Morgunblaðið - 19.06.1993, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 1993
13
Weetabix $
Vandaðar v 'órur á
betra veröi
Nýborg
Skútuvogi 4, sími 812470
Framkvæmdir við hana eru að vísu
hafnar, en þeim er þó ekki lengra
komið en svo að enn eru verkamenn
að berjast við sjávarföllin í grunnin-
um. Þess vegna er ennþá fullt svig-
rúm til að lækka þann hluta húss-
ins sem ráðgert er að gnæfi 10-15
metra yfir öll önnur hús í nágrenn-
inu og verði eins og skjöldur fyrir
framan bæinn þegar komið er til _
hans af sjó. Ég býst við að breyting- Kristján Bersi Olafsson
ar á húsinu núna kunni að kosta
bæinn einhveija peninga, en ég
held að bæjarbúar muni axla þær
byrðar með glöðu geði ef þeir sjá
að hægt verði með því að bjarga
bænum og bæjarstæðinu á síðustu
stundu.
Ef bæjarstjórnarmeirihlutinn
gerir þetta hins vegar ekki þá er
eins víst og að dagur fylgir nótt
að eftir næstu kosningar verður
hann ekki lengur meirihluti, heldur
fyrrverandi meirihluti. Og það væri
í rauninni skaði, því að hann hefur
gert svo margt ágæta vel á öðrum
sviðum.
Höfundur er skólameistari í
Hafnarfirði og talsmaður
félagsins Byggðarverndar.
Sódóma, Reykjavík til-
nefnd til sex verðlauna
Þessa helgi:
Tilboö - loölcvistur -
0
afsláttur
Alla daga: Skógarplöntur, tré, runnar,
kraftmold, kurl og sumarblóm.
JtM^ SKÓGRÆKTARFÉLAG REYKJAVIKUR
Fossvogsbletti 1, fyrir neðan Borgarspitalann, simi 641770. Beinn simi söludeildar 641777
Gulliö tækifæri meiri-
hlutans í Hafnarfirði
eftir Krislján Bersa
Olafsson
Nú er bæjarstjórinn í Hafnarfriði
hlaupinn frá borði af skútunni sem
hann hefur stýrt undanfarin ár og
tekinn við hásetastarfi á stærra
fleyi. Hann skilur eftir sig höfuð-
lausan her, flokk bæjarfulltrúa sem
hafa haft það hlutskipti að vera
atkvæðavélar en litlu getað ráðið
um stefnu og ákvarðanir. Einhver
úr þeirra hópi tekur sjálfsagt fljót-
lega við starfí bæjarstjóra og eftir
tæpt ár mun hópurinn ganga til
kosninga með þá ábyrgð á baki að
þurfa'að veija ákvarðanir sem hann
hefur ekki átt nema málamynda-
þátt í að taka. Það er ekki að öllu
leyti vont hlutskipti, því að margar
þessara ákvarðana hafa verið góðar
og hveijum manni til sóma að hafa
léð þeim atkvæði sitt. En aðrar
hafa verið vondar, svo vondar að
útilokað er fyrir Hafnfirðinga að
endurkjósa tii forystu það fólk sem
á þeim ber ábyrgð — nema það sjái
að sér í tíma og leiðrétti verstu vill-
umar.
En núna eiga bæjarfulltrúar Al-
þýðuflokksins gullið tækifæri. Þeir
hafa hingað til fýrst og fremst ver-
ið atkvæðavélar, verkfæri til að
samþykkja ákvarðanir leiðtogans.
En núna eru þeir orðnir fijálst fólk
og geta farið að taka ákvarðanir í
samræmi við raunverulegan vilja
sinn, sem oftar en ekki endurspegl-
ar vilja bæjarbúa. Og það eiga þeir
að gera og þurfa að gera, ef þeir
ætla að gera sér einhveijar vonir
um að halda hlut sínum við næstu
kosningar. Þar ætti fyrsta verkið
að vera að koma til móts við þann
eindregna vilja bæjarbúa að svip
og yfirbragði bæjarins verði ekki
„Ef bæjarstjórnar-
meirihlutinn gerir
þetta hins vegar ekki
þá er eins víst og að
dagur fylgir nótt að
eftir næstu kosningar
verður hann ekki leng-
ur meirihluti, heldur
fyrrverandi meirihluti.
Og það væri í rauninni
skaði, því að hann hefur
gert svo margt ágæta
vel á öðrum sviðum.“
gjörbreytt og ásýnd hans í rauninni
eyðilögð.
Á liðnum vetri voru afhentar
undirskriftir frá öðrum hveijum
kjósanda í bænum þar sem lagst
var gegn áformum um að byggja
yfírgengilegt húsbákn í hjarta bæj-
arins, við Fjarðargötu. Það hefur
ekkert farið á milli mála að megin-
þorri bæjarbúa er andsnúinn þess-
um áformum, og vill að bærinn fái
að vera í friði, þ.e. segir sveiattan
við öllum mikilmennskuhugmynd-
um um Manhattan. En bæjarstjór-
inn brotthlaupni hefur tekið þessum
andmælum bæjarbúa með valds-
mannshroka og nú í vor lét hann
atkvæðavélar sínar samþykkja í
bæjarstjóm að það jafngilti lækkun
á húsinu að draga efstu hæðina
örlítið inn og miða hæðarmæling-
una á húsinu við axlir þess en ekki
hvirfil.
Enn er ekki of seint að gera
umrædda byggingu skaplegri.
Alpen morgunmatur er hollur og orkuríkur matur fyrir þá sem
skila löngu dagsverki. Trefjarnar fyrir meltinguna og
vítamínin bæta heilsuna.
ALPEN ER KRÖFTUGT OG GOTT MORGUNKORN.
KVIKMYNDIN Sódóma Reykja-
vík hefur verið tilnefnd til sex
verðlauna í keppni um Norrænu
Vitna að hjól-
reiðaslysi leitað
Slysarannsóknadeild lögregl-
unnar í Reykjavík lýsir eftir vitn-
um að slysi sem varð á Bústaða-
vegi um klukkan 21.30 að kvöldi
þriðjudagsins 15. júní. Hjólreiða-
maður á leið vestur Bústaðaveg
féll i götuna og slasaðist við að
forðast að rekast á bíl sem ekið
var í veg fyrir hann.
Ökumaður á aðvífandi bíl aðstoð-
aði hjólreiðamanninn en hann þurfti
síðan að leita til slysadeildar og var
lagður inn á sjúkrahús vegna
meiðsla á öxl og höfði. Lögreglan
óskar eftir að ná tali af ökumannin-
um, svo og öðrum hugsanlegum
vitnum að því sem þarna gerðist.
kvikmyndaverðlaunin „Amanda
93“ á kvikmyndahátiðinni í
Haugesund í Noregi dagana
23.-28. ágúst 1993.
Eftirfarandi listamenn hafa verið
tilnefndir: Óskar Jónasson fyrir
bestu mynd og leikstjórn, Björn
Jörundur Friðbjörnsson sem besti
karlleikari í aðalhlutverki, Eggert
Þorleifsson sem besti leikari í auka-
hlutverki, Óskar Jónasson fyrir
besta handrit, Sigurður Sverrir
Pálsson fyrir kvikmyndatöku og
Siguijón Kjartansson fyrir bestu
kvikmyndatónlistina.
Listamennirnir verða gestir há-
tíðarinnar við verðlaunaafhending-
una sem fram fer 26.-28. ágúst
1993.
(Fréttatilkynning)
iFéLAG
stoínab 15,48