Morgunblaðið - 15.06.1993, Blaðsíða 49
M0R(5UNBUAÐID ÞRIÐJUDÁGUR 15. JO'NÍ 19ð3
49
Bómullarbolir, leggjur og hjólabuxur.
Pöntunarsími 91-67 37 18
Opíó virka daga frá kl. 10-18. Lokaó laugardaga.
Hlaupum og göng-
um saman á kven-
réttindadaginn
Frá Kristínu Einarsdóttur:
Nú fer að styttast í Kvenna-
hlaupið 1993, en það fer nú fram
á 50 stöðum um land allt. Eflaust
verður hópurinn stærstur í
Garðabæ ef að líkum lætur. Víða
á landinu munu konur ganga,
skokka og hlaupa á kvenréttinda-
daginn allt eftir því sem hverri og
einni hentar.
Á undanförnum árum hefur
þeim sífellt farið fjölgandi sem
stunda líkamsrækt og útivist sér
til heilsubótar. Fólk gerir sér grein
fyrir mikilvægi íþrótta fyrir and-
lega og líkamlega vellíðan. Þeir
sem stunda líkamsrækt þurfa síður
að leita læknis vegna álagssjúk-
dóma en þeir eru algengari meðal
kvenna en karla.
Á íslandi stunda um 100 þúsund
manns íþróttir innan íþróttahreyf-
ingarinnar og er áætlað að af þeim
sé um þriðjungur konur. Það virð-
ist svo sem konur finni sér síður
farveg innan íþróttafélaganna en
karlar og eru eflaust margar skýr-
ingar á því. Þó að konur séu færri
innan skipulagðra íþróttafélaga er
það ekki hindrun í vegi þess að
þær stundi líkamsþjálfun. Þær fara
i sund og leikfimi á líkamsræktar-
stöðvum eða hlaupa, skokka og
ganga í minni eða stærri hópum.
Þótt margar konur stundi þannig
íþróttir þarf að örva þær og hvetja
enn frekar til dáða á þessu sviði.
Sérstakt kvennahlaup er liður í
slíkri hvatningu.
Mér þykir alltaf gaman að
skokka með fólki, en ég verð að
viðurkenna að mér þótti sérstak-
lega gaman að hlaupa með konum
í kvennahlaupinu í Garðabæ. Þar
var svo mikil samstaða og gleði
ríkjandi. í ár er hlaupið á kvenrétt-
indadaginn, en nú eru liðin 73 ár
frá því að konur fengu kosninga-
rétt til Alþingis. Förum nú allar
af stað, ungar og gamlar, stórar
og smáar. Ef þið hafíð ekki enn
tekið þátt í kvennahlaupi drífið
ykkur nú!
Ég hvet allar konur til að taka
þátt í hlaupinu 19. júní. Það skipt-
ir máli að vera með. Það er bæði
KRISTÍN EINARSDÓTTIR,
þingkona Kvennalista.
VELVAKANDI
TAPAÐ/FUNDIÐ
Barnabuxur týndust
BRÚNN plastpoki með barna-
buxum tapaðist á Sjafnargötu
10. júní si. Finnandi er beðinn
að hafa samband við Katrínu í
síma 25886.
Lýst eftir pilsi
SVART, sítt pils glataðist úr
poka á leið eiganda af Háaleitis-
braut niður í miðbæ Reykjavík-
ur. Erla biður finnanda að
hringja í síma 21305.
GÆLUDÝR
Dýravinir
KETTLINGANA okkar tvo
vantar góð heimili. Upplýsingar
eru góðfúslega veittar hjá Krist-
ínu f síma 19552.
SÖLUMENN VERÐA
AÐ KYNNA SIG
LAUFEY hringdi í Velvakanda
og sagðist vilja vara við sölu-
mönnum sem ekki aðeins selja
ómerkta vöru heldur vanrækja
að kynna sig. „Þegar slíkt á sér
stað getur fólk ekki vitað hverja
það styrkir," segir Laufey. Hún
hvetur því félaga- og góðgerðar-
samtök til að tryggja það að
sölumenn kynni sig og málefni
sitt en að tillögu hennar mætti
gera það á þann hátt að sölu-
menn bæru barmmerki. Jafn-
framt telur hún það ótækt að
söluvara sé seld alls kostar
ómerkt.
Pennavinir
Þýskur piltur getur ekki um ald-
ur en vill skrifast á við 18-25 ára
íslendinga, sama hvort kynið er:
Stefan Sauer,
Pferdsbacher Weg 10,
W-6470 BUdingen 1,
Germany.
LEIÐRÉTTINGAR
Misritun
í minningargrein Halldórs Guð-
mundssonar um Hallgrím Sigur-
valdason í Morgunblaðinu á laugar-
dag misritaðist föðurnafn hins
látna. Hlutaðeigandi eru innilega
beðnir afsökunar á mistökunum.
Rangt ártal
I minningargrein Harðar Valdi-
marssonar um Magnús Daníelsson,
bónda í Syðri-Ey, í Morgunblaðinu
á laugardag var fæðingardagur
Magnúsar sagður 28. júní 1906, en
hið rétta er að hann fæddist þennan
dag árið 1909. í seinni greininni
umi Magnús í sama blaði, eftir Daní-
el Árnason frá Eyjarkoti, er gifting-
ardagur Magnúsar og Filippíu
Helgadóttur sagður 22. október
1952. Hið rétta er að hann var 22.
nóvember þetta sama ár.
Rangt fööurnafn
í frétt á íþróttasíðu síðastliðinn
laugardag, þar sem sagt var frá ís-
landsmótinu í veggtennis, misritaðist
nafn eins keppandans í kvennaflokki,
er varð í fjórða sæti. Hún heitir Guð-
rún Ásta Magnúsdóttir. Beðizt er vel-
virðingar á misrituninni.
Heildarvinningsupphæð þessa viku:
16.075.211 kr.
UEPLVSINGAR:SlMSVARl91 -681511 LUKKULÍNA991002
1 Stangarhy/ 5
Pósthó/f 10210 ■ 130 Reykjavfk
Sfmi 91-67 37 18 - Te/efax 67 37 32
Nú ber vel
í veiði! ^bu
Tilboð! Þegar þú kaupir Cardinal Gold Max
hjól getur þú valið þér Abu
Garcia veiðivörur iyrir 2.000 kr. í kaupbæti.
Cardinal Gold Max er nú þegar metsöluhjól í
Evrópu og Bandaríkjunum. Það er smíðað fyrir
þá sem gera miklar kröfur til hönnunar, styrks
og endingar. Nú getur þú eignast þetta
vandaða hjól á einstöku verði.
Sölua&iiar: Sportval-Kringlan Kringlunni 8-12 ■ Útilíf Glæsibæ
Versturröst Laugavegi 178 ■ Musik & sport Hafnarfiröi ■ Veiðibúð
Lalla Hafnarfriöi ■ Akrasport Akranesi ■ Kaupfélag Skagfirðinga
Sauöárkróki ■ KEA Akureyri ■ Kaupfélag Þingeyinga Húsavík
Kaupfélag Héraðsbúa Egilsstööum ■ Sportbær Selfossi
Stapafell Keflavfk
HAFNARSTRÆTI 5 -REYKJAVÍK ■ SÍMAR 91-16760 & 91-14800
kwwwwwwwww