Morgunblaðið - 20.08.1993, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. ÁGÚST 1993
5
Morgunblaðið/Bjarni
Bíótjald í Holtagörðum
UNNIÐ hefur verið að því að setja upp stórt kvikmyndatjald í Holta-
görðum, en þar verður fyrsta bílabióið í Reykjavík opnað í kvöld.
Bílabíó í Holtagörð-
um opnað í kvöld
FYRSTA bílabíóið í Reykjavík verður opnað í kvöld við Holtagarða.
Bíóið verður opið tU 20. september næstkomandi og að sögn Arndísar
Kristjánsdóttur, annars af tveimur framkvæmdastjórum bílabíósins,
verða 15 sýningar á jafnmörgum kvikmyndum, og verða þær sýndar
á sýningartjaldi, sem er 5,2 metrar á hæð og 12 metrar að breidd.
Um 200 bílar komast á hveija sýningu.
Arndís segir að sýningartjaldið sé
sérstaklega hannað fyrir íslenskar
aðstæður. Það er búið til úr spóna-
plötum, og það var íþrótta- og tóm-
stundaráð Reykjavíkur sem sá um
smíði þess. Spónaplöturnar voru svo
málaðar með sérstakri málningu og
segir Amdís að það gefi sömu áferð
og hefðbundið sýningartjald. „Það
þýðir ekkert að vera með einhvem
dúk sem sýningartjald í roki og rign-
ingu á íslandi. Við erum búin að
prófa búnaðinn og þetta eru bara
bestu gæði,“ segir Amdís.
Hljóð kvikmyndanna eru á sér-
stakri útvarpsrás, sem bíóið hefur
fengið til afnota og verða bíógestir
að stilla útvörp sín á FM 88.6 til að
ná hljóðinu. Þá segir Arndís að Há-
skólabíó hafí útvegað þeim kvik-
myndir til sýningar.
Fólk á línuskautum tekur
pantanir á poppi
„Það verða stelpur og strákar á
línuskautum á svæðinu, sem taka
niður pantanir á poppi og kóki og
öðru sælgæti óg koma svo aftur með
það til fólks í bílana. Það er gaman
að prófa eitthvað nýtt, en þessi hug-
mynd um bílabíó hefur oft komið upp
hjá fólki en aldrei verið framkvæmd
fyrr en nú. Við erum viss á því að
þetta eigi eftir að ganga upp þar sem
Islendingar eru bæði svo mikil bíla-
og bíóþjóð,“ segir Arndís og bætir
því við að fólk borgi 400 kr. fyrir
bílinn og 300 kr. á mann.
Hún segir að fólk hafi verið mjög
hjálplegt við að koma bíóinu upp og
ef þetta gangi vel nú geti vel verið
að þetta verði árlegur viðburður, en
haustin séu í raun eini tíminn til að
gera svona hér á landi því þá sé far-
ið að dimma og veðrið nógu gott til
að sýna kvikmyndir utandyra.
Aðstandendur bílabíósins eru auk
Arndísar, Breki Karlsson, Gunnlaug-
ur Guðmundsson, Ásgeir Thoroddsen
og Ásdís Þórhallsdóttir, en hún er
einnig framkvæmdastjóri bíósins.
Nýr kjörræðis-
maður í Houston
ÓLAFUR Árni Ásgeirsson, verk-
fræðingur, hefur verið skipaður
kjörræðismaður íslands í Houst-
on, Texas, og tekur við því starfi
af dr. Charles Howard Hallson.
Ólafur Árni lauk stúdentsprófi
frá Menntaskólanum á Akureyri
árið 1952 og prófi í landmælinga-
verkfræði frá háskólanum í Bonn
1959. Að námi loknu starfaði hann
hjá skipulagsstjóra ríkisins en
fluttist til Bandaríkjanna árið
1967. Þar hefur hann starfað sem
verkfræðingur, nú um nokkurt
árabil hjá The Woodlands Corpor-
ation í útjaðri Houstonborgar.
Kona hans er Guðrún Sigríður.
Ottósdóttir og eiga þau þijú börn.
Ólafur Árni Ásgeirsson
Leigumiðlun stúdenta
Framboðið á húsnæði
aukist að uiidanfömu
FRAMBOÐ á húsnæði hjá Leigumiðlun stúdenta hefur aukist að undan-
förnu og á þremur dögum komu 70 herbergi og íbúðir á skrá hjá
miðluninni. Miðlunin hefur haft milligöngu um leigu á 500 herbergjum
og íbúðum og segir Þorsteinn Þorsteinsson framkvæmdastjóri Stúd-
entaráðs að það sé um það bil þörfin.
Eftirspum eftir húsnæði fyrir
veturinn er afar mikil meðal náms-
manna. „Eftirspurnin er gríðarleg
núna og framboðið hefur ekki verið
nógu gott af íbúðum en mikið fram-
boð er af herbergjum,“ sagði Þor-
steinn.
Hann sagði að leiguverð á 2-3
herbergja íbúðum hefði lækkað frá
því um vor 1991 um 10% að jafn-
aði á meðan leiguverð á einstakl-
ingsíbúðum og herbergjum hefði
staðið í stað.