Morgunblaðið - 19.06.1993, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 19.06.1993, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 1993 15 Yfirlýsing fjármálaráðherra vegna virðisaukaskatts af bókum I samræmi við skatta- stefnu í Evrópuríkjum MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi yfirlýsing frá Friðrik Sophussyni fjármálaráðherra: í lok síðasta árs samþykkti Al- þingi með lögum nr. 111/1992 um- fangsmiklar breytingar í skattamál- um. Mikilvægur liður í þeim breyt- ingum var veruleg fækkun undan- þága frá virðisaukaskatti. Helstu breytingar virðisaukaskatts sam- kvæmt þeim lögum eru eftirfarandi: — 14% VSK var lagður á húshitun- arkostnað frá og með 1. janúar 1993 og er sú breyting þegar komin til framkvæmda. — 14% VSKverðurlagðuráíslensk- ar bækur, blöð og tímarit frá 1. júlí 1993. — 14% VSK verður lagður á afnota- gjöld sjónvarps og útvarps frá 1. júlí 1993. — 14% VSK verður lagður á ferða- þjónustu frá 1. janúar 1994. Helstu rökin fyrir þessari breyt- ingu voru að mikill fjöldi undanþága og víðtækar endurgreiðslur torveldi skatteftirlit og stuðli að undanskot- um. Ennfremur hefur verið bent á það að ísland er sér á báti hvað varðar fjölda undanþága og ekki sjá- anleg rök fyrir því að undanþágur eigi að vera víðtækari hér en annars staðar. Með tilvísun í auglýsingu sem birtist í Morgunblaðinu 17. júní síð- astliðinn frá ýmsum hagsmunaaðil- um í útgáfustarfsemi um hugsanleg áhrif 14% VSK á bókaútgáfu og fréttaflutning ríkisútvarpsins af sama tilefni er rétt að eftirtalin at- riði komi fram: Sú umfjöllun sem fram kemur í auglýsingunni er ekki ný af nálinni heldur fór hún fram síðastliðið haust á meðan fyrirhugaðar breytingar voru til meðferðar á Alþingi. Þessum lögum verður aðeins breytt með nýjum lögum frá Alþingi en ekki einu pennastriki fjármálaráðherra. Bækur eru víðast hvar skattlagð- ar í Evrópu, ef undan eru skilin Bretland, Noregur, Portúgal og ír- land. Þá eru þær oftast skattlagðar í lægra þrepi en almennar vörur og þjónusta. Álagning 14% VSK á ís- lenskar bækur er því í fullu sam- ræmi við ríkjandi stefnu Evrópuríkja í skattamálum. Til upprifjunar má benda á að bækur voru skattskyldar samkvæmt virðisaukaskattslögunum sem komu til framkvæmda í ársbyijun 1990, en virðisaukaskattur af íslenskum bókum var síðan felldur niður haust- ið 1990. Þá má einnig nefna að það er ekkert nýtt að bækur séu skatt- lagðar hér á landi því að fram til ársins 1990 var lagður 25% sölu- skattur á bækur. Mikilvægt er að rugla ekki saman stefnu stjórnvalda í skattamálum annars vegar og menningarmálum hins vegar. Víða erlendis eru þau viðhorf ríkjandi að það eigi að forð- ast að gera göt á skattkerfið til þess að styrkja einhveija tiltekna starfsemi. Þetta er ákveðin stefna í skattamálum. Hún hefur hins vegar ekki i för með sér breyttar áherslur í menningarmálum. Telji stjórnvöld ástæðu til þess að styrkja ákveðna þætti, hvort sem það er í heimi íþrótta eða menningar, með fjár- framlögum úr opinberum sjóðum á það að gerast með beinum hætti, en ekki með undanþágum frá skatti. Mat fjármálaráðuneytis á áætluð- um tekjum ríkissjóðs af 14% VSK, um 300 m.kr. á heilu ári, byggir á bestu heimildum sem völ er á, þ.e. gögnum ríkisskattstjóra sem aftur koma frá fyrirtækjunum sjálfum. Það er hins vegar ljóst að óvissu- þættir .í slíku mati eru ótalmargir, s.s. afkoma fyrirtækja og heimila á hveijum tíma, samkeppnisstaða bók- arinnar gagnvart öðrum miðlum o.fl. Því ber að skoða alla slíka útreikn- inga með fyrirvara. Talið er að tekj- ur ríkissjóðs af 14% VSK á íslenskar bækur, blöð og tímarit svo og af- notagjöld útvarps og sjónvarps nemi tæpum 1,200 m.kr. á heilu ári. Þar af er gert ráð fyrir að 400 m.kr. innheimtist á yfirstandandi ári. íslenskur prentiðnaður telur sig standa höllum fæti gagnvart erlend- um prentsmiðjum sem geti boðið ódýrari þjónustu. Þetta kann að vera rétt svo langt sem það nær. Hins vegar hefur álagning VSK sem slík hér engin áhrif. Ennfremur er mis- skilningur að samkeppnisstaða inn- lendrar prentunar gagnvart erlendri raskist við skattlagningu bóka á þeirri forsendu að menn sleppi við að greiða virðisaukaskatt af prentun o.fl. með því að færa þessa starfsemi inn í bókaútgáfurnar eða úr landi. { báðum þessum tilvikum yrði um virðisaukaskattsskylda starfsemi að ræða samkvæmt lögum. Morgunblaðið/Vilborg Einarsdóttir Áð á jökli ÞEIR voru skýjum ofar, í tvöfaldri merkingu þess orðs, ferðalangarn- ir sem fóru á Snæfellsjökul með sleðji skíðadeildar Grundarfjarðar um liðna helgi, enda veðurblíðan einstök þegar komið var upp úr skýjunum og á toppinn. Liflegt a Skaganum MARGT er að gerast í Akranesskaupstað. Nýlokið er Akraneshlaup- inu með um 500 þáttakendum. Þá stendur yfir frá því í gær og lýkur á mánudag Landsbankamóti í knattspyrnu fyrir drengi í 5. flokki og eru þátttakendur hátt á þriðja Samkvæmt upplýsingum Björns Finsen varð mikil þátttaka í 17. júní-hátíðahöldunum á Akranesi og voru þau til fyrirmyndar í alla staði að sögn lögreglunnar. Á föstudög- um verður útimarkaður á Akratorgi og var hinn fyrsti í gær, en síðar. verður slíkur markaður 2., 9., 16. og_23. júlí, ef veður leyfir. í dag, laugardag, fer síðan fram kvennahlaupið á Skaganum og verður þátttaka góð. Síðast þegar vitað var höfðu á annað hundrað konur skráð sig í hlaupið, hlaupar: ar, göngumenn og skokkarar. í kvöld klukkan 21 mun svo Valdi- hundað. mar Indriðason, fyrrverandi alþing- ismaður, verða með gönguleiðsögn um hluta bæjarins og m.a. fræða þátttakendur um sögu gamalla húsa á Akranesi. Hann mun fara aðra slíka ferð laugardaginn 17. júlí og þá á sama tíma dags. Á morgun verður opið golfmót fyrir öldunga hjá Golfklúbbnum Leyni á Akranesi. Laugardaginn 26. júní verður risamarkaður hald- inn í tjaldi og utan í Miðbæ (á Skagaverstúninu). Á hafnarbakk- anum er nú tilbúin tjöm og fiski- ker, smávísir að sjávardýrasafni, þótt frumstæður sé. M Verðdæmi I: W 4RA MANNA FJÖLSKYLDA -gisting í góðu svefnpokaplássi. Eldunaraðstaða og góð setustofa til boða á flestum stöðunum. Verð kr. 3.450.* Pr. mann á nótt 862. /'C BÆKLJNGURINN OKKAR ER ÓMISSANDI FÖRUNAUTUR Á FERÐALAGINU Verðdæmi lll: 4RA MANNA FJÖLSKYLDA - sumarhús í viku (fl. B) Verð kr. 24.500.* Pr. mann á nótt 875. Verðdæmi II 4RA MANNA FJOLSKYLDA - gisting í uppábúnum rúmum. Frábær morgunverður að sveitasið og Ijúffengur .. kvöldverður. Verð kr. 11.100.* Pr. mann á nótt 2. Tilboð miðast við 2 fullorðna og 2 börn, 6-11 ára. Ferðaþjónusta bænda Á0 Ferðaþjónusta bænda, Hótel Sögu v/Hagatorg, símar 623640/43, símbréf 623644. Frábær uppskrift að frimu i ar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.