - What's Wrong With This Picture?
18. Young Black Teenagers - Tap The Bottle
19. Inga - Þá veistu svarið
SENDUM í PÓSTRÖFU UM LAIMD ALLT