Morgunblaðið - 19.06.1993, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JUNI 1993
7
Tæplega tvö hundruð nemendur sitja á skólabekk í Iðnskólanum í sumar
Við tölvuna Hvíldinni fegnir Fatahönnun
MARÍANNA Olsen er ein fjölmargra nemenda sem leggja Arni Þráinsson og Svanberg Sigurðsson „vinna“ hjá Iðn- JENNÝ Árnadóttir hyggur á listnám í framtíðinni, en
munu stund á tölvufræði í sumar hjá Iðnskólanum. skólanum og stunda þar nám í málm- og tréiðnaðardeild. nemur fatahönnun í sumar.
Nám í stað atvinnuleysis
MARGA í nágrenni Iðnskólans í Reykjavík kann að undra að sjá
ungt fólk ganga í skólann á Skólavörðuholtinu þó að nokkuð sé lið-
ið frá lokum venjulegs skólaárs. Skýringar eru þó einfaldar því á
mánudaginn var hófst starfræksla sumarskóla fyrir ungt fólk á veg-
um Iðnskólans og Reykjavíkurborgar. Blaðamaður Morgunblaðsins
hitti fyrir nokkra sumarnemendanna og flest ef ekki öll þeirra kváð-
ust vera ánægð með veru sína í sumarskólanum enda skapar hún
þeim atvinnu um leið.
Tæplega tvö hundruð manns
settust á skólabekk síðastliðinn
mánudag og fá allir laun fyrir
skólasetuna. Þessi launaði sumar-
skóli stendur yfír í rúmar átta vik-
ur og segir Erla ívarsdóttir, einn
skipuleggjenda námsins, að þetta
sé tilraun til að sporna við atvinnu-
leysi. Hún segir fyrstu reynslu af
skólastarfinu góða og telur að nem-
endur séu almennt ánægðir með
þessa nýbreytni og að þetta fyrir-
komulag sé komið til að vera. Að
sögn hennar er mest sótt í fata-
hönnunardeild og tölvugreinar en
málmsmíðanám er einnig eftirsótt.
Fær námið metið íhaust
„Tölvunám mitt hér er nauðsyn-
legt þar sem ég stunda nám á við-
skiptasviði í Fjölbrautaskólanum í
Breiðholti og að öllum líkindum fæ
ég námið metið þar næsta haust,“
sagði hin tvítuga Maríanna Olsen
í samtali við Morgunblaðið. Hún
bætti því og við að þetta nám yrði
mjög mikilvægt fyrir atvinnumögu-
leika sína í framtíðinni. Maríanna
var þó ekki alveg sátt við að í sum-
arskólanum væru einungis kenndir
grunnáfangar í tölvufræðum og
upplýsti að í sumum tilvikum kunni
hún þegar til verka. En fór hún í
skólann vegna atvinnuleysis? „Nei,
ég átti kost á vinnu í sumar en
valdi heldur að koma hingað og
öðlast bæði mikilvæga menntun og
laun fyrir erfiðið,“ sagði Maríanna
ennfremur.
Úr fatahönnun í listnám
„Ég hafði verið atvinnulaus um
nokkurn tíma þegar ég las auglýs-
ingu um sumarnámið. Það var því
alveg tilvalið að skella sér í þetta,“
sagði hin sextán ára gamla Jenný
Arnadóttir. „Það hlýtur að vera
„toppurinn á tilverunni" að fá borg-
að fyrir að mennta sig,“ sagði hún
ennfremur. Framhaldið hjá Jennýju
er ákveðið: „Ég hygg á einhvers
konar listnám í haust og þá líklega
hér í Iðnskólanum." Hún segir
námið í sumarskólanum hafa höfð-
að til sín og að þar hafi hún þegar
eignast marga vini.
Halda áfram námi í haust
Félagamir Árni Þráinsson og
Svanberg Þór Sigurðsson veittu
viðtal fúslega þó þeir hafi verið
truflaðir í matarhléi sínu. „Nám
mitt í málmiðnaðardeild mun alveg
örugglega nýtast vel,“ útskýrir
Árni, „því ég mun líklega fara í
bifreiðasmíði í haust.“ Báðir kváð-
ust þeir vera afskaplega fegnir
þessu atvinnu- og menntunartæki-
færi en hvorugur þeirra hafði vinnu
þegar þeir sóttu um skólavist. „Ég
er aftur á móti tilbúinn að halda
áfram mínu námi hér í tréiðnaðar-
deild ef ég fæ enga vinnu í haust,“
sagði Svanberg að endingu.
Opið í sýningarsal okkar
ídag kl. 10:00 - 15:00.
Verið velkomin.
Mercedes-Benz
RÆSIR HF
Skúlagötu 59, sími 91-619550
Nýja C-línan
frumsýnd
um alla Evrópu
19. júní 1993.