Morgunblaðið - 08.09.1993, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 1993
Þyrla, flugvél og 20 björgunarmenn leituðu að feðgum á Vatnajökli
Töfðust vegna þoku en
komust sjálfír til byggða
vS* d.A ‘ i
MIKIL leit var gerð að tveimur mönnum á Vatnajökli í gær-
dag. Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út en auk hennar
tóku lítil flugvél frá Höfn í Hornafirði og um 20 björgunar-
sveitarmenn frá Kirkjubæjarklaustri og Öræfasveit þátt í leit-
inni. Mennirnir töfðust vegna þoku og komust af eigin ramm-
leik til byggða í gærkvöldi.
Morgunblaðið náði tali af öðr-
um jöklafaranum, Benedikt
Kristinssyni, þegar hann var
kominn að Bölta í Öræfum ásamt
föður sínum, Kristni Benedikts-
syni. „Þetta var vissulega ævin-
týri,“ sagði Benedikt. „Við lögð-
um á jökulinn á mánudag frá
Grænalóni, upp Grænafjallið og
þaðan á jökulinn. Við ætluðum
upp á Þumal, skyggnið var í lagi
þar sem við fórum upp en dimmt
í fjöllunum við Þumalinn." Feðg-
amir höfðu ekki gengið langt inn
á jökulinn þegar skall á svarta-
þoka og gengu þeir 5 til 6 klukku-
tíma eftir áttavita. Til að ganga
þessa leið á Þumal á gönguskíð-
um verður að fara leið sem ligg-
ur í hálfhring. „Ég ákvað að taka
ekki áhættuna af að þvælast
þarna um í þokunni óg við tókum
stefnuna niður jökulinn í stað
þess að halda áfram að Þumli,“
segir Benedikt. Þegar leið að
kvöldi birti til og tjölduðu þeir
um sjöleytið á mánudagskvöld
uppi á jöklinum þar sem var
heppilegt tjaldstæði.
I gærmorgun gengu þeir niður
eftir miðjum Skeiðaráijökli í
glampandi sólskini og blíðu. „Við
þurftum að þræða fyrir sprungur
á leiðinni. Þetta er bara ís og
tiltölulega hættulítið að fara
þama niður á góðum mannbrodd-
um, spmngurnar sjást vel og
enginn snjór yfir þeim.“ Feðgarn-
ir fóru síðan um þriggja km leið
frá jökuljaðrinum að þjóðvegin-
um. Þar gengu þeir í veg fyrir
hópferðabíl Austurleiðar og
fengu far með honum inn í
Skaftafell.
Benedikt og Kristinn hafa
dvalið undanfarna daga í Skafta-
*
m
(ir'analdn
T N A\J Ö K U L L
Áætluð leið
mannanna
Skeiðayír- y J ?Skáft^feH . Óræfa-
jökull^,. jf*P' r , jökuli
nlðurafjöklinum
!® k e i ð a r á r' s a n d u r\ }a <r /í
þ 5 'JO/lSkm J ■---n
Inpólfshöföi
Kortið sýnir ferðaáætlun feðg-
anna og hvar þeir komu af jökl-
inum.
felli og gengið á fjöll, meðal ann-
ars tvisvar á Hvannadalshnjúk.
Þeir eru þaulvanir íjallgöngum
og vanir skíðagöngumenn.
Fjórir með
fölsuð
vegabréf
STARFSFÓLK Flugleiða stöðv-
aði í gær fjóra menn sem ætluðu
að ferðast til Bandaríkjanna með
vafasöm skilríki. Farþegarnir,
sem líklega eru Kóreumenn, voru
í vörslu lögreglunnai’ á Keflavík-
urflugvelli í nótt og í morgun
átti að senda þá til sömu staða
og þeir komu frá í gær.
Þrír farþeganna komu um borð
í Flugleiðavél í Lúxemborg og einn
í Stokkhólmi. Við skoðun vegabréfa
þótti sýnt að þeir fyrstnefndu væru
með falsaðar vegabréfsáritanir og
sá síðasttaldi var með kanadískt
vegabréf sem þótti grunsamlegt.
HM í brids
Evrópuþjóð-
ir í úrslitin
NORÐMENN og Hollending-
ar eigast við í úrslitaleik
opna flokksins á heimsmeist-
aramótinu í brids og mun því
önnur þessara þjóða taka við
heimsmeistaratitlinum af Is-
lendingum. í kvennaflokki
spila Bandaríkin og Þýzka-
land til úrslita.
Undanúrslitaleikimir í opna
flokknum voru mjög spennandi
og jafnir og unnust báðir með
aðeins þriggja stiga mun. Norð-
menn unnu Brasilíumenn
208-205 og Hollendingar unnu
Bandaríkjamenn 202-199. Úr-
slitaleikirnir hefjast í dag og
lýkur þeim á föstudag.
Birkir
kaupandi
Flugleiða-
bréfanna
BIRKIR Baldvinsson, athafna-
maður í flugrekstri sem haft
hefur umsvif í Lúxemborg, er
samkvæmt áreiðanlegum heim-
ildum Morgunblaðsins, kaupandi
hlutabréfa I Flugleiðum sem seld
voru á mánudag.
Eins og skýrt var frá í Morgun-
blaðinu í gær keypti einn aðili hluta-
bréf að nafnvirði 33 milljónir króna
í félaginu á genginu 1,01. Um er
að ræða 1,6% af heildarhlutafé
Flugleiða. Birkir hefur ekki verið á
skrá yfir stærstu hluthafa í félag-
inu, en er orðinn einn af þeim
stærstu við þessi kaup.
Birkir gerði árið 1985 tilboð í
hlut ríkissjóðs í Flugleiðum, sem
var fimmtungur hlutaijár í félaginu.
í kjölfarið gerði Sigurður Helgason,
stjórnarformaður Flugleiða, tilboð í
bréfin fyrir hönd Flugleiða, sem
Albert Guðmundsson þáverandi
fjármálaráðherra gekk að.
♦ ♦ »
Boltaleikur í blíðviðri
Morgunblaðið/Golli
Aðstoð við Palestínu
Fullþátttaka
íslendinga
RÍKISSTJÓRNIN ákvað á fundi
sínum í gær að íslendingar
myndu „taka fullan þátt“.í sam-
eiginlegri áætlun Norðurland-
anna um aðstoð við væntanlega
sjálfstjórn Palestínumanna. Að-
stoðin verður innt af hendi á
tveimur til fjórum árum.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins gæti þetta þýtt að Is-
lendingar greiddu allt að 78 milljón-
ir króna af þeirri 870 milljóna fjár-
hagsaðstoð, sem utanríkisráðherrar
Norðurlanda hafa ákveðið að veita
Palestínumönnum.
Einnig gæti svo farið að aðstoðin
yrði veitt í öðru formi, til dæmis
með því að senda til Palestínuaraba
tækjabúnað eða starfslið til upp-
byggingar.
McDonald’s fellst á að ganga til samninga um kaup og kjör starfsfólks
Viðskiptaþrýstingur frá
Norðurlöndum um að semja
LYST hf., leyfishafi McDon-
ald’s-veitingahúsakeðjunnar á
íslandi, féllst í gær á að ganga
til samninga við Félag starfs-
fólks í veitingahúsum og Al-
þýðusamband Islands um kaup
í dag
Þyrlukaup
■
Ríkisstjórnin frestaði ákvörðun um
kaup á nýrri björgunarþyrlu 16
Noregur
Óspennandi kosningabarátta 20
Knattspyrna
ísland sigraði Lúxemborg í Evrópu-
keppni 21 árs og yngri 42
Leiðari
Landbúnaðurinn 22
egglÍfessisSES-SiSái jpgj IfÉs
CtíliUaingsvM'ðmæU ufurða W/ SsP
úi' loðnu tim 2,7 miiyaröai’ FISKIKER
)Rii- Onu
E7P ^ MWI
Úr verínu
► Útflutningsverðmæti loðnuaf-
urða um 2,7 miiyarðar - Tvílemb-
ingstrollið lofar góðu - Norðmenn
bíða eftir búraævintýri - Þorsk-
salan innanlands eykst
Myndasögur
► Drátthagi blýanturinn
Myndir ungra listamanna - Ljóð
- Brandarar - Myndasögur -
Skemmtilegar þrautir - Penna-
vinir - Leikhornið
og kjör starfsfólks fyrirtækis-
ins. Samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins var kominn upp
víðtækur viðskiptaþrýstingur
frá Norðurlöndum gagnvart
fyrirtækinu um að ganga til
samninga auk þess sem forráða-
menn fyrirtækisins töldu að út
frá viðskiptalegu sjónarmiði
myndi viðhöfnin við opnun veit-
ingastaðarins 10. september
hverfa í skuggann af deilunum
við verkalýðshreyfinguna.
Óvíst er hvort fyrirtækið mun
ganga að gildandi samningum FSV
eða hvort gerður verður sérstakur
kjarasamningur fyrir starfsfólk
McDonald’s en skv. heimildum
blaðsins eru allar líkur á að fyrir-
tækið muni fallast á að greiða í
sjúkrasjóði og orlofssjóði stéttarfé-
lagsins. Hins vegar er óljósara
hvort það muni samþykkja að inn-
heimta iðgjöld starfsmanna til
stéttarfélagsins.
Formenn landssambanda ASÍ
komu saman í gærmorgun vegna
deilunnar við forsvarsmenn
McDonald’s-veitingahússins og
sendu frá sér harðorða yfirlýsingu
vegna málsins. Var ákveðið að
kalla formenn aðildarfélaga ASÍ á
höfuðborgarsvæðinu til fundar kl.
13 í dag til að ræða hvort grípa
ætti til sérstakra aðgerða gegn
fyrirtækinu.
Hótun um að sniðganga veit-
ingastaðinn
Þá sendu verkalýðsfélög og önn-
ur launþegasamtök frá sér hörð
mótmæli í gær við þeim fyrirætlun-
um McDonald’s að sniðganga
verkalýðsfélög. Einnig sendi
Verkamannafélagið Hlíf frá sér
yfírlýsingu um að félagar þess
myndu sniðganga veitingastaði
McDonald’s meðan fyrirtækið neit-
aði að semja um kaup og kjör við
FSV. Síðdegis í gær náðist svo
samkomulag á milli Lystar hf.,
FSV og ASI um að ganga til samn-
inga um kaup og kjör starfsfólks
fyrirtækisins og hefst samninga-
fundurinn kl. 11 í dag.
Sjá miðopnu: „Deilt um
skyldu...
I