Morgunblaðið - 11.08.1993, Side 44
VISA LEIÐIN UM
EVROPU ^isr
FARKLÚBBUR VISA Simi 91-671700
MORGUNBLADW, KRINGLAN 1 103 REYKJA VÍK
StMl 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 1S55 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTl 85
MIÐVIKUDAGUR 11. ÁGÚST 1993
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK.
Allt bendir til íkveikju í íbúðarhúsi við Njarðargötu í Reykjavík
Maður fórst í
eldsvoðanum
EINN maður fórst er mikil sprenging varð í húsinu Njarðargötu 39
síðdegis í gærdag. Við sprenginguna þeyttust glerbrot úr öllum glugg-
um íbúðarinnar út á götu og eldur gaus upp í húsinu. Allt tiltækt
siökkvilið var kallað á staðinn og gekk greiðlega að slökkva eldinn.
Auk þess tókst að varna því að hann bærist í nærliggjandi íbúðir.
Húsið er gjörónýtt að innan. Að sögn Magnúsar Heigasonar, varð-
stjóra hjá slökkviliðinu, bendir allt til þess að um íkveikju hafi verið
að ræða. Sennilega hafi verið notað til þess bensín, og sprengingin
orðið af völdum bensíngufu. Málið væri þó enn í rannsókn hjá rann-
sóknarlögreglu.
j^Maðurinn sem fórst var einn í
húsinu er sprengingin varð. Guðrún
Guðjónsdóttir, 85 ára gömul kona,
sem heima á í húsi sem sambyggt
er við Njarðargötu 39, segir að hús-
ið allt hafi leikið á reiðislqálfi og
mikill mökkur og glerbrotadrífa hafi
fylgt í kjölfar sprengingarinnar. „Ég
sat inni í stofu og var að hlusta á
útvarpið þegar sprengingin varð og
allt hristist og skalf,“ segir Guðrún.
„Ég fór fram í anddyrið og þá voru
menn komnir þarna að sem sögðu
mér að drífa mig strax út úr húsinu.
■Þegar út var komið lagði mikinn
mökk upp af húsinu og glerbrot voru
dreifð um alla götuna.“
Stórútkall
Slökkviliðinu í Reykjavík barst til-
kynning um sprenginguna og elds-
voðann kl. 17.05. Þegar fyrstu
slökkviliðsbílamir komu á staðinn og
menn sáu aðstæður var ákveðið að
kalla allt tiltækt lið út enda stóðu
þá logar úr öllum gluggum hússins.
Húsið er sambyggt við hús númer
37 og 41 við götuna og miðaðist
slökkvistarf við að hindra útbreiðslu
eldsins. Tveir reykkafarar fóru strax
inn og fundu þeir einn mann í hús-
inu, en hann reyndist látinn er að
var komið.
Jón Friðrik Jóhannsson varðstjóri
í slökkviliðinu segir að svo virðist sem
eldur hafí fyrst orðið laus á gangi
milli hæða hússins en síðan breiðst
fljótlega um allt húsið.
Jónína D. Hilmarsdóttir á heima á
Njarðargötu 37. Hún kom að húsinu
er slökkvistarf var í miðjum klíðum.
Jónína segir að þetta hafi verið tölu-
vert áfall fyrir sig að koma að þessu
en sem betur fer voru bömin ekki
heima er sprengingin varð. „Hvað
íbúðina mína varðar hef ég orðið fyr-
ir töluverðu tjóni af völdum reyk-
mengunar og vatnsaga,“ segir hún.
Slökkvistarf
SLÖKKVILIÐSMENN vinna við að slökkva eld í húsinu viðNjarðargötu
Ríkisstjórn fjallar
um Litla-Hraun
Nýtt fang-
elsi reist
fyrir 1995
RÍKISSTJÓRNIN samþykkti í gær
að veita 10 milljóna króna auka-
fjárveitingu til tafarlausra úrbóta
í öryggismálum á Litla-Hrauni.
Þorsteinn Pálsson dómsmálaráð-
herra kveðst leggja höfuðáherslu
á það í fangelsismálum að bygg-
ingu nýs fangelsis á Litla-Hrauni
verði lokið á árinu 1995 og kveðst
þegar telja tryggt að unnt verði
að veija 100 millj. kr. af fram-
kvæmdafé ráðuneytisins til þeirr-
ar byggingar á næsta ári.
A ríkisstjómarfundi í gær lagði
ráðherra fram skýrslur og greinar-
gerðir um tíð strok frá Litla-Hrauni
að undanfömu og gerði grein fyrir
stöðu fangelsismála. Auk þess sem
að framan greinir kom fram að ósk-
að’yrði úttektar á stjórnun og starfs-
aðferðum á Litla-Hrauni og einnig
hefur ráðherra ákveðið að skipa
starfshóp til að yfirfara lög og reglur
um viðurlög við stroki úr refsivist
og gera tillögur um hvort þau ákvæði
þarfnist endurskoðunar.
Haraldur Johannessen fangelsis-
málastjóri fagnaði viðbrögðum Þor-
steins Pálssonar dómsmálaráðherra
í samtali við Morgunblaðið og kvaðst
telja að með þeim væri tryggt að
nýtt fangelsi yrði byggt á Litla-
Hrauni á næstu árum.
Sjá bls. 21: „Áhersla á ...“
Heimilt að
mynda bíla
á rauðu ljósi
HEIMILT er samkvæmt lög-
um að nota myndavélar við
Ijósastýrð gatnamót, líkt og
borgarráð hefur samþykkt að
setja upp við nokkur gatna-
mót i borginni. Þetta kemur
fram í umsögn skrifstofu-
stjóra borgarverkfræðings.
Um er að ræða ljósmyndavél
sem sett verður upp við tiltekin
gatnamót og tengd umferðar-
ljósabúnaði með þeim hætti að
hún tekur einungis myndir af
þeim bílum, sem ekið er um
gatnamótin gegnt rauðu ljósi.
Þessar myndatökur eru tald-
ar samrýmast lögum um með-
ferð opinberra mála.
Gerðardómur í Herjólfsdeilunni kveður upp úrskurð um kjör skipverja
Óunnir yfirvinnutímar
undirmanna felldir niður
GERÐARDÓMUR samkvæmt lögum um lausn vinnudeilu um borð í
Vestmannaeyjafeijunni Herjólfi hefur kveðið upp úrskurð sinn. Dóm-
urinn fellir. niður óunna yfirvinnutíma sem hásetar og bátsmaður
hafa fengið samkvæmt sérsamningum við stjórn Heijólfs hf. og nem-
ur einni klukkustund fyrir hvern virkan dag. Ekki er hróflað við laun-
um annarra og samningar framlengdir til ársloka. Stjórnarformaður
Heijólfs segist vera mjög sáttur við niðurstöðuna en talsmenn sjó-
manna eru óánægðir.
Alþingi samþykkti undir lok mars-
mánaðar að banna verkfall stýri-
manna á Herjólfi en það hafði þá
staðið í sjö vikur. í lögunum var
ákvæði um að ef ekki hefði samist
fyrir 1. júní verði henni vísað til
gerðardóms sem og varð.
I forsendum úrskurðar gerðar-
dómsins kemur fram að undirmenn
á Heijólfí hafi með sérsamningum
notið betri kjara en tíðkast hafa á
kaupskipaflotanum. Eigi þetta sér-
staklega við um yfírvinnutímana.
Gerðardómurinn bendir á að sam-
kvæmt lögunum sem hann starfar
eftir beri honum að hafa til hliðsjón-
ar gildandi kjarasamninga á kaup-
Flugráð telur flugfélagið Óðin hæft til áætlunarflugs til Grænlands
samningum og leiði það til þess að
fella beri niður þessa launauppbót.
Hin félögin sem aðild áttu að
málinu, Stýrimannafélag íslands,
Vélstjórafélag íslands, Skipstjórafé-
lag Islands og Félag bryta, gerðu
flest verulegar launakröfur og voru
laun undirmannanna þar viðmiðun.
Gerðardómurinn bendir á að ágrein-
ingurinn sé ekki einvörðungu milli
stéttarfélaganna og útgerðar Heij-
ólfs, heldur sé einnig ríkjandi veru-
legur ágreiningur milli stéttarfélag-
anna innbyrðis.
Yfírmenn öryggismála
FLUGRÁÐ samþykkti í gær það álit að Flugfélagið Óðinn hf. teldist
hæft til að sinna áætlunarflugi milli Reykjavíkur og Kulusuk á Græn-
landi. Þrjú íslensk flugfélög hafa sótt um leyfi til þessa flugs til dan-
-skra flugmálayfirvalda sem hafa óskað umsagnar samgönguráðherra
íslands. Samgönguráðuneytið óskaði ekki eftir umsögn flugráðs á hin-
um umsækjendunum, sem eru Flugleiðir og Islandsflug. Tveir fram-
kvæmdasljórar Flugmálastjórnar og formaður flugslysanefndar leggj-
ast eindregið gegn því að mælt verði með Óðni hf.
Trúnaðarbrestur
Fjórir flugráðsmenn greiddu álit-
inu atkvæði en Leifur Magnússon,
formaður ráðsins, tók ekki þátt í
afgreiðslu þess.
Margir af helstu starfsmönnum
Flugmálastjórnar hafa lýst sig and-
víga því að Óðni verði veitt umbeð-
ið leyfi. Grétar H. Óskarsson, fram-
kvæmdastjóri Loftferðaeftirlitsins,
sagði í gær að Loftferðaeftirlitið
hefði síðastliðinn vetur gefið nei-
kvæða umsögn um flugrekstrarleyfi
til handa Óðni. Ekkert hefði breyst
síðan og sagðist hann hafa skrifað
flugmálastjóra minnisblað vegna
málsins í gær. Þar kæmi fram það
álit að af umsækjendunum þremur
væru Flugleiðir augljóslega best
fallnir til að annast þetta flug, síðan
íslandsflug en flugfélagið Óðinn
væri síst til þess fallið. Grétar sagði
að Loftferðaeftirlitið treysti ekki
aðstandendum Óðins vegna ýmissa
atvika sem upp hefðu komið í ör-
yggismálum þegar þeir sitt fyrra
ámóti
flugfélag, sem þá stundaði m.a. flug
til Grænlands í nafni Helga Jóns-
sonar, þar hefði orðið alger trúnað-
arbrestur. Hann sagði að íslensk
flugmálayfirvöld yrðu að athlægi
ef lakasti kosturinn yrði valinn.
Skúli Jón Sigurðarson, fram-
kvæmdastjóri flugslysadeildar
Flugmálastjórnar, og Karl Eiríks-
son, formaður flugslysanefndar,
hafa einnig mælt gegn leyfisveit-
ingu til Óðins með svipuðum rökum
og Loftferðaeftirlitið og gert ráð-
herra grein fyrir afstöðu sinni, að
hans ósk.
Mismunandi viðbrögð
Grímur Gíslason, stjórnarformað-
ur Heijólfs hf., sagðist vera mjög
sáttur við niðurstöðu gerðardómsins.
Sagðist hann telja að niðurstaðan
styrkti þann málflutning stjómar-
innar að nauðsynlegt væri að endur-
skoða þessi samningsákvæði. Gerð-
ardómurinn staðfesti að samningar
undirmanna hefðu fært þeim laun
umfram það sem tíðkaðist á kaup-
skipum.
Jónas Ragnarsson, formaður
Stýrimannafélags íslands, sagðist
vera óánægður með að samnings-
bundin laun undirmanna hefðu verið
lækkuð, það hefði ekki verið vilji
stýrimanna, þeir hefðu viljað launa-
hækkun. Óskar Vigfússon, formaður
Sjómannasambands Islands, sagðist
vera undrandi á niðurstöðunni.