Morgunblaðið - 20.08.1993, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. ÁGÚST 1993
Pétur Gautur sýnir
málverk í Portinu
PÉTUR Gautur Svavarsson opn-
ar málverkasýningu í Portinu,
Strandgötu 50, Hafnarfirði, á
morgun, laugardaginn 21. ág-
úst, kl. 15.
A sýningunni sýnir hann olíu-
málverk en myndirnar eru verk
síðustu þriggja ára. Pétur Gautur
stundaði nám við Myndlistaskóla
Reykjavíkur og málaradeild Mynd-
lista- og handíðaskóla íslands.
Einnig hefur hann numið leik-
myndateiknun hjá Statens Teater-
skole í Kaupmannahöfn. Sýningin
er fyrsta einkasýning listamanns-
ins og stendur hún til sunnudags-
ins 12. september.
Sýningarsalir Portsins eru opnir
alla daga nema þriðjudaga frá kl.
14-18.
Pétur Gautur Svavarsson.
Sumarhús -
Hraunkoti, Grímsnesi
Höfum í sölu glæsilegt, fullbúið sumarhús á fallegum
stað í landi Hraunborga í Grímsnesi. Húsið er 42,2 m2
á stærð og með góðri verönd. 3 svefnherb., eldhús,-
baðherb. og stofa.
Sumarbústaðnum fylgir 5000 m2 leigulóð (leiga hefur
verið greidd til 25 ára).
Verð mjög gott - 4.000.000,-.
Nánari upplýsingar veita:
Lögmenn Suðurlandi,
Austurvegi 3,
sími 98-22988.
FASTEICN ER FRAMTÍD
FASTEIGNA
áft
if
MIÐLUN
SVERRIR KRISTJANSS0N LOGGILTUR FASTEIGNASALI
SUÐURLANDSBRAUT 12, 108 REYKJAVÍK, FAX 687072
SÍMI 68 77 68
Ósabakki - raðhús
Óvenju. gott og glæsil. 217 fm
pallaraðh. 5 svefnherb., stórt og
björt stofa m. arni, rúmg. sjónv-
hol. Sérinng. í kj. Innb. bílsk. Út-
sýni. Skipti á minni eígn koma til
greina. Verð 13,5 millj.
Geitland
Gott ca 180 fm pallaraðhús ásamt
bílsk. 4 svefnherb., stórar stofur.
Verð 14,2 millj.
Vfðihlíð - raðhús
Fallegt ca 300 fm raðhús sem er
kj., hæð og ris. Séríb. í kj. Bíl-
skúr. Mjög rúmg. og falleg íb.
Áhv. ca 8,0 millj. húsbr. + veðd.
Verð 19,0 millj.
Blönduhlið
Góð ca 120 fm efri hæð í fjórbýli
ásamt 60 fm bílsk. Parket. 3
svefnherb., stórar stofur.
Kaplaskjólsvegur
Falleg ca 90 fm íb. á 1. hæð í fjölb-
húsi. Tvær íb. í stigagangi. Nýl.
innr. 2 stofur, 2 svefnherb. Park-
et. Áhv. 4,3 millj. Verð 7,5 millj.
Bæjartún - Kóp.
Mjög gott nýl. ca 300 fm tvíbhús
ásamt bílsk. Stórt og glæsil. innr.
eldhús, rúmgóðar stofur, 4 svefn-
herb. o.fl. Á jarðhæð er sér 2ja
herb. íbúð. Skipti á minni eign
koma til greina.
Reykjabyggð - einb.
Ca 130 fm einbhús ásamt 49 fm
bílskplötu. Fallegt timburhús frá
SG-einingum. Fullgerð m. vönd-
uðum innr. Skápar í öllum herb.
Parket. Vel staðsett. Útsýni. Góð
eign. Skipti á minna í Mosbæ.
Áhv. 4,8 millj. veðd. Verð 12,4 m.
Lækjarhjalli - Kóp.
- einbýli
Mjög vel hannað og nýtt ca 200
fm einbhús á tveimur hæðum
ásamt 53 fm útgröfnu rými. Innb.
bílsk. Glæsil. innr. Skipti á minni
eign. Áhv. ca 3,0 millj. V. 16,9 m.
Flyðrugr. - sérinng.
Mjög falleg ca 130 fm íb. m. sér-
inng. Mjög stór stofa. Svalir yfir-
byggðar að hluta. 3 svefnherb.,
fallegt eldhús. (b. hentar mjög vel
fullorðnu fólki. Áhv. ca 2,0 millj.
veðd. Verð 11,5 millj.
Eyktarsmári -
Kópavogsdal
Fjögur raðhús á einni hæð.
Húsin eru í smfðum og afh.
tilbúin að utan, ómáluö og
fokheld að innan. Húsin eru
ca 150 fm með bílskúrum.
Verð frá 7,8 milij.
UM HELGINA
Hulda Guðrún Geirsdóttir og Hólm-
fríður Sigurðardóttir.
Tónleikar í Lista-
safni Siguijóns
Á þriðjudagstónleikum í Listasafni
Siguijóns Ólafssonar þann 24. ágúst
kl. 20.30 koma fram söngkonan Hulda
Guðrún Geirsdóttir og Hólmfríður Sig-
urðardóttir píanóleikari. Á efnisskrá
eru m.a. lög eftir Leonard Bernstein,
Gabriel Fauré og Richard Strauss og
óperuaríur eftir Puccini, Leoncavallo,
Gounod og Dvorák.
Hulda Guðrún Geirsdóttir lauk námi
frá píanó- og söngdeild Tónlistarskól-
ans í Reykjavík árið 1989, þar sem
hún nam söng hjá Elísabetu Erlings-
dóttur. Sumarið 1992 útskrifaðist hún
frá framhaldsdeild Richard-Strauss-
Konservatorium í Múnchen, en aðal-
kennari hennar þar var Ursula Hirsch-
berger. Hún hefur haldið fjölda ein-
söngstónleika hér heima og í Þýska-
landi og m.a. komið fram sem ein-
söngvari í óperunni Carmina Burana
eftir Carl Orff.
Hólmfríður Sigurðardóttir hóf
píanónám sitt 7 ára gömul í Tónlistar-
skólanum á Isafirði og var Ragnar H.
Ragnar aðalkennarí hennar. Fram-
haldsnám stundaði hún í Tónlistarhá-
skólanum í Múnchen og þaðan lauk
hún einleikara- og kennaraprófi árið
1980. Hólmfríður starfar sem undir-
leikari við Söngskólann í Reykjavík.
Flytjendur á Kammertónleikunum á
Kirkjubæjarklaustri.
Kammertónleikar á
Kirkj ubæj arklaustri
Árlegir kammertónleikar verða á
Kirkjubæjarklaustri helgina 20.-22.
ágúst og eru flytjendur að þessu sinni
Auður Hafsteinsdóttir, fiðla, Bergþór
Pálsson, baritón, Bryndís Halla Gylfa-
dóttir, selló, Edda Erlendsdóttir, píanó,
Steinunn Bima Ragnarsdóttir, píanó
og Zoltan Toth, víóla, en þetta er í
fyrsta skipti sem hann leikur á ís-
landi. Zoltan Toth er prófessor í kam-
mertónlist við tónlistarháskólann í Ly-
on og er í Ravel-strengjakvartettinum.
Tónleikamir heijast í kvöld, föstu-
dagskvöld, kl. 21. með sónötu eftir
Hummel fyrir víólu og píanó, þá era 4
ljóðasöngvar eftir Schubert fyrir bari-
tón og píanó, 8 þjóðlagaútsetningar
fyrir baritón og píanótríó eftir Beethov-
en, Elegie eftir Fauré og Raquiebros
eftir Cassado fyrir selló og píanó. Á
morgun, laugardag, hefjast tónleikam-
ir kl. 17 og þá er m.a. á dagskrá Play-
era eftir Sarasate og ungverskur dans
eftir Brahms fyrir fiðu og pfanó, són-
ata fyrir víólu og píanó eftir Brahms
og sónata fyrir fiðlu og selló eftir Ra-
vel og að lokum 3 ljóðasöngvar eftir
Duparc.
Tónleikarnir á sunnudag eru kl. 15
og þá er á efnisskrá svíta fyrir víólu
eftir Reger, Conte fyrir selló og píanó
eftir Janacek, píanókvartett eftir Moz-
art fyrir píanó, fiðlu, víólu og selló og
loks 4 lög eftir íslenska höfunda fyrir
baritón og píanó.
Steinunn Marteinsdóttir, Bragi Ás-
geirsson og Sigríður Ásgeirsdótir.
Sumarsýningu
Hulduhóla að ljúka
Sumarsýningu Hulduhóla sem staðið
hefur yfir frá 3. júlí lýkur nú um helg-
ina. Þetta er þriðjá sumarið sem slík
sýning er haldin. Að .þessu sinni sýna
í efri salnum Bragi Ásgeirsson listmál-
ari, glerlistakonan Sigríður Ásgeirs-
dóttir, sem sýnir um þessar mundir
einnig í Bandaríkjunum og ung lista-
kona, Olga Soffía Bergmann, sem út-
skrifaðist úr MHÍ 1991, sýnir málverk
og grafík.
Húsráðandinn Steinunn Marteins-
dóttir sýnir verk í vinnustofu sinni á
neðri hæðinni og eru það verk unnin
úr steinleir.
Sýningin er opin frá kl. 14-19 dag-
lega og stendur hún fram á sunnudags-
kvöld. Sýningunni verður ekki fram-
lengt.
Skúlptúr í Gallerí 11
Inga S. Ragnars-
dóttir opnar skúlpt-
úrsýningu í Gallerí 11
við Skólavörðustíg á
morgun,. laugardag-
inn 21. ágúst. Inga
stundaði nám við
Myndlista- og hand-
íðaskóla íslands Inga S.
1973-1977 og í Lista- Ragnarsdóttir.
háskólanum í Múnchen 1979-1981 og
1984-1987. Hún hefur tekið þátt í fjöl-
mörgum samsýningum hér heima og
erlendis en þetta er ljórða einkasýning
hennar. Inga hefur verið búsett í
Þýskalandi frá 1977 en alltaf starfað
nokkra mánuði á ári á Islandi.
Verkin á sýningunni era unnin úr
stúk-marmara, stáli og blikki og eru
öll unnin á þessu ári.
Sýningin er opin daglega frá kl.
14-18 og stendur til 5. september.
Yerk Daníels Þ.
Magnússonar
á Kjarvalsstöðum
Daníel Þ. Magnússon opnar sýningu
á Kjarvalsstöðum á morgun, laugardag-
in 21. ágúst kl. 16.
Daníel er fæddur í Reykjavík árið
1958 og nam við Myndlista- og handíða-
skóla Islands á árunum 1983-1987.
Hann var aðstoðarmaður Jóns Gunnars
Árnasonar myndhöggvara 1987-1988.
Daníel hefur tekið þátt í samsýning-
um í Reykjavík, Danmörku, Hollandi
og nú síðast í London þar sem hann
sýndi í Butlers Wharf. Hann hefur einn-
ig haldið einkasýningar hér á landi og
erlendis, þá fyrstu í Nýlistasafninu 1989
og á þessu ári hélt hann einkasýningu
í Van Den Berge-galleríinu í Hollandi.
Hann hefur gert margar leikmyndir
fyrir leikhús, sjónvarp, tónlistarmynd-
■ bönd og kvikmyndir og hann tók einnig
þátt í lokaðri samkeppni um gerð lista-
verks í Borgarstjórnarsal Ráðhúss
Reykjavíkur 1991.
Sýningin er opin daglega frá kl. 10-18
og stendur til sunnudagsins 12. septem-
ber.
Akrílmálverk og tré-
ristur í Hafnarborg-
Sigurlaugur Elíasson sýnir akrílmál-
verk og tréristur í Hafnarborg, menn-
ingar- og listastofnun Hafnarfjarðar.
í Sverrissal eru sýnd verk úr safni
Hafnarborgar. Síðasta sýningarhelgi.
Þorfinnur sýnir
í Listasafni ASÍ
í Listasafni ASÍ verður opnuð sýning
á málverkum og teikningum eftir Þorf-
inn Sigurgeirsson á morgun, laugardag-
inn 21. ágúst. Þorfínnur er fæddur í
Keflavík árið 1963. Að loknu stúdents-
prófi 1983 stundaði hann nám við Mynd-
lista- og handíðaskóla Islands og útskrif-
aðist þaðan 1987. Sama ár fluttist hann
til Montreal í Kanada. Þar lauk hann
BFA-gráðu í málun og teikningu frá
Concordia Uniyersity árið 1990.
Þetta er tíunda einkasýning Þorfmns
en hann hefur einnig átt verk á samsýn-
ingum hér heima og í Kanada. I verkum
Þorfinns leynast ágengar spumingar
hvað varðar manneskjuna og samtím-
ann; siðferðilega ábyrgð mailnsins gagn-
vart umhverfi sínu og eigin lífi. Yrkisefn-
ið er hinn þunni blái þráður sem skilur
á milli lífs og dauða, staðreynda og
goðsagna, sannleika og lygi, raunveru
og skáldskapar, vitsmuna og tilfmninga,
lifunar og minningar, nútíðar og þátíð-
ar, hávaða og þagnar, ljóss og myrk-
urs, dags og nætur, fegurðar og ljót-
leika, góðs og ills, gleði og sorgar, anda
og efnis.
Sýning Þorfinns er styrkt að hluta
af menningarmálaráðuneytinu í Quebec
(Ministére des Affaires Culturelles du
Québec).
Sýningin er opin alla daga nema mið-
vikudaga frá kl. 14-19. Sýningunni lýk-
ur 5 september.
Þorfinnur Sigurgeirsson við verk sín.
Tvöfalt afmæli í Gerðubergi
________Tónlist____________
Ragnar Björnsson
Á afmælidegi Reykjavíkurborg-
ar minntist Gerðuberg tíu ára af-'
mælis síns með tónleikum og til
var kallaður borgarlistamaðurinn
Auður Hafsteinsdóttir fiðluleikari,
ásamt Guðríði St. Sigurðardóttur
píanóleikara. Þetta voru um leið
fyrstu tónleikar af níu talsins, sem
fyrirhugaðir eru á þessu starfsári.
Sannarlega hafa forystumenn
Gerðubergs staðið vel að tónleika-
haldi á staðnum á þessum tíu fyrstu
árum stofnunarinnar og vonandi
verður ekkert lát þar á næstu tíu
árin a.m.k. Gerðuberg hefur að
vísu verið heppið að hafa Jónas
Ingimundarson búandi á svæðinu,
en bjartsýni Jónasar og trú á það
sem hann tekur sér fyrir hendur
fær, sem betur fer, fátt staðist.
Þetta gefur vitanlega til kynna að
Jónas hafi verið pottur og panna
tónleikahaldsins, en einn er maður-
inn aðeins hálfur, hinn helmingur-
inn, í þessu tilfelli, hafa verið for-
ráðamenn Gerðubergs. í efnisskrá
þessara afmælistónleika er
skemmtileg og fróðleg umfjöllun
um notkun orðsins „sonata",
hvernig orðið hefur hlaðið utan á
sig merkingum, í gegnum árhundr-
uðin, hvaða skilning menn lögðu í
orðið fyrr á öldum og einnig mis-
skilning. Þessi umfjöllun er eftir
Önnu Margréti Magnúsdóttur og
leyfi ég mér að taka eina tilvitnun
úr grein Önnu, en þar segir eftir
þeim fræga Praetoriusi, að sam-
kvæmt hans skilningi eigi „sónötur
að vera alvarlegar og tilkomumikl-
ar að hætti mótettunnar, en kan-
sónur hafa margar svartar nótur
sem hlaupa rösklega, fjörlega og
hratt gegnum þær“. Auður Haf-
steinsdóttir er frábær fiðluleikari
og gædd kostum sem gætu borið
hróður hennar víða. Verkefnaval
afmælistónleikanna var þó þannig
samansett að sýndi kannske ekki
bestu hliðar Auðar. Nútímaverkin
virðast höfða sérlega til hennar og
t.d. í verki Lars Karlssons sýndi
hún t.d. ótrúlega nákvæmni í mjög
erfiðum tvígripum og vitað var að
Kreisler liggur henni í blóðinu.
Bach-sónatan kom á óvart, þótt
undirritaður væri ekki alveg sam-
mála öllum tempóunum, og sann-
arlega væri gaman að heyra hana
spila einu sinni efnisskrá með svo-
kölluðu klassísku efnisvali, fátt er
líka hljóðfæraleikurum hollara. í
verkefnum líkum Fauré, Elman og
Elgar má Auður, aftur á móti,
passa sig á að láta skapið ekki
yfirspila sig. Guðríður fylgdi Auði
vel í hinum ólíkustu verkefnum.