Morgunblaðið - 23.06.1993, Qupperneq 10
10
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. JÚNÍ 1993
íbúðirvið Suðurhlíð
Til sölu í Suðurhlíð 35, Reykjavík, tvær samliggjandi
íbúðir, 133,4 fm tilbúin undir tréverk og 113,4 fm fullbú-
in. Stórar svalir. Fallegt útsýni.
Nánari upplýsingar í síma 16541 eða 689110,
Tómas eða Magnús.
Hjallabraut - Hafnarfj.
Nýkomin í einkasölu falleg 3ja herb. íbúð á 3. (efstu) hæð.
Húsið er nýklætt að utan. Yfirbyggðar suðursvalir. Ný teppi.
Sérþvottahús. Góðir skápar. Engar skuldir. V. kr. 6,5-6,7 mi.llj.
Árni Gunnlaugsson, hrl.,
Austurgötu 10, sími 50764.
♦---
EIGNAMIÐIIMN %
Sími ÚT'OO'ÚO - Suhunúla 21
Glæsiíbúð við Efstaleiti
Höfum fengið til sölu sérlega glæsilega íbúð á 1. hæð
í Breiðablikshúsinu.
íbúðin sjálf er um 130 fm 3ja-4ra herb. Á gólfum er
sérvalin marmari og eikarendaparket. Innréttingar allar
sérsmíðaðar og afar vandaðar. Sameign er einstök
m.a. sundlaug, gufubað, húsvarðaríbúð, samkomusalur
o.fl. Sérstæði í bílageymslu fylgir með sameiginlegri
dekkjageymslu og þvottaaðstöðu.
Einstök íbúð í einstöku húsi. 3170.
Eskiholt - Garðabæ
Til sölu þetta glæsilega einbýlishús sem er á tveimur
hæðum með tvöföldum bílskúr. Húsið er fullbúið og
allt hið vandaðasta með vönduðum innréttingum og
gólfefnum. Lóð frágengin með stórri tréverönd, heitum
potti o.fl. Glæsilegt útsýni. Skipti möguleg á minni eign.
Ás - fasteignasala,
Strandgötu 33, sfmi 652790.
011 Rn 01 07fl LÁRUS VALDIMARSSON framkvæmdastjori
L I l3U“t 10/V KRISTINN SIGURJÓNSSON, HRL. loggiltur fasteignasali
Til sýnis og sölu meöal annarra eigna:
Á vinsælum stað í Vesturborginni
Mikið endurnýjuð 4ra herb. íb. á 3. hæð. Sólsvalir. Góð innrétting.
Mikið útsýni. 40 ára húsnlán kr. 3,1 millj. Fjórbýli. Tilboð óskast
Glæsileg eign á góðu verði
Einbýlishús - steinhús. Ein hæð 171,2 fm á úrvalsstað við Selvogs-
grunn. Mikið endurnýjað. Góður bílskúr 27 fm. Glæsiiegur trjágarður.
Einn vinsælasti staður í borginni.
Nokkrar 3ja og 4ra herb. íbúðir
M.a. við Kleppsveg, Njálsgötu, Hverfisgötu, Ásgarð og Stóragerði.
Nokkrar með miklum og góðum lánum.
Ein bestu kaup á markaðinum idag. Nánari uppl. aðeins á skrifstofunni.
Skammt frá Hagaskóla
Glæsileg endurnýjuð 4ra herb. kjallaraíb. 108 fm í suðurenda. Sérhiti.
Nýtt parket. 3 svherb. Ágæt nýstands. sameign. Langtímal. kr. 4 millj.
Skammt frá elliheimilinu Grund
Mikið endurnýjuð 3ja herb. íb. á 3. hæð. Gott risherb. fylgir með snyrt-
ingu. Rúmgóð geymsla í kjallara. Hagkvæm skipti.
Við Stelkshóla eða nágrenni
óskast góð 3ja herb. ib. í skiptum fyrir mjög góða 5 herb. endaíbúð
í hverfinu með bílskúr.
Góð eign - hagkvæm skipti
Stein- og stálgrindarhús við Kaplahraun í Hf. Grunnflötur um 300 fm
Vegghæð 7 metrar. Glæsilegt ris 145 fm íbúð/skrifstofa. Um er að
ræða nýlegt og vandað hús með fjölmarga nýtingarmöguleika. Ýmis-
konar eignaskipti möguleg. Tilboð óskast.
• • •
Fjöldi fjársterkra kaupenda.
Margskonar eignaskipti.
Opið á laugardaginn.
ALMENNA
FASTEIGNASAIAW
LAUGAVEG118 SIMAR 21150 - 21370
Úr einum ballettanna fjögurra sem færðir verða upp í Hafnarfirði.
Ballett í Kaplakrika
Frískir o g sterkir
DANSARAR eiga sviðið sem sett
hefur verið upp í íþróttahúsinu
við Kaplakrika í Hafnarfirði
vegna ballettsýninga á Listahátíð
í Hafnarfirði. Þar hafa þeir síð-
ustu daga verið að fínpússa spor
og hreyfingar í fjórum ballettum
sem sýndir verða á Listahátíð í
Hafnarfirði, fyrst annað kvöld kl.
22 og síðan á laugardag kl. 20.30
og sunnudag kl 17. Verkin eru
eftir Nönnu Ólafsdóttur, Ingi-
björgpi Björnsdóttur og William
Soleau en tiu dansarar úr íslenska
dansflokknum taka þátt í þessum
sýningum.
Dansflokkurinn sýnir í Hafnarfirði
þijá balletta sem hann fór með á
Reykjavíkurdaga í Bonn um miðjan
mánuðinn; Evridís eftir Nönnu Ólafs-
dóttur við tónlist Þorkels Sigur-
björnssonar og Bach-svítur og Stra-
vinski-skissur eftir William Soleau.
í KVÖLD kl. 21.-22 í
Tjarnarsal: Einar Kristján Ein-
arsson flytur nútímatónlist á
gítar. Verk: „Hvaðan kemur
lognið?" eftir Karólínu Eiríks-
dóttur. „Drei tentos“ eftir Hans
Werner Henze. „Elegia“ eftir
Aian Rawsthorne. „Jakobsstig-
inn“ eftir Hafliða Hallgrímsson
(Prologue-Stones-Sleep-J ak-
obsladder (The dream) - Ang-
els and Epilogue).
í Faxaskála kl. 20.-1. Tón-
leikar. Hljómsveitirnar: Hell
Meat, Sexual Mutilations,
Funny Bone, Fokk opps, Drop,
Stoned, Skrýtnir, Fitus quo og
Bum.
Tvö fyrmefndu verkin voru frumsýnd
í ráðhúsi Reykjavíkur í febrúar en
Skissurnar eru nýjar. í Kaplakrika
verður að auki frumsýndur ballettinn
Minotaurus, sem Ingibjörg Björns-
dóttir samdi fyrir listahátíðina við
tónlist eftir Tryggva M. Baldvinsson.
Ballettunum var vel tekið í Bonn
og uppselt á sýninguna í Kammerspi-
ele-leikhúsinu 13. júní sl. í blaða-
gagnrýni þar sagði meðal annars að
Bach-svíturnar hefðu verið léttar og
frískar og hugmyndaauðgi í sam-
setningu dansanna. Evridís Nönnu
hefði verið sterk, búningar og sviðs-
mynd hefðu farið verkinu einkar vel.
Á sýningunum dansa Lára Stef-
ánsdóttir, Birgitte Heide, Þóra Guð-
johnsen, Janine Noelle Bryan, Lilia
Valieva, Eldar Valiev, Hany Hadaya,
David Greenail, Mauro Tambonme
og Anthony Wood. í ballett Ingi-
bjargar dansar hópur elstu nemenda
í Listdansskóla íslands. Helga Rún
Pálsdóttir útbjó búninga og leikmynd
í Evridís en Elín Edda Árnadóttir er
búningahönnuður í verkum Soleaus.
Ljósum á sýningunni stýrir Árni
Baldvinsson og sýningarstjóri er
Kristín Hauksdóttir.
í KVÖLD kl. 20.30. í Straumi
ARA-leikhúsið. 3. sýning.
Klúbbur Listahátíðar: Bar-
rokk tónlist í Hafnarborg. Gítar-
leikararnir Láms Sigurðsson og
Arngeir Hauksson. Söngvararn-
ir Laufey Geiriaugsdóttir og
Finnur Finnsson.
Hvammstangi
Norrænijazz-
kvintettinn
og Sigurður
Flosason á
Jónsmessu
JAZZTÓNLEIKAR verða á Hótel
Vertshúsi Hvammstanga í kvöld
kl. 21., miðvikudagskvöldið 23.
júní, á vegum Tónlistarfélags
V-Húnvetninga.
Sigurður Flosason saxófónleikari
hefur sett saman kvintett sem hann
kallar Norræna jazzkvintettinn, en
í honum era íslendingarnir Sigurður
Flosason, Eyþór Gunnarsson, píanó-
leikari, trommuleikarinn Pétur Öst-
lund sem búsettur er í Svíþjóð,
sænski trompetleikarinn Uld Adá-
ker, en hann hefur verið mátt-
arstólpi í sænsku jazzlífi undanfarna
þijá áratugi og síðast en ekki síst
danski kontrabassaleikarinn Lenn-
art Ginman, en hann er talinn einn
fremsti kontrabassaleikari Dana af
yngri kynslóðinni.
Norræni jazzkvintettinn mun
flytja okkur ný og eldri lög eftir
saxófónleikarann Sigurð Fiosason,
en stefnt er að útkomu geisladisks
í nóvember á þessu ári.
----»-■» 4--
Byggða- og lista-
safn Arnesinga
Sumaropnun
SUMAROPNUN Byggða- og
listasafns Árnesinga á Selfossi
hófst að veiyu 17. júní og er opið
daglega klukkan 14-17 til 31.
ágúst. Hægt er að skoða safnið á
öðrum tímum af haft er samband
við safnvörð.
Byggða- og listasafn Árnesinga
er þrískipt safn. í byggðasafninu
má sjá safngripi sem tengjast sögu
héraðsins, þar á meðal muni úr
Húsinu á Eyrarbakka. í dýrasafni
má m.a. sjá uppstoppaðan hvíta-
björn sem skotinn var í Fljótavík á
Ströndum fyrir 19 árum. í Lista-
safni Árnesinga má sjá málverkag-
jöf Bjarnveigar Bjarnadóttur og
sona hennar, Bjarna Markúsar og
Lofts Jóhannessona, til Árnesinga.
Þar eru sýnd málverk eftir marga
þekkta íslenska listmálara. í Bjarn-
veigarsal eru einnig tvær bijóst-
myndir eftir Siguijón Ólafsson, önn-
ur er afsteypa af Ásgrími Jónssyni,
gefin safninu af Árnesingafélaginu
í Reykjavík, og hin er af Bjarnveigu
Bjarnadóttur sem Árnesingar létu
gera af henni árið 1978.
Gömul tónlist, gömul þögn
_________Tónlist_____________
Jón Ásgeirsson
Listahátíðin í Hafnarfirði stefnir
í það að verða viðamesta listahátíð,
sem haldin hefur verið hér á landi.
Það er engu líkara en að hún hafi
orðið til úr engu, enda er yfirbygg-
ingin aðeins draslkompa suður í
Straumi, þar sem Sverrir Ólafsson
myndlistarmaður hefur haldið sig.
Þarna suður í Straumi voru
haldnir tónleikar sl. mánudag og
voru þar á ferðinni Musica Antiqua,
en þar fluttu Camilla Söderberg á
blokkflautur, Ólöf Sesselja Óskars-
dóttir á gömbu og Snorri Örn
Snorrason á lútu, ásamt Sverri
Guðjónssyni kontratenór, söngva
og dansa frá sautjándu öld eftir
snillinga eins og Ludwig Senfl,
Guilio Caccini, John Dowland,
Thomas Morley, Henry Purcell,
Pelham Humfrey, auk laga eftir
ónefnd og ýmis minna þekkt tón-
skáld.
Efnisskráin var til skiptis hljóð-
færatónlist, þar sem blokkflautan
var ráðandi og söngvar, þar sem
lútan og gamban voru oftast ein
með undirleikinn. Hljóðfæralögin
voru flest gömul danslög. Fjórir
dansar eftir Erasmus Widmann
voru vel leiknir. Tvö sérkennileg
þrírödduð lög, það fyrra Ricercare
eftir Guilio Tiburtino og síðara eft-
ir snillinginn Morley, voru
skemmtileg áheyrnar og þarna
mátti heyra er tónskáld hófu að
gera tilraunir í gerð raddaðrar
hljóðfæratónlistar. Einleikur á
flautu í lagi eftir van Eyck, var
mjög fallega útfærður af Camillu
Söderberg og Snorri Örn Snorrason
átti ágætan einleik á lútuna í Gall-
iard lagi eftir iútusnillinginn John
Dowland. Skemmtilegustu dans-
lögin voru The Kings Mistresse,
sem er „Mask“ lag eftir óþekktan
höfund og Dans nornar númer 2
eftir R. Johnson, sem einnig er úr
enskum maskleik.
Sverrir söng margt mjög vel en
virðist oft eiga nokkuð erfitt með
efstu tónana, og svo að hann er
farinn að nota stundum „brosandi
munnstöðu", sem getur orsakað
óþarfa vöðvaspennu. Bestu lög
Sverris voru Ich arme Brudelein
(óþekktur höfundur), Amarilli mia
bella eftir Caccini, sem var mjög
fallega sungið, svo og lögin eftir
Dowland (Can she excuse og Fine
knacks for ladies) og Purcell (Since
from my dear og I attempt from
love sickness), sem voru öll einstak-
lega vel flutt.
Þetta voru náttúruvænir tónleik-
ar, þar sem samhljómandi var fu-
glasöngur að utan, auk þess sem
heyra mátti í fjarska tímafyrrtan
mótorgný ofan frá þjóðveginum.
Þessi tónlist er sömu náttúru og
þögnin. Það þarf að hlusta á hana
og lesa úr henni þá sögu, sem er
samstofna litfegurð blóma og ang-
an víns, ofin saman við ijúfsára
ástarsorg og góðlátlega glettni.
Listamennirnir sungu og léku þessa
failegu tónlist svo vel, að stundin
umskapaðist í hljóðláta mynd er
mun í minningunni lifa sem ilm-
þrungin gömul náttúruþögn.