Morgunblaðið - 19.06.1993, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JLINÍ 1993
Danskur eldsmiður kennir Islendingum fagið
EINN þekktasti eldsmiður á Norðurlöndum, Thomas
Norgaard, leiðbeinir nú íslendingum á námskeiðum
í eldsmíði. Námskeiðin byggjast að sögn Norgaards
á smíðum með sögulegar hefðir í bakgrunni. Hann
sagði að það væri mikill áhugi á íslandi fyrir hand-
verki af þessu tagi, sem og í Danmörku og á hinum
Norðurlöndunum. Norgaard hefur verið fenginn til
námskeiðahalds víða um heim og gert upp hluti frá
víkingatímanum, svo og hluta af Vasa-skipinu í Sví-
þjóð. Ingólfur Gísli Ingólfsson lektor í smíðadeild
Kennaraháskóla íslands hafði forgöngu um hingað-
komu Norgaards, en hann hefur sótt námskeið hjá
honum í Danmörku. Ingólfur segir að eldsmíði hafi
verið stunduð allt frá járnöld og miklar hefðir mynd-
ast í kringum handverkið. Eldsmíði byggist á efnis-
þekkingu, handverki og fagurfræði.
VEÐUR
VEÐURHORFUR I DAG, 19. JUNI
YFIRLIT: Yfir Grænlandi er heldur vaxandi 1.000 mb lægð sem hreyfist
lítið. Um 700 km vestur af Hvarfi er 998 mb lægð sem hreyfist aust-
norðaustur. Við Skotland er 1.000 mb lægð sem hreyfist austur. Heldur
hlýnar um austanvert landið en kólnar aðeins vestanlands.
SPÁ: Hæg vestlæg átt og skýjað um vestanvert landið en víða léttskýj-
að eystra. Lítilsháttar súld við vesturströndina. Hiti 4-15 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á SUNNUDAG: Sunnan- og suðvestanátt, víðast fremur hæg.
Rigning sunnanlands og vestan, en þurrt og nokkuð bjart norðanlands
og austan. Hiti 8-15 stig, hlýjast norðaustanlands.
HORFUR Á MÁNUDAG: Hæg sunnan- eða breytileg átt og Iftið eitt
kólnandi í bili. Sums staðar dálítil væta um landið vestanvert, en að
mestu þurrt eystra.
HORFUR Á ÞRIÐJUDAG: Lítur út fyrir nokkuð hvassa sunnanátt með
bjartviðri og hlýindum fyrir norðan og austan, en rigningu á Suður- og
Vesturlandi. Nýir veðurfregnatímar: 1.30, 4.30, 7.30, 10.45, 12.45,
16.30, 19.30, 22.30. Svarsími Veðurstofu Islands - Vefturfregnir:
990600.
o
Heiðskírt
r r /
f f
f f f
Rigning
Léttskýjað
* f *
* f
f * f
Slydda
•A Á
Hálfskýjað Skýjað Alskýjaö
V Ý
Skúrir Slydduél
* * *
* *
* * *
Snjókoma
V
Él
Sunnan, 4 vindstig.
Vindörin sýnir vindstefnu
og fjaðrirnar vindstyrk,
heil fjöður er 2 vindstig.
10° Hitastig
Súld
= Þoka
stig..
FÆRÐ Á VEGUM: <ki. 17.301 gær)
Það er yfírleitt góð færð á þjóðvegum landsins. Á Vestfjörðum eru
Þorskafjarðar-, Tröllatungu- og Steinadalsheiðar ófærar, fært er um
Steingrímsfjarðar-, Dynjandis- og Hrafnseyrarheiðar. A Norðausturlandi
er fært orðið um Hólssand og Öxarfjarðarheiði. Hálendisvegir eru lokað-
ir vegna snjóa og aurbleytu, nema jeppafært er inn í Veiðivötn, Jökul-
heima og Herðubreiðarlindir. Uxahryggir hafa verið opnaðir. Viðgerðir á
klæðingum eru víða hafnar og eru vegfarendur beðnir eindregiö um að
virða hraðatakmarkanir vegna grjótkasts.
Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91-631500 og
á grænni Ifnu, 99-6315. Vegagerftin.
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
hitl vedur
Akureyri 8 1 f
Reykjavfk 10 skýjað
Bergen 12 léttskýjað
Helsinki 17 skýjað
Kaupmannahöfn 14 þrumuveður
Narssaresuaq 11 skýjað
Nuuk 6 léttskýjað
Ósló 17 skýjað
Stokkhólmur 13 úrkoma
Þórahöfn 6 rigning og súld
Algarve 28 heiðskfrt
Amsterdam 18 rigning og súid
Barcelona 23 hálfskýjað
Berlín 16 skúrir
Chicago 21 þokumóða
Feneyjar 24 léttskýjað
Frankfurt 23 skýjað
Glasgow 14 skúrir
Hamborg 15 rigning
London 18 skýjað
LosAngeles 18 mistur
Lúxemborg 21 skýjað
Madríd 30 akýjað
Malaga 27 skýjað
Mallorca 27 skýjað
Montreal 18 skýjað
NewYork 24 mlstur
Orlando 23 skýjað
Parls 23 léttskýjað
Madeira 22 léttskýjað
Róm 26 heiðskírt
Vfn 22 léttskýjað
Washlngton 24 mlstur
Winnlpeg 10 léttskýjað
ÍDAGkl. 12.00
HeimiW: Veöurstofa íslands
(Byggt á veöurspá kl. 16.15 í gær)
Mývetningar vilja
nýta heiðagæsavarp
Telja gæs skaðvald á gróðri hálendis
BÆNDUR í Mývatnssveit tefja brýnt að heimilað verði að nytja varp
heiðagæsar með eggjatöku, m.a. á friðlandinu við Herðubreiðarlindir,
en slíkt er nú óheimilt samkvæmt fuglafriðunarlögum. Að sögn Æv-
ars Petersens fuglafræðings liggur fyrir að undanfarin ár hefur stofn
heiðagæsarinnar margfaldast en eggjataka hefur lengi verið bönnuð
með lögum.
I vor skrifuðu bændur Náttúru-
verndarráði bréf vegna fyrirætlana
um eggjatöku í þeim hluta lands
Reykjahlíðar í Grafarlöndum og
Herðubreiðarlindum sem telst frið-
land en í svari Náttúruverndarráðs
var vísað til þess að landeigendum
sem og öðrum væri bannað að taka
egg heiðagæsa auk þess sem friðlýs-
ingin heimilaði ekki slíka nýtingu.
Að sögn Héðins Sverrissonar á
Geiteyjarströnd í Mývatnssveit, eins
fyrrgreindra bréfritara, vakti það
fyrir landeigendum þegar þeir rituðu
Náttúruverndarráði, að hreyfa mál-
inu í því skyni að ýta á að frumvarp
sem dagaði uppi á Alþingi í vor, feng-
ist afgreitt. Héðinn sagðist ekki vita
til þess að í ferð Mývetninga til að
hyggja að ástandi á þessum slóðum
hafi egg verið tekin úr gæsahreiðrum
á friðlandinu eða annars staðar,
a.m.k. ekki í neinum mæli.
Héðinn segir að Mývetningar telji
að gæsir séu sannkallaður vargur í
viðkvæmu gróðurlendi á norðanverðu
hálendinu og valdi þar margfaldri
landeyðingu á við sauðfé Mývetninga
sem mjög hafi verið amast við. Brýnt
sé að íeyfa nytjar varpsins, af þeim
sökum, auk þess sem nytjar varpsins
styðjist við aldagamla hefð.
Nýtt frumvarp leyfir
eggjatöku
í samtali við Morgunblaðið sagði
Þóroddur F. Þóroddsson fram-
kvæmdastjóri Náttúruverndarráðs
að samkvæmt óafgreiddu lagafrum-
varpi lægi fyrir sá vilji stjórnvalda
að leyfa nýtingu heðagæsa með
eggjatöku. Slíkt frumvarp hefði hins
vegar ekki fengið afgreiðslu og því
væri eggjatakan enn óheimil. Þór-
oddur sagðist ekkert geta fullyrt um
sannleiksgildi kenninga um að ásókn
gæsa í ræktað land ætti þátt í gróð-
ureyðingu.
Eins og fram hefur komið í Morg-
unblaðinu hafa íslenskum stjómvöld-
um m.a. borist fyrirspurnir frá Skot-
um vegna fjölgunar í stofni heiða-
gæsa og hvort unnt sé að grípa til
sameiginlegra aðgerða á vegum þjóð-
anna til að stöðva þá fjölgun.
Heyskapur verður
víða í seinna lagi
HEYSKAPUR hefst væntanlega ekki fyrr en undir mánaðamótin víð-
ast hvar á landinu, og er það í flestum tilfellum nokkuð seinna en
gengur og gerist í meðalári. Aðeins er vitað um að sláttur sé hafinn
á einum bæ, en það er á Grænumýri í Skagafirði þar sem sláttur hófst
um síðustu helgi.
Heyskaparhorfur á Suðurlandi
þykja ekki lakari nú en í meðalári og
er búist við því að einhveijir bændur
byiji að slá tún sín upp úr helginni.
Á Vesturlandi komu tún almennt
nokkuð vel undan vetri, og er búist
við að sláttur hefjist víða í lok næstu
viku. í Borgarfirðinum hefur spretta
verið heldur hæg vegna kulda í maí-
mánuði, og þá tafðist áburðardreifing
einnig nokkuð vegna hvassviðris.
Einnig er búist við að heyskapur verði
síðar á ferðinni í Húnavatnssýslum,
Tekinn með
amfetamín
26 ára maður var handtekinn á
Keflavíkurflugvelli í fyrradag
við komu frá Amsterdam. Hann
var með 60 grömm af amfetam-
íni í fórum sínum.
Maðurinn viðurkenndi við yfir-
heyrslur að hafa flutt efnið inn í
því skyni að selja það. Honum var
sleppt að loknum yfirheyrslum.
og almennt heijist sláttur þar um slóð-
ir ekki fyrr en eftir næstu mánaða-
mót. Spretta hefur verið hæg vegna
þurrka og kulda og nokkuð er um
kalskemmdir, en það fer þó frekar
eftir bæjum en svæðum.
Búist er við að heyskapur hefjist
almennt í Skagafirði eftir helgina,
og er það er um viku á eftir meðal-
ári. Þurrkar hafa háð sprettu í
Skagafirði, en þar hefur ekkert rignt
að heitið geti síðan í apríl. Heyskap-
ur í Eyjafirði verður miklu seinna á
ferðinni en í fyrra, en þá hófst slátt-
ur um 10. júní. Ekki er búist við að
heyskapur hefjist þar alveg á næstu
dögum nema verulega hlýni í veðri.
Kalskemmdir eru víða í Eyjafirði.
Á Austurlandi er búist við að slátt-
ur hefjist á Fljótsdal eftir viku til
hálfan mánuð, en þar hafa bændur
víða verið enn að bera á tún sín síð-
ustu daga. í úthéruðum á Austur-
landi er nokkuð um kal í túnum og
þar er einnig víða mikil bleyta um
þessar mundir. Hins vegar vantar
vætu í upphéruðum og þar hefur
spretta víða verið léleg vegna kulda.
Fjórtán sæmdir
riddarakrossi
FORSETI íslands, Vigdís Finn-
bogadóttir, sæmdi 14Islendinga
stórriddarakrossi og riddara-
krossi hinnar íslensku fálkaorðu
á þjóðhátíðardaginn, 17. júní.
Þeir sem voru sæmdir stórridd-
arakrossi voru Böðvar Bragason
lögreglustjóri í Reykjavík fyrir störf
í opinbera þágu og Indriði Pálsson
forstjóri í Reykjavík fyrir störf að
atvinnumálum.
Þeir sem voru sæmdir riddara-
krossi eru: Gestur Fanndal kaup-
maður Siglufírði, fyrir störf að fé-
lags- og atvinnumálum, Guðjón Ár-
mann Eyjólfsson skólastjóri Stýri-
mannaskólans fyrir störf að fræðslu-
málum sjómanna, Hanna Johann-
essen, Reykjavík, fyrir störf að líkn-
armálum, Jón I. Guðmundsson yfir-
lögregluþjónn Selfossi, fyrir störf
að félagsmálum, Jón Óíafsson bóndi
Eystra-Geldingaholti, Gnúpverja-
hreppi, fyrir störf að félagsmálum,
Jónas Bjarnason yfirlæknir Hafnar-
firði, fyrir læknisstörf, Jósafat Hin-
riksson forstjóri Rcykjavík, fyrir
störf að atvinnumálum, Markús
Runólfsson bóndi Langagerði, fyrir
uppgræðslu og skógrækt, Ólöf Kol-
brún Harðardóttir óperusöngvari
Reykjavík, fyrir störf að tónlist-
armálum, Rannveig Böðvarsson,
Akranesi, fyrir störf að útgerðar-
málum, Stefanía María Pétursdóttir,
formaður Kvenfélagasambands ís-
lands, Reykjavík, fyrir störf að fé-
lagsmálum og Þorkell Sigurbjörns-
son tónskáld fyrir tónsmíðar.
\
i
k
i
>
i
\
i
i