Morgunblaðið - 19.06.1993, Blaðsíða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 1993
FRJALSAR / REYKJAVIKURLEIKARNIR
Morgunblaðið/Bjarni
Bettina Anderson. nr. 11, frá
Danmörku sigraði í 3000 metra hlaupi
kvenna og Fríða Rúna Þórðardóttir,
nr. 55, varð önnur.
ÚRSLIT
Frjálsar
Reykjavikurleikamir í fijálsum íþróttum,
haldnir á Laugardalsvelli 17. júní 1993.
100 metra hlaup:..................sek.
1. Glenroy Gilbert Kanada........10,35
2. Einar Þór Einarsson ..........10,54
3. Haukur Sigurðsson.............10,83
400 metra hlaup:
1. Mark GrahamKanada.............46,00
2. Mark Jackson Kanada...........48,38
3. Niels-Ole Lindberg Danmörku...48,51
4. GunnarGuðmundsson.............48,76
800 metra hlaup:
1. FinnbogiGylfason ...........1:55,41
2. Steinn Jóhannsson...........1:56,72
3. Sigurbjörn Á. Amgrímsson ...1:59,04
3000 metra hlaup:
1. Sigmar Gunnarsson...........8:44,14
2. Daníel Smári Guðmundsson ...8:48,58
3. Jóhann Ingibergsson ........8:49,67
Hástökk:.............................m
1. Einar Kristjánsson.............2,05
2. Gunnlaugur Grettisson..........1,95
3. LarsBackJensenDanmörk..........1,95
Kúluvarp:
1. PéturGuðmundsson .............19,67
2. Kent Larson Svíþjóð ..........19,22
3. Paul Edwards Bretlandi........18,28
Kringlukast:
1. Romas Ubartas Litháen.........63,02
2. VaclavasKidikasLitháen .......62,56
3. Ramone Jimenes Paragvæ........60,42
Spjótkast:
1. Patrek Bodén Sviþjóð .........88,26
2. Dag Wennlund Svíþjóð .........79,22
3. Peter Borglund Svíþjóð........78,10
4. Mika Parviainen Finnlandi.....78,06
5. Sigurður Einarsson ...........77,76
6. UnnarGarðarsson...............72,44
100 metra hlaup:..................sek.
1. KarenClarke Kanada............11,71
2. Flora Hyacinth Bandaríkin .j... 11,84
3. MonicaGravstadNoregi .........11,85
4. Alison Davies Bretland .......11,95
5. Guðrún Arnardóttir............11,98
200 metra hlaup:
1. Alison Davies Bretlandi ......24,41
2. Guðrún Arnardóttir............24,58
3. Sunna Gestsdóttir.............24,83
800 metra hlaup:
1. Rita Paulavaciene Litháen...2:06,06
2. Bettina Anderson Danmörku...2:14,41
3. Laufey Stefánsdóttir .......2:20,59
3000 metra hlaup:
1. Bettina Anderson Danmörku...9:31,66
2. FríðaRúnÞórðardóttir........9:47,08
3. AnnaCosserírlandi..........10:26,11
Hástökk:........................... m
1. Þórdís Gísladóttir ............1,80
2. KellyMasonBretlandi............1,75
3. Pia Zinck Danmörku.............1,75
100 metra grindahlaup kvenna:.....sek.
1. KeriMaddoxBretlandi ..........13,32
2. Monica Gravstad Noregi........13,33
3. Guðrún Amardóttir.............13,41
Reuter
Tveir góðir
JORDAN og Barkley eru góðir vinir
utan vallar, en beijast eins og ljón
gegn hvor öðrum þegar inn á völlinn
er komið. Þeir segja báðir að vináttan
dragi á engan hátt úr baráttunni á
milli þeirra í leikjunum, hún geri þetta
bara ennþá skemmtilegra.
Stórleikur 5. umferðar
LAUGARDALSVÖLLUR
sunnudagskvöld kl. 20.00
Við hvetjum alla til að maeta tímanlega á völlinn og sjá góða knattspyrnu
tveggja góðra liða við frábærar aðstæður.
Lollapoppsfélögum boðið í kaffi í hálfleik.
AEG tÍJORMSSONHF AEG
Um helgina
/Knattspyrna
LAUGARDAGUR:
1. deild. kvenna:
Valsv. Valur-KR....................14
Akureyri: ÍBA - Stjaman............14
Neskaupss.: Þróttur-ÍBV............14
Akranes: ÍA-UBK....................14
2. deild karla:
ísafj.: BÍ-UBK.....................14
4. deild karla:
Gervigras: Léttir - Fjölnir.....13.30
Hvolsv.: HB-Hamar..................14
Helliss.: Víkingur-Snæfeli.........14
Melar: SM-KS.......................14
Bakkakot: Hvöt-Þrymur..............14
Hofsós: Neisti - Dagsbrún..........14
:Höfn: Sindri - Austri.............16
Seyðisfj.: Huginn-Valur............14
Fjórði flokkur Fram leikur maraþon knatt-
spymu við Álftamýrarskóla frá klukkan
átta á laugardagsmorgni og fram á kvöld.
SUNNUDAGUR:
1. deild karla:
KR-vöilur: KR-ÍBV..................17
Laugardalsv.: Valur-Fram...........20
■ Leikurinn er á Laugardalsvelli, en ekki
að Hlíðarenda.
Akureyri: Þór-Fylkir...............20
Akranes: ÍA - Víkingur.............20
MÁNUDAGUR:
1. deild karla:
Kaplakriki: FH-ÍBK.................20
Hlaup
Kvennahlaup ÍSÍ í Garðabæ fer fram laug-
ardaginn 19. júní - kvennréttindadaginn,
og hefst kl. 14.00. Rúmlega 5.000 konur
tóku þátt í hlaupinu í fyrra og búist við
<góðri þátttöku i dag. Hægt er að velja um
þijár hlaupaleiðir sem eru tveggja, fimm
og sjö km langar.
Handknattleikur
Þriggja liða móti í kvennahandknattleik
lýkur í Garðabæ í dag. í mótinu em lands-
lið íslands skipað stúlkum 19 ára og yngri,
Stjaman og þýska liðið HSG Nord. Leikirn-
ir í dag eru frá kl. 9 og mótið klárast um
kl. 12.
Hjólreiðar
Hin árlega Kambakeppni verður i dag og
hefst kl. 10 við Esso-bensínstöðina í Hvera-
gerði. Hjólreiðakappamir eru ræstir út með
mínútu millibili og hjóla upp Kambana að
slysavamarskýlinu á Hellisheiði, tæplega
10 km leið. Ollum er heimil þátttaka og
keppt er í einum opnum flokki.
VALUR
- FRAM
Latoste - Opið golfmót
Opið öldungamót haldið sunnudaginn 20. júní nk. kl. 10.00.
Verðlaun með/ón forgjafar í 3 flokkum.
Karlar 50-54 óra. Karlar 55 órn og eldri.
Konur 50 óra og eldri.
Skróning í síma 93-12711 til kl. 20.00 laugardag 19. júní.
Golfklúbburinn Leynir
Morgunblaðið/Bjami
Risakast
PATREK Bodén sló tæplega ársgam-
alt vallarmet Einars Vilhjálmssonar
með risakasti sínu á Reykjavíkurleik-
unum.
Bodén var
í sérflokki
PATREK Bodén náði öðru
lengsta kasti ársins í spjótkasti
á vígslumóti Laugardalsvallar,
Reykjavíkurleikunum 1993,
sem haldnir voru 17. júní. Bod-
én kastaði 88,26 metra og
bætti vallarmet Einars Vil-
hjálmssonar um tæpan einn
og hálfan metra. Einar Þór Ein-
arsson hljóp undir íslandsmet-
inu í 100 metra hlaupi, en það
fæst ekki skráð sem slíkt vegna
of mikils meðvindar.
Eg er mjög ánægður með að
þetta gerðist í dag, það skiptir
miklu máli fyrir það sem er fram-
undan. Þetta er annað lengsta kast-
ið mitt og ég hef beðið eftir þessu
í næstum þrjú ár. Það virðist allt
vera að smella saman eftir erfíð
meiðsli og það er frábært," sagði
Patrek Bodén fyrrum heimsmethafí
eftir kastið langa, augljóslega mjög
ánægður með árangurinn.
Hefði viljað sigra Einar
„Það var leiðinlegt að [Einar]
Vilhjálmsson gat ekki verið með í
dag, það hefði verið gaman að vinna
hann í fyrsta sinn á heimavelli, þar
sem hann er ósigraður," sagði Bod-
én, en Einar Vilhjálmsson gat ekki
verið með vegna meiðsla. Aðspurð-
ur sagðist Bodén kunna vel við
völlinn. „Þetta virðist vera mjög
góður völlur, þeir áttu nokkur góð
köst hér í fyrra líka og hann lofar
því góðu.“
Bodén var í algjörum sérflokki,
næsti maður kastaði níu metrum
styttra. Sigurður Einársson lenti í
fímirita sæti með 77,76 metra. „Ég
hef átt við meiðsli að stríða síðan
í vor, fyrst í nára og síðan fékk ég
í olnbogann fyrir skömmu, og það
var því ekki við miklu að búast,“
sagði Sigurður.
Besta kast Péturs á árinu
Pétur Guðmundsson sigraði í
kúluvarpi með góðu kasti, 19,67
metrum, sem er hans lengsta kast
á árinu. Þórdís Gísladóttir sigraði í
hástökki kvenna, stökk 1,80 metra
og Einar Kristjánsson sigraði í
karlaflokki, stökk 2,05. Ólympíu-
meistarinn Romas Ubartas sigraði
í kringlukasti, kastaði 63,02 metra,
en Vésteini Hafsteinssyni gekk ekki
vel og hafnaði hann í fímmta sæti
með 59,12 metra.
KORFUKNATTLEIKUR / URSLITAKEPPNI NBA
Verðum að
lemja hann
[ichael Jordan og Charles Bar-
kley eru ágætir félagar utan
vallarins, en þegar á völlinn er kom-
ið mætast stálin stinn. Eftir frábær-
an leik Jordans í fjórða leik lið-
anna, sem Chicago sigraði 111:105
og þar með þriðja leikinn af fjórum,
sagði Barkley að til þess að stöðva
hann þyrftu þeir einfaldlega að
beija á honum, það dygðu engin
vettlingatök. „Við verðum einfald-
lega að lemja á honurn," sagði Bar-
kley. „Og þá meina ég lemja hann
niður.“
Barkley og Jordan fengu sér að
borða saman eftir leikinn og sagði
Jordan að Barkley hefði gert sér
ljóst að hann myndi ekki hafa það
náðugt inni í teig Phoenix í fímmta
leiknum, líkt og í þeim fjórða. Bar-
kley sagði að félagar hans í liðinu
yrðu að sjá um Jordan, þeir hefðu
ekki efni á að láta hann ienda í
villuvandræðum þar sem hann væri
ómissandi hluti af sóknarleik þeirra
eins og Barkley orðaði það sjálfur.
Fimmti leikur liðanna var háður
í nótt og verður greint frá úrsiitum
í sunnudagsblaði Morgunblaðsins.