Morgunblaðið - 19.06.1993, Qupperneq 34
34
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 1993
fclk f
fréttum
Ása Lind dansar dans hinna kúg-
uðu.
DANS
Afró-brasilísk
danssýning
Brasilíubúinn Mauricio Marcues
hélt afró-brasilíska danssýn-
ingu í Kramhúsinu sl. fðstudagskvöld
ásamt nokkrum nemenda sinna, en
hann hefur verið gestakennari í
Kramhúsinu undanfama tvo mánuði.
Afró-brasilískir dansar eru byggð-
ir á arfi forfeðranna og snúast að
hluta til um bardagalist (capoeira)
en að hluta eru þeir byggðir á goða-
fræði. Tíu dansarar á ýmsum aldri
komu fram á sýningunni, en fjórir
nemendur slógu trumbur. Mauricio
Marcues hannaði og saumaði flesta
búningana sem eru mjög litríkir.
Morgunblaðið/Þorkell
Frá sýningunni sem nefnist Racha. í þessu atriði tjáir Mauricio
Marcues eldguð eða guð þruma og eldinga.
Morgunblaðið/Eyjölfur M. Guðmundsson
Erlendsína Helgadóttir sem nú er 103 ára. Myndin er tekin á
aldarafmæli hennar.
GJAFIR
Eitt þúsund krónur
fyrir hvert ár
Erlendsína Helgadóttir heið-
ursborgari og elsti íbúi
Vatnsleysustrandarhrepps gaf
Kálfatjamarkirkju 103 þúsund
krónur þegar kirkjan varð eitt
hundrað ára fyrir nokkru. Sesselja
Sigurðardóttir formaður sóknar-
nefndar las upp gjafabréf við
messu, þar sem segir að Erlends-
ína hafi gefið kirkjunni eitt þús-
und krónur fyrir hvert ár sem hún
hafí lifað, en hún er 103 ára.
Erlendsína hefur áður gefið fé til
kirkjunnar, þar á meðal stofnfé
til byggingar safnaðarheimilis á
Kirkjuholti í Vogum.
STJÖRNUR
Hvort á sinni ströndinni
Patrick Swayze og Lisa Niemi
áttu góða daga I Cannes.
Leikarahjónin Lisa Niemi og
Patrick Swayze nutu þess að
eyða tímanum saman þegar þau
voru á kvikmyndahátíðinni í Cannes
fyrir skömmu, því í sumar verða
þau stödd hvort á sinni strönd
Bandaríkjanna.
Hann verður á vesturströndinni,
nánar tiltekið í Los Angeles, til að
kynna nýjustu kvikmynd sína
„Father Hood“, en hún verður
væntanlega frumsýnd í ágúst. Ni-
emi verður hins vegar á Manhatt-
an, þar sem hún fer með hlutverk
í leikritinu „The Will Rogers Foll-
ies“ á Broadway. Heimildir herma
að hún fái greiddar 180 þúsund
krónur á viku fyrir leikinn eða sömu
laun og Marla Maple sem hún tekur
við hlutverki af. Patrick var við-
staddur frumsýningu Lisu sem var
27. maí síðastliðinn, en hann segist
munu verða reglulega á ferðinni í
New York til að heimsækja eigin-
konuna.
Patrick átti við áfengisvandamál
að stríða, en fór í meðferð fyrr í
vetur. Nú er bara spumingin hvem-
ig honum gengur að halda sér þurr-
um þegar eiginkonan er langt und-
an.
Stundum blöskraði meira að segja forsetanum sjálfum og þá tók
hann bara fyrir eyrun.
í hita leiksins geta oft fokið und-
arlegar setningar.
COSPER
COSPER
Ég sagði konunni minni að ég væri að fara æf-
ingu hjá sinfóníuhljómsveitinni.
TILVITNANIR
Hver segir hvaða vitleysu?
Með setningunni „Spumingin er
hvort við erum að fara fram
á við til framtíðarinnar eða afturá-
bak til fortíðarinnar" komst Dan
Quayle fyrrverandi varaforseti
Bandaríkjanna í hóp þeirra manna
sem hvað heimskulegast hafa kom-
ist að orði. Hjónin Ross og Kat-
hryn Petras hafa safnað saman
ýmsum aulalegum setningum og
gefið út í bók sem þau nefna „776
heimskulegustu setningar sem
sagðar hafa verið“.
Dan Quayle á 17 tilvitnanir í
bókinni, George Bush 19, en Ron-
ald Reagan 24. Þeir sem slá þeim
öllum við eru kvikmyndaframleið-
andinn Samuel Goldwyn, en hann
á 38 tilvitnanir í bókinni og Yogi
nokkur Berra 37.
„Margar setningar Goldwyns em
ekki svo heimskulegar ef áð er
gáð,“ segir Eric Levin í einu banda-
rísku tímaritanna og nefnir dæmi
eins og: „Munnlegur samningur er
ekki pappírsins virði sem hann er
skrifaður á“ og: „Ég var alltaf óháð-
ur jafnvel þegar ég var í samstarfi
við einhvem".
Þá hefur_ boxarinn Marlon Starl-
ing sagt: „Ég skal beijast við hann
fyrir ekki neitt, ef rétta verðið er
sett upp.“ John Bowman, borgar-
fulltrúi Washington, sagði eitt sinn:
„Ef lögbrotum fækkaði um 100
prósent væru þau samt sem áður
fimmtíu sinnum fleiri en þau ættu
að vera.“ Þá klykkti Dale Berra,
sonur Yogi Berra, út með setning-
unni: „Sameiginleg einkenni mín
og föður míns eru mismunandi."
Já, ekki er öll vitleysan eins.
Kripalujóga
Orka sem endist
Byrjendanámskeið hefst 28. júní.
Kenntmánud.ogmiðvikud.
frákl. 20.00-21.30.
Kennari: Jenný Guðmundsdóttir.
Jfigastððin Heimsljfis
Skerfunni 19,2. hæí, s. 679181 (kl. 17-19).