Morgunblaðið - 20.08.1993, Page 38

Morgunblaðið - 20.08.1993, Page 38
38 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. ÁGÚST 1993 ©1989 Umversal Pfess Syndicate „ TJeyr&u, zrt f>ý ekkC eJdci Jonas JÓnss öfí 09 Pébur Pdtsson. ?“ HÖGNI HREKKVÍSI LOFTBÆTl/'' Sltargimltfftfeife BRÉF TTL BLAÐSINS Kringlan 1 103 Reykjavík - Sími 691100 - Símbréf 691329 Léleg dagskrá Ríkisútvarpsins Frá Ármanni Ármannssyni: Undirritaður hefur lengi verið í hópi dyggustu hlustenda Ríkisút- varpsins, rásar eitt, og ekki séð ástæðu til þess að kvarta yfir efni rásarinnar fyrr en nú. Þannig er mál með vexti að ég hef haft það fyrir venju að setjast ætíð niður á sunnudagskvöldum og hlýða á dag- skrá rásar eitt. Hægt og sígandi hefur þessi dagskrá hins vegar far- ið hraðversnandi og er nú svo kom- ið að ég get ekki orða bundist. Eftir kvöldfréttir hefst Helgar- þáttur barnanna, sem er virðingar- verður út af fyrir sig. Á eftir honum kemur hljómplöturabb Þorsteins Hannessonar og er það ágætt skemmtun. Að rabbinu loknu fer ástandið hins vegar versnandi, því þá hefst sögulestur vikunnar. Það hlýtur að teljast einn leiðinlegasti þáttur sem ég hef heyrt og með öllu óskiljanlegur. Hvað í ósköpun- um fær fólk til þess að lesa upp úr hrútleiðinlegum bókum í út- varpi? Auðvitað er það smekksatriði hvort Ólafs saga Helga sé leiðinleg og eflaust finnast fáeinir einstakl- ingar sem hafa gaman af henni. En ég spyr þá: Eru þeir menn ekki læsir! Hví í veröldinni þarf að lesa bækurnar fyrir þá? Eru þeir ekki einfærir um það? Ég hélt að ólæsi hefði verið útrýmt hér á landi. Sögulestur er réttlætanlegur þegar hann er framkvæmdur fýrir börn, en einhvem veginn hef ég það á tilfinningunni að fæstir af áhang- endum Olafs Helga séu á barns- aldri. Mér þykir hins vegar rétt að taka það fram að stúlkan sem les sögurnar, gerir það með mikilli prýði. Það hefur þó lítið að segja. Ekki frekar en Valdimir Ashkenasy getur spilað lög á ónýtt píanó svo fallega hljómi, getur stúlkan lesið hrútleiðinlegar bókmenntir svo skemmtilega hljómi. Lestrinum lýkur klukkan tíu og næsta klukkutímann er meginuppi- staða dagskrárinnar tónlist ýmiss konar. Klukkan ellefu kemur síðan að síðasta dagskrárlið kvöldsins, rúsínunni í pylsuendanum, eða öllu frekar stíflunni í klóakendanum. Það eru fijálsar hendur Illuga Jök- ulssonar. Illugi tilheyrir greinilega þeim fámenna flokki manna, sem heldur að útvarpið sé til að skemmta þeim sem fram í því koma, en ekki þeim sem á það hlusta. Þetta sjónar- mið væri svo sem saklaust, ef for- ráðamenn útvarpsins væru ekki á sömu skoðun og borga honum fyrir Frá Jóni Pálssyni: Straumur ferðafólks um Vík í Mýrdal er mikill og vaxandi og hafa skilyrði til móttöku ferðafólks aukist að sama skapi. Ég verð að lýsa gleði og undrun minni yfir „nýju húsi“ sem tekið hefur verið í notkun til gestamóttöku í Vík. Húsið hefur að vísu staðið þar síð- astliðin fjörutíu ár, teiknað af Guð- jóni Samúelssyni, sem sýslumanns- bústaður og sýsluskrifstofa. Þar hafa búið tveir sýslumenn Skaftfell- inga, Jón Kjartansson og Einar Oddsson. Líklega hefur viðhaldi hússins verið ábótavant því þegar núverandi settur sýslumaður í Vík fluttist þangað árið 1989 var húsið talið óíbúðarhæft og ríkið sá sýslu- manni fyrir nýju húsnæði í Vík. Við þau tímamót hefst saga húss- ins er nefnt var hér að framan og heitir það nú því bjarta nafni „Ár- salir“, merkt sem gististaður ásamt kaffisölu. Sannarlega ber húsið nafn með rentu. Að utan er það reisulegt og setur svip á þorpið. að skemmta sjálfum sér í klukku- tíma á hverjum sunnudegi. Annars særir það mig lítt að vita til þess að hluti af afnotagjöldum mínum fer í að kosta einkateiti Illuga mið- að við þá sálarangist sem ég hlýt af því að hlusta á vaðalinn í honum vikulega. Ef yfirmenn hans á út- varpinu halda að hörgull sé á vinnu- stöðum þar sem mönnum er borgað fýrir að skemmta sjálfum sér og hafa áhyggjur af því að Ulugi fái því ekki aðra vinnu en hjá RÚV, þá styð ég heilshugar að honum séu borguð- laun fyrir að koma ekki fram í útvarpi. Mörgum þykir kannski sitthvað rangt við það að borga manni fyrir að gera ekki neitt, en allir þeir sem heyrt hafa sunnudagsþátt hans hljóta að fagna slíkri ráðstöfun. ÁRMANN ÁRMANNSSON, Sóleyjargötu 10, Akranesi. Er inn er komið vekur það undrun hve allt er vistlegt og viðkunnan- legt. í kjallara er svefnpokapláss en á hæðinni eldhús og tvær sam- liggjandi stofur, vel búnar til veit- ingasölu og auk þess sérlega aðlað- andi setustofa. Allir innanstokks- munir falla vel að aldri og sögu hússins. Á annarri hæð eru svefn- herbergi og rúmgóð hreinlætisað- staða. Athygli vekur þegar upp er komið svefnherbergi fyrrum sýslu- mannshjónanna. Gefur það lítið eft- ir „svítum" gistihúsa stórborganna. Frá rúmgóðum svölum blasa við iðagræn tún, þorpið á grónum sandi og Ijær hamrar og haf svo langt sem augað eygir. Við greiddum húsráðendum kaff- ið með gleði og þökkum þeim fyrir að hafa komið þessu fjörutíu ára sýslumannssetri til nota á ný með þeirri virðingu sem þvf vissulega sæmir. JÓN PÁLSSON frá Litlu-Heiði, Dalbraut 25, Reykjavík „ Sýslumannsbústað- urinn“ í Vík í Mýrdal Yíkveiji skrifar Víkvetji fór í sumar upp á Amar- vatnsheiði og var tilgangur- inn að veiða silung. í Húsafelli em seld veiðileyfi og kosta þau hátt á annað þúsund krónur dagurinn. Það er í sjálfu sér ekki mikið, ef eitt- hvað væri gert á móti fyrir veiði- mennina, sem fara þarna inn á heiðina. En sjáanlega er það ekk- ert, vegirnir inn að vötnunum á heiðinni eru svo vondir, að ekki er nægjanlegt að fara þangað á venju- legum jeppa eins og hann er seldur frá umboðum í Reykjavík, heldur þarf að breyta bílunum til sérstaks torfæmaksturs, hækka þá og skipta um alla hjólbarða. Víkveija fmnSt að þar sem menn taka fé af fólki fyrir að fara í þessi vötn, sé nauðsynlegt að gera mönn- um kleift að komast leiðar sinnar, fjarlægja stærstu björgin úr vegar- slóðunum og gefa mönnum kost á að nálgast þessi dýrt seldu vötn á venjulegum torfæmbflum. Hitt er svo annað mál, hvort vötn þessi em endilega eign bændanna, þótt þeir eigi upprekstrarrétt á svæðið. Stundum hefur verið um það rætt að þjóðin eigi hálendið og lagabók- stöfum flaggað í þeirri umræðu, en enginn veit greinilega hver á hvað úr því að bændum leyfist að taka fé af fólki, sem langar til þess að renna fýrir fisk í þessum vötnum í óbyggðum. xxx Reykjavíkurmaraþonið er á sunnudaginn og er þetta í tí- unda sinn, sem það er haldið. Þetta hefur orðið mjög vinsæll þáttur í síðsumarslífi höfuðborgarinnar, sem sést bezt af því að árið 1984, þegar það var fyrst haldið, hljóp 281 einstaklingur, en í fyrra var þátttakan 2.742 og þess er vænzt að í ár verði metþátttaka í hlaupinu. Maraþonið er haldið af Fijáls- íþróttasambandi íslands og Reykja- víkurborg og taka jafnan reyndir erlendir hlauparar þátt í því. Mara- þonið var fyrst hlaupið á Olympíu- leikunum 1896 og þá til þess að minnast frækilegs hlaups grísks hermanns, sem færði Aþenubúum fréttir af sigri aþenskra heija á persneskum hersveitum árið 490 fyrir Krist og datt hann dauður niður á leiðarenda. Sá hljóp 42.195 metra og er vegalend hlaupsins miðuð við það. Hermaðurinn hljóp frá þorpinu Maraþon til Aþenu, en þorpið stóð á samnefndri sléttu norður af Aþenu. Hvorki er ljóst hvert nafn þessa eina sanna mara- þonhlaupara var né á hve löngum tíma hann hljóp, en annars hlaup- ara er getið með nafni frá þessum tíma og hljóp hann árið áður, eða 491 fyrir Krist, frá Aþenu til Spörtu til þess að sækja hjálp er fregnir spurðust í Aþenu um fall Eritreu. Sá sendiboði hét Pheidippides og vissulega gæti verið um sama mann að ræðá, nema Grikkir hafi á þess- um tíma átt hlaupagikki á hveijum fingri. Annars er vegalengdin frá Aþenu til Spörtu að minnsta kosti fimm sinnum lengri en leiðin til Maraþon og því vart um að ræða að nokkur mannleg vera hafi getað hlaupið þá vegalengd í einni lotu. xxx En hvað sem því líður vonumst við til að þátttakan í hlaupinu á sunnudag verði mikil, en biðjum fólk samt lengstra orða að ætla sér ekki um of, eins og hermaðurinn sýnilega gerði árið 490 fyrir Krist. i í í i i i i í i i i i ( ( (

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.