Morgunblaðið - 19.06.1993, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 1993
27
SJONARHORN
Skalli taknar hættu
á hjartaáföllum
Afmælin eru komin á banvæna listann
MIÐALDRA menn sem harma
þverrandi hárprýði hafa nú
fengið aðra ástæðu til að hafa
áhyggjur af. Nýlegar rannsóknir
hafa sýna fram á að skalli eykur
líkur þeirra á hjartaáfalli.
Sérfræðingur í faraldsfræði við
læknaskólann við Boston Univers-
ity Samúel M. Lesko að nafni, hef-
ur ásamt samstarfsmönnum sinum
komist að þessari niðurstöðu. Þeir
rannsökuðu 665 karla á aldrinum
21 til 54 ára sem höfðu verið tekn-
ir inn á sjúkrahúsið eftir að hafa
fengið hjartaáfall. Samhliða var
kannaður til viðmiðunar samsvar-
andi hópur 772 karla á sama aldri
sem teknir höfðu verið inn á sjúkra-
húsið án þess að hafa fengið hjarta-
áfall.
Rannsóknin fór að sjálfsögðu
fram á vísindalegan hátt og var
niðurstaða vísindahópsins sú að af
þeim sem fengið höfðu hjartaáföll
reyndust þau vera mun algengari
hjá þeim sem höfðu misst hárið
uppi á kollinum. Niðurstöður töl-
fræðilegra útreikninga leiddi í ljós
að þeir voru í 40 prósent meiri
hættu á að fá hjartaáfall, en þeir
sem voru með eðlilega hárfyllingu
á höfði og reyndist áhættan vera
meiri eftir því sem skallinn var
stærri.
Útlitið virðist vera mun hagstæð-
ara hjá þeim sem voru með hæk-
kalla möguleika andi háralínu frá
enni. Karlar sem voru með hár-
missi framan á höfði sýndi enga
aukningu á hjartáföllum.
Tengslin á milli hjartaáfalla og
skalla reyndust vera, þegar frá
voru teknir ákveðnir áhættuþættir;
erfðir eða hjartaáföll í fjölskyld-
unni, reykingar og hár blóðþrýst-
ingur. Niðurstöður þessara rann-
sókna voru birtar 24% febrúar í „Jo-
urnal of the American Medical
Association" segir í febrúarblaði
tímaritsins Science News.
Menn velta því nú fyrir sér, hvort
skalli geti verið hjartanu skeinu-
hættur. Talið er að of snemmt sé
að segja ákveðið til um það, en
full ástæða er sögð vera til að
kanna málin betur.
Sköllóttir karlar eru ekki þeir
einu sem eiga á hættu að fá hjarta-
áföll. Þau geta gripið hvern sem
er og hvenær sem er eða því sem
næst. Nefndir hafa mánudagar,
piparsveinalíf, kalt veður og ekki
síst „hið ljúfa líf“ sem áhættuþætt-
ir hjartaáfalla og nú nýlega hafa
afmælin verið sett á þennan ban-
væna lista. Alan nokkur Wilson við
Robert Wood Johnson læknaskól-
ann í New Brunswick kannaði
sjúkraskrár 100.000 einstaklinga
sem fengið höfðu hjartaáföll. Hann
komst að því, að hjartaáföllum
fjölgaði áberandi mikið hjá bæði
körlum og konum dagana sem voru
næstir á undan og komu strax eft-
ir afmælisdögum þeirra. Talið er
að orsakir megi rekja ti! í mikilla
veisluhalda og andlegrar streitu.
Rannsóknin er sögð sýna vax-
andi áhuga vísindamanna á örlaga-
ríkum þáttum sem geta framkallað
hjartaáföll. Á undaförum árum hef-
ur áhersla verið lögð á rannsóknir
á langvinnum áhættuþáttum, háum
blóðþrýstingi og kolesterólneyslu
og hafa þær rannsóknir dregið til
sín mesta rannsóknafjármagið.
Wilson segist ekki leggja til að
fólk hegði sér á neinn hátt öðruvísi
á afmælum sínum en það hefur
gert til þessa. Rannsóknir hans og
annarra, sem eru á svipuðum nót-
um, segir hann beinast að því að
reyna að skilgreina þætti sem
mögulega geta hrint af stað
hjartaáfalli og reyna síðan að rekja
sig til baka að grunnorsökum. Visk-
an er í aprílblaði Science News.
M. Þorv
Líkaminn kennir börnum
að sækja í fituríka fæðu
BÖRN eru sögð fædd með smekk fyrir sætindum en þau eru einnig
sögð vera n\jög fljót að læra að meta orkuríkar fæðutegundir, sér-
staklega þær sem hafa hátt fituinnihald. En börn geta einnig lært
að meta fæðu sem hefur lágt fituinnihald.
Science News (10. apríl 1993) 66 kaloríum einn dag í viku, en
hefur þetta eftir Leann L. Birch
sálfræðingi við Pennsylvania State
University í Bandaríkjunum. Birch
hefur í samvinnu við sérfræðinga
við University of Illinois kannað
bragðsmekk og fæðuval 27 bama
á aldrinum 3-4 ára. Hópnum var
skipt í tvennt, annar hópurinn fékk
jógúrtdrykki með mismunandi
bragði og fituinnihaldi tvisvar viku,
fengu fitusnauða jógúrt með aðeins
aðra daga fengu jógúrt með 18
grömmum af fitu og 225 kaloríum.
Hinn hópurinn smakkaði jógúrtteg-
undir með mismunandi bragði án
þess að borða þær.
Niðurstaðan var sú að böm virð-
ast læra að meta bragð sem teng-
ist fituauðugri fæðu. Sérfræðingar
segja að það geti skýrt hversvegna
svo erfiðlega hafi reynst að draga
úr neyslu á fituríkri fæðu. Þeir
segja einnig, að þau böm sem að-
eins smökkuðu á jógúrtinni án þess
að borða hana, fóm að meta jógúrt
með bragði sem þau könnuðust við
hvað sem kaloríuinnihaldi leið.
Þetta segja sérfræðingar að sé
ábending um að hægt sé að kenna
einstaklingum að meta ákveðnar
fæðutegundir með því að bjóða upp
á þær nógu oft. Foreldrar geta
haft áhrif á neysluvenjur, þeim er
því bent að reyna að halda sem
oftast að börnum sínum fæðu og
nasli sem hefur lágt fituinnihald.
M.Þorv.
Levinson í leikfangalandi
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
Saga bíó:
Leikföng — Toys
Leikstjóri og handritshöfundur
Barry Levinson. Aðalleikendur
Robin Williams, Michael Gambon,
Joan Cusack. Bandarísk. 20th
Century Fox 1992.
Maður er svo sannarlega furðu
lostinn eftir að hafa séð Leikföng.
Hún er gerð af einum langfærasta
handritshöfundi/leikstjóra kvik-
myndanna í dag, með myndir á borð
við Good Morning, Vietnam og Rain
Man að baki og margar litlu síðri.
Til að gera útkomuna enn óskiljan-
legri þá var Leikföng búið að vera
draumaverkefnið hans i heilan ára-
tug, sem hefur m.a. farið i að betrum-
bæta og snurfusa handritið og þefa
uppi færustu menn á öllum sviðum
kvikmyndagerðar og þá er að fínna
í massavis í Hollywood.
En skemmst frá að segja að mynd-
in er hreint ótrúleg mistök. Geggjuð
og góð hugmynd verður að seigdrep-
andi langhundi. Prýdd framúrskar-
andi hlutum, svona til að minna á
þær vonir sem við hana voru bundn-
ar.
Er faðir hans fellur frá, missir
Williams leikfangaverksmiðju ætt-
arinnar í hendur Gambon, föðurbróð-
ir sínum. Sá er ekki á því að halda
áfram framleiðslu á umhverfísvæn-
um og vinalegum barnagullum því
karl er fyrrum hershöfðingi og stríðs-
æsingamaður. Sér nú kjörið tækifæri
til að hefjst á ný til vegs og virðing-
BíóhöUin:
Náin kynni — Untamed Heart
Leikstjóri Tony Bill. Handrit Tom
Sierchio. Tónlist Cliff Eidelman.
Aðalleikendur Christian Slater,
Marisa Tomei, Rosie Perez, Kyle
Secor, Willie Garson. Bandarísk.
MGM/UA 1993.
Þessari látlausu en ljúfu mynd er
greinilega ætlað að bæta hjartalag
unglinganna og tekst það örugglega
í flestum tilfellum og þá einkum fyr-
ir snjallt og gott leikaraval. Það dylst
þó engum að hinn fjallmyndarlegi
Slater er ekki manna líklegastur til
að dedúa bakatil á matstofu við jarð-
eplaskrælingu og uppvask, en fram-
leiðendum fyrirgefst, þeir eru að
reyna að ná til unglinganna með því
að velja þennan vinsæla leikara í
aðalhlutverkið.
ar og breytir dótafabrikkunni í ný-
tísku hergagnaverksmiðju.
Það stendur varla steinn yfír
steini, allt frá óvenju leiðinlegu upp-
hafsatriði til lítt skárri endaloka. Það
sem gleður þó augað, mitt í gleði-
snauðri atburðarásinni, eru þessi líka
Sem fyrr segir leikur Slater utan-
garðspilt, Adam, alinn upp á mun-
aðarleysingjahæli og með slæman
hjartagalla sem hann hræðist að fá
bót á. Asamt honum vinna á veitinga-
staðnum hin ístöðulitla en góðviljaða
Caroline (Tomei) og vinkona hennar
Cindy (Perez). Þær, sem aðrir, líta á
hinn þögula Adam einsog hálfgerðan
vanvita uns hann kemur Caroline til
hjálpar á örlagastundu. Þá fer hún
að kynnast pilti og kemur í ljós að
hann er eftir allt saman hið eftirtekt-
arverðasta ungmenni. Elskur að bók-
menntum og öðrum fögrum listum í
kjallaraholunni sinni og hefur auk
þess frá mörgu að segja er hann
loks fer að opna munninn. Og þarf
engum að dyljast hvert framhaldið
verður.
Lítil mynd og sæt og góð tilbreyt-
ing frá fábreyttri síbylju unglinga-
ævintýralegu leiksvið og leikmunir,
unnir af snilld sem verður mun eftir-
minnilegri í allri grámóskunni. Leik-
ararnir fá hvorki að segja orð af viti
né að gera að gamni sínu, meira að
segja Williams er fúll, í fyrsta sinn
í sögunni. Hinsvegar gerir Gambon
furðu gott úr sínu. Að hugsa sér
hvað hefði getað gerst ef Levinson
hefði borið gæfu til að virkja þessa
stórleikara og verið í sínu gamla og
góða formi!
myndanna. En meiri metnað vantar
í handritið. N&in kynni rennur tíð-
indalítið áfram, söguþráðurinn er
athyglisverður en skortir alla þunga-
vigft. Leikararnir komast þó vel frá
sínu. Slater er viðfelldinn í hlutverki
einfarans sem verður ástfanginn, þó
ólíklegur sé og Tomei enn betri sem
gengilbeinan. Öllum á óvart vann
hún Óskarsverðlaunin í ár fyrir góð-
an leik í annars heldur litlausri mynd
en hún sannar það hér að hún kann
ýmislegt fyrir sér í faginu. Hin ósköp
venjulega Caroline verður minnis-
stæð í meðförum hennar, hún gefur
hlutverkinu allt sem hún á þó það
sé síður en svo framúrskarandi vel
skrifað og stendur uppi með túlkun
sem heldur manni hugföngnum í
annars lítt áberandi smámynd. Og
Perez (Hvítir geta ekki troðið er trú-
verðug í litlu hlutverki.
Með hjartað á réttum stað
- hótelið þitt
Bílamarkaðurinn
Smiðjuvegi 46E
v/Reykjanesbraun
Kopavogi, sími
671800
Opið sunnudaga
kl. 13-18
Corolla XL '90, 5 dyra, rauður, 5
g., ek. 45 þ. V. 750 þús., sk. á ód.
MMC Pajero turbo diesel '85, silfurgrár,
vél og kassi nýyfirfarið, 5 g. V. 890 þ.
Toyota Corolla Liftback ’88, sjálfsk., ek.
980 þ. Góður bíll. V. 630 þ. stgr.
5 dyra, 5 g., ek. 10 þ.km. V. 1080 þús.
Toyota Corolla GTi '88, svartur, ek. 76
þ., sóllúga, rafm. i öllu o.fl. V. 750 þ.
Willys CJ 7 '84, blár, 4 g., ek. 76 þ.
„258“). Talsvert breyttur, 36“ dekk o.fl
V. 820 þ. Dk. ód.
Daihatsu Charade CS 5 dyra ’88, steingr-
ár, ek. 87 þ. Nýl. conphing og tímareim.
Ford Bronco XL '87, blár og hvítur, 5 g.,
ek. 117 þ., krómfelgur o.fl. Gott eintak.
V. 960 þ. stgr.
Vantar nýlega bíla á
skrá og á staðinn,
ekkert innigjald
GBRÐU ÞER MAT UR ÞESSARI
GRÍSAKÓTILETTUR
Ostakryddaöar
Marineraðar
Léttreyktar.kryddaöar
GRILLPYLSUR
Sœlkerapylsa með osti
Smellpylsa , Knackwurst.
AUGLYSINGU,
HÖFN
SELFOSSI