Morgunblaðið - 19.06.1993, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 19.06.1993, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 1993 Fimm tonna bátur sökk eftir árekstur við 30 tonna bát í Tálknafirði Skipverja á trillunni bjargað úr sjónum Tálknafirði. ÞRJÁTÍU tonna eikarbátur, Jón Júlí BA 157, sigldi á fimm tonna plastbát, Svöluna BA 87, um þrjúleytið í gærdag. Árekst- urinn varð á miðunum út af Tálknafirði, nánar tiltekið á svæði, sem nefnt er Skeggjarn- ar. Svalan sökk nær samstundis og var einn maður um borð, Björn Birgir Bertelsen. Honum var bjargað um borð í Jón Júlí, eftir að hafa verið í sjónum í eina til tvær mínútur að eigin sögn. Honum varð ekki meint af volkinu. Björn Birgir sagði í samtali við Morgunblaðið þegar hann kom í land að hann hefði verið á veiðum frá því snemma um morguninn þegar óhappið varð. Hann gerði sér ekki glögga grein fyrir því hversu lengi hann hefði verið í sjónum en taldi að það hefðu ver- ið ein til tvær mínútur. Hann sagði að þetta hefði gerst óvænt en vildi ekki tjá sig frekar um málið fyrr en sjópróf hefðu farið fram en þau verða í dag. Morgunblaðið/Helga Kominn í land JÓNA Samsonardóttir eigin- kona Björns Birgis réttir hon- um hrein föt um borð í Jón Júlí þegar báturinn lagðist að bryggju á sjötta tímanum í gær. Á innfelldu myndinni eru hjónin eftir að í land var komið. Var einn um borð Venjulega eru tveir menn um borð í Svölunni en svo vildi til að í gær var hásetinn, Frank Lúð- vígsson, veikur og því var Björn Birgir einn um borð. Báðir bátarnir, sem hlut eiga að máli, eru í eigu Þórsbergs hf. en það er eitt af stærri saltfisk- verkunarfyrirtækjum á Vestfjörð- um. Helga Andaað sér helíuni Á ÞJÓÐHÁTÍÐARDAGINN var . áberandi að margir krakkar önd- uðu að sér helíumgasi úr blöðr- um, sem þeir voru með. Tilgang- . urinn með því er að breyta rödd- inni þannig að viðkomandi hljóm- ar í stutta stund eitthvað í líkingu við Andrés Önd. Ólafur Bjarnason, sérfræðingur á Borgarspítalanum í háls-, nef- og eymalækningum, sagði í samtali við Morgunblaðið að ekkert benti til að það væri skaðlegt að anda helíumgasi að sér og í sumum tilfell- um væri það notað til lækninga. --------♦ ♦ ♦-- Mikligarður Búðir opna í næstu viku í GÆR unnu um 80 fyrrverandi starfsmenn Miklagarðs að birgða- talningu í verslunum þrotabús Miklagarðs við Holtagarða. Að sögn skiptastjóra, Jóhanns H. Ní- elssonar hrl., verða verslanirnar opnaðar í næstu viku til að selja það sem eftir er af lager. Uppsagnarfrestur flestra þeirra sem störfuðu hjá Miklagarði rennur út um næstu mánaðamót en nokkuð er mismunandi hvort starfsmenn höfðu fengið greitt fyrir júnímánuð eða ekki. Jóhann Níelsson sagði að svo virtist sem nægjanlegar eignir væru fyrir launakröfum en auk þess væri ríkisábyrgð á þeim. Eftirspum eftir lóðum í Reylgavík eykst í ár REYKJAVÍKURBORG hefur út- hlutað mun fleiri lóðum undir íbúðarhúsnæði fyrstu fimm mán- uði þessa árs en á sama tíma í fyrra. Skrifstofustjóri borgar- verkfræðings segir, að ætla megi að ástæða þessa sé meðal annars sú, að reglum um greiðslu gatna- gerðargjalda hafi verið breytt síð- asta sumar. Samkvæmt upplýs- ingum frá öðrum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu er talsverð eftirspurn eftir lóðum þar þrátt fyrir samdrátt í efnahagslífinu. Ágúst Jónsson, skrifstofustjóri borgarverkfræðings, segir að frá áramótum og til 1. júní hafí borgin úthlutað 51 lóð undir einbýlishús, 20 lóðum undir rað- og parhús og lóðum undir 117 íbúðir í fjölbýli. Á sama tíma í fyrra hafi sambærilegar tölur verið 13 lóðir undir einbýlishús og tvær fyrir parhús, auk þess sem skilað var inn lóðum fyrir fleiri fjöl- býlishús en úthlutað hafi verið. Sjá miðopnu: „Mun fleiri lóðum úthlutað...“ í dag Háar einkunnir i MA____________ Áratugir eru sfðan stúdentar frá MA hafa útskrifast með hærri meðaleinkunn 18 Flutningar vestur um haf Eimskip með 75% flutningana til- Bandaríkjanna 21 Nýtt flugmet___________________ Farþegaþota setti fyrst met þegar hún flaug frá París til Auckland og svo aftur á leiðinni til baka 21 Leiðari Velferðarútgjöld og vinstristjórnar- leiðir 22 Sjávarútvegsráðuneytið gefur út 702.000 t byijunarkvóta á loðnu Útvegsmeim vonast eftír ; milljón tonna metvertíð 1 SJÁVARÚTVEGSRÁÐUNEYTIÐ gaf í gær út reglugerð um loðnu- veiðar á komandi vertíð. Byijunarkvóti íslenzku loðnuskipanna verð- ur 702.000 tonn og leyfilegt verður að hefja veiðar 1. júlí næstkom- andi. Kristján Ragnarsson, formaður Landssambands íslenzkra út- vegsmanna, segir að útgerðarmenn vonist til að loðnukvótinn verði aukinn þegar líður á vertíðina og leyft að veiða milljón tonn. Næðist slíkur afli, yrði það metvertíð. I reglugerð sjávarútvegsráðu- neytisins kemur fram að íslenzku loðnuskipunum sé heimilt að veiða 245.700 tonn af loðnu í lögsögu Jan Mayen. Heildarloðnukvótinn er í upphafi vertíðar 900.000 tonn, en þar af koma 198.000 tonn í hlut Grænlendinga og Norðmanna. Reglugerðin kveður jafnframt á um leyfi fimm skipa til tilraunveiða á loðnu í flotvörpu í íslenzkri land- helgi. Búizt er við að þær tilraunir hefjist í haust. „Loðnukvótinn var ekki nema Lesbók ► Samskipt.i manna og fjölmiðla - Andleg umhverfisvernd - Sex bandarísk Ijóðskáld - Draumafa- brikka Esphólíns - Fjarkennsla með tölvum 500.000 tonn í fyrra, og þá fundum við ekki loðnuna fyrr en komið var fram á vetur, þar sem hún hegð- aði sér með óvenjulegum hætti. Árið þar áður fengum við engan upphafskvóta fyrr en komið var fram á haust, þannig að þetta er gleðileg breyting til batnaðar hvað loðnuna varðar,“ sagði Kristján Ragnarsson. Vonast eftir milljón tonnum Hann sagði að sterkur loðnu- stofn. nú benti til þess að lítið Tvíæringiirinn í Feneyium Menning/Listir ► List á Feneyjarbíenalnum - Tónlist á Listahátíð í Hafnarfirði - Leik-og tónlist á Óháðri listahá- tíð - Söngkvartett í Siguijónss- asfni - Líf Vladimars Míyakovskís væri af þorski, þar sem loðnan er helzta fæða þorsksins. „Við von- umst til þess að þegar forsendur verða endurmetnar i október eða nóvember verði aukið verulega við loðnukvótann og leyft að veiða allt að milljón tonn. Til þess að geta veitt það, verðum við hins vegar að byija veiðamar mun fyrr en við höfum gert. Þess vegna munu skip byija veiðar strax í júlí. Með tilliti til þess hvað stofninn á að vera stór, gerum við okkur vonir um það að við getum nú stundað veið- amar á miklu lengri tíma en áður hefur verið gert,“ sagði Kristján. íslenskur kaupsýslumaður í Hong Kong Leitað vegna 2,6 millj. hótelskuldar ' EITT dýrasta hótel í Hong Kong hefur gert fyrirspurnir til ræðis- manns Islands þar í borg vegna íslendings sem safnaði þar skuld upp á 2-2,6 milpnir króna, setti vegabréf sitt til tryggingar greiðslu en hvarf síðan á braut og er óvíst um dvalarstað mannsins. Um tíma hafði maðurinn 2 herbergi á lúxushótelinu Hótel Mandarin á leigu. mannsins þar sem engin vitneskja hefði verið til staðar um slíkt og maðurinn ekki leitað eftir nýju vegabréfi eða annarri aðstoð. ----♦ ♦ ♦-- Maðurlenti ; milli gáma MAÐUR lenti milli tveggja tutt- ugu tonna gáma um borð í Arnar- fellinu í höfninni á Akranesi í gær. Hann slasaðist ekki mikið en var fluttur á sjúkrahúsið á Akranesi. Slysið varð þegar verið var að lesta Arnarfellið. Gámurinn, sem slysinu olli, var fullur af sementi. Maður kvartaði undan eymslum í baki en ekki var vitað frekar um J líðan hans. - Samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins er ekki talið að maðurinn sé týndur heldur sé líklegt að hann hafi einungis hlaupist frá þessum skuldbindingum. Hann mun ekki svo vitað sé hafa komið til íslands og er talið líklegt að hann sé enn í Hong Kong þar sem hann hefur stundað viðskipti um skeið. Bannað að koma til Kína Samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins hefur manninum verið synjað um leyfi til að koma til Kína vegna vafasamra viðskipta þar en hefur að talið er haldið sig í Hong Kong. í utanríkisráðuneytinu fékk Morgunblaðið staðfest að ræðis- manni íslands í Hong Kong hefði borist fyrirspurn frá hótelinu en engar upplýsingar hefði verið hægt að veita um ferðir eða dvalarstað

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.