Morgunblaðið - 19.06.1993, Page 28

Morgunblaðið - 19.06.1993, Page 28
28 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 1993 Sigurgeir Krist- jánsson, Vestmanna- eyjum - Minning Fæddur 30. júlí 1916 Dáinn 5. júní 1993 Laugardaginn 19. júní verður til moldar borinn Sigurgeir Kristjáns- son, bróðir minn og mágur, og vilj- um við hér minnast hans örfáum orðum. Vissulega hefði sæmt að minnast hans í ljóðum, þvi að hann var mikill ljóðaunnandi og sjálfur vel hagmæltur og fagurkeri. Sigurgeir var fæddur á hinu forna frægðarsetri Haukadal í Biskups- tungum og var hann næstelstur barna þeirra Guðbjargar Greipsdótt- ur og Kristjáns Loftssonar, en þau voru síðustu ábúendur þar. Hann ólst upp með foreldrum sínum í Haukadal til þrettán ára aldurs, en þá fluttist hann með þeim að Felli í Biskupstungum. Þrátt fyrir að Sigurgeir flyttist til Vestmannaeyja og skipaði sér þar í fremstu röð athafnamanna og starfaði af alhug að velferðarmálum eyjanna, þá áttu bernskustöðvamar ávallt mjög ríkan þátt í huga hans. Sérstaklega leituðu land og saga ^Haukadals sterkt á huga hans. Sig- urgeir var mjög minnugur á allar gamlar frásagnir og þjóðlegan fróð- leik, jafnframt því sem hann gjör- þekkti þar landið og landslagið. Þetta gat hann fléttað saman á lif- andi hátt, þar sem létt og glaðvær frásagnarlist var honum ríkulega í blóð borin. Við kynntumst sérstak- lega vel þessum eiginleikum hans, þegar við unnum með honum að undirbúningi niðjamóts vorið 1983. í rauninni höfum við notið þessarar frásagnarlistar hans á hverri sam- —'terustund með honum og nú síðast þegar við heimsóttum hann á Land- spítalann í miðri banalegunni. Okkur er kunnugt um að hugur Sigurgeirs stóð mjög til þess að nota eftirlaunaárin til að skrásetja sögur og sagnir frá Haukadal ásamt land- og örnefnalýsingum þáðan. Kæddum við oft um þau mál og ekki þarf að efast um það að honum hefði farist það vel úr hendi. Því miður fór sjón hans fljótlega að láta sig eftir að hann lét af störfum, svo að lítið varð úr skriftum. Þetta hörmum við mikið því að við erum í engum vafa um að með Sigurgeiri fór mikill fróðleikur um Haukadal, sem hvergi er að finna lengur. Nú þegar við kveðjum.Sigurgeir að leiðarlokum minnumst við hins vörpulega manns með allri sinni glaðværð og glettnu frásagnarlist. Við látum öðrum eftir að rekja hans margþættu ævistörf. Við flytjum Björgu, eftirlifandi eiginkonu hans, bömum og bamabömum okkar inni- legustu samúðarkveðjur. Áslaug og Guttormur. Ég vil með fáeinum orðum minn- ast tengdafóður míns Sigurgeirs Kristjánsonar fyrrverandi forstjóra og bæjarfulltrúa í Vestmannaeyjum, "evi jiann lést 5. júní sl. Ég átti því láni að fagna að kynn- ast Sigurgeiri náið og tel ég að með honum sé genginn mikill mann- kosta- og merkismaður. Sigurgeir var fæddur 30. júlí 1916 í Haukadal í Biskupstungum. Foreldrar hans voru Kristján Lofts- son og Guðbjörg Greipsdóttir, bú- endur í Haukadal, en fluttust síðan að Felli í sömu sveit. Sigurgeir var af þeirri kynslóð sem ólst upp við erflð og takmörkuð kjör og var því mjög ungur er hann fór að vinna *."ið hlið foreldra sinna. Enda þótt hann hafí ekki liðið skort á uppvaxt- arárunum var lífbaráttan hörð. Tel ég víst að aðstæður fólksins í kring- um hann hafl markað hann mjög, en Sigurgeir hafði ríka réttlætis- kennd. Varð honum jafnan að orði þegar talað var um breytta tíma „að þeir hefðu mátt batna" því að hann fagnaði mjög jafnari lífkörum. Sigurgeir fór í íþróttaskólann í Haukadal til frænda síns Sigurðar Greipssonar og lauk þaðan prófí árið 1933. Hann fór síðan í Búnað- arskólann á Hvanneyri og lauk prófí þaðan 1937. í framhaldi af því fór hann til náms í búfræðum til Sví- þjóðar og er heim kom tók hann við bústjóm í Laugardælum og gegndi hann því starfi til ársins 1950. Mesta hamingjan í lífí tengdapabba var þegar hann kynnt- ist tengdamömmu, henni Björgu. Vom þau samhent í lífínu og sýndu hvort öðm ætíð mikla ástúð og virð- ingu. Þau giftu sig 2. desember árið 1947. Fluttust þau til Vest- mannaeyja 20. maí 1950 og bjuggu þau mestallan sinn búskap á Boða- slóð 24, en það hús bygði Sigur- geir. Það var alltaf gott að koma í heimsókn á Boðaslóðina í dálítið spjall, því að alltaf var tekið á móti gestum með mikilli hlýju. Sigurgeir og Björg eignuðust fjögur böm. Þau em: Elín verslunarmaður í Reykja- vík, í sambúð með Gunnari Briem. Á Elín tvö börn, Björgu og Ólaf Inga. Kristján kerfísfræðingur í Reykjavík, giftur Kristínu Guð- mundsdóttur, eiga þau tvo drengi, Sigurgeir og Guðmund. Yngvi skip- stjóri og útgerðarmaður í Vest- mannaeyjum, giftur, Oddnýju Garð- arsdóttur og eiga þau þijú böm, Garðar, Sigurbjörgu og Kára. Guð- björg tannsmiður í Vestmannaeyj- um, gift undirrituðum, og eigum við einn son, Arnar. Sigurgeiri þótti ákaflega vænt um sína fjölskyldu og fylgdist hann grannt með böm- unum sínum og bamabömum og gladdist innilega þegar vel gekk. Sigurgeir hóf störf í lögreglunni sama ár og hann kom til Eyja og starfaði hann við Iöggæslustörf til ársins 1968. Var hann einn af stofn- endum Lögreglufélags Vestmanna- eyja. Sigurgeir var vel liðinn lög- reglumaður. Hafa samstarfsmenn hans frá þessum tíma sagt mér að hann hafí verið mikið góðmenni, ekkert aumt mátt sjá, en samt ver- ið fastur fyrir þegar á þurfti að halda. Athugaði hvert mál af kost- gæfni og var sanngjam og hógvær í sínum störfum. Þegar undirritaður hóf störf í lögreglunni árið 1985 fékk ég gott vegnaesti með mér frá tengdapabba, enda hafði hann mikla reynslu að baki. Eftir að hann hætti í lögreglunni tók hann við starfí forstjóra Olíufélagsins í Vestmanna- ejum. Var hann forstjóri félagsins í 22 ár og má með sanni segja að rekstur félagsins hafí gengið vel. Oft komu menn í spjall á Esso og veit ég til að hann greiddi götu margra. Sigurgeir var framsóknarmaður af hugsjón og mikill félagsmálamað- ur. Mannkostir, góð greind og ger- hygli hrintu honum til margs konar ábyrgðar og trúnaðarstarfa fyrir Framsóknarflokkinn. Eftir því sem ég kynntist honum betur varð ég sannfærðari um að það var ekki metnaðargimd sem rak hann til starfa fyrir flokkinn. Það var hug- sjón og sú trú að stefna flokksins myndi leiða til framfara fyrir land og lýð. Hann fylgdist vel með lands- og bæjarmálum alla tíð og var í rauninni rammpólitískur til dauða- dags. Sat hann á Alþingi sem vara- þingmaður Suðurlandskjördæmis 1968 og 1971. Var Sigurgeir fyrsti starfandi lögreglumaðurinn sem settist á Alþingi. Sigurgeir sat í bæjarstjórn Vest- mannaeyja frá 1962-1982. Hann var forseti bæjarstjórnar frá 1966- 1975 og var hann forseti þegar náttúruhamfarirnar miklu byijuðu á Heimaey. Mæddi þá mikið á honum, en Sigurgeir var fulltrúi Eyjamanna á Reykjavíkursvæðinu. Á meðan hann sat í bæjarstjórn tók hann þátt í því að hrinda af stað hinum ýmsu framfaramálum fyrir bæjarfé- lagið, s.s. vatnsveitunni frá fasta- landinu, uppbyggingu skipalyftu, hraunhitaveitu og hafnarfram- kvæmdum svo að eitthvað sé nefnt. Í mörg ár var hann í ritstjórn Fram- sóknarblaðsins, en það er málgagn framsóknarmanna í Eyjum. Sigurgeir sat í stjóm Sparisjóðs Vestmannaeyja frá 1958-1992 og formaður sjóðsins frá 1974. Sigur- geir vildi hag Sparisjóðsins alltaf sem mesta. Sigurgeir var ákaflega fróðleiksf- ús maður, alla tíð. Hann var bók- hneigður og las nánast allt sem hann komst yfír, enda vissi hann og mundi ótrúlega margt. Það var eins og ef hann hefði einhvern tím- ann heyrt eða lestið eitthvað þá gleymdist það ekki. Enda nutu bamabömin þess að vera með afa sínum því að hann þekkti t.d. öll blóm og fugla og gat miðlað þeim af þekkingu sinni. Þekking hans var mjög víðtæk, hvar sem borið var niður. Sonur minn hringdi stundum í afa til að spyija, ef hann vantaði einhveijar staðreyndir í sambandi við námið. T.d. rifjaði tengdapabbi upp í haust sem leið efnafræðiform- úlu sem hann lærði á Bændaskólan- um á Hvanneyri árið 1937. Sigurgeir var mjög skáldmæltur og fékkst talsvert við ljóðagerð. Hafði hann mikla ánægju af að flytja ljóð af munni fram. Mörg ljóð og vísur liggja eftir Sigurgeir og vonandi eiga þau eftir að verða öðr- um til ánægju eins og þau vom fjöl- skyldu hans og vinum, því að öll em þau til á blöðum, skrifuð með hans hendi. Það var gott að eiga Sigurgeir sem tengdaföður. Hann var ekki bara tengdapabbi, hann var ákaf- lega góður vinur í raun. Alltaf var hægt að leita til hans ef eitthvað bjátaði á og alltaf fór maður uppörv- aður frá honum. Elsku Björg mín, sorg þín og bamanna þinna er mikil, ég veit að góður Guð stendur þér við hlið og gefur þér styrk á þessari sorgar- stundu. Við sem eftir stöndum og vom þeirrar gæfu aðnjótandi að fá að kynnast Sigugeiri og eiga hann sem vin munum sakna hans sárt. Hafí hann þökk fyrir allt og allt. Pétur Steingrímsson. Ég vil í fáum orðum minnast heiðursmannsins Sigurgeirs Krist- jánssonar, Boðaslóð 24 í Vest- mannaeyjum. Þegar ég fluttist til Vestmannaeyja árið 1980 var Sig- urgeir einn af þeim fyrstu til að bjóða mig velkominn til starfa. Ég hafði þá ráðist til Kaupfélags Vest- mannaeyja sem kaupfélagsstjóri og gegndi því starfí síðan í átta ár. Sigurgeir var stjórnarformaður í stjóm kaupfélagsins og hafði verið það allt frá goslokum. Sigurgeir var mikill samvinnu- og félagshyggju- maður og lét sig því málefni kaupfé- lagsins miklu varða. Því var það þegar uppbygging hófst í Vest- mannaeyjum eftir eldgosið að Sig- urgeir hafði forgöngu um að endur- reisa kaupfélagið. Starfsemi þess var á þeim tíma eðlilega öll lömuð og eignirnar mjög illa famar og hefðu án minnsta vafa allar eyði- lagst hefði ekki komið til fram- kvæði Sigurgeirs við endurreisn þeirra. Undir forystu Sigurgeirs réð- ust samvinnumenn í Eyjum í það að endurreisa starfíð og komu þar að sjálfsögðu margir við sögu, en fullvíst er þó að þar réð framkvæði Sigurgeirs mestu um framgang mála. Sigurgeir var síðan stjórnar- formaður félagsins allt til þess er félögin þijú, Kaupfélag Vestmanna- eyja, Kaupfélag Ámesinga og Kaupfélag V-Skaftfellinga, hófu samstarf árið 1988, sem síðan leiddi til sameiningar þeirra í eitt félag, Kaupfélag Árnesinga. Sem kaupfélagsstjóri hafði ég að sjálfsögðu mikið samstarf við Sig- urgeir og leitaði oft til hans með úrlausn mála. Það var ætíð gott að leita til hans og áhugi hans á vel- gengni kaupfélagsins var svo sann- arlega ósvikinn. Hann var maður uppbyggingar og framfara alla tíð. Þegar umræðan um aukið samstarf eða sameiningu kaupfélaganna á Suðurlandi kom fyrst til tals tók Sigurgeir því fálega og taldi engar líkur á að slíkt samstarf gengi. Hann þekkti vel vilja Eyjamanna til sjálfstæðis í sínum eigin málum. Hann gerði hins vegar fulla grein fyrir vaxandi erfíðleikum kaupfélag- anna og reyndar fjölmargra annarra fyrirtækja og taldi lífsmöguleika þeirra helst felast í stóraukinni sam- vinu. Þegar hann þannig hafði gert upp hug sinn um það að framhald samvinnustarf í Eyjum byggðist á samvinnu við félögin á fastalandinu þá varð hann ötull talsmaður þess að slík samvinna kæmist á. Þannig fylgdi hann jafnan fast eftir sann- færingu sinni. Sigurgeir gegndi fjöl- mörgum öðram trúnaðarstörfum fyrir samvinnuhreyfínguna, var m.a. fulltrúi kaupfélagsins aðalfundi Sambandsins í fjölmörg ár. Ég starf- aði einnig með Sigurgeiri á vett- vangi Framsóknarflokksins þann tíma sem ég var í Eyjum og þar var áhugi hans óg elja ekki minni en á vettvangi samvinnustarfsins. Það var bæði lærdómsríkt og eftir- minnilegt að vinna með honum. Ég veit að aðrir munu minnast starfa Sigurgeirs á vettvangi bæjarmál- anna og stjómmálanna og mun því ekki hafa fleiri orð um það, en þar er vissulega af miklu að taka. Ég vil að leiðarlokum færa Sigur- geiri Krisljánssyni þakkir fyrir ánægjulegt samstarf þann tíma sem ég starfaði í Vestmannaeyjum. Ég og kona mín vottum eiginkonu hans, bömum og fjölskyldum þeirra sam- úð okkar og biðjum þeim Guðs bless- unar. Guðmundur Búason. Sigurgeir Kristjánsson andaðist á sjúkrahúsi Vestmannaeyja 5. júní sl., á 77. aldursári. Sigurgeir var fæddur 30. júlí 1916 í Haukadal í Biskupstungum. Foreldrar hans vora Kristján Loftsson, bóndi þar og síðar á Felli í sömu sveit, og kona hans Guðbjörg Greipsdóttir. Sigurgeir varð búfræðingur frá Hvanneyri 1937. Hann stundaði búnaðamám í Svíþjóð veturinn 1946-1947 og var bústjóri í Laug- ardælum 1942-1950. Hann fluttist til Vestmannaeyja 1950 og hóf störf hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum í ársbyijun 1951, og starfaði sem lögregluþjónn til 1968. Settur yfir- lögregluþjónn um skeið. Sigurgeir var ráðinn forstjóri úti- bús Olíufélagsins hf. 1968, og starf- aði hann þar, þar til hann lét af störfum vegna aldurs 1990. Bæjar- fulltrúi var hann 1962-1982, vara- bæjarfulltrúi 1956, 1958-1962, 1983, forseti bæjarstjórnar 1966- 1975. í bæjarráði var hann 1966- 1982 og sat hann 786 bæjarráðs- fundi. Sigurgeir sat tvívegis á Al- þingi sem varaþingmaður Fram- sóknarflokksíns í Suðurlandskjör- dæmi, árin 1968 og 1971. Hann átti sæti í miðstjóm Framsóknar- flokksins 1956-1980, í stjórn Spari- sjóðs Vestmannaeyja 1958-1991, og stjórnarformaður 1974-1991. Hann sat í stjórn Heijólfs hf. í nokk- ur ár og í stjórn Kaupfélags Vest- mannaeyja og formaður þess um skeið. Hann sat í ritnefnd Fram- sóknarblaðsins um langt árabil. Hann var félagi í Rótarýklúbbi Vest- mannaeyja frá 1970 og forseti klúbbsins 1986-1987. Sigurgeir kvæntist 1947 Björgu Ágústsdóttur Sigfússonar bónda í Stóra-Breiðuvík, og síðar verslun- armanns í Vestmannaeyjum og konu hans Elínar Halldórsdóttur frá Búðarhóli í Landeyjum. Börn Sigur- geirs og Bjargar era: Elín, kaupkona í Reykjavík. Sambúðarmaður henn- ar er Gunnar Briem. Elín á tvö böm frá fyrra hjónabandi, Björgu og Ólaf Inga Skúlaböm. Kristján kerf- isfræðingur, Reykjavík, kvæntur Kristínu Guðmundsdóttur. Þau eiga tvo syni, Sigurgeir og Guðmund. Yngvi skipstjóri í Vestmannaeyjum, kvæntur Oddnýju Garðarsdóttur, þau eiga tvö böm, Sigurbjörgu og Kára. Áður átti Oddný soninn Garð- ar Þorsteinsson. Guðbjörg, tann- smiður í Vestmannaeyjum. Hún er gift Pétri Steingrímssyni, og eiga þau einn son, Amar. Kynni okkar Sigurgeirs hófust upp úr miðjum sjötta áratugnum, en afskipti mín af stjórnmálum hóf- ust í alvöra upp úr 1962, þegar ég tók upp hanskann fyrir Sigurgeir, þegar gengið var fram hjá honum við veitingu í stöðu yfirlögreglu- þjóns. Ég taldi þetta pólitíska valdn- íðslu. Eins og áður sagði vora þetta fyrstu afskipti mín af pólitík, og jafnframt upphaf að áratuga sam- starfí okkar Sigurgeirs, samstarfí sem aldrei bar skugga á. Eitt kjör- tímabil sat ég með Sigurgeir sem aðalmaður í bæjarstjórn, en mun hafa setið um 13 ár sem varabæjar- fulltrúi. Nokkur verkaskipting var með okkur varðandi bæjarmálin, en aðal áhugamál Sigurgeirs vora fjár- málin, og taldi hann góða fiármála- stjóm aðalsmerki hverrar bæjar- stjórnar. Við Sigurgeir störfuðum víða saman á félagslegum vettvangi. Við voram saman í stjóm Sparisjóðs Vestmannaeyja. Einnig þar var hann leiðandi. Einnig störfuðum við saman í stjóm Kaupfélags Vest- mannaeyja. En lengst störfuðum við saman í Framsóknarfélagi Vest- mannaeyja. Einnig þar var Sigur- geir lengst af óumdeildur foringi. Pólitísk barátta er fyrst og fremst vinna, þrotlaust starf, og enginn árangur næst, ef slegið er slöku við. Það er tíska nú á dögum að gera lítið úr pólitísku starfí. Oft er sagt að pólitík sé skítkast, sem'eng- inn ætti að koma nálægt. Heyrt hefí ég að orðið pólitík sé komið úr grísku og þýði lífsbarátta, og víst er um það, að í lífsbaráttunni þurfa menn á vopnum að halda. Ekki kom- ast allir ósárir úr þeim bardögum, en ég held ég megi fullyrða, að Sig- urgeir hafí komið óskemmdur úr þeirri orrahríð, sem kölluð er pólitík. Fyrir nokkram áram lenti ég í pólitískri rimmu á vinnustað. Þar ræddi ég um menn sem notað hefðu aðstöðu sína sér og sínum til fram- dráttar. Ég fékk það þá framan í mig, að ég og mínir flokksmenn væra ekki betri. Ég bað þá viðmæl- endur mína að nefna dæmi, ef ein- hver væra, að Sigurgeir hefði notað aðstöðu sína sér eða börnum sínum til framdráttar. Það varð fátt um svör. Sigurgeir barðist hart, en drengilega. Eg tel að Sigurgeir hafí notið virðingar bæði flokksmanna og andstæðinga. Það var gott að vinna með Sigurgeiri. Hann var at- hugull og ráðhollur. Minni hans var ótrúlegt. Það var sama hvort það var kveðskapur eða atburðir frá Sturlungaöld. Þeir atburðir stóðu honum ljóslifandi fyrir sjónum. Sig- urgeir var vel hagmæltur og hafði gaman af að kasta fram stöku um atburði líðandi stundar. Ekki veit ég hvort hann hefur haldið kveðskap sínum til haga, en ég vona að svo sé. Margir leituðu til Sigurgeirs með úrlausn ýmissa mála, og greiddi hann úr vanda margra, bæði með fyrirgreiðslu hjá stofnunum og með persónulegri ráðgjöf. Og svo segir mér hugur um, að margt hafi hann greitt úr eigin vasa. Á þeim áram sem Sigurgeir var forseti bæjarstjórnar komust ýmis stórmál í höfn. Þar má nefna vatns- leiðslumar frá landi, sem var raunar undirstaða nútíma búsetu. Fyrri vatnsleiðslan var lögð 1968, og sú seinni 1971. Margt fleira má telja, og vona ég að einhver annar skrifí um þau mál. Eldgosið kom í veg fyrir áframhaldandi framfarasókn, þó að ýmislegt jákvætt hafi fylgt. Eins og fyrr segir var Sigurgeir forseti bæjarstjómar þegar eldgosið hófst. Saga þeirra sem vora í for-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.