Morgunblaðið - 11.08.1993, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. ÁGÚST 1993
35
ÁÁLÁ/BIÓHN SAMUtm
BÍÓHÖL
ÁLFABAKKA 8, SÍMI 78 900|
SNORRABRAUT 37, SÍM111 384-252
ÁL.FABAKKA8, SÍMI 78 900
AVALLT I FARARBRODDI MEÐ BESTU MYNDIRNAR AVALLT I FARARBRODDI MEÐ BESTU MYNDIRNAR
BESTA GRINMYND ARSINS
FLUGASAR2
CHÁRUESHEEN LLOYD BRIDGES VALERIA GOLÍNO RICHARÐCRENNA
GRAB YOUR GUNSHT'S HOT SH0TS2!
Sýnd kl., 5,7,9 og 11.
GENGIÐ
Sýnd kl. 9.
LAUNRAÐ
Sýnd kl. 5,7,9ogl1.
Bönnuðinnan16 ára.
MICHAEL DOUGLAS
NÓG KOMIÐ
Sýnd k».7ogll.
GETINIAMERIKU
Sýnd kl. 5 og 9.
SKJALDBOK-
URNAR3
Sýnd kl. 5 og 7.
mn
iiii iiiiiiii'
BESTA GRÍNMYND ÁRSINS
FLUGASAR2
CHARUESHEEN LLOYD BRIDGES VALERIAGOLINO
\<HUVB YOUR GUNS! IT'S HOT SHOTS 2!
Sýnd á slaginu kl. 5,7,9 og 11.
SKJALDBOK-
URNAR3
Sýnd kl. 5.
EINKA SPÆJARINN
Sýnd kl. 7,9 og
11.
Bönnuöi. 16ára.
DREKINN
Sýnd kl. 4.45,
6,50,9 og 11.10.
Bönnuði. I6ára.
r r
NYJA MONTY PYTHON GRINMYND
ALLTIKASSU
IBARBACÍA
YOUR WíSKlT SCOOS> O F INSIOE POOf*
Sýnd kl. 5,7,9 og 11 ÍTHX.
SPENNUÞRILLER SUMARSINS
HVARFIÐ
Vanbhing
.........Illllllllílllllllllli ★ ★★MBL ★★★MBL ★★★MBL
Suðurlandsvegur í Mýrdal
Suðurverk hf. lægst
SUÐURVERK hf. átti lægsta tilboð í lagningu 5,5 km
kafla á Suðurlandsvegi, frá Hvammsá að Vík í Mýrdal.
Tilboðið var 38,6 milljónir kr. sem er tæplega 68% af
kostnaðaráætlun en hún hljóðaði upp á 56,9 milljónir.
Fjögur önnur tilboð bárust á að vera lokið tímanlega
í verkið og voru þau á bilinu fyrir verslunarmannahelgi
44 til 48 milljónir kr. Verkinu næsta sumar.
K ★★★IV
1 □
Lmnn
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11 ÍTHX.
iiiiiiiniimmimii
Jarðbundnir flugásar
Ljúft er að láta sig dreyma
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
Bíóborgin:
Flugásar II - Hot Shots! Part
Deux
Leikstjóri Jim Abrahams.
Handrit Abrahams, Pat
Proft. Aðalleikendur Charlie
Sheen, Lloyd Bridges, Va-
leria Golino, Richard Crenna,
Brenda Bakke. Bandarísk.
20th Century Fox 1993.
í gamanmyndinni Flugásar,
sem vakti talsverða lukku fyrir
tveimur árum, var hent grín að
gerfígörpum kvikmyndanna,
einkum Tom Cruise í Top Gun.
Þetta gekk þokkalega upp hvað
skemmtanagildinu viðvék og
ekki síður peningalega svo höf-
undurinn, Jim Abrahams, hristi
framhaldið í skyndi fram úr erm-
inni. Hann heldur sig á sömu
slóðum, spottast að kunnum
myndum og persónum þeirra,
endurgerir þekkt atriði á sinn
hæðnislega hátt.
Hér er það einkum Rambó
karlinn sem fær á snúðinn, þar
sem hann er fyrirmyndin að
aðalpersónunni sem Charlie She-
en leikur af mælanlegu skop-
skyni. Og Richard Crenna fer
með hlutverk sitt úr Rambó-
bálknum, ofurstann sem hvetur
garpinn til dáða. Sheen er sestur
að í Tælensku klaustri (að hætti
Rambó) eftir hremmingamar í
háloftunum í fyrri myndinni, er
Crenna kemur á vettvang. Nú á
að bjarga gíslunum í Irak.
Ekki merkilegur samsetning-
ur, þetta er stundargaman í fjað-
urvigt. Brandararnir fljúga og
ætli að það megi ekki hlæja að
svo sem fjórðungnum, í allavega
brosa út í annað. Sem fyrr segir
er myndin skopstæling og marg-
ir aðrir koma við sögu en græn-
húfugarpurinn. Hættuleg kynni
fær dijúgan skammt, Bakke
tekst dável að gantast að Sharon
Stone, en því miður fer yfir-
heyrsluatriðið fræga að mestu í
vaskinn.
Fyndnustu atriðin snúast um
persónu íraksforseta, en Abra-
hams hefur grafíð upp ekki að-
eins nauðalíkan heldur einnig"
bráðfyndinn leikara í hlutverkið.
Bridges endurtekur hlutverk
Bensons, sem nú er orðinn for-
seti Bandaríkjanna.
Kvenhlutverkin eru heldur
auvirðileg og í heild situr nánast
ekkert eftir í minningunni. Það.
vantar talsvert upp á að Flugás-
arlfstandi jafnfætis fyrri mynd-
inni og mikið vantar upp á að
Abrahams, sem á m.a. að baki
satírumar Airplane og Top Secr-
et, nái sér virkilega á flug. Má
því fastlega reikna með að hér
hafi verið settur punktur aftan
við Flugásaflokkinn.
Háskólabíó:
Samherjar - Sidekicks
Leiksljóri: Aaron Norris. Tón-
list: Alan Silvestri. Áðalleikend-
ur: Chuck Norris, Jonathan
Brandis, Beau Bridges, Mako,
Joe Piscopo, Julia Nickson-Soul.
Bandarísk. Gallery Films 1993.
Væsklinum Brandis dreymir
garpslega drauma dag og nótt, þar
sem hann fer á kostum ásamt kvik-
myndahetjunni sinni, honum Chuck
Norris. En þegar kauði vaknar af
draumförunum blasir heldur grá-
mygluleg tilveran við. Sjálfur er
hann afturkreistingur og bekkjar-
auli í sífelldum útistöðum við sér
knáari skólabræður.
Karl faðir hans (Bridges) sér að
við svo búið getur ekki staðið leng-
ur og fær gamlan soðgreifa (Mako)
til að hressa upp á líkamsburði
stráksa og kenna honum göfugar
sj álfsvarn aríþróttir.
Myndin minnir talsvert á Karate
Kid myndbálkinn, er þó öllu slak-
ari, eða í þeim B-geira sem Norfis
feðgarnir hafa löngum verið kennd-
ir við. Og nokkru stolið frá Rambó
karlinum , en hann er örugglega
fyrir margt löngu orðinn illu vanur.
Það er ekki við Chuck Norris að
sakast að útkoman er heldur klén.
Hann fer með aukahlutverk - leikur
sem Sé sjálfan sig og tekst það
rétt bærilega, enda persónan ekki
margbrotin. Hins vegar er Brandis
alltof eymingjalegur til að hægt sé
að taka hann á nokkum hátt trúan-
legan. Hann er yfírmáta krokuleg-
ur og ekki líklegur til stórræða.
Jafnvel peðraninn Ralph Macchio
er eins og lyftingatröll við hliðina
á honum. Þó vita allir hvemig
myndir af þessu sauðahúsi enda.
Þá er rómantíkin ámóta lygileg,
jafnt hjá Brandis sem Bridges, sem
leikur föður hans með litlum tilþrif-
um. Mako er nokkuð brattur sem
hinn aldurhnigni þjálfari Brandis.
Nickson-Soul, sem fór með hlut-
verk í annarri Rambómyndinni er
ekki mikil leikkona en hressir óneit-
anlega upp á útlitið. Samherjar
hefði mátt fara beinustu leiðina á
myndbandið þar sem hún á örugg-
lega eftir að pluma sig.