Morgunblaðið - 15.06.1993, Qupperneq 50
50
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ 1993
Úthlutað úr Þjóðhátíðarsjóði
LOKIÐ er úthlutun úr Þjóðhátíðarsjóði fyrir árið 1993 og þar með
sextándu úthlutun sjóðsins. Samkvæmt skipulagsskrá sjóðsins, er
tilgangur sjóðsins að veita styrki til stofnana og annarra aðila, er
hafa það verkefni að vinna að varðveislu og vernd þeirra verðmæta
lands og menningar, sem núverandj kynslóð hefur tekið i arf.
Stjórn sjóðsins skipa: Magnús Torfi Ólafsson fyrrverandi blaðafull-
trúi rikisstjórnarinnar, formaður, skipaður af forsætisráðherra. Jó-
hannes Nordal seðlabankasljóri, varaformaður, tilnefndur af Seðla-
banka Islands. Björn Bjarnason aiþingismaður. Björn Teitsson skóla-
meistari og Gunnlaugur Haraldsson þjóðháttafræðingur, sem kjörn-
ir voru af Sameinuðu Alþingi. Ritari sjóðsstjórnar er Sveinbjörn
Hafliðason lögfræðingur.
ÚR DAGBÓK
LÖGREGLUNNAR í REYKJAVÍK:
11. -14. júní 1993
Fjölmargir voru kærðir eða
áminntir vegna umferðarlagbrota
um helgina, eða 245 einstaklingar.
Felstir voru kærðir eða áminntir
fyrir að nota ekki öryggisbelti. Þá
voru og margir kærðir fyrir að aka
um á negldum hjólbörðum eða aka
of hratt í hinum ýmsu hverfum
starfssvæðisins. Á sama tímabili var
tilkynnt um tvö umferðarslys og 22
önnur umferðaróhöp. Bifreið valt í
Faxafeni á föstudagsmorgun og
þurfti að flytja ökumanninn á slysa-
deild með minniháttar meiðsli. þá
þurfti að flytja tvennt á slysadeild
eftir árekstur tveggja bifreiða á
Sæbraut um miðjan dag á föstudag.
Sex ökumenn eru grunaðir um að
hafa verið undir áhrifum áfengis,
en ekki er vitað til þess að ölvaður
ökumaður hafí lent í umferðar-
óhappi um helgina. Erill vegna ölv-
unarháttsemi fólks var innan meðal-
talsmarka. Bókanir vegna ölvunar-
tengdra mála eru 69 talsins, en „ein-
ungis“ var tilkynnnt um 2 líkams-
meiðingar um heigina. Önnur þeirra
átti sér stað í miðborginni aðfara-
nótt sunnudags er flytja varð stúlku
á slysadeild eftir að piltur hafði
veist að henni þar og slegið hana í
andlitið. Virðist hún hafa nefbrotn-
að. Pilturinn var handtekinn og vi-
staður í fangageymslunum. Hin lík-
amsmeiðingin var í húsi í Grafar-
vogi. Það mál var afgreitt á staðnum
og ekki kom til þess að flytja þyrfti
málsaðila á slysadeild. Þá var „ein-
ungis“ tilkynnt um 8 innbrot. M.a.
var brotist inn í skrifstofuhús við
Hverfisgötu, útgerð við Granda,
geymsluhús við Kleppsveg og
sumarbústað í Eilífsdal.
Talið er að 3.500-3.800 manns
hafi verið í miðborginni þegar mest
var aðfaranótt laugardags. Margir
báru með sér að vera undir áhrifum
áfengis og þurfti að flytja þaðan 12
einstaklinga í fangageymslumar.
Aðfaranótt sunnudags er talið að
um svipaðan mannfjölda hafi verið
að ræða. Margir unglingar komu í
miðborgina eftir að tónleikum lauk
{ Hafnarfirði og var að sjá að fólk
væri talsvert ölvað. Æsingur í því
var þó ekki mikill og má segja að
ástandið hafi verið þokkalegt þó
margir borgarbúar, sérstaklega þeir
sem búa næst miðbæjarsvæðinu,
eigi alltaf jafn erfitt með að sætta
sig við fjölmenni skuli stefnt þangað
allar helgar allan ársins hring.
Aðfaranótt föstudags var tilkynnt
um þrjá menn vera að reyna að rifa
frá glugga sem hafði verið límt fyr-
ir á Bjömsbakaríi við Hringbraut.
Höfðu þeir náð að rífa frá gatinu
þegar lögreglan kom á vettvang og
tóku þegar til fótanna þegar þeir
urðu hennar varir. Mennimir náðust
fljótlega,' en þeir höfðu ekki haft
tíma til þess að komast inn í bakarí-
ið.
Aðafaranótt laugardags voru þrír
piltar handteknir í Alþingisgarðin-
um þar sem þeir voru að gera sér
það að leik að slíta upp blóm og
annan gróður.
Um svipað leyti var tilkynnt um
að unglingar héldu uppi ólátum í
Þverholti í Mosfellsbæ. Höfðu þeir
m.a. brotið rúðu í fjölbýlishúsi við
götuna. Þurfti lögreglan að hand-
taka einn unglinganna, en sá lét
tryllingslega.
Á sunnudagsmorgun voru fimm
aðilar handteknir í íbúð við Snorra-
braut vegna fíkniefnineyslu. I fórum
þeirra fannst lítilræði af efni og
áhöldum til neyslu.
Aðfaranótt mánudags var maður
handtekinn eftir að stúlka hafði
kært hann fyrir nauðgun.
652 bókanir voru færðar í dag-
bókina um helgina.
Til úthlutunar í ár koma allt að
kr. 4.240.000, þar af skal fjórðung-
ur, 1.060 þús. kr., renna til Friðlýs-
ingarsjóðs til náttúruverndar á veg-
um Náttúruvemdarráðs og fjórðung-
ur til varðveislu fomminja, gamalla
bygginga og annarra menningar-
verðmæta á vegum Þjóðminjasafns,
skv. ákvæðum skipulagsskrár.
Allt að helmingi úthlutunarfjár á
hverju ári er varið til að styrkja skv.
umsóknum og voru því allt að kr.
2.120.000 til ráðstöfunar í þennan
þátt að þessu sinni.
Alls bárust 77 umsóknir um styrki
að íjárhæð um 44 millj. kr. Hér á
eftir fer skrá yfir þá aðila og verk-
efni, sem hlutu styrki að þessu sinni,
en fyrst er getið verkefna á vegum
Friðlýsingarsjóðs og Þjóðminjasafns.
Friðlýsingarsj óður
Skv. skipulagsskrá Þjóðhátíðar-
sjóðs skal Friðlýsingarsjóður verja
árlegum styrk til náttúruverndar á
vegum Náttúruverndarráðs. Styrkn-
um í ár mun verða varið til að setja
upp gestastofu (fræðslustofu) við
Mývatn, en það verður eitt megin-
verkefni Friðlýsingarsjóðs á þessu
ári.
Þjóðminjasafn
Samkvæmt skipulagsskrá Þjóðhá-
tíðarsjóðs skal Þjóðminjasafnið veija
árlegum styrk til varðveislu forn-
minja, gamalla bygginga og annarra
menningarverðmæta á vegum safns-
ins. Þjóðminjavörður hefur gert grein
fyrir ráðstöfun styrksins í ár og mun
hann annars vegar renna til að styðja
lok rannsóknar dr. Guðrúnar Svein-
bjamardóttur fornleifafræðings á
jarðfundnum leirkemm og hins vegar
til viðgerða á nokkrum safngripum.
Úthlutun styrkja skv.
umsóknum:
Framfarafélag Flateyjar, Álfheið-
ur Ingadóttir, Fjólugötu 7, 101
Reykjavík. Framhald viðgerða og
endurgerð á sjóminjum í Flatey á
Breiðafirði. 200.000.
Hallgrímur og Halldór Valdimars-
synir, Arholti 6, 640 Húsavík. Við-
gerð að aðaldyrum íbúðarhússins að
Halldórsstöðum, Laxárdal, S-Þing.,
sem voru kirkjudyr Múlakirkju í
Aðaldal. 105.000.
Byggðasafn Vestmannaeyja, Jó-
hann Friðfmnsson, 900 Vestmanna-
eyjum. Endurhleðsla í kringum Lind-
ina í Heijólfsdal. 165.000.
Zontaklúbbur Akureyrar, Margrét
Pétursdóttir, Aðalstræti 54, 600
Akureyri. Viðhald á Nonnahúsi á
Akureyri. 150.000.
Djúpavogshreppur, Ólafur Ragn-
arsson, Hrauni 5, 765 Djúpavogi.
Framhald endurbyggingar Löngu-
búðar. 150.000.
Byggðasafn Skagfirðinga, Sigríð-
ur Sigurðardóttir, Glaumbæ, 560
Varmahlíð. Viðgerð á timburhúsi
sem byggt var í Ási, Hegranesi,
1883—86. 165.000.
KFUM í Reykjavík, Ólafur Jó-
hannsson, Pósthólf 4060, 124
Reykjavík. Að búa bókasafni, hand-
ritasafni, ritsafni, myndasafni og
minjasafni sr. Friðriks Friðrikssonar
stað í nýjum aðalstöðvum KFUM og
KFUK við Holtaveg í Reykjavík.
150.000.
Sóknarnefnd Stóra-Áss kirkju, sr.
Geir Waage, Reykholti, 311 Borgar-
nes. Viðgerð á altaristöflu í eigu
Stóra-Áss kirkju, sem talin er vera
frá því fyrir 1700 að uppruna.
140.000.
Kvæðamannafélagið Iðunn, Orm-
ur Ólafsson, Safamýri 54, 108
Reykjavík. Síðari áfangi afritunar
hljóðritasafns félagsins af frumupp-
tökum yfir á geymslubönd. 120.000.
Landsbókasafn íslands, Finnbogi
Guðmundsson, Hverfisgötu, 101
Reykjavík. Til umbúnaðar handrita.
100.000.
Sögufélagið, Heimir Þorleifsson,
Fischersundi 3, 101 Reykjavík. Til
að undirbúa útgáfu á þýðingu á ís-
lensku á Brevis commentarius eftir
Arngrím lærða Jónsson, sem gerð
var af Árna Þorvaldssyni, kennara á
Akureyri. 110.000.
Stofnun Árna Magnússonar á ís-
landi, Jónas Kristjánsson, Árnagarði,
101 Reykjavík. Ljósmyndun og
prentun útgáfu íslensku teiknibókar-
innar (AM 673 a III 4 to). 210.000.
Veiðistjóraembættið, Hlemmi 3,
105 Reykjavík. Páll Hersteinsson.
Skráning grenja í Homstrandafrið-
landi. 135.000.
Náttúruverndarráð, Þóroddur F.
Þóroddsson, Hlemmi 3, 105 Reykja-
vík. Gerð fræðsluefnis og uppsetning
þess í anddyri þjónustuhúss við Gull-
foss. 160.000.
Fuglavemdarfélag íslands, Björn
Guðbrandsson, Bræðraborgarstíg
26, 101 Reykjavík. Verndun íslenska
hafamarstofnsins. 60.000. Alls kr.
2.120.000.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
Guðmundur Pálsson vann í flokki rally cross bíla í bikarmóti á
laugardaginn á keppnisbraut Rally cross klúbbsins.
Rally cross
Bíll í verðlaun
Kvartmíla
Mótorhj ólamenn
fjölmennastir
FYRSTA kvartmílumótið sem gildir til íslandsmeistara var hald-
ið á sunnudaginn á keppnisbraut Kvartmíluklúbbsins við Straums-
vík. Keppendur í móti KK og Pizza 67 voru í færra Iagi, en í lok
mánaðarins fer fram önnur keppni, þar sem búist er við fleiri
keppnistækjum, en kvartmílumenn hafa yfirleitt verið seinir í
gang á hverju keppnistímabili.
BMW 520i árg. 1990, sjálfskiptur,
sóllúga, rafdrifnar rúðuro.fl. Gullfall-
egur bíll.
M. Benz 190 E árg. 1992, ekinn 29
þ. km., sjálfskiptur, sóllúga, ABS
bremsur o.fl. Sem nýr.
Renautl Nevada 4x4 árg. 1991,
rafdrifnar rúður, fjar-stýrðar saml-
æsingar, litað gler, ekinn aðeins 35
þ. km.
MMC Lancer GLXi árg. 1991, ekinn
40 þ. km., silfurgrár, 5 gíra, vökva-
stýri. Eigum einnig MMC Lancer
4x4 hlaðbak árg. 1990.
Toyota Hi Lux Extra Cap árg. 1987,
sjálfskiptur, plasthús, upphækkað-
ur. Gott eintak.
Range Rover árg. 1985, hvítur, 4ra
dyra, ekinn aðeins 87 þ. km.
Bílasalan BRAUT HF.,
Borgartúni 26,
105 Reykjavik,
símar 617510 og 617511,
Akstursíþróttir
Gunnlaugur Rögnvaldsson
MIKIÐ er að gerast hjá Rally
cross klúbbnum, þar sem
nokkrir einstaklingar reka
keppnisbraut á eigin kostnað.
Klúbburinn heldur bæði ís-
lands- og bikarmót í nokkur
skipti á árinu og stendur fyr-
ir happadrætti þar sem
keppnisbíll er í verðlaun, til-
búinn til keppni. Verður dreg-
ið í happdrætti fyrir íslands-
mót, sem verður í júlíbyrjun.
Billinn sem er í vinning er
fyrrum bíll íslandsmeistarans
í krónukrossi, Sigmundar
Guðnasonar.
Sigmundur var í eldlínunni í
bikarmóti um helgina á nýjum
keppnisbíl, sem hann neyddist
til að smíða eftir að klúbburinn
keypti af honum meistarabílinn,
en í reglum fyrir krónukross er
ákvæði sem segir að bílarnir í
efstu sætunum séu til sölu í
fimmtán mínútur eftir að keppni
er lokið fyrir 150.000 krónur.
Er það gert til að halda niðri
kostnaði í krónuflokknum.
Þannig að menn leggi ekki of
mikið í bílana. Sigmundur hafði
smíðað dýrari bíl og nýtti klúb-
burinn tækifærið og keypti bíl-
inn til að nota í vinning. Á nýja
Lancer-bílnum náði Sigmundur
öðru sæti í krónuflokknum á
eftir Högna Gunnarssyni á Niss-
an. f teppaflokknum, sem er
fyrir stærri blla, vann Hjálmar
Hlöðversson á Cadilac, Birgir
Guðjónsson á Malibu varð annar
og Einar Gíslason á Pontiac
þriðji, en hann leiddi keppnina
lengst af en stöðvaðist í miðjum
úrslitariðli eftir að hafa ekið
yfir handrið með látum. í flokki
rally cross bíla vann Guðmundur
Pálsson á Toyota, Hjörtur Jóns-
son á BMW varð annar og Ólaf-
ur Baldursson á Lada þriðji.
Mótorhjólamenn voru fjölmenn-
astir, en ekið var í þremur flokk-
um. í flokki ofurhjóla vann Jón
Kr. Gunnarsson á Suzuki 1255 á
tímanum 10,354 sekúndum, en
hann hefur látið að sér kveða í
sandspyrnu og náði þar titli í
fyrra. I flokki HOOcc mótorhjóla
vann Hörður Lýðsson á Honda
CBR 900, Þorstein Marel 1 á
Kawazaki í úrslitum á tímanum
10,612. í léttari flokknum, 750cc,
vann Júlíus Eggertsson á Suzuki
750, Valgeir Pétursson á Honda
CBR 600 á tímanum 11,192 sek-
úndur. Miðað við það að hafa
aðeins drif á einu hjóli, eru mótor-
hjólin ótrúlega snögg út kvartm-
ílubrautina samanborið við öflug-
ustu keppnisbílana.
Fljótastur var Auðunn Stígsson
á sérsmíðuðum kvartmílubíl,
Chevrolet Camaro með nýja tæp-
lega 700 hestafla vél. Hann veitti
íslandsmeistaranum Siguijóni
Haraldssyni harða keppni í fyrra,
en meistarinn var fjarri góðu
gamni og vann Auðunn Compet-
ition-flokkinn. í flokki götubíla
vann Friðbjörn Georgsson á
Plymouth Roadrunner á 13,180,
flokk útbúinna götubíla vann
Benedikt Svavarsson á tímanum
11,256 sekúndur. Brynjar Gylfa-
son á Buick vann síðan Bracket-
flokkinn þar sem allir geta mætt,
jafnvel á fjölskyldubílum, en ekið
er eftir forskotakerfi sem gerir
alla bíla jafna.
G.R.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
Auðunn Stígsson mætti í fyrsta kvartmílumót ársins með nýja
700 hestafla keppnisvél í Chevrolet Camaro sínum.