Morgunblaðið - 19.06.1993, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 1993
25
Á sunnudeginum er fjölskylduferð
á Selatanga en Ferðafélagið leggur
einmitt áherslu á ferðir fyrir alia fjöl-
skylduna. Farið verður kl. 13 í þá
ferð og litast um í þessari fornu ver-
stöð sem hefur að geyma merkar
minjar um útræði fyrri tíma. Á
sunnudagsmorgninum kl. 10.30 er
gönguferð í Reykjanesfólkvangi frá
Grænavatni að Vatnshlíðarhomi.
Mánudagskvöldið 21. júní er svo sól-
Fornbílamenn koma með glæsi-
bíla sína á Sögutorg á morgun og
gamli líkbíllinn verður á staðnum,
Ford 1937, sem notaður var í 30
ár til að keyra Hafnfirðinga síðasta
spölinn. Söfnin við torgið, Sjóminja-
Kristinn H. Gunnarsson um ágreining í Alþýðubandalaginu
Formaimstíð Olafs
er liðin eftir hefð
Birkiplöntur í veganesti
Á undanförnum ámm hefur áhugi landsmanna á landgræðslu og skóg-
rækt margfaldast. Fyrir helgina bauð Skógrækt ríkisins að Mógilsá
öllum þeim sem voru á leið út úr bænum að heimsækja rannsóknastöð-
ina og þiggja faglegar ráðleggingar starfsmanna um skógrækt. í vega-
nesti fékk hver fjölskylda eina birkiplöntu af Bæjarstaðakvæmi til
gróðursetningar. Skógræktin og Skeljungur hf. hafa tekið upp form-
legt samstarf á sviði skógræktar og er framlag fyrirtækisins tengt sölu
á bensínstöðvum þess undir slagorðinu „Skógrækt með Skeljungi"
Myndin er tekin við þetta tækifæri.
Ferðafélagsferðir
um sumarsólstöður
FERÐAFÉLAG íslands efnir til fjölda ferða í kringum sumarsólstöð-
urnar. Árleg sólstöðuganga á Kerhólakamb Esju er farin í kvöld,
laugardaginn 19. júní, með brottför kl. 20. Þátttakendur geta einnig
komið á eigin farartækjum að Esjubergi.
stöðuganga á Keili og miðvikudags-
kvöldið 23. júní verður Jónsmessu-
næturganga sem að þessu sinni er
um Sandfell í Heiðmörk. Þær ferðir
eru kl. 20 en brottför í allar ferðirn-
ar er frá Umferðarmiðstöðinni, aust-
anmegin.
Alla sunnudaga frá sunnudeginum
20. júní verða svo einsdagsferðir kl.
8 í Þórsmörk en helgarferðir þangað
eru þegar hafnar um hverja helgi.
KRISTINN H. Gunnarsson þingmaður Alþýðubandalags á Vestfjörðum
sagði í samtali við Morgunblaðið að „mjög harður málefnalegur ágrein-
ingur“ um sjávarútvegsmál hefði komið fram á miðstjórnarfundi Al-
þýðubandalagsins á Sauðárkróki dagana 12.-13. júní. Kristinn sagði
að miðað við venjur og óskrifaða reglu Alþýðubandalagsins sé tími
Ólafs Ragnars Grímssonar liðinn í embætti flokksformanns.
Alþýðubandalagið hélt miðstjórn-
arfund á Sauðárkróki 12.-13. júní.
Átök og deilur voru á þessum fundi
og hefur Morgunblaðið fregnað að
þingmaður Vestfirðinga, Kristinn H.
Gunnarsson, hafi m.a. deilt á Ólaf
Ragnar Grímsson formann Alþýðu-
bandalagsins og hugmyndir hans um
þjóðstjóm. Kristinn gagnrýndi ríkis-
stjórnina fyrir að fylgja markvisst
„gjaldþrotastefnu" til að „úrelda
byggðarlög á íslandi". Samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins sagði
Kristinn H. Gunnarsson síðan: „Það
eru blindir menn sem halda að hægt
sé að mynda þjóðstjórn eða skapa
samstöðu með þessum flokkum um
langtímaaðgerðir í sjávarútvegi."
Það hefur komið fram í fjölmiðlum
að miðstjórnarmenn Alþýðubanda-
lagsins áttu í nokkrum erfiðleikum
að ná samstöðu um ályktun um sjáv-
arútvegsmál. Kristinn H. Gunnars-
son flutti tillögu þar sem kveðið var
á um að réttur byggðarlaganna til
auðlindarinnar væri virtur og að afla-
kvótar eða veiðileyfi væru aðeins til
eigin afnota. Ef útgerð hætti þá yrði
afnotarétti ráðstafað tii útgerðar í
sama sveitarfélagi. Þessi breytingar-
tillaga hlaut ekki afgreiðslu en var
vísað til þingflokks og framkvæmda-
stjómar.
Kristinn H. Gunnarsson.
Fombíladagur við
Sögutorg í Hafnarfírði
Fornbiladagur verður við Sögutorg Bjarna riddara við Vesturgötu
í Hafnarfirði á morgun, sunnudag. Þar gengur Bjarni riddari um í
búningi sínum, segir sögur frá gamalli tíð og leikur á harmonikku.
safn íslands og Byggðasafn Hafn-
arfjarðar, verða opin alla daga í
sumar frá kl. 13-17. Gríðarleg að-
sókn hefur verið að nýrri sýningu
í Sjóminjasafninu, „Fiski og fólki“.
(Fréttatilkynning)
Til fyrra horfs
Kristinn H. Gunnarsson sagði í
samtali við Morgunblaðið að breyt-
ingartillaga sín hefði verið flutt
vegna óvæntra breytinga sem gerðar
hefðu verið á þeirri tillögu sem upp-
haflega hefði legið fyrir miðstjórnar-
fundinum. Steingrímur J. Sigfússon
varaformaður flokksins og Jóhann
Ársælsson nefndarmaður í sjávarút-
vegsnefnd Alþingis hefðu áður unnið
tillögu í samráði við sjávarútvegshóp
flokksins. í upphaflegu tillögunni
hefði verið sagt: „Framsal kvóta
verði afnumið og á næstu þrem til
fjórum árum verði byggt á veiðiheim-
ildum án framsalsmöguleika eða út-
gerðaraðilum með jafngildum hætti
tryggður eðlilegur og sanngjarn að-
lögunartími að breyttri fískveiði-
stjórn. Leyfð verði skipti á jafngild-
um veiðiheimildum og sveigjanleiki
hafður fyrir hendi til að mæta mis-
munandi stöðu fyrirtækja."
Kristinn sagði að fyrrgreind tillaga
hefði verið kynnt á þingflokksfundi
og engar athugasemdir verið gerðar
þar. En hins vegar hefði brugðið svo
við á Sauðárkróki að formaður
flokksins, Ólafur Ragnar Grímsson,
hefði beitt sér mjög hart gegn því
að framsal kvóta yrði afnumið. Ólaf-
ur Ragnar hefði meira að segja haft
um það orð að flokkurinn gæti ekki
myndað trúverðuga sjávarútvegs-
stefnu nema einhveijir tilteknir
flokksmenn skrifuðu upp á þessa
stefnu, þ.e.a.s. flokksmenn sem
stjórnuðu sjávarútvegsfyrirtækjum.
Aðspurður sagðist Kristinn hafa
skilið tilvísun Ólafs Ragnars þannig
að þessir „tilteknu" væru búsettir í
Neskaupstað, Húsavík og Siglufirði.
Kristinn sagði endanlega ályktun
miðstjómar Alþýðubandalagsins
„bræðing" með orðalagi sem væri
haldlítið: „ Að á meðan á endurskoðun
fiskveiðistefnunnar stendur verði
tekið á þeim vandamálum sem frjálst
framsal kvóta hefur skapað með
reglum sem takmarka það, m.a,
þannig að forkaupsréttur sveitarfé-
laga verði látinn ná til aflaheimilda
en ekki einungis skipa og athugað
verði hvort aflaheimildir skuli renna
til ríkisins við gjaldþrot eða til nýrrar
ráðstöfunar með tilliti til atvinnu-
sjónarmiða." Kristinn sagði að hon-
um hefði skilist á Ólafi Ragnari og
miðstjórnarmönnunum Merði Árna-
syni og Má Guðmundssyni, að ekki
væri fastbundið að þessum gjald-
þrotakvóta yrði ráðstafað til þess
byggðarlags þar sem þrotabúið væri.
Þeir hefðu verið ófáanlegir til að
samþykkja að byggðin ætti einhvern
rétt umfram aðra.
Kristinn H. Gunnarsson sagði að
hér væri um „mjög harðan málefna-r
legan ágreining um framsal afla-
heimilda og um rétt byggðarlaga að
ræða, þar sem ég vil halda mér við
markaða stefnu flokksins". Það væri
mjög merkilegt að formaður Alþýðu-
bandalagsins stillti sér upp sem tals-
manni fijáls framsals og sem and-
stæðingi þess að byggðarlögin hefðu
einhvern rétt umfram aðra. Hér áður
fyrr hefði Ólafur Ragnar talað á allt
öðrum nótum.
Liðin tíð
Morgunblaðið spurði Kristin Hj.
Gunnarsson hvort hann væri að lýsa
stuðningi við hugsanlegt mótfram-
boð gegn Ólafi Ragnari Grímssyni í
embætti formanns Alþýðubandalags-
ins. Kristinn sagði að miðað við hefð
og venjur í Alþýðubandalaginu væri
tími Ólafs Ragnars Grímssonar sem
flokksformanns liðinn. Enginn for-
maður Alþýðubandalagsins hefði set-
ið lengur en þijú kjörtímabil, þetta
væri regla í Alþýðubandalaginu, þótt
óskrifuð væri. Kristinn sagðist sam-
mála þeirri afstöðu sem Ólafur Ragn-
ar Grímsson hefði tekið árið 1987
að ekki væri rétt að formaður sæti
lengur en þijú kjörtímabil í röð. Það
bæri frekar að líta á framboð Ólafs
Ragnars nú sem mótframboð gegn
öðrum frambjóðendum.
itteásíur
r
a
morgutt
ÁSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11.
Sr. Ólafur Jchannsson messar.
Sóknarprestur.
BÚSTAÐAKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11. Organisti Guðni Þ. Guö-
mundsson. Pálmi Matthíasson.
DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11. Alt-
arisganga. Organisti Kjartan Sig-
urjónsson. Kammerkór Dómkirkj-
unnar syngur. Sr. Hjalti Guð-
mundsson. Mánudagur kl. 10.30.
Messa við setningu prestastefnu
íslands. Sr. Geir Waage formaður
prestafélagsins predikar. Altaris-
þjónustu annast sr. Solveig Lára
Guðmundsdóttir og sr. Agnes
Sigurðardóttir ásamt Dómkirkju-
prestunum. Altarisganga. Dóm-
kórinn syngur. Organisti Marteinn
H. Friðriksson.
ELLIHEIMILIÐ GRUND: Guðs-
þjónusta kl. 14. Sr. Stefán Lárus-
son messar. Organisti Kjartan
Ólafsson. Félag fyrrverandi sókn-
arpresta.
GRENSÁSKIRKJA: Messa kl. 11.
Altarisganga. Prestur sr. Halldór
S. Gröndal. Organisti Árni Arin-
bjarnarson.
HALLGRÍMSKIRKJA: Messa kl.
11. Sr. Karl Sigurbjörnsson.
Þriðjudag: Fyrirbænaguðsþjón-
usta kl. 10.30. Beöiö fyrir sjúkum.
LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10.
Sr. Bragi Skúlason.
HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11.
Sr. Jón Bjarman. Kvöldbænir og
fyrirbænir eru í kirkjunni á mið-
vikudögum kl. 18.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guð-
brands biskups. Guðsþjónusta kl.
11. Prestur sr. Sigrún Öskarsdótt-
Guðspjall dagsins:
(Lúk. 14). Hin mikla
kvöldmáltíð.
ir. Organisti Jón Stefánsson. Kór
Langholtskirkju (hópur I) syngur.
Molasopi að lokinni guðsþjón-
ustu.
LAUGARNESKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11. Prestur sr. Jón D.
Hróbjartsson. Organisti Ronald
Turner.
NESKIRKJA: Guðsþjónusta kl.11.
Barnastund á sama tíma. Sr.
Frank M. Halldórsson. Miðviku-
dag: Bænamessa kl. 18.20. Sr.
Frank M. Halldórsson.
SELTJARNARNESKIRKJA:
Messa kl. 11. Organisti Hákon
Leifsson. Prestur sr. Solveig Lára
Guðmundsdóttir. Miðvikudag:
Kyrrðarstund kl. 12. Söngur, altar-
isganga, fyrirbænir. Léttur hádeg-
isverður í safnaðarheimilinu.
ÁRBÆJARKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11 árdegis. Organisti Sigrún
Steingrímsdóttir. Sr. Guðmundur
Þorsteinsson.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11. Organisti Daníel Jón-
asson. Samkoma ungs fólks með
hlutverk kl. 20.30. Sr. Gísli Jónas-
son.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 20.30. Prestur sr.
Guðmundur Karl Ágústsson.
Sönghópurinn Án skilyrða sér um
tónlist. Prestarnir.
HJALLAKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11. Prestur dr. Sigurjón Árni Eyj-
ólfsson, héraðsprestur. Kór
Hjallakirkju syngur. Organisti
Kristín G. Jónsdóttir. Kristján Ein-
ar Þorvarðarson.
KÓPAVOGSKIRKJA: Messa kl.
11. Altarisganga. Sr. Þorbergur
Kristjánsson.
SEUAKIRKJA: Kvöldguðsþjón-
usta kl. 20. Sönghópurinn Smá-
vinir syngur. Organisti Kjartan
Sigurjónsson. Sóknarprestur.
SAFNKIRKJAN í Árbæjarsafni:
Guðsþjónusta kl. 14. Prestur sr.
Þór Hauksson.
FRÍKIRKJAN, Rvík: Guðsþjónusta
kl. 11. Fermdur verður Vilberg
Þráinsson, Kletti, Reykhóla-
hreppi. Organisti Pavel Smid.
Cecil Haraldsson.
KRISTSKIRKJA, Landakoti:
Messa kl. 8.30. Hámessa kl.
10.30. Messa kl. 14. Ensk messa
kl. 20. Laugardaga messa kl. 14
og ensk messa kl. 20. Aðra rúm-
helga daga messur kl. 8 og kl. 18.
MARÍUKIRKJA, Breiðholti:
Messa kl. 11. Alla rúmhelga daga
messa kl. 18.30.
KFUM og KFUK/SÍK: Samkoma
kl. 20.30 í Kristniboðssalnum.
Ragnar Gunnarsson talar. Vfir-
skrift: Þér munuð öðlast kraft —
og verða vottar mínir.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelf-
ía: Brauðsbrotning kl. 11. Ræðu-
maður Hafliði Kristinsson. Al-
menn samkoma kl. 20. Mikil og
fjölbreytt dagskrá. Allir hjartan-
lega velkomnir.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Kl. 19.30
bæn. Kl. 20 hjálpræðissamkoma.
Kveðjusamkoma fyrir flokkstjór-
ana Elbjörg og Thor Kvist og Jan
Henning. Brikador Óskar Jóns-
son, hermannaleiðtogi, stjórnar.
FÆR. sjómannaheimilið: Sam-
koma sunnudaginn kl. 17. Allir
velkomnir. Kaffiveitingar.
GARÐASÓKN: Guðsþjónusta í
Garðakirkju kl. 11. Sr. Bjarni Þór
Bjarnason messar. Ingibjörg Guð-
jónsdóttir, sópran, syngur. Hildi-
gunnur Halldórsdóttir leikur á
fiðlu. Kór kirkjunnar syngur. Org-
anisti Ferenc Utassy. Sr. Bragi
Friðriksson.
VÍÐISTAÐASÓKN: Guðsþjónusta
kl. 11. Prestur sr. Bragi Friðriks-
son. Kór Víðistaðasóknar syngur.
Organisti Ulrik Ólason. Sigurður
Helgi Guðmundsson.
KAPELLA St. Jósefssystra,
Garðabæ: Þýska messa kl. 10.
KAPELLAN St. Jósefsspítala:
Messa kl. 10.30. Rúmhelga daga
messa kl. 18.
KARMELKLAUSTUR: Messa kl.
8.30. Rúmhelga daga messa kl. 8.
KAÞÓLSKA kapellan, Keflavfk:
Messa kl. 16.
SELFOSSKIRKJA: Messa sunnu-
daginn 20. júní kl. 10.30. Sóknar-
prestur.
STOKKSEYRARKIRKJA: Messa
kl. 14. Prestur sr. Þór Hauksson.
AKRANESKIRKJA: Messa kl. 11.
Altarisganga. Björn Jónsson.