Morgunblaðið - 19.06.1993, Síða 5

Morgunblaðið - 19.06.1993, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 1993 5 Nú fer straumur vaxandi og menn vona hið besta er hann nálgast hámark 22. júní, en það er gamalfrægur laxa- straumur, kenndur við Jóns- messu. Ekki ördeyða í Elliðaánum Veiðin hefur farið rólega af stað í Elliðaánum eins og víðast hvar, en því fer þó fjarri að árn- ar séu dauðar. Þvert á móti er nokkuð gengið af laxi neðst í ánum. Og það reytist inn nýr fiskur dag hvern. Enginn lax veiddist að vísu í gærmorgun, en á þjóðhátíðardaginn veiddust 5 laxar og eru þá komnir 11 laxar á land. Laxarnir til þessa eru allir 3,5 til 5 pund utan eiijn sem vó 8,5 pund og veiddist á maðk í Fossinum. Aðeins einn lax hefur veiðst á flugu og var það Haukur Pálmason sem veiddi sinn „árlega“ flugulax á opnun- ardaginn. Þetta er að minnsta kosti þriðja árið í röð sem Hauk- ur dregur flugulax úr ánum á opnunardaginn og alltaf notar hann sömu fluguna, Þingeying, túpu. Rólegt í Dölunum Veiði hófst í Haukadalsá síðdeg- is á miðvikudag og viðmælandi Morgunblaðsins í veiðihúsinu vildi ekki segja annað um veiðina en að „örfáir laxar“ hefðu veiðst. Morgunblaðið hefur einnig fregnað að lítið eða ekkert hafi sést í ánni er hún var skyggnd upp úr og niður úr dagana síð- ustu áður en veiði hófst. Veiði er enn ekki hafin í Laxá í Dölum og hefst eigi fyrr en um næstu helgi. Sýnist vera vit í því að fresta opnun eins og Laxár- menn hafa gert, en ýmsir hafa stigið fram nú í vor og viðrað þá skoðun sína að margar ár séu opnaðar of snemma árs og rétt- ast væri að færa veiðitímann eitthvað aftur. Fylgni... Eðlilega velta veiðiáhuga- menn vöngum yfir hinni rólegu byrjun á laxveiðinni sem er á skjön við óvenjulega jákvæðar spár fiskifræðinga um laxagöng- ur í árnar í sumar. Þeir sem láta ekki bugast benda á réttilega að miðað við árferði hefði verið óeðlilegt ef allar ár hefðu verið orðnar fullar af fiski strax í upp- hafi. Kalt vor hafi ævinlega seinkað laxagöngum. Sumir hafa orðið til þess að rifja upp vertíð- ina 1979. Þá var mjög kalt vor og veiðin léleg allan júnímánuð. Loks er skilyrði voru orðin boðleg laxinum kom hann í torfum og veiðin var mjög góð sumarið á enda. Að sönnu hefði veiðin orð- ið miklu meiri ef árferði hefði leyft göngur snemma sumars, því mikið magn var eftir af fiski í ánum í vertíðarlok. Jón Gunnar Borgþórsson framkvæmdastjóri SVFR sagði í samtali við Morg- unblaðið í þessu sambandi að ekki mætti reikna með mark- tækri fylgni frá einu ári til þess næsta. „Við getum til dæmis skoðað síðasta sumar sem var afburðagott þótt skilýrði til veiða væru ekki upp á marga fiska hluta veiðitímans. Þá veiddust 395 laxar í júní í Norðurá og heildarveiðin varð 1.950 laxar. Sumarið 1988 var einnig af- burðagott veiðisumar þó Norð- urá færi að hluta til varhluta af því. Þá veiddust 413 laxar í júní, en heildarveiðin varð ekki nema 1.147 laxar. Það er því ljóst, að það er of snemmt að vera með spádóma, hvað þá að rétt sé að afskrifa sumarið þó það byiji rólega,“ sagði Jón Gunnar. Nokkrar nýlegar tölur... Veiðin í Laxá í Aðaldal gengur ekki sem verst og laxar úr henni nú komnir á sjöunda tuginn. Þar veiddist stærsti laxinn sem kom- inn er á land á þessu sumri í fýrrakvöld rúm 19 pund. Einn 16 pundari hefur einnig veiðst þar. Grímsá opnaði nýverið og veiddust 12 laxar upp í 10 pund fyrsta daginn, síðan datt veiðin nokkuð niður, en seinni partinn í fyrradag kom aftur skot og nokkrir veiddust. Lætur nærri að heildartalan sé um 20 laxar. Aðeins 25 til 30 laxar hafa veiðst í Laxá í Kjós, en menn hafa séð örlítið meira líf þar síðustu daga. . Morgunblaðið/Ingvar Hjolandi loggur TÆKJAKOSTUR lögreglunnar í Reykjavík er í sífelldri endurnýjun og fram- för. Auk fólksbíla, sendibíla, torfærubíla, bifhjóla og þyrlu eru lögreglumenn nú famir að stunda sitt starf á reiðhjólum. Þjóðhátíðardagurinn markaði upphaf þessarar nýlundu í starfi lögreglu höfuðborgarinnar, en þá voru tveir lögreglumenn, Bjöm Gíslason og Júlíus Óli Einarsson, hjólandi við eftirlit. Þessir tveir lögreglumenn, sem jafnframt hafa séð um eftirlit úr þyrlu Land- helgisgæslunnar, voru sérstaklega útbúnir til hjólreiðanna og að sjálfsögðu með öryggishjálma. Islandsflug fær nýja Dorniervél ÍSLANDSFLUG hefur tekið á leigu og samið um forkaupsrétt á Dorni- er 228/200K flugvél af norskum aðilum. Vélin kemur til landsins í kvöld og verður henni flogið í leigu- og áætlunarflugi.félagsms. Vélin er tekin á leigu fram á haust en að leigutímanum loknum tekur félag- ið ákvörðun um hvort það nýtir sér forkaupsréttinn. Þetta er önnur Dorniervélin í flota Islandsflugs. Félagið var rekið með verulegum hagnaði á síðasta ári, að sögn Omars Benediktssonar, sljómarformanns. )mar vildi ekki upplýsa hvert 200 og eina Piper Chieftain níu kaupverð vélarinnar yrði ef til þess kæmi að íslandsflug keypti hana. Markaðsverð slíkrar vélar er hins vegar um 100 milljónir kr. Islandsflug er nú með sex flugvél- ar í sinni þjónustu, tvær Dornier, tvær Beechcraft 99, eina Beechcraft sæta vél. Dorniervélin verður hrein viðbót við flugvélaflota íslandsflugs í sumar, en ef til þess kemur að félagið kaupir hana mun það selja aðra vél í staðinn, væntanlega aðra af tveimur 15 sæta Beechcraft 99 vélunum. DALVIK . 0 /P Hafið, Kæra Jelena, Ríta gengur menntaveginn þrjú af vinsælustu verkum leikársins á eftirtöldum stöðum íjúní: Lauga HAFff> h.-\FIÐ jr*| Ríta 'ydalir SAUÐARKROKUR PATREKSFJORÐUR AKUREYRI HAFíF) ) HAFIÐ BLONDUOS EGILSSTAÐIR bjud 29 slena: Sunnud. 20. lúní R'rta: Sunnud. 27. Júní KfSPfc HafiO eftir Ólaf Hauk SSmonarson Kæra Jelena eftir Ljudmilu Razumovskaju GCYMIÐ AUGLYSINGUNA ml&kuT&Íúnl Mánud. 21. Júní Ríta gengur menntaveginn eftir Willy Russel Miöapantanir í síma 91-11200 qlþ ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.