Morgunblaðið - 19.06.1993, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 19.06.1993, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JUNI 1993 19 Prestastefna 1993 haldin í Reykjavík hefst á mánudaginn PRESTASTEFNAN 1993 verð- ur haldin í Reykjavík dagana 21.-23. júní nk. Prestastefnan hefst með messu í Dómkirkj- unni mánudaginn 21. júní kl. 10.30. Sr. Geir Waage, formað- ur Prestafélags Islands, predik- ar en á þessu ári er minnst 75 ára afmælis Prestafélagsins. Altarisþjónustu annast sr. Ag- nes Sigurðardóttir, sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir, sr. Hjalti Guðmundsson og sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson. Dómkórinn syngur Morgunblaðið/Einar Falur Ungir bridsspilar- ar á Norðurlandamót Norðurlandamót í brids í flokki yngri spilara verður haldið í Dan- mörku 20.-26. júní. Keppt er í flokk- um 25 ára og yngri og 20 ára og yngri og tekur Island þátt í báðum flokkunum. í mótinu taka þátt lið frá íslandi, Danmörku, Finnlandi, Noregi, Svíþjóð og Færeyjum sem nú eru með í fyrsta skipti. íslensku spilararnir eru, taldir frá vinstri: Hlynur T. Magnússon, Sveinn Rún- ar Hauksson, Steinar Jónsson, Tryggvi Ingason, Hrannar Erlings- son, Halldór Sigurðarson, Ólafur Jónsson og Ragnar Torfi Jónasson og Matthías Þorvaldsson sem er fyrirliði beggja liðanna. Nigel Kennedy og hljómsveit. Heimsfrægi og óútreiknanlegi fiðlusniliingurinn, sem sameinar á svo listilegan hátt jass, rokk og klassíska tónlist heldur hér einstæða tónleika. U ALÞJÓÐLEC > LISTAHÁTIO I HAFNAREIIU>I 4.-30. |UNI LISTIN ERFYRIRALLA! Pantið miða tímanlega! Upplýsingar og miðapantanir í síma 65 49 86. Aðgöngumiðasala: Bókaverslun Eymundsson í Borgarkringlunni og við Austurvöll. Hafnarborg, Strandgötu 6, Hafnarfirði. Myndlistarskólinn í Hafnarfirði, Strandgötu 50. undir stjórn Marteins H. Friðriks- sonar. Setningarathöfn Prestastefn- unnar hefst kl. 14 í Áskirkju, þar sem fundir stefnunnar verða haldnir. Þar fiytur biskup íslands, herra Ólafur Skúlason, yfirlits- ræðu sína. Að setningarathöfninni lokinni mun fræðsludeild kirkjunn- ar kynna undirbúning að djákna- námi, starfsemi” Leikmannaskól- ans og störf fermingastarfanefnd- ar. Þá verður lögð fram skýrsla frá nefnd um safnaðaruppbygg- ingu. Tvö meginefni liggja fyrir Prestastefnunni að þessu sinni. Fjallað verður um embættin í kirkjunni, um það efni halda fyrir- lestra dr. Einar Sigurbjörnsson prófessor og sr. Bragi Skúlason sjúkrahúsprestur. Þá verður fjall- að um kirkjueignir og þær viðræð- ur milli ríkis og kirkju er nú standa yfir, um þau efni gefa skýrslur sr. Þórhallur Höskuldsson, formaður kirkjueignanefndar þjóðkirkjunn- ar, og sr. Halldór Gunnarsson, formaður synodalnefndar um vörslu kirkjueigna. Prestastefnunni lýkur síðdegis á miðvikudag. Prestmökum er boðið í biskupsgarð þriðjudagseft- irmiðdag. Samvera presta og guð- fræðinga verður í biskupsgarði á miðvikudagskvöld. (Fréttatilkynning) FRÁBÆR NÁMSKEIÐ fyrir krakka frá 11 ára - og fullorðna Kennsla fer fram í nýjum seglbrettaskóla við HAFRAVATN, rétt við borgarmörkin. Allur búnaður er miðaður við stærð og getu þátttakenda. Strætisvagnar ganga frá Grensás að Mosfellsbæ og eru þeir sem þess óska sóttir þangað. HÓPURI Kl. 13:00 - 16:00 HÓPL'R 2 Kl. 16:00 - 19:00 HÓPL R 3 (lúllorðnir) Kl. 19:00 - 21:30 Námskeið 14. júní - 19. júní 21.júní - 25.júní 28. júní - 02. júlí 05. júlí - 09. júlí 12. júlí - 16. júlí 19. júlí - 23. júlí 26. júlí - 30. júlí 03. ágúst - 07. ágúst Sli ætóno. 175 Frá (Irensás: Kl. 12:39 Kl. 15:39 Kl. 18:39 ii- i Mosfellsba;: Kl. 16: IS Kl. 19:18 Verð aðeins kr. 5.000,- (Lán á búnaði, námsgögn og grillveisla innifalin) Upplýsingar og skráning í síma: 985-34339 og 666218 VRðJPKÞAð

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.