Morgunblaðið - 11.08.1993, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 11.08.1993, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. ÁGÚST 1993 21 Þrjár konur í nýrri ríkisstjórn Japans taua tla nn;i» TaIa^.oaIi d«..4a^ Tókýó. The Daily Telegraph, Reuter. LEIÐTOGAR samsteypustjórnarinnar í Japan tilkynntu í gær um stofnun sérstakrar samræmingarnefndar og er henni ætlað að móta sameiginlega stefnu allra flokkanna átta í mikilvægustu málaflokkum, efnahags- og utanríkis- málum. I nýju stjórninni sitja þrjár konur og hefur konum aldrei verið gert jafn hátt undir höfði í japönskum stjórn- málum. Morihiro Hosokawa forsætisráðherra sagði í gær, að baráttan gegn spillingu í sljórnmálum landsins yrði meginverkefni stjórnarinnar. Hosokawa á ekki náðuga daga framundan við stefnumótun nýju stjómarinnar enda spanna stjórnar- flokkamir stóran hluta af hinu póli- tíska litrófí, allt frá sósíalistum til flokka hægra megin við miðju. Mestu skiptir þó að flokkarnir komi sér saman um trúverðuga stefnu í utanríkis- og efnahagsmálum en að öðru leyti verður áherslan á uppstokkun kosningakerfísins og ný lög um spillingu. . Breytingar á kosningakerfi „Ég mun gera allt, sem unnt er, til að koma breytingum á kosninga- kerfínu í gegn fyrir áramót," sagði Hosokawa í gær og kvaðst mundu kalla saman þingið til að ræða það mál snemma í næsta mánuði. í efnahagsmálunum sagði hann helstu verkefnin vera að vinna bug á samdrættinum og draga úr gífur- legum hagnaði Japana af viðskipt- unum við Bandaríkjamenn. Hann taldi hins vegar ólíklegt, að leyfður yrði innflutningur á hrísgijónum eins og krafist er í viðræðunum um nýjan GATT-samning um alþjóða- viðskipti. Japanskir íjölmiðlar hafa al- mennt verið jákvæðir í garð nýju stjórnarinnar en það hefur þó verið gagnrýnt, að Japanski endurnýjun- arflokkurinn, annar tveggja klofn- ingsflokka úr Fijálslynda lýðræðis- flokknum, fyrrverandi stjómar- flokki, skuli hafa fengið flest helstu ráðherraembættin, utanríkis-, fjár-, viðskipta-, varnar- og landbúnaðar- mál. Meira að segja í tíð fyrri vald- hafa var þess gætt að láta aldrei neinum flokksarmi eftir of mörg af mikilvægustu embættunum. Ozawa valdamestur Fjölmiðlar benda raunar á, að hinn sterki maður í stjóminni sé ekki Hosokawa, heldur Ichiro Ozawa, ráðamaður í Endumýjunar- flokknum, og hann gaf það sjálfur fyllilega í skyn þegar hann var spurður um framtíð stjórnarsam- starfsins. Sagði hann þá, að þing yrði hugsanlega leyst upp og boðað til nýrra kosninga þegar búið væri að stokka upp kosningakerfið og setja lög um starfsemi stjórnmála- flokka. Reuter Kastró hvattur til afsagnar FIDEL Kastró Kúbuleiðtogi kom í þriggja daga óopinbera heimsókn til Kólumbíu í fyrradag og var þá vel fagnað af vim sínum, rithöf- undinum Gabriel Garcia Marquez (yst til vinstri). í gær fékk hann svo annars konar kveðju en þá birtust tvær auglýsingar í stærstu blöðum landsins þar sem hann var hvattur til að segja af sér og efna til frjálsra kosninga á Kúbu. Undir aðra áskorunina rituðu margir kunnir stjórnmálamenn í Evrópu, Rómönsku Ameríku og Karibahafsrikjum en undir hina 250 þingmenn í Rómönsku Amer- íku, Karibahafsríkjum og á Spáni. Ekki lamin nógu mikið Melbourne. Reuter. V * ÁSTRALSKUR dómari, Derek Bollen, sem orðinn er lands- og jafnvel heimsfrægur fyrir fjandsainleg ummæli um konur, hefur enn einu sinni vakið á sér athygli. Að þessu sinni er það fyrir að segja um unga konu, sem varð útúrdrukknum unnusta sínum að bana, að maðurinn hafi ekki lamið hana svo mikið að hún geti borið fyrir sig sjálfsvöm. Ástralskir fjölmiðlar hafa gert sér írak ógnar Kúveit á meðan Saddam ræður þar ríkjum - segir sendiherra Kúveits í Þýskalandi ABDULAZEEZ A. Alsharikh, sendiherra Kúveits, segir að Irak ógni tilveru Kúveits á meðan Saddam Hussein sé þar við völd. Sendiherr- ann kom hingað til lands til að kynna afstöðu Kúveits í landamæra- deilu við íraka. Stjómvöld í Kúveit vinna nú að því að kynna á alþjóðavettvangi stöðuna í landamæradeilu við íraka. í þessum tilgangi kom Abdulazeez A. Alsharikh hingað til lands. Flutti hann Jóni Baldvin Hannibalssyni utanríkisráðherra boð frá starfs- bróður hans í Kúveit, Sabah Ala- hmad Alsabah prinsi. Þar er skýrð ályktun ötyggisráðs Sameinuðu þjóðanna frá 27. maí síðastliðnum og velþóknun lýst yfír stuðningi íslands við málstað Kúveits. Á fréttamannafundi í gær sagði Alsharikh að kúveisk sijómvöld væm Jiakklát fyrir þann stuðning sem íslendingar hefðu sýnt eftir innrás íraka fyrir þremur ámm. Gat hann þess sérstaklega að hér hefðu lent herflugvélar á leið milli Bandaríkjanna og Persaflóasvæð- isins. Alsharikh rakti aðdraganda ályktunar öryggisráðsins um landa- mæri íraks og Kúveits. Vorið 1991 hefði verið skipuð fímm manna nefnd til að fjalla um málið þar sem voru fulltrúar íraks og Kúveits m.a. írakar hefðu seinna dregið sinn mann út úr nefndinni. Nefndin hefði skilað áliti og hefði öryggisráðið gert niðurstöðu hennar að sinni. Alsharikh sagði Kúveit ekki hafa náð fram sínum ítmstu kröfum og írakar mættu vel við una. Rangt væri hjá írökum að þeim væri neit- að um aðgang að hafi. í raun hefðu þeir yfir sjötíu km strandlengju að ráða austan Kúveits. Alsharikh sagði að nú heimtuðu írakar tvíhliða viðræður um landamærin þótt þeir hefðu áratugum saman neitað að ræða þessi mál. Það væri hins veg- ar afstaða Kúveits að öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hefði sagt síð- asta orðið í þessari deilu. Alsharikh var spurður hvort Kú- veitar litu enn á Iraka sem ógnun við tilveru sína. Sagði hann að svo væri á meðan Saddam Hussein væri þar við vöid, í raun ógnaði hann stöðugleika í heimshlutanum öllum. Morgunblaðið/Kristinn Abdulazeez A. Alsharikh á blaðamannafundi í gær. Ýktar frásagnir af mannréttindabrotum Sendiherrann sagði að Kúveit ætti bjarta framtíð sem lýðræðis- og réttarríki þar sem mannréttindi væru í heiðri höfð. Uppbyggingu eftir hemám íraka væri lokið en þó væru eftir andleg sár sem grem seint. Er hann var inntur eftir því hvað hæft væri í ásökunum stjóm- arandstöðunnar um mannréttinda- brot í iandinu sagðist hann stoltur yfír því að starf slíkra væri yfirhöf- uð leyft. Ýmislegt hefði gerst fyrstu mánuðina eftir frelsun Kúveits sem ekki væri til fyrirmyndar en ástand- ið hefði batnað til muna. Nýlega bárust þær fréttir frá Kúveit að hópur þjónustukvenna frá Filippseyjum vildi snúa heim vegna harðræðis hjá kúveiskum vinnuveit- endum sínum, húsbændur þeirra hefðu m.a. nauðgað þeim. Alsharikh sagði fréttir af þessu tagi stórlega orðum auknar þótt í þeim væri sannleikskom. Þó sakn- aði hann þess í umfjöllun fjölmiðla að fram kæmi að hinar óánægðu væru 10-15 konur af 160.000 kon- um frá Suð-Austurasíu sem ynnu í landinu. Þess hefði yfirleitt ekki verið getið að sumar konumar hefðu gerst sekar um glæpi í Kúveit. Nú gætu konur þó látið óánægju sína í ljósi opinberlega í Kúveit og ef lögregla sinnti ekki kvörtunum þeirra þá væri mannréttindanefnd starfandi á vegum þings landsins sem hlýddi á málflutning þeirra sem teldu sig eiga um sárt að binda. mikinn mat úr þessu og minnt á, að fyrir ári sagði dómarinn við kviðdóm- endur, að „réttlætanlegt" væri þótt karlmenn beittu eiginkonur sínar „meira harðræði en venjulega" til að knýja þær til ásta. Ástralskar konur eru að sjálfsögðu ævareiðar dómaranum og Anne Levy, sem fer með málefni kvenna í Suður- Ástralíu, hefur spurt hvaða mæli skuli nota á barsmíðar. „Er það kannski íjöldi beinbrota, sem ræður úrslitum?“ spurði hún. Troktors- hrærivélar Verð: 149.400 kr. m/vsk, UMBOÐS- OG HEILDVERSLUNIN BÍLDSHÖFÐA 16 SÍMI 67 24 44 TELEFAX 67 25 80 NÝJA BÍL.AHÖL.LIN FUNAHÖFÐA 1 S:672277 MMC L-300 árg. '91, ekinn 27 þ. km., brúnn, krókur, sóllúga. Verð kr. 1.900.000,- stgr., ath. skipti. Toyota Landcruiser árg. '88, hvítur, ekinn 77 þ. Verð kr. 1.280.000,- stgr., ath. skipti. Ford Explorer XLT árg. '91, ekinn 23 þ. km., brúnn, sjálfsk., álfelgur. Verð kr. 2.900.000,- stgr., ath. skipti. BMW 3161 árg. '93, ekinn 14 þ. km., vín- rauður, 5 g„ ABS. Verð kr. 2.100.000,- stgr., ath. skipti. MMC Colt GLX árg. '90, ekinn 34 þ. km., rauður, 5 g. Verð kr. 780.000,- stgr. Bein sala. 1 S: Ford Ranger STX árg. '92, blásans, upp- hækkaður, 33" dekk, ekinn 15 þ. km. -Verð kr. 1.850.000,- skipti - skuldabréf. Mercedes Benz 230E árg. '88, gullsans, sjálfsk., rafdrifnar rúður. Verð kr. 1.900.000,- skipti - skuldabréf. Toyota 4Runner árg. '90, rauður, upphækk- aður, 33“ dekk, álfelgur, topplúga. Verð kr. 2.090.000,- skipti. VW Golf CL árg. '91, rauður, vökvastýri, ekinn 21 þ. km. Verð kr. 850.000,-. Toyota Hllux Double Cab árg. '91, blásans, t upphækkaður, læst drif, lækkuö drif, 36“ 8 dekk. Verð kr. 1.950.000,- skipti. 2 MANUDAGA TIL FIMMTUDAGA FRA KL. 10 TIL 2 1

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.