Morgunblaðið - 19.06.1993, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 1993
9
Framkvæmdastjóri
fyrir Norræna húsið í Færeyjum
Norræna húsið í Færeyjum er norrænt menningarhús
sem miðlar norrænni menningu til Færeyinga, fær-
eyskri menningu til Norðurlandanna og styður og
kemur á framfæri færeyskri list og menningu.
Norræna húsið er í Þórshöfn og er fjármagnað af
Norrænu ráðherranefndinni og færeysku landsstjórn-
inni.
Staða framkvæmdastjóra Norræna hússins í Færeyj-
um er laus frá 1. apríl 1994 og er veitt til fjögurra ára.
Upplýsingar um stöðuna veita Bengt Göransson,
stjórnarformaður, sími 90 46 8 66 555 44, eða Jan
Klovstad, framkvæmdastjóri, í síma 90 298 17 900.
Sendið umsókn til Nordens Hus pá Færoyane, Boks
1260, FR-110 Tórshavn, fyrir 15. september 1993.
AWWVWWWW
Ver
utn
í 50 ár höfum við þjónað sportveiðimönnum dyggilega
með úrvali af gæðavörum oggóðum ráðum. Hvort sem
þú ert að byrja í sportveiðinni eða ert einn affengscelustu
veiðimönnum landsins, þá átt þú erindi til okkar.
JjSAbu
Garcia
Þrautreyndar sport-veiöivörur
á verði við allra hæfi.
.®
Flugustanpir og hjól.
Lífstíðar eign.
Scientific Barbour
|ers Besti fatnaöurinn fyrir versta veðrið.
Staersti framleiðandi flugulínu í heiminum.
Viðgerðarþjónusta
Lengdur opnunartími í sumar:
Föstudaga kl. 9-19. Laugardaga kl. 9-16
og sunnudaga kl. 10 - 16.
HAFNARSTRÆTI 5 ■ REYKJAVÍK ■ SÍMAR 91-16760 & 91-14800
” Meira en þú getur ímyndað þér!
co ____________
Reynslan
hvetur til
sveitarfélaga
irgir Ptirtkmon,
A tmu í JS6 vv* smiKrtvitQ svtxfewjan
~<i Mfc ftört » '
sn»ífwr» éfs 198$.
v«> »r {fc s is
a«tr- A&tx Ixvfíf v»rífc yrvtx'jkaii
v'w ■V»:>g-. vta.fym<v6>r: h*?* ttarf sftrr:
Þrír hreppar - Eyjafjarðarsveit
í byrjun árs 1991 gekki í gildi sameining
þriggja sveitarfélaga í Eyjafirði, Hrafna-
gilshrepps, Saurbæjarhrepps og Öngul-
staðahrepps. Varð til nýtt sveitarfélag
með tæplega þúsund íbúa. Hvern veg
hefur til tekizt?
Meiri þjón-
usta, hagræð-
ing, bættur
hagur
Birg’ir Þórðarson, odd-
viti Eyjafjarðarsveitar,
segir í Sveitarstjómar-
málum:
„Erfitt er að gera sér
glögga grein fyrir þeim
áhrifum sem sameiningin
hefur haft á fjármál
sveitarfélagsins þar sem
ýmsar breytingar urðu á
rekstrarþáttum við þau
tímamót. Launamál
sveitarfélagsins voru í
heild endurskoðuð frá
því sem verið hafði hjá
eldri sveitarfélögum. Það
leiddi til verulegrar
hækkunar á laimum bæði
til sveitarstj ómar og fyr-
ir almenn nefndastörf og
einnig bættust við störf
á skrifstofu.
Einnig hefur ýmis
þjónusta á vegum sveit-
arfélagsins verið aukin...
Þá hefur unglingavinna
veri tekin upp og stuðn-
ingur við frjáls félaga-
samtök hefur vaxið... Allt
þetta hefur haft í för með
sér aukin útgjöld fyrir
sveitarfélagið...
Þrátt fyrir þetta sem
nú hefur verið talið lækk-
aði rekstur málaflokka
sem hlutfall af skatttekj-
um, var 61% 1990 þegar
reikningar hreppanna
þriggja höfðu verið tekn-
ir saman en 58% 1991,
sem var fyrsta árið eftir
sameiningu.
Miðað við sömu ár
lækkuðu skuldir úr 50%
í 40% en peningaleg
staða hækkaði úr 1% í
18%, hvort tveggja sem
hlutfall af skatttekjum."
Bætt og skil-
virkara
nefndastarf
„Oft hefur það heyrst
að með stækkun sveitar-
félaga fjarlægist yfír-
stjómin íbúana. Það er
mín skoðun að þetta sé
ekki rétt, meðan stækk-
un er innan hóflegra
marka, og ég tel að
reynslan í Eyjafjarðar-
sveit styðji þá skoðun ...
Þá hefur einnig orðið
mikil breyting á starfi
nefnda sem kjömar em
af sveitarsljóm. Þeim
hefur að visu ekki verið
fjölgað en starf þeirra
hefur aukizt ngög og
með þátttöku í þeim
nefndastörfum fá margir
íbúanna vemleg tengsl
við málefni sveitarfélags-
ins og sveitarstjóm...“.
Fjórir skólar
sameinaðir
„Það varð síðan niður-
staðan eftir allítarlega
könnun að rétt væri að
sameina alla skólana í
einn skóla með 1.-10.
bekk. En áður vom á
sama svæði fjórir skólar,
þ.e. Laugalandsskóli, Sól-
garðsskóli og Grunnskól-
inn á Hrafnagili með
1.—7. bekk og Hrafna-
gilsskóli með 8.-10. bekk
Þetta var mjög róttæk
breyting sem mæltist
misjafnlega fyrir og olli
deilum í sveitarfélaginu.
Það er ljóst af þessari
reynslu að hugsanlegar
breytingar i skólamálum
em eitthvert viðkvæm-
asta málið varðandi sam-
einingu sveitarfélaga ...
Ekki er vitað annað en
sæmileg sátt riki um
skólahaldið nú, eftir að
það er hafíð í þessu nýja
formi, enda höfðu breyt-
ingamar ekki í för með
sér teljandi lengingu á
akstursleiðum eða annað
það sem væri nemendum
tíl ama...“
Reynslan hvet-
ur til stækkun-
ar sveitarfé-
laga
„Niðurstaða þessar-
ar samantektar er sú að
framangreind sameining
sveitarfélaga í Eyjafirði
hafi gengið vonum fram-
ar og að ekki séu nú fyr-
irsjáanlegir neinir sér-
stakir örðugleikar sem
af sameiningunni stafa.
Stærsti þátturinn í því
hversu vel hefur gengið
er óefað sá að sameining-
in gerðist með þróun en
ekki byltingu og í aU-
góðri sátt íbúanna. Það
er því mín skoðun að í
því starfí, sem er fram-
undan við endurskoðun á
skiptingu landsins i sveit-
arfélög, eigi að hafa það
að leiðarljósi að Uta til
aðstæðna á hveijum stað,
landf ræðilegra og félags-
legra, svo og vi\ja íbú-
anna. — En eftir stendur
að reynslan í Eyjafjarð-
arsveit hvetur tU stækk-
unar sveitarfélaga."
VINNINGSNUMER
í Happdrætti
Krabbameinsfélagsins
------ Dregiö 17. júní 1993. -
TOYOTA COROLLA LIFTBACK GLi: 16912 38019
TOYOTA STARLET XLi: 18045 35032
BIFREIÐ AÐ EIGIN VALI EÐA GREIÐSLA UPP í ÍBÚÐ.
VERÐMÆTI KR. 1.000.000: 3358 17325
VINNINGAR Á KR. 100.000:
Úttekt hjá Húsasmiðjunni, Radíóbúðinni, fataverslun, ferðaskrifstofu eöa húsgagnaverslun.
1681 20487 41415 54998 69565 89596 110261 132789
5741 21243 42481 55625 69856 90217 112791 134127
6342 21979 42514 55630 70619 . 92869 113163 136432
6919 22427 43246 55729 70652 92879 113381 141788
6944 22625 43302 58052 71714 94064 115411 142931
8795 25964 44643 58345 71786 99695 115691 144681
8963 35529 4555B 61784 78700 103610 122910 147112
9894 35869 45905 62090 79050 104746 124640 148414
9956 36384 48356 63826 83811 104813 125294 151465
12377 38421 48841 64032 84552 104978 125439
16146 39433 49720 66021 85265 107300 125498
17057 39538 51276 67418 85321 108043 127889
18319 40543 54042 69323 87529 109731 128575
Handhafar vinningsmiða framvísi þeim
á skrifstofu Krabbameinsfélagsins
að Skógarhlíð 8, sími 621414.
Krabbameinsfélagið
þakkar landsmðnnum
veittan stuðning. 5^
9
t Krabbameinsfélagið